Fréttir
4. Júní 2012 | ÚTVEGURINN
Aðgerð útvegsmanna er lögmæt
Vegna fréttatilkynningar ASÍ, þar sem því er haldið fram að ákörðun útvegsmanna um að halda skipum sínum ekki til veiða í þessari viku sé ólögmæt, skal tekið fram að ekki er um vinnustöðvun (verkbann) að ræða. Þar af leiðir að fullyrðing um að um brot á 17. gr laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur á ekki við rök að styðjast.
Útvegsmenn skora á Alþýðusamband Íslands að standa með íslenskum sjávarútvegi og verja þannig og bæta kjör starfsfólks.













