Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Fréttir

30. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

„Búum viđ óţolandi óvissu um grundvallarforsendur atvinnugreinarinnar"

Stefán FriðrikssonStórfelldur niðurskurður á aflaheimildum, óvissa um rekstrarumhverfi til framtíðar og á tíðum fjandsamleg orðræða um atvinnugreinina. Þetta eru þeir þættir sem valda sjávarútvegsfyrirtækjum mestum vanda í dag að mati Stefáns Friðrikssonar, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í síðustu viku.

27. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Promens á Dalvík: Minni eftirspurn innanlands vegna óvissu í sjávarútvegi

Fiskiker_PromensDaði Valdimarsson, framkvæmdastjóri Promens á Dalvík, segir að þrátt fyrir alþjóðlegu efnahagskreppuna gangi salan erlendis vel en innlend eftirspurn hafi minnkað, m.a. vegna óvissu í sjávarútvegi sem hafi skapast vegna áforma ríkisstjórnarinnar.  Promens hefur um árabil verið í fremstu röð fyrirtækja í heiminum, sem framleiða fiskiker og aðrar sambærilegar vörur.

26. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Varaformađur LÍÚ: Nauđsynlegt ađ sátt náist um málefni sjávarútvegsins

Eiríkur Tómasson_2009Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, segir að rekstur fyrirtækisins gangi vel en öllum áformum um framkvæmdir hafi verið slegið á frest á meðan ríkisstjórnin hafi fyrningarleiðina á stefnuskrá sinni. Eiríkur segir fyrningarleiðina mjög skaðlega íslenskum sjávarútvegi en nauðsynlegt sé að sátt náist um málefni sjávarútvegsins svo fyrirtæki innan hans og starfsfólk þeirra geti unnið í friði. Þetta kemur fram í viðtali við hann á vef SA.

26. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Ţriggja vikna stopp í fiskvinnslu HG vegna strandveiđanna

Einar Valur_eldri myndEinar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf, segir að loka þurfi fiskvinnslu fyrirtækisins í þrjár vikur í sumar vegna strandveiðanna.  Hann segir það „nöturlegt" í viðtali við Fiskifréttir að verið sé að færa atvinnu frá þeim sem hafa lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi til „hobbýkarla" eins og hann orðar það.

21. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Litla, gula hćnan

Litla gula hænan_minnstFriðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, rifjar upp dæmisöguna um litlu, gulu hænuna í grein sem hann skrifar í Fiskifréttir í morgun. Þar vekur hann athygli á því að útgerðir hafi lagt í ómældan kostnað til að afla sjálfum sér og íslenskri þjóð rétt til veiða úr deilistofnum og stofnum sem halda sig alfarið utan lögsögu Íslands. „Þegar brauðið hefur verið bakað hafa aðilar í líki svínsins, kattarins og hundsins jafnan risið upp - og svo er enn," segir í niðurlagi greinarinnar.

16. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Framkvćmdastjóri LÍÚ: Niđurstöđur togararallsins vonbrigđi

ţorskur2Hafrannsóknastofnunin birti helstu niðurstöður úr stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum (togararallinu) í dag. Fram kemur að bráðabirgðastofnmat stofnunarinnar, sem byggir á aldursgreindum vísitölum og aldursgreindum afla, bendi til að stærð veiðistofns þorsks í ársbyrjun 2010 hafi verið nálægt því sem stofnunin bjóst við þegar stofnmat var gert á síðasta ári, eða rúm 720 þúsund tonn.

14. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Heildarafli í mars 9% meiri í tonnum taliđ en í sama mánuđi 2009

lodnaHeildarafli íslenskra skipa nam 117.707 tonnum í mars. Það er 8,8% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 108.136 tonn. Breyting á milli ára skýrist af meiri loðnuafla en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 21,5% minni í mars en í sama mánuði árið áður.  

7. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

„Gagnrýnin á úthlutun veiđiheimilda í makríl er vćgast sagt undarleg"

Huginn VE-55„Gagnrýnin á úthlutun veiðiheimilda í makríl er vægast sagt undarleg," segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins í Vestmannaeyjum. „Af umræðunni að dæma mætti halda að þessi nýja tegund hafi dottið í fang okkar af himnum ofan," segir Páll en skip fyrirtækisins, Huginn VE-55, hefur veitt mest allra íslenskra skipa af makríl undanfarin ár.

6. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Heildarmakrílveiđi uppsjávarskipa tćp 270 ţús. tonn sl. fjögur ár

Makríll í kösHeildarveiði íslenskra uppsjávarflotans á makríl undanfarin fjögur ár nemur 269.226 tonnum. Þetta eru 99,99% alls makríls sem íslensk skip hafa veitt á þessu tímabili. Það er á grundvelli þessarar veiðireynslu að ákvörðun hefur verið tekin um að leyfa veiðar á allt að 130.000 tonnum af makríl á þessu ári. Samkvæmt nýlegri reglugerð sjávarútvegsráðherra þar að lútandi er 112.000 tonnum ráðstafað til útgerða uppsjávarveiðiskipanna.

5. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Forseti FFSÍ um strandveiđarnar: „Atvinnusjómönnum ekki hlátur í huga"

Árni Bjarnason FFSÍÁrni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, gagnrýnir strandveiðar og verulegar tilfærslur aflaheimilda af stærri fiskiskipum til smábáta í pistli sem hann skrifar í nýjasta tölublað Fiskifrétta. Árni segir að þótt þeir sem geri út á strandveiðar í sumar á kostnað atvinnusjómanna hlægi e.t.v. út í eitt sé þeim síðarnefndu ekki hlátur í huga.

4. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Samherji kynnir starfsemi sína á Glerártorgi

Samherji_sýning á GlerártorgiSamherji hefur sett upp kynningu á starfsemi fyrirtækisins í máli og myndum á Glerártorgi á Akureyri. Sýningin er í senn áhugaverð fyrir Eyfirðinga sem og aðra gesti, þar sem hún tekur til starfsemi fyrirtækisins jafnt innanlands sem utan. Þá dregur hún fram samfélagsleg áhrif starfseminnar, t.d. á Eyjafjarðarsvæðið. Sýningin stendur til 19. apríl. 

3. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Formađur SSÍ segir fyrningarleiđina ekki góđa fyrir sjómenn

Sævar GunnarssonSævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir sambandið leggjast gegn þeirri hugmynd að útgerðarmenn verði látnir greiða fyrir afnot af auðlindinni með því að leigja kvóta af ríkinu. „Ef útgerðin þarf að leigja kvótann bendir allt til þess að leigan verði dregin frá skiptaverði eins og verið hefur. Með fyrningarleiðinni væri því verið að varpa hluta auðlindagjaldsins á herðar sjómanna."

1. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Úrskurđarnefnd hćkkar verđ á ţorski um 7% og ýsu um 10%

ţorskur2Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. apríl 2010.

1. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN

Reglugerđ um makrílveiđar 2010 gefin út

Makríll í kösSamkvæmt reglugerð um makrílveiðar íslenskra skipa, sem gefin var út í gær, er gert ráð fyrir því að 112.000 tonn af leyfðum 130.000 tonna heildarafla verði ráðstafað til útgerða uppsjávarveiðiskipa sem veitt hafa makrílinn undanfarin ár. Alls munu 18.000 tonn standa öðrum til boða. Undanfarin fjögur ár hefur uppsjávarflotinn veitt 269.226 tonn af makríl eða 99,99% heildaraflans. Samkvæmt nýrri reglugerð verður þetta hlutfall nú rúm 86%.

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta