Fréttir
22. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn"
„Nú boðar sitjandi ríkisstjórn grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða. Hin svokallaða fyrningarleið er hennar lausn og að sjálfsögðu er fyrningin sett fram í nafni réttlætis. Auðvitað vilja allir réttlæti! En þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn. Og réttlæti fyrir nokkra getur verið ranglæti fyrir marga," sagði Kristín Björk Gilsfjörð, sjómannskona á Hellissandi, í áhrifaríkri ræðu í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl. fimmtudag.
Mjög góður rómur var gerður að ræðu Kristínar Bjarkar á fundinum en hann sóttu um 300 manns. Hún sagði m.a. í ræðu sinni að deilunum um kvótakerfið væri haldið uppi af fólki sem kæmi hvergi nærri sjávarútvegi og hefði engan áhuga á að gera það. Kristín Björk kom einnig inn á umræðuna um fjárfestingar í sjávarútvegi í máli sínu:
„Útgerðin okkar hefur aldrei staðið í kvótabraski. Við höfum einungis leigt til okkar kvóta til þess að auka hagkvæmnina í rekstrinum. Við höfum líka lagt allt okkar undir og fjárfest í aflaheimildum með miklu eigin fé enda hefur útgerðin oft gefið vel af sér og haft svigrúm til fjárfestinga í aflaheimildum. En vegna galins vaxtastigs og hruns í efnahagslífinu þá eru þessar fjárfestingar okkur þungar núna. Ég er hins vegar sannfærð um að ef við fáum að halda áfram að sækja með óbreyttu sniði þá munum við sannarlega standa undir þessum lánum og halda sjó."
Undir lok ræðunnar sagði Kristín Björk: „Fyrningarleiðin er feigðarflan. Við sem í sjávarútvegi störfum getum ekki endalaust sætt þeim árásum sem atvinnugreinin verður fyrir. Við viljum fá frið til að sækja á miðin til að ná einhverjum krónum í kassann því það er það sem þessa þjóð vantar einmitt núna. Ég skora á þingmenn kjördæmisins að hafna fyrningarleiðinni. Hún er vanhugsuð og óábyrg. Hún er búin til af pólitískum ímyndarsmiðum sem þekkja ekkert til í sjávarútvegi. Þeir héldu að með óskilgreindri fyrningu aflaheimilda mætti skapa flokkunum stundar vinsældir og völd á kostnað sjávarbyggðanna. Við skulum sameinast gegn þeim óábyrgu áformum."
Ræðu Kristínar Bjarkar er hér í heild.
Ræða Kristínar Bjarkar á YouTube.












