Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

24. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN

Skýlaus réttur Íslands til makrílveiða

Skýlaus réttur Íslands til makrílveiða

Makríll í kösÍ stuttri aðsendri grein í Fréttablaðinu þann 20. ágúst sl. var því haldið fram að Ísland hefði ekki rétt til að veiða makríl innan íslenskrar lögsögu. Þetta er alrangt. Það er einmitt vegna þess að að makríllinn er innan íslenskrar lögsögu að réttur íslenskra skipa til veiðanna er skýlaus samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Greinarhöfundur talar um forréttindi þeirra sem fá að veiða makríl. Hann getur þess hins vegar hvergi að til þess að ná tökum á veiðum á makrílveiðum og -vinnslu hafa útgerðir uppsjávarskipa lagt hundruð milljóna króna í þróunarkostnað. Þessi fjárfesting er forsenda þeirrar veiðireynslu, sem ákvörðun um makrílkvóta Íslands grundvallast á. Með skynsamlegri stjórnun veiðanna, þar sem kvóta er nú úthlutað á skip, er talið að makrílafurðir geti á þessu ári geti skilað þjóðarbúinu um 15 milljörðum króna í útflutningstekjur.

Í greininni eru settar fram tölur um laun sjómanna skipa á makrílveiðum, sem eru víðs fjarri raunveruleikanum. Rétt er að halda því til haga að þetta eru sömu sjómennirnir og misstu drjúgan hluta tekna sinna þegar loðnuveiðar brugðust og sýking herjaði á íslenska síldarstofninn. Þegar rætt er um laun einstakra stétta þarf að gæta að því að horfa á heildarmyndina.

Makríllinn er deilistofn og um slíka stofna þarf að nást heildarsamkomulag á milli þeirra ríkja sem hafa rétt til veiða úr þeim. Fundur strandríkja um heildarstjórn makrílveiðanna árið 2011 hefur verið boðaður í haust. Samkomulag er á ábyrgð allra hlutaðeigandi ríkja.

Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta