Fréttir
5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Nýtt strandveiðifrumvarp: „Fullkomin vanvirða við sjómenn og útvegsmenn"
Aflaheimildir, sem ráðstafað verður til svokallaðra strandveiða í sumar, verða allt að 6000 tonn samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þetta er veruleg aukning frá veiðunum síðasta sumar. Strandveiðitímabilið verður jafnframt lengt um einn mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
„Uppistaða aflans í strandveiðunum er þorskur. Það er með ólíkindum að hægt sé að auka þær veiðiheimildir verulega á sama tíma og þær eru skornar niður innan aflamarkskerfisins," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. „Þetta frumvarp sjávarútvegsráðherra er fullkomin vanvirða við sjómenn og útvegsmenn sem hafa tekið á sig skerðingu aflaheimilda til þess að byggja upp fiskistofna."
Rúmlega 550 bátar stunduðu strandveiðar sl. sumar. Friðrik segir veiðarnar sóun á verðmætum vegna lakari gæða aflans og offjárfestingar í bátum og búnaði, sem engin þörf er fyrir. „Í flestum tilvikum var um að ræða aðila sem hafa selt frá sér aflaheimildir og dæmi eru um að starfsmenn banka og tryggingafélaga hafi stundað þessar veiðar og þannig tekið vinnu frá atvinnusjómönnum. Þessar veiðar eru ekkert annað en sóun, hvar sem á þær er litið."












