Fréttir
8. Júní 2012 | ÚTVEGURINN
Nokkur aukning í þorski, veruleg minnkun í ýsu.
Hafrannsóknastofnunin kynnti í dag stofnmat og veiðiráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Bæði viðmiðunarstofn og hrygningarstofn þorsks fara enn stækkandi við hóflega sókn. Þyngd þorsks eftir aldri hefur farið vaxandi eftir lægð á síðasta áratug og hefur nú náð langtima meðalþyngd. Viðmiðunarstofn í upphafi árs er metinn 1070 þúsund tonn og hrygningarstofninn 419 þúsund tonn. Ef rétt reynist þá hefur hrygningarstofninn ekki verið stærri síðan árið 1964 og viðmiðunarstofninn ekki verið stærri síðan 1981. Á þeim tíma var veiðiálagið þó mun meira. Leyfilegur hámarksafli þorsks verður 196 þúsund tonn samkvæmt gildandi aflareglu, en er 177 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári.
Stofnunin leggur til verulega minnkun á ýsuafla enda fer stofninn hratt minnkandi vegna slakrar nýliðunar, en árgangar 2008 til 2011 eru allir taldir lélegir. Ráðlagður heildarafli er 32 þúsund tonn en fyrir yfirstandandi fiskveiðiár var ráðgjöfin 37 þúsund tonn en heildaraflinn ákveðinn 45 þúsund tonn.
Ráðgjöf um afla ufsa (49 þúsund tonn) og gullkarfa (45 þúsund tonn) er heldur hærri en í fyrra en þó aðeins lægri en leyfilegur heildarafli yfirstandandi árs í ufsa (52 þúsund tonn).
Veruleg aukning er lög til úr afla úr íslenskri sumargotssíld eða úr 45 þúsund tonnum í 67 þúsund tonn.
Gerð er tillaga um að mörkuð verði nýtingarstefna og settar aflareglur fyrir ýsu og ufsa.
Nánari upplýsingar um veiðiráðgjöfina og tillögur um veiðar á öðrum tegundum má finna hér.













