Fréttir
1. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Kynning á vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga
Skipaður hefur verið sjö manna starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki sem staðfestir ábyrgar fiskveiðar Íslendinga. Hópurinn var skipaður á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Fiskifélag Íslands boðaði til þann 25. febrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskifélaginu fyrr í dag.
Undanfarið ár hefur Fiskifélagið gefið seljendum íslenskra sjávarafurða kost á að merkja vörur sínar með íslensku upprunamerki (Iceland Responsible Fisheries). Á vegum félagsins hefur nú verið undirbúin ný útgáfa merkisins, sem felur í sér vottun óháðs, faggilts aðila. Írsku vottunarstofunni Global Trust Certification Ltd. hefur verið falið að setja upp vottunarkerfi, byggt á tæknilegum kröfum sem Fiskifélagið hefur þróað. Kröfurnar eru samkvæmt leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Undirbúningur vottunar er langt kominn. Áætlað er að vottun fyrstu fiskistofnanna verði lokið á þessu ári. Verkefni starfshópsins er að undirbúa kynningu hins vottaða merkis á helstu mörkuðum íslensks sjávarfangs.












