Fréttir
30. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
„Sönnun þess að makríllinn er hér allt árið um kring"
„Bæði þorskurinn og ufsinn sem hafa komið í net á Selvogsbankanum og víðar veit ég hafa verið fullir af smámakríl og síld í nóvember og desember. Þetta er í mínum huga óræk sönnun þess að makríllinn er hérna allt árið um kring og er að alast hér upp," segir Hannes Sigurðsson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Hafnarnes VER í Þorlákshöfn.
29. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Samherji hf. fær Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2011
Samherji hf. hlaut Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2011 sem veitt voru við formlega athöfn fyrr í dag. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri fyrirtækisins, veittu verðlaununum viðtöku úr hendi Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra.
27. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Styrkir ESB til sjávarútvegsfyrirtækja námu helmingi aflaverðmætis árið 2009
Niðurgreiðslur til sjávarútvegsfyrirtækja eru hvergi meiri í heiminum en í Evrópusambandinu, Japan og Kína. ESB styrkti sjávarútveg aðildarríkjanna um sem svarar 530 milljörðum íslenskra króna á árinu 2009. Það er um helmingur alls aflaverðmætis aðildarríkjanna. Þetta kemur fram í skýrslu Oceana-samtakanna sem kynnt var fyrir nokkru og var m.a. er greint frá í FiskeribladetFiskaren fyrr í þessum mánuði.
21. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Síldveiðar á Breiðafirði
Undanfarna daga hafa birst fréttir af dauðri síld á Breiðafirði. Af því tilefni hafa útgerðir síldarskipa fundað og farið yfir þær upplýsingar sem fyrir liggja. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að fram hafi komið að á vissum stöðum séu aðstæður til veiðanna erfiðar, þar sem þær séu stundaðar á mjög grunnu vatni. Botnlag sé misjafnt og straumar sterkir sem hafi óhjákvæmilega leitt til þess að nætur hafi rifnað og síld sloppið út jafnvel þó að ítrustu varúðar hafi verið gætt.
20. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Gríðarleg áhrif 27% veiðigjalds á sjávarbyggðir
Gangi áform stjórnvalda eftir um 27% veiðigjald af vergri framlegð (EBITDA) fiskiskipaflotans munu útgerðir í Vestmannaeyjum greiða 1.245 milljónir króna á ári m.v. fyrirliggjandi forsendur á þessu fiskveiðiári. Þetta má leiða út úr svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar alþingismanns.
16. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Efla þarf áhuga ungs fólks á sjávarútvegi
Sjávarútveginn á að flokka sem þekkingariðnað og efla þarf áhuga ungs fólks á atvinnugreininni. Þetta kemur fram í viðtali við Hreiðar Þór Valtýsson forstöðumann Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar við Háskólann á Akureyri, Bjarna Eiríksson og Jón Inga Björnsson sjávarútvegsfræðinga í blaðinu Vestfirskur sjávarútvegur sem nýlega kom út á vegum Útvegsmannafélags Vestfjarða og var dreift í hvert hús þar vestra.
14. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Aflinn í nóvember 24% meiri í tonnum talið en 2010
Heildarafli íslenskra fiskiskipa nam 103.973 tonnum í nóvember. Það er tæplega 24% meiri afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 83.953 tonn. Skýringin liggur einkum í meiri uppsjávarafla á milli ára en botnfiskafli jókst einnig talsvert. Metinn á föstu verði var aflinn 17,8% meiri en í nóvember í fyrra.
9. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Hverjum dytti í hug að endurskoða grunnskólakerfið án alls samráðs?
„Því miður ákvað ríkisstjórnin að hafa ekkert samráð við greinina sjálfa. Hverjum dytti í hug að stokka upp grunnskólakerfið á þess að hafa samráð við kennara, foreldra og fleiri? Ekki nokkrum heilvita manni," segir Einar Valur Kristjánsson, formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða, í viðtali í blaði sem félagið gaf nýverið út í samvinnu við Bæjarins Besta á Isafirði og dreift var í hvert hús á Vestfjörðum.
8. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
(H)æf ríkisstjórn?
Frá myndun núverandi ríkisstjórnar, þegar íslenskum sjávarútvegi var hótað að aflaheimildir útgerðanna yrðu gerðar upptækar og boðnar upp samkvæmt svokallaðri fyrningarleið, hefur hvert ruglið rekið annað. Síðastliðið vor sat forsætisráðherrann við að semja frumvarp til nýrra laga um stjórn fiskveiða ásamt fleiri ráðherrum og þingmönnum. Þrátt fyrir að öllum væri ljóst hversu slæmar afleiðingar lögleiðing þess hefði á sjávarútveginn hótaði forsætisráðherrann sumarþingi til að keyra málið í gegn á Alþingi. Sem betur fer komst hún ekki upp með það ætlunarverk sitt.
7. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Samherji hf. greiðir starfsfólki sínu í landi 300 þúsund króna launauppbót
Samherji hf. greiðir starfsfólki sínu í landi 300 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 64 þúsund króna desemberuppbót. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
6. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Ísfélag Vestmannaeyja fagnar 110 ára afmæli
Elsta hlutafélag landsins og jafnframt elsta sjávarútvegsfyrirtækið, Ísfélag Vestmannaeyja, fagnaði því í síðustu viku að 110 ár eru liðin frá því að fyrirtækið var stofnað. Ísfélagið, sem var stofnað 1. desember 1901, er í dag á meðal öflugustu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja landsins og gerir út sex skip. Auk umfangsmikillar starfsemi í Vestmannaeyjum er fyrirtækið með talsverða starfsemi á Þórshöfn á Langanesi. Starfsmenn í báðum starfsstöðvum gerðu sér glaðan dag í tilefni tímamótanna.
6. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Uppspuni ráðherra um auglýsingaherferð LÍÚ gegn sér
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hélt því ranglega fram í þættinum Silfur Egils í ríkissjónvarpinu á sunnudag að LÍÚ hefði lagt sig í einelti og efnt til auglýsingaherferðar gegn sér í kjölfar ræðu sem hann flutti á ársfundi ASÍ í október 2009.
2. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Hugmyndir um 4% hlut Íslands í makrílveiðunum fráleitar
„Hugmyndir um 4% hlut Íslands í makrílveiðum eru fráleitar og ekki í neinu samræmi við kröfur okkar um réttmæta hlutdeild úr makrílstofninum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Í yfirlýsingu hagsmunaaðila í sjávarútvegi í Noregi og ESB, sem birt er á vef norskra útvegsmanna, segir að þeir sætti sig við að Ísland fái í mesta lagi 4% heildaraflans í sinn hlut. Undanfarin ár hefur Ísland hlutur Íslands í heildarveiðinni verið 16-17%.
2. Desember 2011 | ÚTVEGURINN
Greinin í Fréttablaðinu forstjóra Landsvirkjunar óviðkomandi
Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að aðsend grein, sem birtist í Fréttablaðinu í morgun og fjallaði m.a. um LÍÚ, er Herði Arnarsyni forstjóra Landsvirkjunar með öllu óviðkomandi. Mistök urðu til þess að hann var skráður meðhöfundur greinarinnar.
29. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
„Skattlagning á himinhátt olíuverð"
„Olíukaup eru næst stærsti útgjaldaliður útgerðarinnar á eftir launum og hann hefur hækkað mikið á undanförnum árum. Olíuverð í sögulegu hámarki felur í sér alla hvata til þess að útgerðir geri það sem raunhæft er til að spara olíu. Kolefnisskattur er því einungis skattlagning á himinhátt olíuverð," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um hækkun á kolefnisskatti sem lagður er til í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
27. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
„Of stuttur samningstími og yfirvofandi ofurskattlagning"
Of stuttur samningstími, ekki nægjanlega skýr ákvæði um framlengingu samningstíma, tillögur um að allt of stór hluti aflaheimilda verði tekinn framhjá aflahlutdeild til pólitískrar úthlutunar og yfirvofandi ofurskattlagning með lamandi áhrifum á sjávarútvegsfyrirtæki. Þetta eru á meðal þeirra atriða sem Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, gagnrýnir í drögum nýs frumvarps til laga um beytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
21. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Makrílveiðar
„Í grein um makrílveiðar í Fréttablaðinu þann 17. nóvember sl. skrifar Kristinn H. Gunnarsson m.a.: „Framkvæmdastjóri LÍÚ heldur því fram í grein í Fréttablaðinu að umtalsvert tap sé á veiðunum og þess vegna sé ekkert eftir til ríkisins."
Þetta er ósatt.
Í stuttri grein í Fréttablaðinu þann 4. nóvember sl. útskýrði ég með dæmi að óraunhæfar hugmyndir um 9 milljarða auðlindaskatt, eða 58 kr/kg, á makrílveiðar hefðu þýtt að mikið tap hefði orðið á makrílveiðum frystitogara síðasta sumar." Svo skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, m.a. í grein sem birtist í Fréttablaðinu og Útveginum í morgun. Greinin fer hér í heild.
15. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Heildarafli íslenskra fiskiskipa í október 77 þús. tonn
Heildarafli íslenskra skipa nam 77.063 tonnum í október. Það er rúmlega 8% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 83.870 tonn. Skýringin liggur fyrst og fremst í minni uppsjávarafla á milli ára. Metinn á föstu verði var aflinn 4,7% minni en í október í fyrra.
14. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Hlutfall sjávarútvegsfyrirtækja í afskriftum Landsbankans 7,6%
Landsbankinn hafði í lok september fært niður skuldir fyrirtækja um 390 milljarða króna. Í erindi Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, á aðalfundi LÍÚ fyrir skömmu kom fram að hlutfallslega hefði bankinn fært niður einna minnst af lánum sjávarútvegsfyrirtækja eða 29,7 milljarða króna. Þetta er um 7,6% af heildarafskriftum bankans til fyrirtækja.
4. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Að borga með sér við makrílveiðar
Sértækur auðlindaskattur á makrílveiðar, sem hugmyndir hafa komið fram um nýverið, er hærri en sem nemur framlegð útgerða af veiðunum. „Að sjálfsögðu yrði ekkert eftir handa eigendunum. Þannig jafnast þessar hugmyndir á við það að ríkið hirði ekki bara öll laun launþegans heldur gott betur. Þó að það sé gaman í vinnunni og að stunda makrílveiðar þá er í hvorugu tilfellinu vænlegt að borga með sér," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, m.a. í grein í Útveginum. Greinin fer í heild hér á eftir.
3. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til 40 þúsund tonna aflamark í sumargotssíld
Vegna áframhaldandi óvissu um stærð stofns íslensku sumargotssíldarinnar hefur Hafrannsóknastofnunin ákveðið að leggja til að heildaraflamark fari ekki yfir 40 þúsund tonn á komandi vertíð og að veiðar verði aðeins leyfðar við vestanvert landið. Hrygningarstofninn er nú metinn 260 þúsund tonn, sem er ívið meira en gert var ráð fyrir í stofnmati sl. vor. Um 37% stofnsins er enn sýkt af Ichtyophonus sem upp kom haustið 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni i dag.
2. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Formaður LÍÚ: Forsætisráðherra fór með rangt mál
Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja vegna fjárfestinga í ótengdum rekstri voru um 11% af heildarskuldum þeirra þegar hlutfallið reist hæst árið 2007. Þetta kom fram í erindi sem Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, flutti á aðalfundi LÍÚ í síðustu viku. Forsætisráðherra hélt því fram í sjónvarpi fyrr í haust að allt að helmingur veðsetningar sjávarútvegsfyrirtækja væri vegna fjárfestinga í því sem ráðherra nefndi „óskylda starfsemi."
1. Nóvember 2011 | ÚTVEGURINN
Er það hagur einhverra að viðhalda ósætti í sjávarútvegi?
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., velti því upp í erindi sem hann flutti á aðalfundi LÍÚ fyrir helgina hvort verið gæti að einhverjir hefðu beinlínis hag af því að viðhalda ósætti um málefni sjávarútvegsins. „Hvað verður um pólitíkusa sem berjast gegn kvótakerfinu ef það næst sátt?" spurði Eggert.
31. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ufsa um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 10%. Þá var verð á karfa lækkað um 5%. Verð þetta gildir frá og með 1. nóvember 2011.
28. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Stjórnkerfi fiskveiða byggi áfram á aflamarkskerfinu
„Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 27. og 28. október 2011, skorar á stjórnvöld að ganga nú þegar til samstarfs við útvegsmenn um framtíðarskipulag fiskveiðistjórnunar á Íslandi. Mikilvægt er að festa komist á varðandi starfsskilyrði sjávarútvegsins í stað þeirrar óvissu sem nú ríkir. Til að hámarka afrakstur þjóðarinnar af nýtingu fiskistofnanna verður að tryggja þá langtímahugsun sem hefur skilað íslenskum sjávarútvegi í fremstu röð. Það verður best gert með því að byggja stjórn fiskveiða áfram á aflamarkskerfinu."
28. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Boðskapur fjárlagafrumvarpsins er að ríkið hirði allan hagnað útgerðarinnar
Áform ríkisstjórnarinnar um að hækka auðlindagjald í 27%, samkvæmt frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2012, jafngildir því að ríkið fari að skattleggja 116% hagnaðar útgerðarfyrirtækjanna að jafnaði, sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í erindi á aðalfundi LÍÚ í dag. Hann hefur metið áhrif boðaðrar hækkunar auðlindagjalds á sjávarútvegsfyrirtækin í ljósi upplýsinga úr ársreikningum stórs hluta þeirra og gagna frá Hagstofu Íslands um hag fiskveiða.
27. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Neikvæð áhrif á sjóðstreymi yrðu 320 milljarðar króna
Samþykkt frumvarpa stjórnvalda um breytingar á stjórn fiskveiða myndi leiða til 320 milljarða króna neikvæðra áhrifa á sjóðstreymi sjávarútvegsfyrirtækja á 15 ára tímabili. Þannig færi sjóðsstreymi fyrirtækjanna úr því að vera jákvætt um 150 milljarða í það að verða neikvætt um 170 milljarða króna samkvæmt úttekt endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Þetta kom fram í ræðu Adolfs Guðmundssonar, formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna, á aðalfundi sambandsins í dag.
21. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Tveggja milljarða bein innspýting í íslenskt hagkerfi frá erlendum fyrirtækjum í eigu Samherja
Íslenskt hagkerfi hefur á þessu ári notið tveggja milljarða innspýtingar frá erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum í eigu Samherja. Þau hafa gert samninga við íslensk iðnfyrirtæki fyrir um 900 milljónnir króna, keypt vörur og þjónustu fyrir hundruð milljóna króna auk þess sem áætlaður virðisauki af hráefni sem þau hafa flutt inn til landsins til vinnslu nemi um 650 milljónum króna. Samherji hefur á þessu ári flutt inn tífalt meira magn af fiski til vinnslu en fyrirtækið hefur selt úr landi í heilu til vinnslu.
18. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Samkomulag um veiðar á norsk-íslenskri síld 2012 á fundi strandríkja
Samkomulag náðist um stjórnun veiða á norsk-íslenskri síld og skiptingu veiðiheimilda milli ríkja fyrir árið 2012 á fundi strandríkja sem fór fram í London dagana 13.-14. október sl. um veiðar næsta árs. Heimilt verður að veiða 833 þúsund tonn árið 2012 en í hlut Íslands koma 120.868 tonn. Þetta er í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES.
13. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Heildarafli íslenskra fiskiskipa í september tæp 106 þús. tonn
Heildarafli íslenskra skipa nam 105.755 tonnum í september. Það er tæplega 28% meiri afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 93.764 tonn. Skýringin liggur fyrst og fremst í meiri uppsjávarafla á milli ára. Metinn á föstu verði var aflinn 0,8% meiri en í september í fyrra.
12. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Samið um kolmunnaveiðar á næsta ári
Samkomulag náðist á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr kolmunnastofninum í London í vikunni að heildarafli úr á næsta ári verði 391.000 tonn. Um að ræða töluverða aukningu frá þessu ári þegar heildaraflinn var ákveðinn 40.100 tonn. Þetta er í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknastofnunarinnar, ICES.
7. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Svipað magn makríls í íslenskri lögsögu og í fyrra en hærra hlutfall heildar
Rúmlega 1,1 milljón tonna af makríl mældist innan íslensku efnahagslögsögunnar í sameiginlegum leiðangri Íslendinga, Færeyinga og Norðmanna sem farinn var í sumar. Í heild mældust 2,7 milljónir tonna af makríl á rannsóknarsvæðinu og voru því 42% innan ísensku lögsögunnar.
6. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Óskynsamleg og varhugaverð uppstokkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu
Greiningardeild Arionbanka telur óskynsamlegt og varhugavert að ráðast í jafnmikla uppstokkun á fiskveiðistjórnunarkerfinu og lagt er til í fyrirliggjandi frumvarpi um stjórn fiskveiða. Þetta kemur fram í skýrslu um íslenskan sjávarútveg sem deildin kynnti í morgun
4. Október 2011 | ÚTVEGURINN
Aflamark í kolmunna 2012 tæplega tífalt meira en í ár
Tæplega 69.000 tonn af kolmunna koma í hlut Íslands á næsta ári ef farið verður að ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, og áfram stuðst við þá aflareglu sem beitt hefur verið á undanförnum árum. Þetta er tæplega tíföldun á aflamarki Íslands frá þessu ári.
30. September 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verði á þorski og karfa
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og með 1. október 2011.
30. September 2011 | ÚTVEGURINN
Ráðgjöf ICES: Veruleg aukning í kolmunna, óbreytt í makríl en samdráttur í síld
Alþjóðahafrannsóknaráðið, ICES, leggur til umtalsvert aukna veiði á kolmunna á árinu 2012, nánast óbreytta veiði á makríl en 15% minni veiði úr norsk-íslenska síldarstofninum en á þessu ári. Þetta kemur fram í ráðgjöf stofnunarinnar sem sem birt var í dag.
28. September 2011 | ÚTVEGURINN
Hagsýni hefur einkennt rekstur Stálskipa
„Þessi viðurkenning kom mér vissulega á óvart en það er ánægjulegt að þau sem fylgjast vel með í greinninni þekki til okkar hér í Hafnarfirði," segir Guðrún Lárusdóttir framkvæmdastjóri Stálskipa en hún hlaut verðlaun Íslensku sjávarútvegssýningarinnar fyrir framúrskarandi framlag til íslensks sjávarútvegs. Fyrirtækið var stofnað árið 1970 og gerir í dag út frystitogarann Þór HF 4.
27. September 2011 | ÚTVEGURINN
Samningaleiðin verði höfð að leiðarljósi við breytingar á fiskveiðistjórninni
„Aðalfundur Útvegsmannafélags Vestfjarða skorar á ríkisstjórnina að draga til baka frumvarp til laga um breytingar á stjórn fiskveiða, sem lagt var fram á Alþingi í vor." Svo segir í upphafi ályktunar sem samþykkt var á aðalfundi félagsins fyrr í dag. Ályktunin fer hér í heild:
27. September 2011 | ÚTVEGURINN
Skoðanakannanapólitík
Í meira en tvö ár hafa stjórnarflokkarnir haldið íslenskum sjávarútvegi í greipum óvissu og uppnáms. Við myndun ríkisstjórnarinnar var skrifað í stjórnarsáttmála hennar að umbylta skyldi lögum um stjórn fiskveiða með algjörlega óraunhæfum hætti. Þrátt fyrir að öllum sem vilja sjá sé ljóst hversu hugmyndir stjórnarflokkanna eru skaðlegar hefur sífellt verið vaðið lengra út í fenið.
26. September 2011 | ÚTVEGURINN
Hundruð starfa sköpuðust fljótt ef óvissunni yrði eytt
„Rekstur sjávarútvegsfyrirtækjanna gengur almennt vel og því ættum við að vera að fjárfesta af krafti með tilheyrandi margfeldisáhrifum á hagkerfið. Þess í stað hefur ríkisstjórnin komið málum þannig að fjöldi fólks gengur um atvinnulaust. Ef óvissunni um sjávarútveginn yrði eytt þá myndu fljótt skapast hundruð starfa í fjölda atvinnugreina. Það er auðvelt að ryðja þessari hindrun úr vegi," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í lok erindins síns á hádegisverðarfundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Yfirskrift fundarins var „Ryðjum hindrunum úr vegi - atvinnulíf í uppnámi."
23. September 2011 | ÚTVEGURINN
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2011
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru veitt í fimmta sinn í gærkvöld við hátíðlega athöfn. Alls voru veitt sautján verðlaun, en þau eru veitt þeim sem þykja hafa skarað framúr í fiskveiðum og sjávarútvegi bæði á Íslandi og erlendis. Verðlaunin eru veitt í tengslum við Íslensku sjávarútvegssýninguna sem nú stendur yfir.
22. September 2011 | ÚTVEGURINN
Íslenska sjávarútvegssýningin hefst í dag
tækninýjungum og framförum. Ég byrja líklega fyrst á því að skoða básana sem eru með fiskvinnsluvélar og þar á eftir reyni ég að kynna mér nýjungar í dýptarmælum og fjarskiptabúnaði,“ segir Garðar Ólason útgerðarmaður í Grímsey sem rekur fyrirtækið Sigurbjörn fiskverkun.
22. September 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti eykst um 1,3 milljarða króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 69,7 milljörðum króna á fyrri helming ársins samanborið við 68,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands sem voru birtar í gær. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæplega 1,3 milljarða króna eða 1,9% á milli ára.
21. September 2011 | ÚTVEGURINN
Hækkun veiðigjalds skaðar sjávarútveginn
Sigurgeir B. Kristgeirsson framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum flutti framsögu á fundi í
Valhöll í Reykjavík í gær um sjávarútvegsmál. „Reikningar sjávarútvegsfyrirtækja sýna að reksturinn er heilbrigður, greinin þolir hins vegar ekki hækkun veiðigjalds eins og ríkisstjórnin hefur boðað. Stjórnendur fyrirtækjanna bregðast eðlilega við skattheimtunni með niðurskurði í rekstrinum. Í stað þess að byggja upp greinina verður starfsfólki sagt upp störfum og dregið úr öllum fjárfestingum. Fyrirtækin munu ekki leggja fjármuni í arðbær verkefni eins og markaðssókn, stoðfyrirtæki sjávarútvegsins og svo framvegis.“
19. September 2011 | ÚTVEGURINN
Afskriftir fjármálakerfisins sýna að sjávarútvegurinn er vel rekinn
Heildarafskriftir í fjármálakerfinu á síðustu 5 árum voru samtals 517,7 milljarðar króna, skv. svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Einars K. Guðfinnssonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. „Þessar tölur eru athyglisverðar þegar einstakar atvinnugreinar eru skoðaðar sérstaklega. Á síðsutu tveimur árum námu afskriftir vegna skulda í sjávarútvegi 10,5 milljörðum króna, en á sama tímabili voru afskriftir vegna fasteignafélaga og fasteignaviðskipta 34,5 milljarðar, 25,3 milljarðar vegna byggingastarfsemi og hátt í 30 milljarðar vegna verslunar.
16. September 2011 | ÚTVEGURINN
Gagnrýni á strandveiðar á fullan rétt á sér
15. September 2011 | ÚTVEGURINN
Langtímahugsun nauðsynleg í sjávarútvegi
„Eftir að ríkisstjórnin kynnti áform sín um upptöku veiðiheimilda hafa stjórnendur 
íslenskra útgerðarfyrirtækja því miður ekki getað gert áætlanir til langs tíma. Þeirra áætlanir ganga í staðinn út á að þrauka og bíða eftir endanlegri niðurstöðu stjórnvalda.“ Þetta segir Gunnar Hauksson sölustjóri Héðins en hann hefur í langan tíma fylgst náið með uppbyggingu sjávarútvegsfyrirtækja. Héðinn hefur meðal annars með höndum sérhæfða þjónustu og viðgerðir á vélbúnaði fiskiskipa, smíði fiskimjölsverksmiðja og búnaðar til þeirra.
14. September 2011 | ÚTVEGURINN
Staðan erfið fyrir sveitarfélögin og íbúana
„Ef framtíð sjávarútvegsfyrirtækja skýrist ekki mjög fljótlega, verður án efa erfitt fyrir flest sveitarfélög að gera raunhæfa fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, það segir sig sjálft. Tekjur sveitarfélaga á landsbyggðinni vegna sjávarútvegs skipta gríðarlega miklu máli, þannig að sú óvissa sem nú ríkir er á margan hátt óþægileg fyrir sveitarfélögin og síðast en ekki síst íbúa þeirra.“
12. September 2011 | ÚTVEGURINN
„Skynsamlegast er að halda kerfinu að mestu óbreyttu“
„Þessi hörðu viðbrögð sem litið hafa dagsins ljós að undanförnu
við stóra kvótafrumvarpinu svokallaða koma mér ekkert sérstaklega á óvart enda eru allar umsagnir nánast á sama veg, varað er við neikvæðum afleiðingum þess,“ segir Stefán B. Gunnlaugsson lektor við Háskólann á Akureyri.
8. September 2011 | ÚTVEGURINN
Upphafskvóti í loðnu 181 þúsund tonn
Upphafkvóti í loðnu á komandi vertíð verður 181.269 tonn. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að um sé að ræða upphafsheimild sem sé nokkru fyrr á ferðinni nú en síðasta vetur, þar sem ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir komandi vertíð hafi legið fyrir síðan í júní.
7. September 2011 | ÚTVEGURINN
Makríllinn enn í Breiðafirði
Vaðandi makríltorfur sjást enn í Breiðafirði að sögn Guðmundar Smára Guðmundssonar, framkvæmdastjóra G.Run hf. Tveggja ára sonarsonur hans fór með afa sínum að veiða í gær og fékk á krókinn feitan makríl, sem vó heil 900 grömm. Algengast er að makríllinn sé 300 til 600 grömm að sögn Guðmundar Smára.
31. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Sveitarfélög mótmæla nýju kvótafrumvarpi í umsögnum sínum
„Eins og fram hefur komið og færð eru rök fyrir í þessu erindi mun frumvarpið í þeirri mynd sem það liggur fyrir hafa veruleg neikvæð áhrif á atvinnulífið á svæðinu, tekjur sveitarfélagsins og samfélagið í Fjarðabyggð." Svo segir m.a. í umsögn bæjarráðs Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða, sem sent hefur verið sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis.
29. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Virðing Alþingis
Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða að lögum er það niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að afskrifa 180 milljarða vegna keyptra aflaheimilda. Við það minnkar eigið fé fyrirtækjanna samsvarandi og verður í mörgum tilvikum neikvætt.
25. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
„Virðingarleysi formanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar fyrir lögum"
Verði frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða að lögum er það niðurstaða áfangaskýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að afskrifa 180 milljarða vegna keyptra aflaheimilda. Við það minnkar eigið fé fyrirtækjanna samsvarandi og verður í mörgum tilvikum neikvætt. Í fréttum ríkisútvarpsins í gær kallaði formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, Lilja Rafney Magnúsdóttir þetta „einhverjar bókhaldsbrellur til eða frá." Framkvæmdastjóri LÍÚ segir þessi ummæli óábyrg og bera vott um virðingarleysi fyrir lögum og reglum.
24. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Stangast á við stjórnarskrá, bakar ríkinu skaðabótaskyldu og er ávísun á gjaldþrot fjölda sjávarútvegsfyrirtækja
23. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
„Lífskjör landsmanna versna"
Lífskjör landsmanna munu versna og Landsbankinn horfir fram á 20-30 milljarða tap eða virðisrýrnun lána verði fyrirliggjandi frumvarp um breytingar á stjórn fiskveiða að lögum. Þetta kemur fram í umsögn bankans um frumvarpið sem bankinn hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis.
23. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Uppsjávarafli vegur upp minni tekjur af botnfiski
Aflaverðmæti uppsjávarafla á fyrstu fimm mánuðum ársins jókst um 21,4% frá sama tímabili í fyrra og nam í ár tæpum 10,9 milljörðum. Rekja má verðmætaaukninguna til aukins loðnuafla. Verðmæti hans nam 8,7 milljörðum króna og jókst um 248% milli ára. Heildaraflaverðmæti íslenskra skipa nam á sama tímabili 56,5 milljörðum samanborið við 57,6 milljarða sömu mánuði í fyrra.
17. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
„Pólitísk afskipti ávísun á atvinnubótavinnu"
„Skipulag fiskveiða er ekki hafið yfir gagnrýni fremur en önnur mannanna verk en það á frekar að takast á um úrbætur á kerfinu en að brjóta það niður og deila út fiskum í einhverja ráðherrapotta út og suður. Pólitísk afskipti af greininni er ávísun á atvinnubótavinnu sem hvorki er spennandi, arðsöm né vel borgandi," segur Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar á Neskaupstað og formaður Útvegsmannafélags Austfjarða.
16. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld taki í útrétta sáttahönd
Stjórn Útvegsmannafélags Reykjavíkur skorar á stjórnvöld í nýlegri ályktun að taka í útrétta sáttahönd þeirra sem starfa í íslenskum sjávarútvegi og hefja við þá raunverulegt samráð um vandaða vinnu við gerð nýs frumvarps til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Ályktunin fer hér í heild:
15. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Heildarafli íslenskra fiskiskipa í júlí 103.500 tonn
Heildarafli íslenskra skipa nam 103.531 tonni í júlí. Það er tæplega 90% þess afla sem kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 116.942 tonn. Breytingin á milli ára liggur fyrst og fremst í uppsjávarafla. Metinn á föstu verði var aflinn 11,1% minni en í júlí í fyrra.
12. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Sjá kraumandi makríltorfur út um skrifstofugluggann
Annan daginn í röð geta geta starfsmenn LÍÚ og annarra fyrirtækja og stofnana við Borgartún í Reykjavík fylgst með stórum torfum af vaðandi makríl þar sem hann bókstaflega kraumar við yfirborð sjávar í Rauðarárvíkinni. Makríllinn er heldur seinni á ferðinni í ár en undanfarin sumur en gengur nú vestur með landinu í miklum mæli. Meðfylgjandi mynd er tekin út um glugga á skrifstofu LÍU.
11. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Þorskveiðar í Barentshafi: Varfærin nýtingarstefna
„Hvenær stofn er vanmetinn og hvenær stofn er ofmetinn getum við ekki vitað fyrr en eftirá. Nauðsynlegt er að taka tillit til þessa þegar ráðgjöf er veitt. Það stendur óhaggað að óskynsamlega mikill afli til skamms tíma býður hættunni heim um skertan afla til lengri tíma. Með varfærinni nýtingarstefnu fæst stærri stofn og jafnari og meiri afli með minni tilkostnaði til lengri tíma litið," skrifar Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur hjá LÍÚ, í Fiskifréttir í dag. Grein hans fer hér á eftir.
10. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
„Verðmæti verða ekki aukin með því að láta fleiri veiða þann fisk sem er til skiptanna"
9. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Skip Útgerðarfélags Akureyringa fá ný nöfn
Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveim togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á Akureyri. Skipið Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn Kaldbakur EA 1. Hinn ísfisktogarinn Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn Árbakur EA 5.
2. Ágúst 2011 | ÚTVEGURINN
Samherji tekur formlega við rekstri Útgerðarfélags Akureyringa
Togarinn Baldvin NC 100 kom til Akureyrar í gærkvöld með fyrsta aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Útgerðarfélags Akureyringa og vinnsla hófst í morgun. Þar með má segja að starfsemi ÚA sé formlega hafin á vegum nýrra eigenda.
13. Júlí 2011 | ÚTVEGURINN
Grænt ljós á kaup Samherja á eignum Brims á Akureyri
Samkeppniseftirlitið hefur fyrir sitt leyti samþykkt kaup Snæfells ehf., dótturfélags Samherja hf., á aflaheimildum, landvinnslu á Akureyri og að Laugum og tveimur skipum Brims hf. Skrifað var undir kaupsamning þann 1. maí sl. með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.
7. Júlí 2011 | ÚTVEGURINN
Hagdeild SA: Sjávarútvegurinn ljósið í myrkrinu
„Ljósið í myrkrinu kom því frá sjávarútvegi," segir í umfjöllun hagdeildar SA um ástæður þess að mæld landsframleiðsla jókst um 2% á milli síðasta ársfjórðungs ársins 2010 og þess fyrsta á árinu 2011 þrátt fyrir 8,2% samdrátt útflutnings á sama tíma. Í samantekt hagdeildar SA segir einnig: „Því verður ekki trúað að stjórnvöld muni grafa undan hagkvæmni greinarinnar með vanhugsuðum lagabreytingum á þessum brothættu tímum í efnahagslífi þjóðarinnar. SA krefjast þess að ríkisstjórnin standi við eigin yfirlýsingar um raunverulega sátt um hagkvæman sjávarútveg." Sjá nánar á vef SA.
6. Júlí 2011 | ÚTVEGURINN
Aflamark í þorski 177 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári
Heimilt verður að veiða 177 þúsund tonn af þorski, 45 þúsund tonn af ýsu og 52 þúsund tonn af ufsa á næsta fiskveiðiári samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um heildaraflamark fiskveiðiárið 2011-2012 sem tilkynnt var í gær.
5. Júlí 2011 | ÚTVEGURINN
Gengur vel hjá Sigurbjörgu ÓF 1 í fyrsta makríltúrnum
Sigurbjörg ÓF 1 er nú í sinni fyrstu veiðiferð á makríl. Skipið er úti fyrir Suðurlandi og ganga veiðarnar vel. Á annan tug skipa er nú á makrílveiðum í fyrsta sinn. Sigurbjörgin kom úr góðum 18 daga túr í lok júní, þar sem skipið veiddi 330 tonn - aðallega karfa. Um leið var bolfisktrollið sett á land og flotvarpan tekin um borð. Meðfylgjandi mynd, þar sem verið er að taka flotvörpuna inn, er fengin af vefsíðu Ramma hf., sem gerir Sigurbjörgina út.
5. Júlí 2011 | ÚTVEGURINN
Arion banki: Hærra veiðigjald leggst þyngra á minni fyrirtækin
Greiningardeild Arion banka telur að hækkun veiðigjalds úr 9,5% í 13,3% af reiknaðri framlegð útgerða á næsta fiskveiðiári muni að öllum líkindum leggjast þyngra á minni fyrirtæki þar sem þau eru ekki eins líkleg til að reka vinnslustarfsemi og þau sem stærri eru. Þetta kemur fram í Markaðspunktum bankans.
28. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ufsa um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með 1. júlí 2011.
27. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Stemning á makrílvertíðinni í Eyjum
„Makrílveiðarnar hafa gengið vel, veiðisvæðið er 40-60 sjómílur sunnan og austan við Eyjar. Huginn landar á morgun eða miðvikudag og þá hefur skipið komið með um 1.600 tonn af frystum afurðum til löndunar," segir Páll Guðmundsson útgerðarstjóri Hugins.
23. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
„OECD hefur svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg og LÍÚ"
„OECD hefur í megindráttum svipaða sýn á íslenskan sjávarútveg og LÍÚ. Ég vona bara að ríkisstjórnin kynni sér skýrslu stofnunarinnar vel og taki mark á henni. Ég legg til að nú verið farið í það að skrifa nýtt kvótafrumvarp með aðkomu allra hagsmunaaðila," segir Adolf Guðmundsson formaður LÍÚ.
22. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Veiðar á ýsu, ufsa og gullkarfa komnar í vottunarferli
Veiðar á þremur mikilvægum fiskistofnum við Ísland eru nú komnar í formlegt vottunarferli samkvæmt kröfum og leiðbeiningum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO); ýsu, ufsa og gullkarfa. Um er að ræða sama kerfi og viðmiðanir og vottað var eftir þegar þorskveiðar fengu vottun í desember sl. Lesa má nánar um þetta hér.
21. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
„Ekki rétta leiðin að ráðherravæða úthlutunarkerfið"
„Ef ríkisstjórnin vill styðja landsbyggðina er ekki rétta leiðin að ráðherravæða úthlutunarkerfið. Sérfræðingarnir segja að farsælla væri að styðja byggðarlögin með fjárframlögum, þannig að þau geti varið peningunum til brýnna verkefna. Það hefur ekki gefist vel að vera með pólitískar úthlutanir, enda benda sérfræðingarnir á þá staðreynd í skýrslunni," segir Einar Valur Kristjánsson formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða
21. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Ný skýrsla OECD um Ísland: Skilvirkri fiskveiðistjórn verði ekki ógnað
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hvetur til þess að skilvirkni núverandi stjórnkerfis fiskveiða á Íslandi verði varðveitt. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun efnahagsmála á Íslandi eftir hrun.
17. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða „fær falleinkunn"
Fyrirhugaðar breytingar á stjórn fiskveiða munu hafa mikil áhrif á rekstur og efnahagslega stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og varlega áætlað lækkar verðmæti aflaheimilda þeirra um meira en 50%. EBITDA hagnaður þeirra dregst saman um allt 20%. „Frumvarpið leiðir því til þess að mun erfiðara verður fyrir fyrirtækin að halda áfram rekstri og vart réttlætanlegt hjá mörgum þegar raunverulegt verðmæti eigna verður langtum meira en virði skulda," segir í ítarlegri greinargerð sérfræðihóps sem sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra skipaði til þess að fara yfir hagræn áhrif frumvarps um breytingar á stjórn fiskveiða.
16. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Metaðsókn um nám í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri
Fjörutíu nýjar umsóknir bárust Háskólanum á Akureyri um nám í sjávarútvegsfræðum næsta haust og hafa umsóknir aldrei verið fleiri. Hreiðar Þór Valtýsson lektor í sjávarútvegsfræðum við HA segir afar ánægjulegt að sjá slíka fjölgun á umsóknum og því sé framtíð námsins björt.
16. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Mun minni afli á land í maí en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 43.421 tonni í maí. Það er um 60% þess afla sem kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 73.550 tonn. Munurinn liggur fyrst og fremst í því að engum uppsjávarafla var landað núna í maí. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 10% minni en í maí í fyrra.
14. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Skýrsla samráðsvettvangs um nýtingu helstu nytjafiska kynnt
Aflaregla fyrir þorsk stenst í öllum aðalatriðum fræðilega skoðun og endurspeglar vilja um ábyrga stjórn þorskveiða. Reynslan af aflareglunni með tilliti til stofnstærðarþróunar þorsks virðist lofa góðu, samkvæmt mælingum á framvindu stofnstærðar á undanförnum árum. Þetta er niðurstaða samráðsvettvangs sérfræðinga og fulltrúa hagsmunaaðila í sjávarútvegi um nýtingu helstu nytjafiska en skýrsla hópsins var kynnt nýverið.
9. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Samkomulag við samtök sjómanna
Samningur hefur verið gerður um 4,25% hækkun á kauptryggingu og kaupliðum kjarasamninga frá og með 1. júní 2011 við Sjómannasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna.
Á vef samtakanna er að finna nýja kaupskrá miðað við þessar breytingar.
9. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Aðför að sjávarbyggðum landsins
8. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til 177 þúsund tonna aflamark í þorski
Hafrannsóknastofnunin leggur til að heimilt verði að veiða 177 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er 17 þúsundum tonna meira en stofnunin lagði til fyrir réttu ári. Stofnunin metur stærð þorskstofnsins nú 969 þúsund tonn.
7. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða verði dregið til baka
7. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Íslandsbanki varar við neikvæðum áhrifum kvótafrumvarpa
Varað er við afleiðingum frumvarpa til laga um breytingar á stjórn laga um fiskveiðar í skýrslu frá Íslandsbanka. „Flestar þær breytingar sem frumvörpin hafa í för með sér hafa neikvæð áhrif á rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja. Greinin verður óhagkvæmari, arðsemi fyrirtækjanna minnkar, hvati og geta til fjárfestinga dregst saman og samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs á mörkuðum erlendis veikist er fram líða stundir," segir í skýrslu frá sjávarútvegsteymi bankans.
6. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsingar stjórnvalda „nánast ekki pappírsins virði"
„Það er nú orðið ljóst að tekin hafa verið upp ný vinnubrögð í samskiptum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt ofanrituðu og þeirri reynslu sem samtökin hafa af stöðugleikasáttmálanum frá 2009 er ljóst að núverandi ríkisstjórn gerir ekkert með eigin yfirlýsingar og að þær eru nánast ekki pappírsins virði." Svo segir m.a. í umsögn Samtaka atvinnulífsins, Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka fiskvinnslustöðva um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (svokallað „minna frumvarp"). Umsögnin í heild.
6. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
„Atvinnulífið á Vestfjörðum má ekki við svona æfingum"
Guðbjartur Jónsson framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Birnis í Bolungarvík segir ljóst að starfsemi fyrirtækisins dragist umtalsvert saman, verði kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar að lögum. Birnir gerir út togarana Gunnbjörn og Valbjörn og á auk þess meirihlutann í rækjuverksmiðjunni Kampa á Ísafirði.
5. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Áhrif kvótafrumvarpa á Vestfirði: Hundrað störf tapast með skerðingu um 3.700 þorskígildistonn
Aflaheimildir á Vestfjörðum skerðast um 3.700 þorskígildistonn og um 100 störf munu tapast við veiðar og vinnslu ef Alþingi samþykkir lög um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu og þau komast að fullu til framkvæmda. Þetta kemur fram í í yfirlýsingu sem Útvegsmannafélag Vestfjarða hefur sent frá sér.
2. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Áhrif fiskveiðistjórnarfrumvarpanna á Vestmannaeyjar og Fjarðabyggð: 29 þús. þorskígildistonn og 250-60 störf munu tapast
Verði fiskveiðistjórnarfrumvörp ríkisstjórnarinnar að lögum og komi að fullu til framkvæmda munu hátt í 29 þúsund þorskígildistonn færast frá Vestmannaeyjum og Fjarðabyggð og allt að 260 störf tapast. Miðað er við meðaltalsúthlutun aflaheimilda undanfarin tuttugu ár. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Austurlands efndu til í dag.
1. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Ísfélag Vestmannaeyja hlýtur hvatningarverðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga
Ísfélagi Vestmannaeyja voru veitt hvatningarverðlaun Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga á aðalfundi félagsins sem nýlega var haldinn á Þórshöfn. Þetta er í tíunda sinn sem verðlaunin eru veitt. Ísfélagið hlaut viðurkenninguna „fyrir öfluga uppbyggingu í grunnatvinnuvegi á svæðinu sem skiptir sköpun um þróun og velferð samfélagsins," eins og segir í verðlaunaskjalinu.
1. Júní 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ufsa um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. júní 2011.
31. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Framhaldsskólanemar á Höfn: Humar er málið í sumar
„Hér er atvinnuleysi óþekkt meðal ungs fólks, því við þurfum að ráða til okkar um 70 manns í landvinnsluna vegna sumarleyfa. Framhaldsskólakrakkarnir koma beint í vinnu er skólum lýkur og 16 ára unglingar hefja störf 15. júní," segir Ásgeir Gunnarsson útgerðarstjóri Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði.
31. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Afleiðingar kvótafrumvarpanna: Enginn grundvöllur fyrir rekstrinum í framtíðinni
Jónas Jóhannsson útgerðarmaður neta- og dragnótabátsins Geirs ÞH frá Þórshöfn segir að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar þýði einfaldlega að enginn grundvöllur verði fyrir rekstrinum í framtíðinni. Veiðiheimildir útgerðarinnar nema um 750 þorskígildistonnum.
30. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Makríll ekki á hvers manns færi árið 1987
Huginn VE hóf makrílveiðar fyrir rúmri viku og hefur fengið um 400 tonn til þessa. Þetta er óvenjusnemmt miðað við makrílveiðar undanfarinna ára. Makríls hefur hins vegar orðið vart á Íslandsmiðum um áratugaskeið eins og frétt úr Morgunblaðinu frá 23. ágúst 1987 ber með sér. Þar segir orðrétt:
30. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Áhöfn Þórs HF 4: Þingmenn hvattir til að hafna kvótafrumvarpi
Áhöfn Þórs HF 4 hefur sent frá sér ályktun þar sem skipverjar harma „ítrekaðar árásir á kjör sjómanna á íslenskum fiskiskipum" og hafna því að kvóti sé fluttur af skipi þeirra í potta „sem stjórnmálamenn geta úthlutað úr og keypt sér velvild og atkvæði fyrir."
27. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Útvegsmannafélag Þorlákshafnar: „Ólýðræðisleg og óskiljanleg vinnubrögð stjórnvalda"
„Þorlákshöfn er bæjarfélag sem byggir afkomu sína á sjávarútvegi og fyrirhugaður tilflutningur aflaheimilda frá þessu svæði og ofurskattlagning þeirra mun koma niður á samfélaginu öllu. Félagsmenn í ÚÞ fordæma ólýðræðisleg vinnubrögð ríkistjórnarflokkanna við gerð þessara frumvarpa," segir í ályktun sem Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hefur sent frá sér. Ályktunina má lesa hér í heild:
27. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Samherji: Landvinnslufólk fær 63 þús. kr. launaauka umfram samninga
Allir starfsmenn í landi, sem hafa unnið hjá Samherja frá áramótum, fá 63.100 krónur í launauppbót umfram kjarasamninga um næstu mánaðamót. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér.
26. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Þorbjörn hf. tapar 1800 þorskígildistonnum
„Miðað við að skerðingin sé reiknuð út frá meðaltalsheimildum síðustu 20 ára þá mun Þorbjörn hf. tapa um 1800 þorskígildistonnum en ég hef ekki reiknað þetta fyrir Grindavík í heild," sagði Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, í samtali við Fiskifréttir í dag. Hann segir einnig í viðtalinu, sem lesa má hér í heild að frumvarpið feli í sér að verið er að færa verkefni frá einum atvinnurekanda til annars og frá einum starfsmanni til annars.
25. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
„Þessi frumvörp leiða ekki til nýliðunar í sjávarútvegi"
Útgerðarfyrirtækin Auðbjörg og Atlantshumar í Þorlákshöfn gegna mikilvægu hlutverki í sveitarfélaginu, fyrirtækin gera út fjóra hefðbundna vertíðarbáta og reka öfluga landvinnslu. Mismunandi er eftir árstíma hversu margir starfa hjá fyrirtækjunum, en ársstörfin eru hátt í eitthundrað og veiðiheimildir eru á bilinu 1.700 til 1.800 þorskígildistonn. Einar Sigurðsson stjórnarformaður segir kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar augljóslega lítt ígrunduð og nánast óskiljanleg.
24. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Ríkisútgerðin stærri en öll útgerð á Norðurlandi samanlögð
„Verði frumvarp sjávarútvegsráðherra að lögum - og komi það að fullu til framkvæmda - verða geðþóttapottar ráðherrans um 77 þúsund þorskígildistonn ef miðað við 20 ára meðalveiði helstu nytjastofna," segir í frétt á vefsíðu Ramma hf. í morgun. Þar segir einnig:
23. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn á Hornafirði skora á stjórnvöld að draga frumvörpin til baka
„Útvegsmenn á Hornafirði skora á ríkisstjórnarflokkana að draga frumvörpin til baka og koma aftur að þeirri vinnu sem búin var að fara fram á grundvelli sáttanefndar sl. ár þar sem víðtæk sátt náðist framtíð íslensk sjávarútvegs," segir í ályktun sem samþykkt var á almennum fundi Útvegsmannafélags Hornafjarðar og félagið hefur sent frá sér.
21. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
„Óttast að smærri fyrirtækin í greininni lifi ekki af"
„Árið 2007 keyptum við kvóta fyrir um hálfan milljarð króna og nokkru síðar var hann skorinn niður um þriðjung. Eins og þá tíðkaðist voru lánin í erlendri mynt, þannig að þau hafa hækkað gríðarlega í íslenskum krónum," segir Pétur Pétursson, eigandi aflamarksbátsins Bárðar SH 81. Hann er allt annað en sáttur við kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar. Pétur segir að allar veiðiheimildir, um 400 þorskígildistonn, hafi verið keyptar á almennum markaði.
20. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Umsagnir LÍÚ, SF og SA um frumvarpsdrög um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samtök fiskvinnslustöðva og Samtök atvinnulífsins hafa sent frá sér sameiginlegar umsagnir um tvö framkomin frumvarpsdrög sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
19. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaheimildir í gullkarfa og djúpkarfa auknar um 10.000 tonn
Aflamark í gullkarfa og djúpkarfa hefur verið aukið um samtals 10.000 tonn samkvæmt reglugerð sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur gefið út, úr samtals 40.000 tonnum í 50.000 tonn. Aflamark í djúpkarfa eykst úr 10.000 í 12.500 tonn og aflamark í gullkarfa fer úr 30.000 tonnum í 37.500 tonn.
19. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Tími pólitískra afskipta og óvissu fer í hönd
„Vegið er að þeirri langtímahugsun sem einkennt hefur íslenskan sjávarútveg að undanförnu og tími pólitískra afskipta og óvissu og fer í hönd. Er tilganginum þar með náð?" spyr Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LIÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í dag. Í greininni segir Friðrik að flest efnisatriða nýrra frumvarpa til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða leiði til aukinna ríkisafskipta og pólitískrar miðstýringar og verri starfsskilyrða fyrir íslenskan sjávarútveg. Greinin fer hér á eftir:
18. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Nýtt uppsjávarveiðiskip, Heimaey VE 1, sjósett í Chile í dag
Nýtt uppsjávarveiðiskip Ísfélags Vestmannaeyja, Heimaey VE 1, var sjósett í ASMAR-skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile í dag að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Í henni segir einnig:
18. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
HB Grandi á Vopnafirði: Hálfur milljarður í launagreiðslur í fyrra
Fjárfestingar HB Granda í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði hafa numið meira en fjórum milljörðum króna frá sameiningu HB Granda og Tanga fyrir sjö árum. Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávardeildar HB Granda, segir að á þessu ári sé fyrirhugað að fjárfesta fyrir rúmar 200 milljónir króna á Vopnafirði.
18. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Nýr bæklingur um íslenskan sjávarútveg
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur gefið út nýjan bækling um íslenskan sjávarútveg. Þar er að finna stutta samantekt um þjóðhagslegt gildi sjávarútvegs fyrir íslenskt samfélag, stjórnkerfi fiskveiða og ýmsar tölfræðilegar staðreyndir um sjávarútveg á Íslandi. Bæklingurinn er aðgengilegur á vef sambandsins, þar sem hægt er að hlaða honum niður, en einnig er hægt að nálgast hann á skrifstofu sambandsins að Borgartúni 35 í Reykjavík.
17. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing Útvegsbændafélags Vestmannaeyja
„Við undirritaðir félagar í Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja lýsum yfir eindregnum stuðningi við málflutning og afstöðu Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins gegn fiskveiðistjórnarfrumvörpum sjávarútvegsráðherra og gegn ítrekaðri atlögu ríkisstjórnarinnar að fiskveiðistjórnarkerfinu," segir í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér í dag. Undir yfirlýsinguna skrifa fulltrúar ellefu fyrirtækja sem aðild eiga að félaginu. Yfirlýsingin fer hér í heild:
17. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
„Óvissan um framtíðina hvetur okkur ekki til dáða"
Útgerðarfyrirtækið Vísir rekur starfsstöðvar í öllum landsfjórðungum, á Djúpavogi, Þingeyri, Húsavík og í Grindavík. Starfsmenn eru samtals um 300 og aflaheimildir fyrirtækisins nema um 11.500 þorskígildistonnum. Vísir gerir út fimm beitningarbáta, sem allir hafa verið mikið endurnýjaðir á undanförnum árum. Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis segir ljóst að frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða vegi að samkeppnishæfni sjávarútvegsins nái það fram að ganga.
17. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Mun minni afli á land í apríl í ár en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 36.816 tonnum í apríl. Það er innan við helmingur þess afla sem kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 79.699 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 17,6% minni en í apríl í fyrra. Muninn á milli ára má rekja til minni afla í veiðum á uppsjávartegundum.
13. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaheimildir verði framseljanlegar í nýju fiskveiðistjórnkerfi ESB
Evrópusambandið mun gera það skilyrði við upptöku nýs fiskveiðistjórnunarkerfis árið 2013 að aflaheimildir verði framseljanlegar samkvæmt drögum sem vitnað er í á vef BBC. Heimilt verður að framselja aflaheimildir á milli einstakra aðildarríkja sambandsins að fengnu samþykki hlutaðeigandi stjórnvalda. Samkvæmt drögunum verða aflaheimildir bundnar við einstök skip til að minnsta kosti 15 ára.
12. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
„Stjórnvöld gera í því að bregða fyrir okkur fæti"
Garðar Ólason útgerðarmaður í Grímsey er allt annað en sáttur við tillögur stjórnarflokkanna um stjórnun fiskveiða. Garðar stýrir fyrirtækinu Sigurbirni fiskverkun, sem gerir út þrjá báta og rekur einu fiskvinnsluna í eynni. Fimmtán manns starfa hjá fyrirtækinu, þannig að um er að ræða stærsta vinnustaðinn í Grímsey.
9. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
FISK Seafood: 3,4 milljarða tekjutap á ári vegna niðurskurðar aflaheimilda
Árleg tekjuskerðing FISK Seafood á Sauðárkróki vegna niðurskurðar aflaheimilda á árunum 2004 til 2010 nemur 3,4 milljörðum króna og tekjuskerðing starfsmanna fyrirtækisins nemur á sama tíma tæplega einum milljarði króna á ári. Þetta kemur fram í viðtali við Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sem birt er á vefsíðu þess.
4. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Waitrose lýkur lofsorði á íslensku vottunarleiðina
Gæði íslensks fisks og vottun á þorskveiðum hafa skipt sköpum í söluaukningu hjá bresku verslunarkeðjunni Waitrose. Íslenska vottunarleiðin er að vinna sér sess og breskar matvöruverslanakeðjur fagna því framtaki sem unnið er undir merkjum Iceland Responsible Fisheries, IRF. Þetta kemur fram í ítarlegri frétt á fréttamiðlinum Seafoodnews.com, þar sem fjallað er um kynningarfund IRF á sjávarútvegssýningunni í Brussel.
2. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 2. maí 2011.
2. Maí 2011 | ÚTVEGURINN
Samherji kaupir rekstur Brims á Akureyri
Um helgina var gengið frá samningi milli Brims og dótturfélags Samherja um kaup á eignum Brims á Akureyri. Félagið fær nafnið Útgerðarfélag Akureyringa. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér.
30. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Ólíkt hafast Norðmenn að
„Átti stjórnvöld sig á því á auðsuppspretta landsins er í vel skipulögðum sjávarútvegi myndum við á örfáum árum ná öllum okkar helstu samanburðarþjóðum í lífskjörum. Hreinleiki og hollusta íslensks sjávarfangs mun tryggja því sess skör hærra en afurða allra helstu keppinauta okkar," skrifar Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri G.Run í Grundarfirði, í grein í Fiskifréttum í vikunni undir fyrirsögninni „Ólíkt hafast Norðmenn að." Greinin fer hér í heild:
29. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Séu kvótalögin saknæm ber að refsa þeim sem komu þeim á
„Fólk getur haft þá skoðun að það eigi að taka réttindin til að sækja fisk í sjó af þeim, sem hafa farið eftir þeim lögum og reglum sem gilda um þessa atvinnustarfsemi og hafa gert í áratugi. En það hlýtur að mega biðja þá hina sömu um að nota rök og yfirvegun í sínum málflutningi, en ekki dylgjur, fullyrðingar sem ekki standast og jafnvel ósannindi," skrifar Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjörns hf. í Grindavík, í pistli á Pressunni í dag undir fyrirsögninni Séu kvótalögin saknæm ber að refsa þeim sem komu þeim á.
27. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Segir vísvitandi farið með staðlausa stafi um sjávarútveg á Íslandi
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, segir að mikill munur sé á afstöðu stjórnvalda til sjávarútvegs á Íslandi og í Kanada en fyrirtækið er með rekstur í báðum löndum. „Öll umræðan [í Kanada] snýst um að styðja við bakið á sjávarútveginum en jafnframt eru lagðar á hann ákveðnar samfélagslegar skyldur. Á Íslandi gengur umræðan aftur á móti út á að þeir sem starfa í sjávarútvegi séu vondir karlar sem arðræni þjóðina."
20. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Forsætisráðherra, hví þessi fjandskapur?
Allt frá því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við völdum á Íslandi, höfum við sem stundum útgerð, fiskvinnslu og sölu sjávarafurða á Íslandi, orðið óþyrmilega vör við ótrúlegan fjandskap í okkar garð frá forsætisráðherra. Hvers vegna er ráðist á þennan hátt á þessa undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar? Atvinnugrein sem er ætlað að vera ein af aðalundirstöðum uppbyggingar íslensks samfélags í kjölfar hruns fjármálakerfis landsins fyrir u.þ.b. 30 mánuðum. Þá var við völd ríkisstjórn sem forsætisráðherra átti sæti í.
19. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið í janúar 9 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam 9 milljörðum króna í janúar 2011 samanborið við 8,3 milljarða í janúar 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 669 milljónir eða 8% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.
13. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Aflamark í þorski mun aukast
Samkvæmt stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar í síðasta mánuði hækkaði stofnvísitala þorsks fjórða árið í röð. „Þetta eru afar jákvæðar fréttir og ef þessar vísbendingar ganga eftir gæti viðmiðunarstofn þorsks verið á bilinu ein milljón til ellefu hundruð þúsund tonn, sem er umtalsvert meira en spár í fyrra gerðu ráð fyrir. Það gæti gefið um 180-190 þúsund tonna aflamark í þorski á næsta fiskveiðiári miðað við óbreytta aflareglu. Þetta kemur hinsvegar ekki í ljós fyrr en eftir að stofnmatið hefur verið klárað og auðvitað vonumst við eftir enn hærra aflamarki" segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
13. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Stofnvísitala þorsks hækkar fjórða árið í röð
Stofnvísitala þorsks hækkaði fjórða árið í röð í stofnmælingu botnfiska á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar sem fram fór í mars. Í fréttatilkynningu frá stofnuninni segir að rekja megi þetta til þess að æ meira fáist af stórum þorski, þ.e. 70 sm og stærri. Fyrsta mat á 2010 árgangi þorsks bendir til að hann sé slakur. Árgangarnir frá 2008 og 2009 mældust hins vegar meðalstórir ef miðað er við mælingar í vorralli frá 1985.
13. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Fiskaflinn: Þúsund tonnum minna á land í mars í ár en í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 118.185 tonnum í mars. Það er um eitt þúsund tonnum minni afli en kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 119.293 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 4,8% meiri en í mars í fyrra.
11. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
„Kvótakerfið merkilegasta framtak Íslands í skipulagsmálum"
Kvótakerfið er merkilegasta framtak Íslands í skipulagsmálum og að innkalla og endurselja kvótann er í raun ómerkilegur þjófnaður. Þetta segir Þráinn Eggertsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í viðtali í nýútkomnu hefti af tímaritinu Frjálsri verslun. Þráinn segir umræðuna um kvótakerfið óheilbrigða þráhyggju og að stefna stjórnvalda sé að skapa glundroða og gjaldþrot í sjávarútvegi, sem sé helsti lykillinn að efnahagsbata.
5. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Þrettán starfsmenn Samherja fá viðurkenningu
Samherji veitti í gær þrettán starfsmönnum sínum sérstök hvatningaverðlaun fyrir framúrskarandi mætingu til vinnu á síðasta ári. Hver starfsmaður fékk ferðaávísun að upphæð 100 þús. krónur en þetta er fjórða árið í röð sem fyrirtækið veitir slíka viðurkenningu. Nánar á vefsíðu Samherja.
1. Apríl 2011 | ÚTVEGURINN
Verð á karfa hækkað um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að hækka verð á karfa sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila um 5%. Verð þetta gildir frá og 1. apríl 2011.
31. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Samningaleiðin
„Fyrir rúmum tuttugu árum stóð íslenskur sjávarútvegur höllum fæti. Þá báru núverandi formenn stjórnarflokkanna gæfu til þess að velja skynsamlegustu leiðina til að gera hann sjálfbæran og arðbæran. Margar fiskveiðiþjóðir hafa síðan fetað sömu braut. Hvers vegna skyldum við nú hverfa af braut skynseminnar?" spyr Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ í niðurlagi greinar sem birtist í Fiskifréttum í morgun. Greinin fer hér í heild.
30. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Spænskir útgerðarmenn vilja framseljanlegar aflaheimildir innan ESB
Samtök spænskra útgerðarmanna (CEPESCA) telja að framtíðarfyrirkomulag fiskveiðistjórnunar innan Evrópusambandsins muni byggjast á framseljanlegum aflaheimildum í samræmi við reglur innri markaðar sambandsins.
30. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Hagstofan: Aflaverðmætið í fyrra milljarði meira en áður var gefið upp
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam á síðasta ári rúmum 132 milljörðum króna og jókst um 17 milljarða króna miðað við árið á undan þegar það var 115 milljarðar króna. Um er að ræða 14,7% aukningu á milli áranna 2009 og 2010. Þetta kemur fram í leiðréttri frétt frá Hagstofu Íslands en í fyrri frétt var aflaverðmæti ársins 2010 sagt rúmur 131 milljarður króna.
25. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Lausnin liggur í fiskveiðistjórnun Íslendinga
Til er einföld lausn á því reglugerðarfargani og endalausum viðbótum við það, sem einkennir stjórn fiskveiða innan Evrópusambandsins. Lausnin liggur utan fiskveiðilögsögu ESB; í einfaldri og skilvirkri fiskveiðistjórnun Íslendinga, skrifar breski dálkahöfundurinn Rose Prince í Daily Telegraph nýverið.
24. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Íslenski þorskurinn fær „Græna kortið" hjá Walmart
Bandaríska stórverslanakeðjan Walmart hefur samkvæmt vefsíðunni Seafoodnews.com tilkynnt að fyrirtækið muni byggja kröfur sínar um innkaup á sjávarafurðum m.t.t. ábyrgra fiskveiða á þeim viðmiðunum eða stöðlum sem settar eru í FAO leiðbeiningum, en um er að ræða faggilta vottun þriðja aðila. Þar með er sú vottun sem þorskveiðar Íslendinga hefur hlotið, tekin góð og gild hjá fyrirtækinu og greiðir það götu íslenskra fyrirtækja í sölu á sjávarafurðum.
23. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Íslandsbanki opnar "sjávarútvegsmælaborð" í samvinnu við DataMarket
Íslandsbanki hefur opnað nýja alþjóðlega upplýsingaveitu, Sjávarútvegsmælaborðið, um sjávarútvegsmál. Þar er hægt að fylgjast með sjávarútvegsmarkaðnum víðsvegar um heiminn en þó er lögð sérstök áhersla á Bandaríkin og Ísland. Á vefnum má meðal annars finna upplýsingar um veiðar, neyslu og hlutabréfaverð sjávarútvegsfyrirtækja eftir löndum.
23. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið jókst um 13,7% á milli áranna 2009 og 2010
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam á síðasta ári rúmum 131 milljarði króna og jókst um 16 milljarða króna miðað við árið á undan þegar það var 115 milljarðar króna. Um er að ræða 13,7% aukningu á milli áranna 2009 og 2010. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.
22. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Engin bein tenging á milli kvótakerfis og byggðaþróunar
Ekki er hægt að finna beina tengingu á milli kvótakerfisins og þróunar byggðar frá því að kerfinu var komið á fyrir meira en aldarfjórðungi. Þetta er niðurstaða Birgis Þórs Runólfssonar, dósents við Hagfræðideild Háskóla Íslands og kom fram í erindi sem hann flutti á málþingi Áhugahóps háskólamanna um sjávarútvegsmál nýverið.
19. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Hörmungarnar í Japan: Sex þúsund fiskiskip skemmd eða ónýt
Nú hefur komið í ljós að áhrif flóðbylgjunnar, sem skall á strönd Japans í kjölfar jarðskjálftans öfluga í síðustu viku, eru gríðarleg á japanska útgerð og fiskvinnslu. Masayuki Komastu, sem m.a. hefur komið hingað til lands og kynnt sér íslenskan sjávarútveg, segir 6.000 fiskiskip hafa skemmst eða eyðilagst í flóðbylgjunni og um 1.100 fiskvinnslur.
18. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Úthafskarfi á Reykjaneshrygg: Samkomulag um heildarveiði ársins en Rússar sátu heima
Samkomulag náðist í gær á tveggja daga fundi um stjórnun veiða á úthafskarfa á Reykjaneshrygg fyrir árið 2011. Engin veiði verður leyfð úr efri stofni karfans en 38 þúsund tonna afli verður heimilaður úr neðri stofni. Alls koma 31,02% af heildaraflamarkinu í hlut Íslands eða 11.788 tonn.
17. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðuneytið leiðréttir misskilning um ESB
Það er misskilningur að nýtt ákvæði í 6. grein reglugerðar Evrópusambandsins nr. 57/2011 geti orðið grundvöllur viðræðna og styðji beint við samningskröfu Íslands í viðræðum við ESB eins og fram kom í viðtali í Fréttablaðinu sl. föstudag. „Þá er rétt að það komi fram að umrætt ákvæði er innleitt í tilraunaskyni og er ekki varanlegt heldur gildir aðeins til skamms tíma," segir í yfirlýsingu, sem birt er á vefsíðu sjávarútvegsráðuneytisins í dag.
17. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
"Menn verða að taka höndum saman og sjá til þess að skip og kvótar fari ekki í burtu"
„Menn verða að taka höndum saman á þessu svæði hér og sjá til þess að skip og kvótar fari ekki í burtu. Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og Ísafjarðardjúp, þetta er allt að tengjast í eitt atvinnusvæði," sagði Þorleifur Pálsson, bæjarritari á Ísafirði, m.a. í viðtali við DV þann 13. janúar 1993 þegar gengið var frá kaupum á togaranum Gylli frá Flateyri. Togarinn heitir í dag Stefnir ÍS 28 og var 35 ára afmælis skipsins minnst í gær.
15. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Febrúaraflinn tæplega tvöfalt meiri í tonnum talið en í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 210.007 tonnum í febrúar. Það er tæplega tvöfalt það aflamagn sem kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 106.743 tonn. Mismuninn má fyrst og fremst meta til loðnuveiða sem hafa gengið vel. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 38,7% meiri en í febrúar í fyrra.
14. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Aflamarks- og krókaaflamarksskipum fækkað um meira en þúsund á einum áratug
Fiskiskipum í aflamarks- og krókaaflamarkskerfinu hefur fækkað um 286 á síðustu fimm árum, þ.e. frá 2006 - 2011 eða um 31% samkvæmt samantekt LÍÚ, byggðri á gögnum Fiskistofu. Sé hins vegar horft á þróunina síðastliðinn áratug kemur í ljós að fækkunin nemur 62,6%.
9. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Þúsundir milljarða tapast vegna skipulagsleysis fiskveiða í heiminum
Tap á fiskveiðum í heiminum nam um 580 milljörðum króna (5 milljörðum Bandaríkjadala) árið 2004. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðabankans og FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2009 um afkomu fiskveiða í heiminum árið 2004.
4. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Skotar fengu ekki áheyrn hjá ESB
Sjávarútvegsráðherra skosku heimastjórnarinnar, Richard Lochhead, er ekki skemmt yfir eftir að Maria Damanaki, fiskveiðistjóri ESB, hafnaði beiðni hans um að sitja fund Evrópusambandsins um fiskveiðistefnu þess nýverið. Skýrt er frá þessu í skoska dagblaðinu The Press and Journal.
3. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
„Varfærin nýting trygging gegn varanlegu tjóni"
„Eftir því sem óvissuþættirnir eru fleiri því meiri varúð þarf að beita. Varfærin nýting er í dag trygging gegn varanlegu tjóni," sagði sagði Daði Már Kristófersson, dósent í náttúruauðlindahagfræði við Háskóla Íslands, á ráðstefnu Hafrannsóknastofnunarinnar sem haldin var í síðustu viku undir yfirskriftinni Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur.
3. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Náum sáttum og sækjum fram
Megintilgangur stjórnkerfis fiskveiða (kvótakerfisins) er tvíþættur. Annars vegar að stemma stigu við ofveiði helstu nytjastofna okkar og hins vegar að stuðla að hámarksarðsemi veiðanna. Fyrrnefnda atriðið hefur farið hljótt í almennri umfjöllun. Hagkvæmnin hefur aukist umtalsvert á undanförnum áratugum, þó að uppbygging þorskstofnins hafi verið hægari en vonir stóðu til. Líkur eru á því að botninum sé náð og að uppbygging stofnsins sé á réttri leið.
2. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Uppbygging fiskistofna getur tekið allt að 20 árum
Uppbygging fiskistofna er langtímaverkefni sem tekið getur 10 og jafnvel allt að 20 árum í vissum tilvikum. Þetta var á meðal þess sem kom fram í máli Steve Murawski á ráðstefnu Hafrannsóknastofnunarinnar sem haldin var í síðustu viku undir yfirskriftinni Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur.
1. Mars 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 5% og karfa um 7%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski og slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Jafnframt var ákveðið að hækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð þetta gildir frá og 1. mars 2011.
22. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur
Ráðstefna um langtímastefnumótun fyrir nýtingu lifandi auðlinda hafsins verður haldin í Bíósal á Hótel Loftleiðum föstudaginn 25. febrúar nk. Hún hefst kl. 9:00 um morguninn og stendur til kl. 16:20. Ráðstefnan er haldin af Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og Hafrannsóknastofnuninni og yfirskrift hennar er „Lifandi auðlindir hafsins - langtíma stefnumótun og aflareglur".
21. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Aukin skattlagning leiðir til stöðnunar
Auðlindagjald (veiðigjald) sem fyrirtæki í sjávarútveginum greiða til ríkisins fiskveiðiárið 2010-2011 nemur 2.700 til 2.900 milljónum króna. Gjaldið er reiknað sem 9,5% af vergri framlegð greinarinnar (EBITDA), þ.e. framlagi rekstar fyrir afskriftir og fjármagnskostnað. Þessi sérstaki skattur sem sjávarútvegurinn greiðir nemur 18% í hlutfalli af hagnaði greinarinnar að meðaltali síðastliðin tíu ár miðað við árgreiðsluaðferð Hagstofu Íslands.
18. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Loðnukvótinn aukinn um 65 þúsund tonn
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur með reglugerð ákveðið að fara að tilllögum Hafrannsóknastofnunarinnar og auka loðnukvótann á yfirstandandi vertíð um 65 þúsund tonn, úr 325 þúsund tonnum í 390 þúsund tonn. Nánast öll viðbótin kemur í hlut íslenskra skipa. Þetta er í annað sinn á þremur vikum að bætt er við kvótann. Þann 24. janúar sl. var kvótinn aukinn úr 200 í 325 þúsund tonn að fenginni ráðgjöf stofnunarinnar. Nýjar mælingar benda til þess að veiðistofninn sé 788 þúsund tonn.
16. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til að loðnukvótinn verði aukinn um 65 þúsund tonn til viðbótar
Hafrannsóknastofnunin leggur til að loðnukvótinn á yfirstandandi vertíð verði aukinn um 65 þúsund tonn, úr 325 þúsund tonnum í 390 þúsund tonn. Þetta er í annað sinn á þremur vikum að lagt er til að bætt verði við kvótann. Þann 24. janúar sl. var kvótinn aukinn úr 200 í 325 þúsund tonn að fenginni ráðgjöf stofnunarinnar. Nýjar mælingar benda til þess að veiðistofninn sé 788 þúsund. Sjá nánar í tilkynningu.
15. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Janúaraflinn rúmlega tvöfalt meiri í tonnum talið en í fyrra vegna aukinnar loðnuveiði
Heildarafli íslenskra skipa nam 119.345 tonnum í janúar. Það er meira en tvöfalt það aflamagn sem kom á land í sama mánuði árið 2010. Aflinn var þá 55.523 tonn. Mismuninn má fyrst og fremst rekja til loðnuveiða sem hafa gengið vel. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 13,9% meiri en í janúar í fyrra.
11. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Grundarfjarðar: Óvissu um sjávarútveg verði eytt
„Bæjarstjórn Grundarfjarðar telur mikilvægt að óvissu um framtíðarskipan fiskveiðistjórnunarkerfisins verði eytt og varanleg sátt náist á grundvelli tillagna sáttanefndar um sjávarútveg, þannig að sjávarútvegurinn geti búið við stöðug starfsskilyrði."
11. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Fjandvinir sjávarútvegs
„Það sem auðlindaskattssinnar víkja sér undan að vekja máls á er, að ef tekin verður upp sú gríðarlega skattheimta sem þeir eru að leggja til, verður að lækka gengi krónunnar til lengri tíma. Það veikir ekki aðeins möguleika atvinnugreinarinnar á nýfjárfestingum og búnaði heldur leiðir til verri lífskjara fyrir almenning í landinu, hærra verðs á innfluttum vörum og minni kaupmáttar," skrifar Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Greinin fer hér á eftir.
10. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Stálskip og HB Grandi fengu viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki
Tvö sjávarútvegsfyrirtæki, Stálskip og HB Grandi, voru í hópi fimm framúrskarandi fyrirtækja sem Creditinfo á Íslandi veitti viðurkenningu í dag. Alcan fékk viðurkenningu sem það fyrirtæki sem þótti standa sig best, en hin fyrirtækin sem fengu viðurkenningu voru Össur og CCP. Viðurkenningar voru afhentar í hófi fyrr í dag.
9. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Segir stöðugleika hafa skilað Íslendingum markaðsforskoti í sjávarútvegi
„Hvernig er hægt að ætlast til þess að gerðir séu kjarasamningar í sjávarútvegi þegar allar rekstrarforsendur eru óljósar, hvort heldur eru tekjur eða gjöld," sagði Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. í Grindavík, m.a. í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins í dag, en til fundarins var boðað undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin. Húsfyllir var í aðalráðstefnusal Grand Hótel.
8. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Spegill, spegill herm þú mér
Vinnubrögð fréttaskýringaþáttarins Spegilsins eru harðlega gagnrýnd í stuttum pistli, sem birtist á vefsíðu Ramma hf. í dag. „Umfjöllunin bar öll merki hefðbundinnar heimildarvinnu ríkisútvarpsins þegar sjávarútvegur og fiskveiðistjórnun eru annars vegar. Þannig fræddi Gunnar hlustendur um það að kvótakerfið hefði verið sett á árið 1986 þó það hafi í raun verið gert 1983," segir m.a. í pistlinum sem fer hér í heild:
3. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Vel heppnuð ráðstefna um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga í London
Um 60 manns sóttu ráðstefnu um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga, sem fram fór í fjórða sinn í London í dag. Á meðal þátttakenda í ráðstefnunni voru innkaupafulltrúar frá öllum helstu keðjum matvöruverslana á Bretlandseyjum auk m.a. þingmanna og sendiherra Bretlands á Íslandi. Megininntak ráðstefnunnar var kynning vottunar á ábyrgri stjórn veiða úr íslenska þorskstofninum.
3. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
„Þola ekki þegar einhver svarar í sömu mynt!"
„Þeir vilja einoka umræðuna um sjávarútvegsmálin og þola ekki þegar einhver svarar í sömu mynt! Þá er það kallað „reiðilestur", „fúkyrðaflaumur" og annað í þeim dúr. Slíkur málflutningur dæmir sig sjálfur og er umræddum þingmanni Samfylkingarinnar til enn frekari minnkunar," segir í niðurlagi yfirlýsingar sem Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja sendi frá sér í gær.
1. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Forsætisráðherra sýni embættinu virðingu
„Íslenskar útgerðir greiða tæpa þrjá milljarða króna í veiðigjald á yfirstandandi fiskveiðiári. Veiðigjaldið nemur nú 9,5% af reiknaðri framlegð útgerðanna en slíkt gjald samsvarar um 18% af hagnaði útgerðar miðað við uppgjör Hagstofu Íslands samkvæmt árgreiðsluaðferð síðustu 10 ár. Þannig er íslenskur sjávarútvegur skattlagður sérstaklega umfram aðrar atvinnugreinar," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastóri LÍÚ, í stuttum pistli undir yfirskriftinni Forsætisráðherra sýni embættinu virðingu.
1. Febrúar 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd: Karfi hækkar um 7%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2011.
29. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Rangfærslur forsætisráðherra og forseta ASÍ um sjávarútvegsmál
Vegna ræðu forsætisráðherra á fundi flokksstjórnar Samfylkingarinnar í dag, rangfærslna forseta ASÍ og ályktunar miðstjórnar ASÍ um tengsl sjávarútvegsmála og kjarasamninga vill LÍÚ taka eftirfarandi fram:
- LÍÚ hefur aldrei efast um forræði íslenska ríkisins á fiskveiðiauðlindinni og rétt ríkisins til að setja reglur um stjórn fiskveiða á grundvelli fullveldisréttar þess. Samningar um tímabundin afnot útgerða af aflahlutdeild gegn gjaldi, undirstrikar þetta forræði. Á sama hátt eiga íslenskar útgerðir stjórnarskrárvarinn rétt til afnota að aflahlutdeild sinni.
28. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Nettóskuldir sjávarútvegs 450 milljarðar í árslok 2009
Nettóskuldir sjávarútvegsins, þ.e. skuldir að frádregnum veltufjármunum, voru 15 milljörðum króna lægri í árslok 2009 en þær voru í árslok 2008. Þær námu alls 450,5 milljörðum króna í árslok 2009 en voru 465,5 milljarðar árið á undan. Þetta kemur fram í riti Hagstofu Íslands, Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2009, sem er komið út.
27. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Bæjarráð Grindavíkur: Ríkisstjórnin hefji vinnu við útfærslu sáttar á grunni samningaleiðar
„Bæjarráð Grindavíkur skorar á ríkisstjórnina að eyða sem fyrst þeirri óþolandi óvissu sem nú ríkir um stjórnun fiskveiða og hefja nú þegar vinnu við útfærslu sáttar á grunni samningaleiðar um aflahlutdeildarkerfi." Svo segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á fundi ráðsins í gær.
25. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
68% kjósenda Samfylkingarinnar fylgjandi samningaleið í sjávarútvegi
24. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til 125 þús. tonna viðbótarkvóta í loðnu
Hafrannsóknastofnuninn leggur til að loðnukvótinn á yfirstandandi vertíð verði aukinn um 125 þúsund tonn eða úr 200 þúsund í 325 þúsund tonn. Útreikningar á stærð veiðistofnsins sem byggja á mælingum undanfarnar tvær vikur sýna að alls mældust 720 þúsund tonn af kynþroska loðnu. Fyrri mælingar gáfu til kynna að veiðistofninn væri 600 þúsund tonn. Nánar í frétt frá Hafrannsóknastofnuninni.
20. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið 112 milljarðar fyrstu 10 mánuði síðasta árs
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 96 milljarða á sama tímabili árið 2009. Verðmætið hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16,5% á milli ára.
19. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. fagnar 70 ára afmæli
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. fagnar í dag 70 ára afmæli. Hraðfrystihúsið hf. var formlega stofnað í Hnífsdal þann 19. janúar 1941. Fjórtán árum síðar, 1955, var Gunnvör hf. stofnað en þessi fyrirtæki sameinuðust fyrir rúmum áratug undir heitinu Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf.
18. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Mál Ramma hf. gegn ríkinu: Úrskurður héraðsdóms kærður til Hæstaréttar
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í morgun frá dómi kröfu útgerðarfyrirtækisins Ramma hf. gegn íslenska ríkinu um ógildingu þeirrar ákvörðunar sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á yfirstandandi fiskveiðiári. Karl Axelsson hæstaréttarlögmaður, sem rekur málið fyrir Ramma hf., segir niðurstöðu héraðsdóms verða kærða til Hæstaréttar. Málið snúist um að láta reyna efnislega á ákvörðun ráðherra. Sérkennileg niðurstaða væri ef slíkt væri ekki hægt þegar um er að ræða stjórnvaldsákvörðun. Úrskurð héraðsdóms má lesa hér.
13. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Barist gegn brottkasti innan ESB: Rúm hálf milljón hefur skrifað undir áskorun
Rúm hálf milljón manns hefur nú skrifað undir áskorun breska matreiðslumannsins Hugh Fearnley-Whittingstall til fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, Maria Damanaki, um að brottkast á fiski verði þegar í stað bannað innan Evrópusambandsins.
13. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Desemberaflinn 8% minni í tonnum talið en í sama mánuði árið áður
Heildarafli íslenskra skipa nam 53.369 tonnum í desember. Það rétt tæplega 8% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 57.958 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 8,2% minni í nóvember en árið áður. Árið 2010 dróst aflinn saman um 8,0% miðað við árið 2009, sé hann metinn á föstu verði.
12. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Þunginn eykst í baráttunni gegn brottkasti innan ESB
Sjónvarpsþættir á sjónvarpsstöðinni Channel 4 í Bretlandi, þar sem þekktir matreiðslumenn á borð við Jamie Oliver og Hugh Fearnley-Whittingstall berjast opinskátt gegn brottkasti á fiski innan ESB, hafa vakið athygli þar í landi. Sjónvarpsmyndir úr veiðiferð, þar sem Fearnley-Whittingstall er um borð ásamt myndatökumanni og fylgist með brottkasti skipverja, segja meira en mörg orð.
11. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Áhöfn Júlíusar prýðir vegg veitingastaðar í Englandi
Strákarnir í áhöfn Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 eiga orðið fríðan flokk aðdáenda utan landsteinanna. Myndir af þeim hanga nú uppi á vegg og blasa við viðskiptavinum Fish‘n‘Chicken á einum veitingastað fyrirtækisins í Englandi og þykja mikil prýði. Greint er frá þessu á vefsíðu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf.
10. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Mikil verðmætaaukning afurða HB Granda á milli ára
Heildarverðmæti afla uppsjávarskipa HB Granda jókst um 28,3% á milli áranna 2009 og 2010 þrátt fyrir að afli drægist saman um 8%. Alls nam afli uppsjávarveiðiskipa fyrirtækisins tæplega 96.400 tonnum á síðasta ári og aflaverðmætið nam rúmlega 3,4 milljörðum króna. Svipaða sögu er að segja af togurum fyrirtækisins. Þar nam aukning aflaverðmætis 21,5% á milli áranna 2009 og 2010 þótt aflaaukning væri aðeins rúm 8%.
7. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti skipa Ramma tæpir 4,6 milljarðar í fyrra
Aflaverðmæti skipa Ramma hf. á nýliðnu ári nam alls tæplega 4,6 milljörðum króna. Rammi gerir út fimm skip sem veiddu alls 14.408 tonn á nýliðnu ári. Aflahæsta skipið, Mánaberg ÓF 42, skilaði 1786 milljóna króna verðmæti en aflaverðmæti Sigurbjargar ÓF 1 var 1600 milljónir. Nánar á vefsíðu fyrirtækisins.
6. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Traust og trúverðugleiki
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra samdi svokallað skötuselsfrumvarp haustið 2009. Þar lagði hann til heimild sér til handa til að ákveða sölu ríkisins á aflaheimildum í skötusel umfram veiðiráðgjöf og framhjá aflahlutdeild.
6. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd: Karfi hækkar um 5%, ufsi lækkar um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum ufsa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. janúar 2011.
5. Janúar 2011 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti fyrstu níu mánuðina í fyrra 101 milljarður
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 101 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 86 milljarða á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 17,8% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.













