Fréttir
11. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Segir dægurþras hindra vöxt og uppbyggingu atvinnulífs
„Auknar skattaálögur auk hugmynda um fyrningu aflaheimilda eru til umræðu, ásamt inngöngu í ESB og upptöku evru, á sama tíma og heimagerður vandi heldur nauðsynlegu fjármagni frá atvinnulífinu og kæfir það smám saman þannig að hvert á fætur öðru missa fyrirtækin samkeppnishæfi sitt, markaðshlutdeild og rekstrarhæfi. Til lengri tíma er þetta ávísun á dýpri og lengri kreppu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, í grein sem hann skrifar í morgun.
„Veik staða krónunnar hefur margfaldað útflutningsvirði íslenskra framleiðsluvara og bókanir fyrir þetta ár í ferðamannaþjónustu gefa vísbendingu um metár í uppsiglingu í þeim geira. Vöxtur og uppbygging ættu því að vera staðreynd í atvinnulífi Íslendinga í dag," skrifar Þorvaldur einnig og bætir við:
„Sem þátttakandi í atvinnulífinu hefi ég hins vegar, eins og aðrir, horft með forundran á óeiningu og sparðatíning um smávægilegustu mál í sölum Alþingis, á meðan skilyrði atvinnulífsins til að vinna þjóðina út úr vandanum hafa verið þrengd á alla lund ... Við getum ekki beðið eftir ályktunum og dægurþrasi Alþingis um málefni sem í sjálfu sér skipta ekki sköpum meðan bálið geisar. Tíma Alþingis virðist að þessu leyti illa varið og þjóðin horfir á með galopin augun."
Í niðurlagsorðum greinarinnar í Morgunblaðinu skrifar Þorvaldur Lúðvík: „Hér á landi eru flest skilyrði sem geta fleytt þjóðinni út úr vandanum. Okkar örsmáa og veika króna mun hjálpa okkur til að snúa vörn í sókn næstu misserin. Tími gefst til þess síðar að ræða framtíðarskipan gjaldeyrismála þjóðarinnar. Hið sterka lífeyrisskerfi er okkar burðarás og þess megnugt að taka til hendinni við endurreisnina. Síðast en ekki síst búum við svo vel að vera fremur ung þjóð og vel menntuð og höfum sýnt það áður að við getum staðið saman, um leið og holtaþokur dægurþrass, ágreinings og ásakana hætta að tæra sundur samfélagið."












