Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Bolfiskur í hrefnumögum

Bolfiskar ríkjandi í 28% hrefnumaga

Fyrstu niðurstöður úr rannsóknum Hafró

 Bolfiskar voru ríkjandi í 28% hrefnumaga samkvæmt þeim bráðabirgðaniðurstöðum sem lágu fyrir í rannsóknum Hafrannsóknastofnunarinnar í júní 2008. Í meirihluta tilfella var ekki unnt að greina bolfiska til tegundar á hafi úti en það er gert í rannsóknastofu með skoðun kvarna og beina. Þorskur var algengastur ”greinanlegra” bolfiska og var ríkjandi í 8% maga, en aðrar tegundir sem greindar hafa

verið eru ýsa, lýsa, ufsi, spærlingur og kolmunni. Samkvæmt þessum niðurstöðum voru loðna og síld ríkjandi í 10% maganna hvor tegund og tvær ljósátutegundir  voru  samanlagt ríkjandi í 10% maganna.

Þessar frumniðurstöður eru talsvert frábrugnar eldri rannsókn á fæðu hrefnu sem byggði á mjög takmörkuðum gögnum úr veiðum (fyrir 1986), hvalrekum og hjáveiðum. Þannig virðast síli ásamt þorski og öðrum bolfiskum mun mikilvægari hluti fæðu hrefnunnar og að sama skapi minna um ljósátu og loðnu í fæðunni en samkvæmt eldri rannsókn.

Talsverður breytileiki virðist í fæðu hrefnu eftir hafsvæðum við landið. Síli virðist vera yfirgnæfandi þáttur í fæðunni við Suðurland og í Faxaflóa. Fæðan var fjölbreyttari norðanlands á svæðinu frá Vestfjörðum til Austfjarða. Þar bar meira á þorski og öðrum bolfiski, loðnu og ljósátu. Svo virðist sem breytingar hafi orðið á fæðusamsetningunni á rannsóknatímabilinu (2003-2007) og hlutur sílis minnkað en hludeild síldar, þorskfiska og átu aukist.  

Sýnatökur í tengslum við átak í hrefnurannóknum hófst 15. ágúst – 30. september 2003 með veiðum á 37 hrefnum. Sýnatökum var haldið áfram 3. júní – 6. júlí 2004 með veiðum á 25 dýrum, 14. júlí – 17. ágúst 2005 með veiðum á 39 dýrum, 16. júní – 24. ágúst 2006 með veiðum á 60 dýrum og 27. apríl til 2. septembers 2007 með veiðum á 39 dýrum. Veiðum í tengslum við rannsóknirnar lauk þar með með veiðum á samtals 200 dýrum. Nákvæmar mælingar á líkamsbyggingu og spikþykkt hafa verið gerðar á hrefnunum og  um 80 rannsóknasýni hafa verið tekin úr hverju dýri. Þar að auki hafa verið gerðar nákvæmar meinafræðilegar krufningar á 27 dýrum.

Samhliða sýnatökum hefur verið unnið að rannsóknum á sýnum á ýmsum rannsóknastofnunum (Hafrannsóknastofnuninni, Matís, Iðntæknistofnun, Rannsóknastofnun HÍ í meinafræðum að Keldum, Landspítala Háskólasjúkrahúsi). Auk þess hafa verið tekin sýni fyrir erlenda vísindamenn. Fyrst um sinn verður lögð áhersla á þá rannsóknarþætti sem tengjast megintilgangi verkefnisins þ.e. fæðuvistfræði.
Enn sem komið er er eingöngu lokið við úrvinnslu hluta sýnanna. Endanleg framsetning og túlkun niðurstaðna er ekki tímabær fyrr en úrvinnslu sýna er lengra á veg komin og frumniðurstöður sem hér eru sýndar eingöngu til þess fallnar að gefa vísbendingar.

Fyrstu niðurstöður

www.hafro.is/hrefna/rannsoknir/framvinda.htm


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta