Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

2. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir"

 

Einar Valur_eldri mynd

„Þetta kemur mér auðvitað ekkert á óvart en eftir því sem dýpra er kafað  ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

Með ummælum sínum vísar Einar Valur til svars sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnssonar á Alþingi nú nýverið. Þar kom fram að einungis 17% strandveiðiaflans hafi verið landað í heimahöfn. Allur aflinn sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar og var landað á Ísafirði, var seldur beint til aðila utan löndunarhafnar.

„Yfirlýst markmið með þessum veiðum var að auka atvinnu og nýliðun. Ég tel augljóst að markmið þessara veiða hafi engan veginn náðst. Ég bíð svo spenntur eftir því að sjá hverju strandveiðarnar skiluðu í skatttekjum til sveitarfélaganna. Það hlýtur líka að verða kannað," segir Einar Valur.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta