Fréttir
8. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Alaska fylgir fordæmi Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða
Alaska hefur ákveðið að feta í fótspor Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða. Stjórn markaðsstofnunar sjávarútvegsins í Alaska (The Alaska Seafood Marketing Institute) tilkynnti fyrir helgina að hún hefði falið óháðum, faggiltum aðila, Global Trust Certification Ltd., að votta fiskveiðistjórnunarkerfi ríkisins.
Global Trust hefur verið falið að annast uppsetningu vottunarkerfis fyrir ábyrgar veiðar Íslendinga, eftir kröfulýsingu Fiskifélags Íslands sem byggir á leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) eins og kom fram í fréttatilkynningu í síðustu viku. Vottun einstakra fiskistofna mun staðfesta ábyrgar fiskveiðar Íslendinga.
Í fréttatilkynningu frá stjórn markaðsstofnunar sjávarútvegsins í Alaska er frumkvæðis Íslands á þessu sviði sérstaklega getið. Þar segir að Ísland hafi nú þegar hafið undirbúning vottunar í samvinnu við Global Trust. Þar segir einnig að hér með hafi tveir þeirra aðila, sem eru í fararbroddi í heiminum á sviði ábyrgrar fiskveiðistjórnunar, ákveðið að leita eftir vottun á ábyrgri fiskveiðistjórn í samræmi við leiðbeiningar FAO.
Skipaður hefur verið starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki um ábyrgar veiðar Íslendinga. Áætlað er að vottun fyrstu fiskistofnanna verði lokið á þessu ári. Í Alaska er á hinn bóginn reiknað með að vottun fyrstu fiskistofnanna ljúki á næsta ári.













