Fréttir
29. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á þorski um 7% og lækkar verð á ýsu um 5%. Ufsi var hækkaður um 6%.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna 29. febrúar 2012 var ákveðið að lækka verð um 7% á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 5%. Þá var verð slægðum og óslægðum ufsa hækkað um 6%. Verð þetta gildir frá og með 1. mars 2012.
27. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Samfylking út og suður.
Samfylkingin vill að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnuvegur okkar Íslendinga og því ríður á að við stundum sjálbærar og arðbærar fiskveiðar. Til að tryggja það höfum við kvótakerfið sem hefur yfirburði yfir aðrar aðferðir við stjórn fiskveiða. Hluti Samfylkingarinnar vill brjóta kvótakerfið niður.
Sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins hefur almennt ekki gefið góða raun, flestir fiskistofnar eru ofveiddir og afkoma almennt óviðunandi þótt undantekningar séu þar á.
21. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti yfir 143 milljarða króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011. Hefur aukist um 14,7% milli ára.
Samkvæmt nýjustu samantekt Hagstofu Íslands nam aflaverðmæti íslenskra skipa 143 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011 samanborið við tæpa 125 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14,7% á milli ára.
15. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 14,1% milli ára.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 14,1% milli ára á síðasta ári og nam um 251,6 milljörðum króna. Eins og áður er útflutningsverðmæti þorsks langmest eða um 77,2 milljarðar króna. Það er um 31% af heildarútflutningi sjávarafurða á árinu 2011. Þar næst koma uppsjávartegundir eins og makríll og síld.
14. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Makríll skilaði næst mestum útflutningsverðmætum 2011
Makríllinn skilaði næst mestum útflutningsverðmætum einstakra fisktegunda á árinu 2011, aðeins þorskurinn skilaði þjóðarbúinu meiri verðmætum í fyrra. Þetta kemur m.a. fram í grein sem Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, skrifar í Morgunblaðið í morgun. Í greininni vekur Friðrik athygli á því hversu miklir hagsmunir séu í húfi fyrir Íslendinga í þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir við Evrópusambandið og Noreg um skiptingu veiðiheimilda úr makrílstofninum en þar hefur hlutur Íslands verið 16-17% af heildarveiði. Greinin fer í heild hér á eftir.
8. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Í átt til sjálfbærra fiskveiða á heimsvísu
- Ný skýrsla varðar veginn.
Síðastliðinn föstudag var kynnt skýrsla um sjálfbærar fiskveiðar unnin af International Sustainability Unit (ISU), sem starfar á vegum Karls Bretaprins.
Undanfarin tvö ár hefur ISU látið vinna rannsóknir og unnið með fjölda stofnana og samtaka til að auka skilning á sjálfbærni og þoli fæðukerfa. Skýrslan fjallar um þann samhljóm sem er að myndast um lausnir varðandi sjálfbærni og aukna fæðuframleiðslu úr hafinu.
8. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Nýtt skip til Síldarvinnslunnar hf.
Nýtt glæsilegt skip hefur bæst í íslenska fiskiskipaflotann með kaupum Síldarvinnslunar hf. á norska fjölveiðiskipinu Torbas frá Noregi og mun þetta skip hljóta nafnið Börkur NK. Skipið er smíðað í Noregi árið 2000. Það er vel útbúið til bæði troll- og nótaveiða og ber um 1850 tonn af afla upp úr sjó. Skipið mun leysa eldra skip af hólmi, sem borið hefur sama nafn.
2. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Vanvirðing forsætisráðherra- embættisins og stjórn fiskveiða
„Það er ósamboðið embætti forsætisráðherra hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefur með uppnefnum og dónaskap vegið að fólki í sjávarútvegi. Fólki sem hefur ekkert annað gert en að fara að lögum sem hún sjálf átt þátt í að setja. Það var ekki mikil reisn yfir málflutningi forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar í ræðu á flokksstjórnarfundi um helgina. Ræðan var skýr vísbending um að tilgangurinn helgi meðalið," segir Friðrik J. Arngrímson, framkvæmdastjóri LÍÚ.













