Fréttir
23. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin leggur auknar byrðar á landsbyggðina
„Ég er landsbyggðarmanneskja og stolt af því. Ég veit að u.þ.b. 90% af aflaheimildum Íslands eru utan höfuðborgarsvæðisins. Því segi ég að svokölluð fyrningaleið er bara ein leið til að leggja auknar byrðar á okkur sem búum á hér landsbyggðinni," sagði Rósa Guðmundsdóttir í ræðu sem hún flutti á fjölmennum baráttufundi um sjávarútveg í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fyrir helgina.
Rósa starfar sem verkstjóri í fiskvinnslu Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði. Hún varaði í ræðu sinni við hugmyndum um að setja hamlandi löggjöf á sjávarútveginn umfram aðrar atvinnugreinar. „Til að sjávarútvegur sem og öll önnur atvinnustarfsemi geti skipulagt rekstur og fjárfestingar sínar þarf að ríkja stöðugleiki og skýr stefna stjórnvalda. Núverandi umhverfi sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa skapað vegna hótana sinna er því ólíðandi," sagði Rósa.
Ræða Rósu er hér í heild.
Ræða Rósu á YouTube.












