Fréttir
7. Júní 2012 | ÚTVEGURINN
Fjölmenni á samstöðufundi
Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ lagði áherslu á að vandað yrði til verka við gerð frumvarpanna og sagði ennfremur:
„Verði frumvörpin að lögum munu þau draga máttinn úr sjávarútveginum og rýra möguleika hans til fjárfestingar, þróunar og aukinnar verðmætasköpunar. Það mun koma niður á starfsfólki, fjölda fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi og sveitarfélögum um land allt. Síðast en ekki síst verða afleiðingarnar þær að lífskjör fólksins í landinu skerðast."
Á fundinum töluðu auk Adolfs Árni Bjarnason, formaður Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, Þorvaldur Garðarsson á Sæunni Sæmundsdóttur ÁR í Þorlákshöfn, Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags á Ólafsfirði og Arnar Hjaltalín, formaður Drífandi stéttarfélags í Vestmannaeyjum. Fundarstjóri var Bryndís Gunnlaugsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur.













