Fréttir
8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fullt hús á Eskifirði á fundi um fyrningarleið
„Þetta var mjög vel sóttur, góður og málefnalegur fundur," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, um fund sem haldinn var síðdegis undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu! Fundarefnið var afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi og afnám sjómannaafsláttarins. Fullt hús var í Valhöll á Eskifirði eða um 140 manns þrátt fyrir að loðnuvertíð sé nú í fullum gangi þar eystra.
Að sögn Adolfs var góður rómur gerður að erindum frummælenda en þeir voru Eggert Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., Gunnþór Ingvason, formaður Útvegsmannafélags Austurlands, Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls starfsgreinafélags. Fundarstjóri var Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
Fundarboðendur voru Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð og Útvegsmannafélag Austurlands.












