Fréttir
31. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverđmćti jókst um tćpan ţriđjung fyrstu fimm mánuđi ársins
Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um tæplega þriðjung fyrstu fimm mánuði ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Alls nam verðmætið rúmum 57 milljörðum króna samanborið við 43,1 milljarð á sama tímabili 2009. Verðmætaaukning á milli ára er því tæpir 14 milljarðar eða 32,4%.
26. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Innistćđulaus gagnrýni
„Samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og Úthafsveiðisamningnum ber Norðmönnum og ESB skylda til að semja við Ísland um stjórn makrílveiðanna. Með því að útiloka Ísland með ólögmætum hætti frá samningaviðræðum um heildarstjórn makrílveiðanna í áratug hafa Noregur og Evrópusambandið verulega rýrt trúverðugleika eigin aðferða við stjórn veiðanna," segir m.a. í grein eftir upplýsinga- og kynningarfulltrúa LÍÚ í Fiskifréttum í morgun.
25. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráđstefnan haldin 6. og 7. september
Boðað hefur verið til ráðstefnu um sjávarútveg á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 6. og 7. september næstkomandi undir yfirskriftinni Sjávarútvegsráðstefnan - Hafsjór tækifæra. Á vefsíðu ráðstefnunnar, www.sjavarutvegsradstefnan.is, er hægt að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar. Í kynningu á ráðstefnunni segir m.a. að hugmyndin með henni sé „að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi" og einnig að „stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg."
24. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Skýlaus réttur Íslands til makrílveiđa
„Í stuttri aðsendri grein í Fréttablaðinu þann 20. ágúst sl. var því haldið fram að Ísland hefði ekki rétt til að veiða makríl innan íslenskrar lögsögu. Þetta er alrangt. Það er einmitt vegna þess að að makríllinn er innan íslenskrar lögsögu að réttur íslenskra skipa til veiðanna er skýlaus samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna," segir í grein sem Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, skrifaði í Fréttablaðið í morgun. Greinin fer hér á eftir í heild:
19. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Heildaraflinn á árinu 2009 sá minnsti í 18 ár
Heildarafli ísenskra fiskiskipa á árinu 2009 var tæplega 1130 þúsund tonn. Það er 153 þúsundum tonna minni afli en árið 2009. Þetta er minnsti afli íslenska fiskiskipaflotans frá árinu 1991. Heildaraflaverðmæti nam 115 milljörðum króna og jókst um 16,4% frá árinu áður. Mælt á föstu verðu dróst verðmæti aflans hins vegar saman um 2,8%. Þetta er á meðal þess sem lesa má í nýútkomnu riti Hagstofu Íslands, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2009.
16. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Umdeild vinnubrögđ ráđherra í dragnótamálinu vekja athygli erlendis
Fjallað er í opnugrein í nýjasta hefti tímaritsins Fishing News International um þá umdeildu ákvörðun sjávarútvegsráðherra að takmarka dragnótaveiðar án þess að nokkur vísindaleg rök liggi þar að baki. Yfirskrift greinarinnar má lauslega þýða: „Reglugerð sem byggir á pólitík en ekki vísindum bitnar á dragnótabátum" (e. Politics wins over science as seine netters fall foul of policy).
13. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Blekking um ESB og deilistofna
Ţað er blekking að aðild að ESB styrki samningsstöðu Íslands um hlutdeild í deilistofnum eins og sumir aðildarsinnar hafa haldið fram. Ýjað er að þessu í niðurlagi leiðara Fréttablaðsins þann 11. ágúst sl., þar sem fjallað er um makrílveiðar og hugsanleg staða gagnvart Noregi tekin sem dæmi.
13. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í júlí 27% meiri í tonnum taliđ en í sama mánuđi í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 116.820 tonnum í júlí. Það er rúmlega 27% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 160.132 tonn. Mismunurinn á milli ára skýrist að mestu leyti af minni afla makríls og síldar í ár en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 13,2% minni í júlí en árið áður.
6. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing formanns LÍÚ: Engin breyting á afstöđu LÍÚ til ađildar Íslands ađ ESB
Að gefnu tilefni vill undirritaður árétta að engin breyting hefur orðið á afstöðu LÍÚ til aðildar að Evrópusambandinu. Ummæli mín undir lok viðtals í síðdegisþætti á Rás 2 í sl. miðvikudag voru í fréttum RÚV síðar þann sama dag af einhverri ástæðu slitin úr samhengi við annað sem ég hafði sagt fyrr í þættinum.
6. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Makrílveiđar Íslendinga eru jafn lögmćtar og makrílveiđar Evrópusambandsins og Norđmanna
„Ísland er í í fullum rétti til að veiða makríl innan íslenslu efnahagslögsögunnar, rétt eins og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafa rétt til makrílveiða innan sinna eigin efnahagslögsagna. Makrílveiðar Íslendinga eru því jafnlögmætar og makrílveiðar Noregs og Evrópusambandsríkjanna."













