Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

26. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN

Útflutningsverðmæti loðnuafurða áætlað um 30 milljarðar króna

Loðna_2011Mælingu á stofnstærð veiðistofns loðnu er lokið og leggur Hafrannsóknarstofnunin til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2011/2012 verði 760 þúsund tonn. Loðna mældist á stóru hafsvæði bæði djúpt og grunnt.  „Þetta eru mjög góðar fréttir í tvennum skilningi og þær bestu í langan tíma af loðnustofninum. Þetta eru jákvæðar fréttir fyrir þá sem veiða og vinna loðnu og einnig varðandi aðgengi þorsks og annarra nytjastofna að henni til fæðu, " sagði Friðrik J Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ aðspurður um þessa tillögu Hafrannsóknarstofnunarinnar. Hlutur Færeyja er 30.000 tonn og að teknu tilliti til erlendra skipa verður hlutur Íslands um 590 þúsund tonn. Útflutningsverðmæti loðnunnar er um 30 milljarðar króna.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta