Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Fréttir

9. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

„Fordómar gegn dragnót ótrúlega lífseigir"

Friðrik G Halldórsson„Dragnót! Menn hafa fælst nafnið eins og myrkfælin börn grýlu! Dragnótaveiðar! Á nú að gerspilla fiskimiðum landsins, setja hjer allt í vargakjafta, svo við stöndum hjer allslausir eftir nokkur ár." Þannig lýsir fiskifræðingurinn Árni Friðriksson fordómum, sem einkenndu afstöðu andstæðinga dragnótaveiða fyrir 80 árum, í bók sinni Skarkolaveiðar Íslendinga og dragnótin.

8. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Skora á ráđherra ađ afturkalla reglugerđ um bann viđ dragnótaveiđum

Dragnótaveiðar„Um leið og Samtök dragnótamanna mótmæla framkominni reglugerð um takmarkanir á vistvænum strandveiðum í dragnót skora þau á þig að draga hana til baka," segir í bréfi sem Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var sent í morgun.

7. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Af dragnótaveiđum, trúarbragđablć, geđshrćringu og ofsa

Árni Friðrikson fiskifræðingur„Dragnótaveiðar, eins og annað, sem fær á sig trúarbragðablæ, geta sett menn í geðshræringu og ofsa," skrifar Árni Friðriksson fiskifræðingur m.a. í bók sinni, Skarkolaveiðar Íslendinga og dragnótin, sem kom út árið 1932. Í bókinni segir Árni dragnótina vera „eitt af þeim meinlausustu veiðarfærum, sem til eru" og telur ljóst að ungfiski nytjastofna stafi ekki hætta af veiðarfærinu.

6. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Segir Skagfirđingum att gegn dragnótaveiđum međ blekkingum

Gylfi Gunnarsson„Það er ekki síður dapurlegt til þess að vita að þessar undirskriftir, sem fengnar voru á fölskum forsendum á sínum tíma, eru í raun aðalhvatinn að þeim takmörkunum á dragnótaveiðum sem sjávarútvegsráðherra hefur boðað með gildistöku nýrrar reglugerðar þann 1. september nk. Vinnubrögð ráðuneytisins við undirbúning reglugerðarinnar eru svo kapítuli út af fyrir sig, sem væri efni í aðra og lengri grein en þessa," skrifar Gylfi Gunnarsson, útgerðarmaður í Grímsey, í grein sem birtist í héraðsfréttablaðinu Feyki fyrir helgina. Grein Gylfa má lesa hér í heild:

2. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Vestmannaeyjar: Bćjarstjórn skorar á stjórnvöld ađ falla frá fyrningarleiđinni

Vestmannaeyjar_lógóBæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnina alla að falla tafarlaust alfarið frá boðaðri fyrningarleið. „Þess í stað ber að leita áfram leiða til að efla sjávarútveg í sátt við íbúa sjávarbyggða, starfsmenn greinarinnar og landsmenn alla," segir í ályktuninni.

2. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Hagnađur VSV 900 millj. kr. í fyrra - skuldir ekki minni í evrum frá 2003

VSV_lógóRekstur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum skilaði 5,6 milljóna evra hagnaði, jafnvirði um 900 milljóna króna, á árinu 2009. Skuldir VSV nema 61 milljón evra og hefur fyrirtækið ekki skuldað minna í evrum frá árinu 2003. Tekjur fyrirtækisins voru 20 milljónum evra meiri árið 2009 en 2003. Skuldir fyrirtækisins tvöfölduðust hins vegar í íslenskum krónum við fall bankanna 2008 „og á slíka stærð er horft í umræðunni en hún segir augljóslega hverfandi sögu um raunverulega stöðu VSV," segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en en aðalfundur þess er nýlega afstaðinn.

1. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Úrskurđarnefnd lćkkar verđ á ţorski um 5%

Ţorskur_vinstriÁ fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. júlí 2010.

1. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN

Guđjón Már Sigurđsson hlýtur námsstyrk LÍÚ

Guðjón Már SigurðssonGuðjón Már Sigurðsson, sem stundar doktorsnám í sjávarlíffræði við New Brunswick-háskólann í St. John á Nýfundnalandi, hefur hlotið námsstyrk LÍÚ að þessu sinni. Verkefni hans snýr að nýliðun humars og þá sérstaklega að búsvæðavali og uppvexti humarlirfa. Guðjón lauk Mastersnámi í sjávarlíffræði við Háskóla Íslands árið 2009 að undangengnu B.S. prófi í líffræði við HÍ.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta