Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Fréttir

30. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Aflaverđmćti jókst um rúm 34% á fyrsta ársfjórđungi

Ţorskur_vinstriAflaverðmæti íslenskra skipa nam tæplega 35,7 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2010 samanborið við 26,5 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti jókst því um rúmlega 9 milljarða eða rúmlega 34% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands í dag.

29. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Ţorbjörn hf. opnar sýningu á munum og minjum úr útgerđ og fiskvinnslu

Ankeri_Þorbjörn hf.Útgerðarfyrirtækið Ţorbjörn hf. í Grindavík hefur opnað sýningu á gömlum munum og minjum sem tengjast útgerð og fiskvinnslu og hafa safnast upp hjá fyrirtækinu á löngum tíma. Á flettiskjám eru sýndar gamlar myndir úr starfseminni. Sýningin er í níu gluggum sem hafa verið útbúnir sem sýningargluggar. Framan við gluggana er búið að koma fyrir ankeri (sjá mynd) sem er með viðfestu kynningarskilti. Ankerið fékk Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 í trollið á togslóð á 100 faðma dýpi austur í Lónsdýpi fyrir réttu ári.

 

24. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Aflareglu í ţorski ţarf ađ endurskođa

Fridrik-litil„Frá því að Hafrannsóknastofnunin lagði til að 20% aflareglu yrði fylgt hafa komið fram sterkar vísbendingar um að ástand þorskstofnsins sé mun betra en reiknað var með.  Með nokkurri einföldun má segja að við séum nú nálægt því að vera á þeim stað sem stofnunin taldi í fyrra líklegt að við yrðum á árið 2013," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í morgun. Greinina má lesa hér í heild: 

24. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Leyfilegur heildarafli sumargotssíldar aukinn um 5.000 tonn

sild2Leyfilegur heildarafli í íslenskri sumargotssíld á yfirstandandi fiskveiðiári hefur verið aukinn um 5.000 lestir samkvæmt breytingu á reglugerð sem tilkynnt var í gær. Heildarkvótinn verður því 52.000 lestir. Breytingin er gerð til að mæta óhjákvæmilegum veiðum á síldinni sem meðafla við makrílveiðar. Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir m.a. að komi ekki til þessarar aukningar sé fyrirséð að ekki sé hægt að stunda makrílveiðanar með eðlilegum hætti.

21. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

„Ákvörđun ráđherra niđurlćgjandi fyrir íslenska sjómenn"

Friðrik G Halldórsson„Það eru hrein og klár fiskverndarsjónarmið að baki þeim takmörkunum Norðmanna sem vísað er til og þær snúast ekki á nokkurn hátt um takmörkun veiða með dragnót vegna meintrar skaðsemi veiðarfærisins á lífríki sjávar eins og leynt og ljóst hefur verið ýjað að hérlendis," segir Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótamanna.

16. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráđherra rassskelltur

Jón BjarnasonJón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fær sannkallaða rassskellingu í grein í Fiskifréttum í dag, þar sem tveir sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar gagnrýna harðlega vinnubrögð ráðherra við lokun svæða fyrir veiðum með dragnót. „Þessi vinnubrögð geta vart talist til eftirbreytni og alls ekki það sem kallast gæti góð stjórnsýsla," skrifa þau Haraldur Á. Einarsson, fiskifræðingur og veiðarfærasérfræðingur og Guðrún G. Þórarinsdóttir sjávarlíffræðingur m.a. í greininni.

15. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Heildarafli í maí 14,5% meiri í tonnum taliđ en í sama mánuđi 2009

Júlíus GeirmundssonHeildarafli íslenskra skipa nam 73.569 tonnum í maí. Það er 14,5% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 64.239 tonn. Breyting á milli ára skýrist að meiri afla uppsjávartegunda en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 5,5% minni í maí en árið áður.  

11. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Júpíter landađi 100 tonnum af makríl í Eyjum

Makríll í kös„Við vorum að ljúka við að landa um 100 tonnum af stórum og fallegum makríl sem við fengum í tveimur köstum í Háfadjúpi í gær, svona 15 mílur SA af Eyjum," sagði Jón Axelsson, skipstjóri á Júpíter ÞH í samtali við Útveginn fyrr í dag. Önnur skip voru ekki að makrílveiðum á þessum slóðum í gær.

10. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Segja sjávarútvegsráđherra beita blekkingum

DragnótaveiðarSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra beitir blekkingum í fréttatilkynningu sem send var út til fjölmiðla þann 3. júní sl. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótamanna hafa sent frá sér. Tilkynningin fer hér á eftir í heild:

9. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Er ţörf á sjávarútvegsráđuneyti ef ţetta eru vinnubrögđin?

Friðrik G Halldórsson„En ef þetta er hið nýja Ísland, þar sem veiðum er stjórnað eftir ólýðræðislega unnum undirskriftarlistum eða ófaglegum samþykktum sveitastjórna, er ekki nokkur þörf á að halda úti sjávarútvegsráðuneyti," skrifar Friðrik G. Halldórsson, útgerðartæknir og talsmaður dragnótamanna, í grein sem birtist í morgun. Greinin fer hér á eftir:

8. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Stjórn LÍÚ fordćmir vinnubrögđ ráđherra viđ takmarkanir á dragnótaveiđum

LÍÚ logo„Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna fordæmir þau vinnubrögð sem sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra viðhafði í aðdraganda og við útgáfu nýlegrar reglugerðar um takmarkanir á dragnótaveiðum. Reglugerðin gildir til fimm ára frá og með 1. september næstkomandi og tekur til sjö fjarða." Svo segir í ályktun sem stjórn LÍÚ hefur samþykkt. Ályktunin fylgir hér á eftir í heild:

8. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Mótmćli gegn litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1

Sigurbjörg ÓF 1 í slippŢað telst ekki til tíðinda að skip fari í slipp og þaðan af síður telst það merkilegt að þau séu máluð. En liturinn skiptir augljóslega máli. Tæplega 180 manns hafa nú mótmælt litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1 á sérstakri síðu sem stofnuð hefur verið á samskiptavefnum Facebook. Skipið er nú í slipp þar sem verið er að mála það rautt eins og önnur skip Ramma hf. Sigurbjörgin var áður blá. Skýrt er frá þessu á vefsíðu fyrirtækisins.

4. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Tillögur Hafró: Heimilt verđi ađ veiđa 160 ţús. tonn af ţorski

Ţorskur_vinstriHafrannsóknastofnunin leggur til að heimilt verði að veiða 160 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er 10 þúsundum tonna meira en stofnunin lagði til fyrir réttu ári. Stofnunin metur stærð þorskstofnsins nú 850 þúsund tonn.

4. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Gildistaka fimm ára dragótaveiđibanns fćrđ aftur til 1. september

FlatfiskurSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að breyta gildistöku banns við dragnótaveiðum í sjö fjörðum. Samkvæmt reglugerð tekur bannið gildi frá og með 1. september 2010 og gildir til 1. september 2015. Fyrr í vikunni var tilkynnt að bannið tæki gildi næstkomandi mánudag, 7. júní. Dragnótamenn mótmæltu skömmum fyrirvara og var tillit teið til sjónarmiða þeirra. Bannið tekur því gildi við upphaf nýs fiskveiðiárs.

3. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Góđur úthafskarfaafli skipa HB Granda á Reykjaneshrygg

VenusAflabrögð fjögurra frystitogara HB Granda hafa verið góð á Reykjaneshryggnum að undanförnu þrátt fyrir að mörg skip hafi verið að veiðum á tiltölulega litlu svæði á mörkum landhelgislínunnar. Þegar mest hefur verið hafa um 50 skip verið að veiðum í einu. Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóri togara HB Granda, segir í frétt á vefsíðu fyrirtækisins að  það sé mat sumra skipstjóra að meira sé um karfa á Reykjaneshryggnum í ár en undanfarin ár.

3. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Rćkjuverksmiđja Ramma fćr BRC gćđavottun

RækjaRækjuvinnsla Ramma á  Siglufirði fékk nýlega svokallaða BRC (British Retail Consortium) gæðavottun þannig að hún er nú samþykkt sem framleiðandi fyrir flesta af kröfuhörðustu kaupendum á Bretlandsmarkaði. Verksmiðjan hefur tekið um 1300 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur framleiðslan gengið vel og rækjan selst jafnóðum. Greint er frá þessu á vefsíðu fyrirtækisins.

2. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Framkvćmdastjóri LÍÚ: Sjávarútvegsráđherra svíkur dragnótamenn

Fridrik-litil„Það er ekki hægt að segja að það komi lengur á óvart, en okkur þykir það samt miður að enn á ný skuli Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ganga á bak orða sinna," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann segir að ráðherra hafi á fundi með dragnótamönnum lofað að fara frekar yfir málið með þeim áður en til ákvörðunar kæmi. Það loforð hafi verið svikið.

2. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

„Rétt markađssetning hefur skapađ ímynd hágćđavöru"

Jón Kjartan Jónsson„Markaðssetning er kostnaðarsöm og eitt árið var 19% af veltunni varið til markaðs- og kynningastarfs á bleikjunni sem var og er víða óþekkt vara," sagði Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, á almennum atvinnumálafundi fyrirtækisins á Akureyri. Bleikjueldi er vaxandi þáttur í fjölþættri starfsemi Samherja.

1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Ráđherra lokar sjö fjörđum fyrir dragnótaveiđum í fimm ár

FlatfiskurSjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur með útgáfu reglugerðar ákveðið að loka sjö fjörðum á norðanverðu landinu til fimm ára fyrir dragnótaveiðum frá og með 7. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var út í dag. Um er að ræða  grunnslóð í Önundarfirði, Hrútafirði/Miðfirði, Húnafirði, Skagafirði og Seyðisfirði/Loðmundarfirði. 

1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Makríls vart skammt undan Vestmannaeyjum

Makríll í kösJúpíter ÞH, skip Ísfélags Vestmannaeyja, varð í síðustu viku vart við makríl skammt undan Eyjum. Lítilræði af honum ánetjaðist er verið var að prófa nýja gerð trolls að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins.

1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN

Alţjóđlegt kynningar- og umsagnarferli vegna vottunar ábyrgra fiskveiđa Íslendinga

UpprunalogoFiskifélag Íslands mun frá og með deginum í dag hefja alþjóðlegt kynningar- og  umsagnarferli vegna kröfulýsingar sem vottun ábyrgra fiskveiða mun byggja á. Leiðbeiningar um hvernig skila á inn umsögnum og athugasemdum er að finna á vefslóðinni http://www.responsiblefisheries.is/

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta