Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Fréttir

5. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Dćmi um 14 brot sama strandveiđibáts á reglu um hámarksafla

 

ţorskur2Dæmi er um að sami strandveiðibáturinn hafi brotið regluna um 800 kílóa hámarksafla í hverri veiðiferð í 14 tilvikum síðasta sumar. Þetta má lesa úr úttekt Háskólaseturs Vestfjarða á framgangi og áhrifum strandveiðanna.  Í úttektinni er að finna töflu sem sýnir að tugir dæma eru um báta sem brutu þessa reglu fimm sinnum eða oftar á meðan veiðarnar stóðu yfir. 

Í samtali við Friðrik Friðriksson, lögfræðing LÍÚ, í frétt fyrr í vikunni kom fram að a.m.k. helmingur þeirra 554 báta sem stunduðu veiðarnar á síðasta sumri hafi brotið gegn ákvæðum reglugerðar um hámarksafla. Friðrik segir tölfræðigögn staðfesta það stjórnleysi sem einkennt hafi veiðarnar. Svör frá Fiskistofu undirstriki einnig það raunverulega úrræðaleysi sem eftirlitsaðilar stóðu frammi fyrir þegar kom að því að grípa til refsinga fyrir brot. 

„Í raun gat hvaða bátur sem er veitt eins og honum sýndist vegna skorts á lagalegum úrræðum til að svipta menn veiðileyfi, eins og gildir um önnur fiskiskip. Vinna við umsýslu vegna álagningar og eftirfylgni vegna strandveiðibátanna var álíka mikil og við öll önnur fiskiskip, enda þarf að gæta hvers og eins máls með sama hætti skv. stjórnsýslulögum, hvort sem um er að ræða 50 kg eða 500 kg," segir Friðrik.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta