Fréttir
25. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Hagur veiða og vinnslu árið 2010
- Góð afkoma árið 2010
Hagstofa Íslands hefur gefið út yfirlit yfir rekstur helstu greina sjávarútvegs árið 2010. Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns), sem hlutfall af heildartekjum nam 19,9% samanborið við 22,0% árið 2009.
Hagnaður botnfiskveiða nam 15,9% og botnfiskvinnslu um 15,3%. Afkoma uppsjávarveiða og bræðslu var mjög góður og nam 31%. Í þessum uppgjörstölum er miðað við svokallaða árgreiðsluaðferð Hagstofunnar og 6% ávöxtun.
Skuldir fyrirtækjanna minnka töluvert milli ára eða um 59,2 milljarða króna og nema um 500 milljörðum króna. Eigið fé í greininni meira en tvöfaldast á milli 2009 og 2010 og nemur um 59,0 milljörðum króna.
Bætta afkomu greinarinnar má m.a. rekja til þess að veiðar og vinnsla gengu vel fyrir sig árinu 2010. Afurðaverð á mörkuðum hefur haldist hátt og þá hefur gengi krónunnar lagað stöðu sjávarútvegsins, svo og annarra útflutningsatvinnuvega. Olíuverð hefur aftur á móti verið mjög hátt.
Yfirlitið má nálgast með því að smella á þessa slóð: Yfirlit Hagstofu













