Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

16. September 2009 | ÚTVEGURINN

Ísland í 16. sæti yfir aflahæstu fiskiveiðiþjóðir heims 2006

Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. Kínverjar bera ægishjálm yfir aðrar fiskveiðiþjóðir hvað aflamagn varðar. Heildarafli þeirra árið 2006 var 17,4 milljónir tonna. Næstir á eftir þeim koma Perúmenn með 7 milljónir tonna.

Alls veiddu 32 ríki heims 500.000 tonn af fiski eða meira árið 2006. Heildarafli ársins var rétt um 92 milljónir tonna. Hlutdeild þessara 32 ríkja í alheimsaflanum var rúmlega 86%.

Af 92 milljóna tonna heildarafla heimsins kom 50,1 milljón tonna úr Kyrrahafinu eða 54,5%. Atlantshafið gaf 19,9 milljónir tonna eða 21,6% heimsaflans.  Afli úr innhöfum og vötnum nam 10,1 milljón tonna.  

Aflahæstu þjóðirnar árið 2006 voru þessar:

  1

Kína

17,4 millj. t

  2

Perú

  7,0 millj. t

  3

Bandaríkin

4,9 millj. t

  4

Indónesía

4,8 millj. t

  5

Chile

4,5 millj. t

  6

Japan

4,3 millj. t

  7

Indland

3,9 millj. t

  8

Rússland

3,3 millj. t

  9

Taíland

2,8 millj. t

10

Noregur

2,4 millj. t

16

Ísland

1,3 millj. t

     

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta