Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

19. Júní 2012 | ÚTVEGURINN

Vegna samþykktar laga um veiðigjöld

Landssamband íslenskra útvegsmanna harmar þá ákvörðun Alþingis að samþykkja lög sem munu þrefalda veiðigjöld á næsta fiskveiðiári.  Hækkunin mun hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir einstök fyrirtæki og byggðarlög, eins og bent hefur verið á í fjölmörgum umsögnum sem bárust atvinnuveganefnd.

Lögin eru haldin verulegum annmörkum og standast ekki þær kröfur sem gerðar eru í 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar um skýrleika skattlagningarheimilda. Samkvæmt lögunum verða útgerðir skattlagðar vegna hagnaðar óskyldra aðila sem stunda fiskvinnslu. Ljóst er að slík skattlagning stenst ekki skilgreiningar á skattlagningu auðlindarentu. Þá gengur skattheimtan of langt hvað varðar mörk skattlagningar og eignaupptöku og brýtur þannig gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Þegar veiðigjaldið verður komið að fullu til framkvæmda mun það nema meiru en öllum hagnaði útgerðarinnar. Engin önnur atvinnugrein þarf að standa undir viðlíka skattlagningu. Slík skattlagning skapar engin verðmæti fyrir þjóðarbúið heldur dregur úr getu fyrirtækja til verðmætasköpunar. Veiðigjaldið er komið langt frá hugmyndum um skattlagningu svonefndar auðlindarentu/umframhagnaðar í útgerð.

LÍÚ gerir alvarlegar athugasemdir við það óvandaða vinnulag sem viðhaft var við gerð frumvarps um veiðigjöld og afgreiðslu málsins á Alþingi. Frumvarpið var lagt fram fram án úttektar á áhrifum þess á einstök fyrirtæki, byggðarlög og samfélagið allt.

Atvinnuveganefnd Alþingis bárust yfir 70 neikvæðar umsagnir um frumvarpið. Umsagnirnar komu frá aðilum í sjávarútvegi, sveitarfélögum, verkalýðsfélögum, fjármálastofnunum, endurkoðendafyrirtækjum, lögmannsstofum og fleiri aðilum sem vöruðu sterklega við neikvæðum áhrifum þess. Á þessar athugasemdir var ekki hlustað.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta