Fréttir
19. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Vinnum saman að lausn
16. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Hamingjuóskir
Það var hátíð í Vestmannaeyjum í gær þegar Heimaey VE-1, nýtt og glæsilegt skip Ísfélags Vestmannaeyja, sigldi til heimahafnar að viðstöddu fjölmenni. Skipið er allt hið glæsilegasta og er með besta búnaði sem völ er á bæði hvað varðar orkunýtingu og meðferð aflans. Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar starfsmönnum Ísfélags Vestmannaeyja sem og landsmönnum öllum til hamingju með glæsilegt skip.
11. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Kjaraviðræður útvegsmanna og sjómanna teknar upp að nýju
11. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
"Þetta á ekki að vera styrjöld"
„Þetta á ekki að vera styrjöld í mínum huga, við eigum að reyna að ná málefnalega góðri niðurstöðu." Þetta voru lokaorð Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegsráðherra í opnuviðtali í Fréttablaðinu 4. maí sl. Í stað þess að fjalla faglega um nýjustu úttekt á frumvörpum sjávarútvegsráðherrans og ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða og veiðigjöld, sem nú kom frá sérfræðinefnd sem atvinnuveganefnd Alþingis fékk til verksins, var ráðherranum strokið með silkihönskum af fréttamanninum. Tilefnið til að spyrja ráðherrann gagnrýnna spurninga var þó ærið. Nýjasta álitið bættist í safn fjölmargra faglegra úttekta á frumvörpunum sem hafa dæmt þau ónothæf.
10. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Skynsamlegast að setja frumvörpin um sjávarútvegsmál á ís
„Ég tel farsælast að þingmenn taki sér rýmri tíma til að fara yfir frumvörpin, enda vara nánast allir mjög ákveðið við hrikalegum afleiðingum þeirra," segir Halldór Halldórsson fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar í samtali við bb.is um frumvörp ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum.„Sjávarútvegurinn er burðarás atvinnulífsins víðast hvar á landsbyggðinni og því verður að vanda vel til verka þegar stórvægilegar breytingar eru boðaðar. Í stað þess að keyra málið áfram á lokaspretti þinghaldsins, hlýtur að vera skynsamlegast að fara gaumgæfilega yfir allar umsagnir í sumar og afgreiða ný lög næsta haust. Það er allt of mikið í húfi, umsagnirnar tala sínu máli."
9. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
„Hvað höfum við gert ykkur?"
4. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Sammála Steingrími
„Ég er alveg sammála Steingrími um að þetta eigi ekki að vera styrjöld. En þá hlýtur hann að vilja draga frumvörpin til baka og setjast niður með þeim sem best þekkja til í greininni til að reyna að leysa málið. Það er það sem ítrekað hefur verið óskað eftir, án árangurs," segir Adolf Guðmundsson formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna um viðtal við Steingrím J. Sigfússon sem birtist í Fréttablaðinu í morgun undir yfirskriftinni „Þetta á ekki að vera styrjöld."
2. Maí 2012 | ÚTVEGURINN
Tap Landsbankans þurkar út nettó skatttekjur ríkissjóðs af frumvörpunum
Í Vegvísi Landsbankans varðandi breytingar á lögum um stjórn fiskveiða og veiðigjöld segir:
„Áætlað tap Landsbankans, sem er að mestu í eigu ríkisins, vegna breytinga í frumvörpunum nemur um 31 milljarði króna. Setja má það tap í samhengi við þær skatttekjur sem frumvarpinu er ætlað að skapa. Í frumvarpinu um veiðigjöld kemur fram að áætlaðar skatttekjur á árinum 2012 - 2014 eru 36,3 milljarðar..... Nettó áhrifin á ríkissjóð á næstu þremur árum yrðu því jákvæð um 5 milljarða ef einungis er tekið tillit til taps Landsbankans. Vænt tap vegna frumvarpanna er einungis metið útfrá beinu tapi vegna minni greiðslugetu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja en tekur ekki tillit til þess áfalls sem að ýmis önnur fyrirtæki og starfsemi, hvers tekjustreymi er háð gengi íslensk sjávarútvegs, verður fyrir. Vænt tap Landsbankans verði frumvörpin óbreytt að lögum kann því að verða nokkuð meira."
26. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Greiðsluþrot Snæfellsbæjar verði frumvörpin samþykkt
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fékk endurskoðunarfyrirtækið Deloitte til að skoða afleiðingar frumvarpsins fyrir Snæfellsbæ. Þar kom í ljós að fyrirtækin í bænum myndu greiða 817 milljónir króna á ári, en árið 2010 var gjaldið 154 milljónir. Árið 2010 var útsvar Snæfellsbæjar 625 milljónir. Miðað við íbúatölu í Snæfellsbæ yrði veiðigjaldið 473 þúsund krónur á hvern íbúa. Tapaðar útsvarsetkjur myndu svo þýða greiðsluþrot Snæfellsbæjar á skömmum tíma að því er fram kemur í Skessuhorni.
26. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
537 sjómenn mótmæla frumvörpum sjávarútvegsráðherra
537 sjómenn hafa skrifað undir mótmæli gegn frumvörpum um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í tilkynningu frá þeim segir að þeir mótmæli þeirri grímulausu aðför að kjörum sínum sem við blasir í þeim frumvörpum sem fram eru komin um breytingar á stjórn fiskveiða.
Þar segir orðrétt: „Við sem stöndum að þessari yfirlýsingu skorum á alþingismenn að taka ábyrga afstöðu með tilliti til þeirra hörmulegu afleiðinga sem frumvörpin kæmu til með að hafa á afkomu sjómannastéttarinnar og þar með þjóðfélagsins í heild. Framtíðin er í húfi."
24. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Frumvörpin verði dregin til baka
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslustöðva og Samtök atvinnulífsins hafa sent atvinnuveganefnd Alþingis sameiginlega umsögn um frumvörp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða og veiðigjöld. Með umsögninni fylgir álitsgerð LEX lögmannsstofu og endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte.
Samtökin eru í öllum aðalatriðum ósammála efni frumvarpanna og leggja til að þau nái ekki fram að ganga.
23. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
„Meiriháttar högg fyrir samfélagið"
„Höfuðborgarsvæið naut góðs af hagvextinum fyrir fall bankanna. Þess hagvaxtar gætti hins vegar ekki á landsbyggðinni. Nú þegar horfir til betri vegar á landsbyggðinni vilja ráðamenn landsins gera hagvöxtinn þar upptækan! Gjaldið mun draga úr lífsgæðum og hagvexti í Eyjum. Þetta eru fjármunir sem eiga að stuðla að fjárfestingu og styrkingu útgerðar og vinnslu, ekki til gæluverkefna stjórnmálamanna."
19. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Löggjöfin er vond fyrir Eyjafjörð
Atvinnuþróunnarfélag Eyjafjarðar hélt fund fyrir fullu húsi í Sjallanum á Akureyri í gærkvöld, um áhrif lagafrumvarpa um veiðigjöld og stjórn fiskveiða á svæðið. Skemmst er frá því að segja að frumvörpin fengu falleinkun allra þeirra sem til máls tóku á fundinum. Meðal frummælenda á fundinum voru Svanfríður Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík, Ólafur Marteinsson hjá Ramma, Ólöf Ýr Lárusdóttur forstjóri Vélfangs í Fjallabyggð og Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, sem var fundarstjóri.
18. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
„Versta byggðaaðgerð sögunnar"
„Við þá sem halda því fram að hér kalli hver í kapp við annan „úlfur úlfur" segi ég: Kynnið ykkur málin betur hjá samfélögunum allt í kringum landið, lesið útreikninga sveitarfélaga, óháðra úttektaraðila og endurskoðendafyrirtækja. Þær niðurstöður eru ekki keyptar. En þær niðurstöður ættu að vera stjórnvöldum varnaðarorð og koma í veg fyrir að tekin verði ákvörðun um að fara í einhverja verstu byggðaaðgerð sögunnar," sagði Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar um frumvörp Steingríms J. Sigfússonar á opnum fundi viðskipta- og hagfræðinga á Grand Hóteli í hádeginu.
18. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Höfundar frumvarpanna þekkja ekki rekstur sjávarútvegsfyrirtækja
„Ef þessi áform um veiðigjald ná fram að ganga munu margar útgerðir geispa golunni, þetta er tómt rugl. Gjaldið bitnar líklega harðast í einyrkjum og minni fyrirtækjum í greininni, flest fyrirtæki hérna fyrir vestan þola örugglega ekki svona gríðarlega skattlagningu eins og lagt er til. Mörg þeirra eru ákaflega skuldsett, eftir að hafa keypt veiðiheimildir og fjárfest i vinnslutækni. Þær skuldir hafa hækkað mikið eftir hrun, þannig að reksturinn er víðast hvar í járnum," segir Guðjón Indriðason framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði í viðtali við bb.is.
17. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
„Þarf að fara miklu betur yfir þetta"
„Stærsti gallin á útreikningum frumvarpsins er að ekki er tilgreindur kostnaður vegna viðhalds fastafjármuna. Það er eins og frumvarpið geri ekki ráð fyrir að greinin þurfi að kaup ný skip, tæki og tól", segir Örvar Guðni Arnarson, fjármálastjóri Ísfélags Vestmannaeyja í viðtali við Fréttir nýverið. „Það er ekki nóg að stroka út villurnar, það þarf að fara miklu betur yfir þetta. Það hlýtur að vera sanngjörn beiðni að vandað verði til og haft samráð við útgerðina þegar kemur að útreikningi á auðlindarentunni," segir Örvar Guðni.
12. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Jákvæðar fréttir af þorski, gullkarfa og fleiri tegundum
Bráðabirgðaniðurstöður úr togararalli Hafrannsóknastofnunarinnar sýna mikla hækkun á stofnvísitölu þorsks, sem hækkar nú fimmta árið í röð. Þá hefur þyngd þorsks eftir aldri farið vaxandi og er það rakið til meira magns loðnu á slóðinni. Þá bendir fyrsta mat á 2011 árgangi þorsks til þess að hann sé meðal stærstu árganga frá 1985. Rétt er að hafa í huga að talsverð óvissa fylgir stofnvísitölu af þessu tagi. Þannig er nú mikil óvissa um fjölda 35-60 cm fiska og heildaróvissa í stofnvísitölu er nú meiri en áður.
11. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Bolungarvík: Hálf milljón á hvern íbúa til ríkisins
3. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
„Verðmætasköpun er gleymda orðið í umræðunni"
2. Apríl 2012 | ÚTVEGURINN
Er framtíðarlausnin ríkisvæðing sjávarútvegsins?
31. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Kaupmáttur heillar þjóðar skertur
„Það skýtur skökku við að á sama tíma og forsvarsmenn ríkissjórnarinnar tala um nauðsyn þess að styrkja gengi krónunnar er ráðist í aðgerðir sem grafa undan sjávarútvegnum, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Óhagkvæmari sjávarútvegur veikir gengi krónunnar og grefur undan kaupmætti heimilanna í landinu," segir Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna.
30. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Mest aukning í útflutningi sjávarafurða
Útflutningur sjávarafurða fyrstu tvo mánuði ársins á stærstan þátt í þeirri aukningu sem orðið hefur á verðmæti vöruútflutnings miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofunnar. Útflutningur nam 101,5 milljörðum króna í janúar og febrúar í ár og jókst um 13 milljarða, eða 14,7 prósent. Vöruskipti við útlönd voru hagstæð sem nam 22,8 milljörðum króna, 5,9 milljörðum hagstæðari en í fyrra.
29. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld og útvegsmenn skoði í sameiningu áhrif frumvarpsins
28. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Bitnar ekki bara á sjávarútvegsfyrirtækjunum
„Fyrirtækið breytist strax úr því að vera vel rekið félag með góða framlegð og viðunandi hagnað í félag sem ekki ræður við að greiða afborganir lána að fullu," segir Ólafur Marteinsson í Ramma í Morgunblaðinu í morgun. „Þess má geta að Rammi er ekki óhóflega skuldsett félag. Rekstrartekjur þess námu 6,8 milljörðum árið 2010. Framlegðin var 30%. Verði þetta að lögum lækkar framlegðin um 860 milljónir."
27. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Ekki rétt hjá Steingrími
Í þeim umræðum sem nú fara í hönd um nýtt frumvarp sjávarútvgegsráðherra er mikilvægt að hafa staðreyndir á hreinu. Í Morgunblaðinu í morgun segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, að það sé fjarri lagi ríkið taki meira en 70% af hagnaði sjávarútvegsins með frumvarpi til laga um veiðigjald. Hann segir jafnframt að 70 prósentin sé endaprósentan þegar allir frádráttarliðir af stofni sérstaka veiðigjaldsins eru frádregnir.
26. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Ríkið tekur yfir 70% af hagnaði útgerðar og fiskvinnslu
Stór og smá sjávarútvegsfyrirtæki víðsvegar um landið hafa með hagræðingu, kaupum á aflaheimildum og stóraukinni tæknivæðingu á sl. 20 árum breytt íslenskum sjávarútvegi í arðbæra atvinnugrein sem skilar umtalsverðum tekjum í þjóðarbúið. Í nýju frumvarpi er horfið frá kröfum um hagkvæman sjávarútveg, aflaheimildir gerðar upptækar til pólitískrar endurúthlutunnar og ofurskattar lagðir á greinina.
22. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Gríðarleg skattahækkun ef rétt reynist
Fréttastofa RÚV greindi frá því í gærkvöld að nýtt frumvarp sjávarútvegsráðherra gerði ráð fyrir því að áfram yrði stuðst við aflamarkskerfið við stjórnun fiskveiða. Greint var frá því að samkvæmt heimildum væru uppi hugmyndir um þreföldun veiðigjalds, úr 13,3% í allt að 40%. Þá væri gert ráð fyrir að stór hluti aflaheimilda verði tekinn af útgerðarmönnum og þeim úthlutað í leigu- eða byggðapotta.
20. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti eykst um 20 milljarða milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 153 milljörðum króna á árinu 2011 samanborið við tæpa 133 milljarða á árinu 2010. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Aflaverðmæti hefur því aukist um 20,3 milljarða króna eða 15,3% á milli ára. Skýringin á þessu er fyrst og fremst verðmætaaukning vegna makríl og loðnu.
15. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Hráolíuverð rýkur upp
Verð á hráolíu heldur áfram að hækka á mörkuðum. Fatið af UK Brent var komið í 120 dollara í febrúar mánuði. Ýmsar ástæður eru tíundaðar fyrir þessari miklu hækkun. Ástaðndið fyrir botni Miðjarðarhafsins, kuldakast í Evrópu, vaxandi eftirspurn í Asíu og Kína svo eitthvað sé nefnt. Augljóslega hefur svo mikil hækkun áhrif á allt efnahagslífið og dregur úr hagvexti. Olían er annar stærsti kostnaðarliður í rekstri fiskiskipa og jafn mikil hækkun olíuverðs segir fljótt til sín í rekstrinum.
15. Mars 2012 | ÚTVEGURINN
Nýr starfsmaður á skrifstofu LÍÚ
Hlynur Sigðursson hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýsinga- og kynningasviðs LÍÚ, en Hlynur hefur undanfarin ár starfað sem fréttastjóri Mbl Sjónvarps. Hlynur er með próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Copenhagen Business School. Áður en Hlynur hóf störf hjá MBL Sjónvarpi var hann markaðs- og kynningarstjóri hjá Latabæ.
29. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á þorski um 7% og lækkar verð á ýsu um 5%. Ufsi var hækkaður um 6%.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna 29. febrúar 2012 var ákveðið að lækka verð um 7% á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 5%. Þá var verð slægðum og óslægðum ufsa hækkað um 6%. Verð þetta gildir frá og með 1. mars 2012.
27. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Samfylking út og suður.
Samfylkingin vill að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Sjávarútvegurinn er undirstöðuatvinnuvegur okkar Íslendinga og því ríður á að við stundum sjálbærar og arðbærar fiskveiðar. Til að tryggja það höfum við kvótakerfið sem hefur yfirburði yfir aðrar aðferðir við stjórn fiskveiða. Hluti Samfylkingarinnar vill brjóta kvótakerfið niður.
Sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins hefur almennt ekki gefið góða raun, flestir fiskistofnar eru ofveiddir og afkoma almennt óviðunandi þótt undantekningar séu þar á.
21. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti yfir 143 milljarða króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011. Hefur aukist um 14,7% milli ára.
Samkvæmt nýjustu samantekt Hagstofu Íslands nam aflaverðmæti íslenskra skipa 143 milljörðum króna fyrstu 11 mánuði ársins 2011 samanborið við tæpa 125 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14,7% á milli ára.
15. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 14,1% milli ára.
Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 14,1% milli ára á síðasta ári og nam um 251,6 milljörðum króna. Eins og áður er útflutningsverðmæti þorsks langmest eða um 77,2 milljarðar króna. Það er um 31% af heildarútflutningi sjávarafurða á árinu 2011. Þar næst koma uppsjávartegundir eins og makríll og síld.
14. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Makríll skilaði næst mestum útflutningsverðmætum 2011
Makríllinn skilaði næst mestum útflutningsverðmætum einstakra fisktegunda á árinu 2011, aðeins þorskurinn skilaði þjóðarbúinu meiri verðmætum í fyrra. Þetta kemur m.a. fram í grein sem Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, skrifar í Morgunblaðið í morgun. Í greininni vekur Friðrik athygli á því hversu miklir hagsmunir séu í húfi fyrir Íslendinga í þeim samningaviðræðum sem nú standa yfir við Evrópusambandið og Noreg um skiptingu veiðiheimilda úr makrílstofninum en þar hefur hlutur Íslands verið 16-17% af heildarveiði. Greinin fer í heild hér á eftir.
8. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Í átt til sjálfbærra fiskveiða á heimsvísu
- Ný skýrsla varðar veginn.
Síðastliðinn föstudag var kynnt skýrsla um sjálfbærar fiskveiðar unnin af International Sustainability Unit (ISU), sem starfar á vegum Karls Bretaprins.
Undanfarin tvö ár hefur ISU látið vinna rannsóknir og unnið með fjölda stofnana og samtaka til að auka skilning á sjálfbærni og þoli fæðukerfa. Skýrslan fjallar um þann samhljóm sem er að myndast um lausnir varðandi sjálfbærni og aukna fæðuframleiðslu úr hafinu.
8. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Nýtt skip til Síldarvinnslunnar hf.
Nýtt glæsilegt skip hefur bæst í íslenska fiskiskipaflotann með kaupum Síldarvinnslunar hf. á norska fjölveiðiskipinu Torbas frá Noregi og mun þetta skip hljóta nafnið Börkur NK. Skipið er smíðað í Noregi árið 2000. Það er vel útbúið til bæði troll- og nótaveiða og ber um 1850 tonn af afla upp úr sjó. Skipið mun leysa eldra skip af hólmi, sem borið hefur sama nafn.
2. Febrúar 2012 | ÚTVEGURINN
Vanvirðing forsætisráðherra- embættisins og stjórn fiskveiða
„Það er ósamboðið embætti forsætisráðherra hvernig Jóhanna Sigurðardóttir hefur með uppnefnum og dónaskap vegið að fólki í sjávarútvegi. Fólki sem hefur ekkert annað gert en að fara að lögum sem hún sjálf átt þátt í að setja. Það var ekki mikil reisn yfir málflutningi forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar í ræðu á flokksstjórnarfundi um helgina. Ræðan var skýr vísbending um að tilgangurinn helgi meðalið," segir Friðrik J. Arngrímson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
26. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti loðnuafurða áætlað um 30 milljarðar króna
Mælingu á stofnstærð veiðistofns loðnu er lokið og leggur Hafrannsóknarstofnunin til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2011/2012 verði 760 þúsund tonn. Loðna mældist á stóru hafsvæði bæði djúpt og grunnt.
25. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Hagur veiða og vinnslu árið 2010
- Góð afkoma árið 2010
Hagstofa Íslands hefur gefið út yfirlit yfir rekstur helstu greina sjávarútvegs árið 2010. Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA), sem hlutfall af heildartekjum nam 19,9% samanborið við 22,0% árið 2009.
19. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið: Afskriftir til sjávarútvegsfyrirtækja 2,4% af heildarafskriftum fjármálakerfisins
Afskriftir skulda fimm sjávarútvegsfyrirtækja námu tæplega 13 milljörðum króna eða um 2,4% af 548 milljarða króna afskriftum skulda 52 fyrirtækja samkvæmt samantekt sem birt er á vefsíðu Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. Þar eru teknar saman upplýsingar um heildarafskriftir innan fjármálakerfisins til og með 30. september 2011.
11. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Stórfellt svindl Skota við makrílveiðar
Miklum makríl- og síldarafla af fjölda skipa landað framhjá vigt.
Fjórir skipstjórar hafa játað fyrir yfirrétti í Edinborg að hafa veitt rangar upplýsingar um landaðan afla að verðmæti 8 milljónir sterlingspunda (jafnvirði um 1,5 milljarða íslenskra króna). Áður höfðu 17 aðrir og tvö fiskvinnslufyrirtæki verið sakfelld fyrir sambærileg brot. Frá þessu er sagt á vefnum www.fishupdate.com .
5. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á þorski um 3% og hækkar verð á ýsu um 3% og karfa um 5%
2. Janúar 2012 | ÚTVEGURINN
Veiðar á Alaskaufsa vottaðar eftir ströngustu kröfum
Alaskamenn hafa hlotið vottun óháðs vottunaraðila á stjórnun veiða á Alaskaufsa samkvæmt ströngustu FAO-ISO kröfum um ábyrga fiskveiðistjórnun. Hér er um að ræða vottun byggða á sama grunni og vottun á stjórn þorskveiða Íslendinga í desember 2010 byggir á. Frá þessu er sagt í frétt á vefnum www.fis.com.













