Fréttir
8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Morgunverðarfundur LÍÚ: Fyrningarleið í sjávarútvegi?
Landssamband íslenskra útvegsmanna boðar til morgunverðarfundar á Grand Hótel nk. fimmtudag, 11. febrúar, kl. 8.00-9.30 undir yfirskriftinni: Fyrningarleið í sjávarútvegi? Á fundinum verða flutt þrjú erindi um áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin og þjóðhagsleg áhrif hennar. Fyrirlesarar eru þeir Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. á Sauðárkróki og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Fyrningarleið í sjávarútvegi?
Morgunverðarfundur á Grand Hótel fimmtudaginn 11. febrúar kl. 8.00-9.30
Úttekt Deloitte sýnir að verði aflaheimildir teknar af sjávarútvegsfyrirtækjunum á 20 árum leiðir það til gjaldþrots þeirra. Boðuð fyrningarleið stjórnvalda elur á óvissu og ógnar atvinnu og afkomu starfsfólks í sjávarútvegi, svo og þeirra þúsunda annarra sem byggja afkomu sína á þjónustu við atvinnugreinina.
Dagskrá:
1) Sjávarútvegsfyrirtækin lifa fyrningarleiðina ekki af
Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte
2) Áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf,. Sauðárkróki
3) Fyrningarleið - Þjóðhagsleg áhrif
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands
Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins












