Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

29. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Rangfærslur forsætisráðherra og forseta ASÍ um sjávarútvegsmál

LÍÚ logoVegna ræðu forsætisráðherra á fundi flokksstjórnar Samfylkingarinnar í dag, rangfærslna forseta ASÍ og ályktunar miðstjórnar ASÍ um tengsl sjávarútvegsmála og kjarasamninga vill LÍÚ taka eftirfarandi fram:

  • LÍÚ hefur aldrei efast um forræði íslenska ríkisins á fiskveiðiauðlindinni og rétt ríkisins til að setja reglur um stjórn fiskveiða á grundvelli fullveldisréttar þess. Samningar um tímabundin afnot útgerða af aflahlutdeild gegn gjaldi, undirstrikar þetta forræði. Á sama hátt eiga íslenskar útgerðir stjórnarskrárvarinn rétt til afnota að aflahlutdeild sinni.

28. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Nettóskuldir sjávarútvegs 450 milljarðar í árslok 2009

TölugrafíkNettóskuldir sjávarútvegsins, þ.e. skuldir að frádregnum veltufjármunum, voru 15 milljörðum króna lægri í árslok 2009 en þær voru í árslok 2008. Þær námu alls 450,5 milljörðum króna í árslok 2009 en voru 465,5 milljarðar árið á undan. Þetta kemur fram í riti Hagstofu Íslands, Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2009, sem er komið út.

27. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Bæjarráð Grindavíkur: Ríkisstjórnin hefji vinnu við útfærslu sáttar á grunni samningaleiðar

Grindavíkurbær_lógó„Bæjarráð Grindavíkur skorar á ríkisstjórnina að eyða sem fyrst þeirri óþolandi óvissu sem nú ríkir um stjórnun fiskveiða og hefja nú þegar vinnu við útfærslu sáttar á grunni samningaleiðar um aflahlutdeildarkerfi." Svo segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á fundi ráðsins í gær.

25. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

68% kjósenda Samfylkingarinnar fylgjandi samningaleið í sjávarútvegi

Samningaleiðin jan 2011

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR eru 68% kjósenda Samfylkingarinnar fylgjandi svokallaðri samningaleið í sjávarútvegi. Þá mælist fylgið við samningaleiðina 75,2% á meðal kjósenda VG. Þetta kemur fram í niðurstöðum  könnunar sem MMR vann fyrir LÍÚ dagana 11. -14. janúar sl.

24. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Hafró leggur til 125 þús. tonna viðbótarkvóta í loðnu

lodnaHafrannsóknastofnuninn leggur til að loðnukvótinn á yfirstandandi vertíð verði aukinn um 125 þúsund tonn eða úr 200 þúsund í 325 þúsund tonn. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á mælingum undanfarnar tvær vikur sýna að alls mældust 720 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Fyrri mælingar gáfu til kynna að veiðistofninn væri 600 þúsund tonn. Nánar í frétt frá Hafrannsóknastofnuninni.

20. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmætið 112 milljarðar fyrstu 10 mánuði síðasta árs

Brim-BrimnesAflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 96 milljarða á sama tímabili árið 2009. Verðmætið hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16,5% á milli ára.

19. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. fagnar 70 ára afmæli

HG_höfuðstöðvarHraðfrystihúsið - Gunnvör hf. fagnar í dag 70 ára afmæli. Hraðfrystihúsið hf. var formlega stofnað í Hnífsdal þann 19. janúar 1941. Fjórtán árum síðar, 1955, var Gunnvör hf. stofnað en þessi fyrirtæki sameinuðust fyrir rúmum áratug undir heitinu Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. 

18. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Mál Ramma hf. gegn ríkinu: Úrskurður héraðsdóms kærður til Hæstaréttar

RækjaHéraðsdómur Reykjavíkur vísaði í morgun frá dómi kröfu útgerðarfyrirtækisins Ramma hf. gegn íslenska ríkinu um ógildingu þeirrar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á yfirstandandi fiskveiðiári. Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður, sem rekur málið fyrir Ramma hf., segir niðurstöðu héraðsdóms verða kærða til Hæstaréttar. Málið snúist um að láta reyna efnislega á ákvörðun ráðherra. Sérkennileg niðurstaða væri ef slíkt væri ekki hægt þegar um er að ræða stjórnvaldsákvörðun. Úrskurð héraðsdóms má lesa hér.

13. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Barist gegn brottkasti innan ESB: Rúm hálf milljón hefur skrifað undir áskorun

Brottkast í UKRúm hálf milljón manns hefur nú skrifað undir áskorun  breska matreiðslumannsins Hugh Fearnley-Whittingstall til fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, Maria Damanaki, um að brottkast á fiski verði þegar í stað bannað innan Evrópusambandsins.

13. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Desemberaflinn 8% minni í tonnum talið en í sama mánuði árið áður

Ýsa úr trollpokaHeildarafli íslenskra skipa nam 53.369 tonnum í desember. Það rétt tæplega 8% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 57.958 tonn.  Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 8,2% minni í nóvember en árið áður. Árið 2010 dróst aflinn saman um 8,0% miðað við árið 2009, sé hann metinn á föstu verði.

12. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Þunginn eykst í baráttunni gegn brottkasti innan ESB

Brottkast í UKSjónvarpsþættir á sjónvarpsstöðinni Channel 4 í Bretlandi, þar sem þekktir matreiðslumenn á borð við Jamie Oliver og Hugh Fearnley-Whittingstall berjast opinskátt gegn brottkasti á fiski innan ESB, hafa vakið athygli þar í landi. Sjónvarpsmyndir úr veiðiferð, þar sem Fearnley-Whittingstall er um borð ásamt myndatökumanni og fylgist með brottkasti skipverja, segja meira en mörg orð.

11. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Áhöfn Júlíusar prýðir vegg veitingastaðar í Englandi

Júlíus Geirmundsson_posterStrákarnir í áhöfn Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 eiga orðið fríðan flokk aðdáenda utan landsteinanna. Myndir af þeim hanga nú uppi á vegg og blasa við viðskiptavinum Fish‘n‘Chicken á einum veitingastað fyrirtækisins í Englandi og þykja mikil prýði. Greint er frá þessu á vefsíðu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf.

10. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Mikil verðmætaaukning afurða HB Granda á milli ára

Höfrungur IIIHeildarverðmæti afla uppsjávarskipa HB Granda jókst um 28,3% á milli áranna 2009 og 2010 þrátt fyrir að afli drægist saman um 8%. Alls nam afli uppsjávarveiðiskipa fyrirtækisins tæplega 96.400 tonnum á síðasta ári og aflaverðmætið nam rúmlega 3,4 milljörðum króna. Svipaða sögu er að segja af togurum fyrirtækisins. Þar nam aukning aflaverðmætis 21,5% á milli áranna 2009 og 2010 þótt aflaaukning væri aðeins rúm 8%.

7. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti skipa Ramma tæpir 4,6 milljarðar í fyrra

Mánaberg_flottAflaverðmæti skipa Ramma hf. á nýliðnu ári nam alls tæplega 4,6 milljörðum króna. Rammi gerir út fimm skip sem veiddu alls 14.408 tonn á nýliðnu ári. Aflahæsta skipið, Mánaberg ÓF 42, skilaði 1786 milljóna króna verðmæti en aflaverðmæti Sigurbjargar ÓF 1 var 1600 milljónir. Nánar á vefsíðu fyrirtækisins.

6. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Traust og trúverðugleiki

Fridrik-litilJón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra samdi svokallað skötuselsfrumvarp haustið 2009. Þar lagði hann til heimild sér til handa til að ákveða sölu ríkisins á aflaheimildum í skötusel umfram veiðiráðgjöf og framhjá aflahlutdeild. 

6. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd: Karfi hækkar um 5%, ufsi lækkar um 5%

karfahol, forsÁ fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. janúar 2011.

5. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti fyrstu níu mánuðina í fyrra 101 milljarður

Makríll í kösAflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta