Fréttir
28. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Ný skýrsla: Róttækar úrbætur strax eða sjávarútvegur í ESB líður undir lok
Verði ekki þegar í stað gripið til róttækra ráðstafana til þess að bæta úr ágöllum sameiginlegrar sjávarútvegssstefnu Evrópusambandsins kann svo að fara að sjávarútvegur í löndum sambandsins verði liðinn undir lok þegar kemur að næstu endurskoðun stefnunnar. Varað er við þessu í nýrri skýrslu sem lögð hefur verið fram á Evrópusambandsþinginu.
Í skýrslunni sem unnin var að frumkvæði fiskveiðinefndar ESB er lagt ofurkapp á að endurbótum, sem lagðar voru fram í svokallaðri Grænbók fyrir tæpu ári, verði lokið við upphaf næsta árs.
Skýrsluna má nálgast hér í heild.













