Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

31. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Segir aukna línuívilnun þegar farna að leiða til afturfarar

Bíldsey SH-65„Nú eru uppi áform um að auka línuívilnun í þorski, ýsu og steinbít upp í 20 % og auka þannig enn meira mismunun milli þeirra sem eru með beitningavél og þeirra sem beita í landi. Til skýringar fyrir þá sem þetta lesa þá felst ívilnun í því að fyrir hver veidd 10 tonn dragast 8 tonn frá kvóta þeirra sem beita í landi í stað 10 tonna hjá okkur. Þarna er mikil mismunun sem þegar er farin að leiða til afturfarar."

31. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Strandveiðar - tilraun sem mistókst

Páll Steingrímsson„En hverjir voru það þá sem fóru á strandveiðar? Jú, það voru menn sem meðal annars voru búnir að leigja eða selja frá sér veiðiheimildir. Hin frábæra strandveiðitilraun var  notuð til að verðlauna menn fyrir að braska með veiðiheimildir! Þeim var gert kleift að laumast enn einu sinni bakdyramegin inn í kerfið. Allt í nafni réttlætis - í boði stjórnvalda."

30. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Þorsteinn Már: „Mælirinn er fullur - við munum verja hagsmuni allra hjá Samherja"

Þorsteinn Már_2010„Það er skylda okkar sem stjórnenda að hafa hagsmuni starfsmanna okkar í huga og spyrna við fótum þegar að þeim er sótt og störfum þeirra. Fyrning er ekkert annað en tilflutningur á fjármunum frá fyrirtækjum og starfsmönnum og mun óhjákvæmilega hafa áhrif á vinnuumhverfi okkar," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, m.a. í ræðu sem hann flutti á árshátíð fyrirtækisins á laugardag.

30. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

FISK-Seaood hf. í eigu 1500 félagsmanna KS

FISK-Seafood hf. logoKaupfélag Skagfirðinga er eini eigandi FISK-Seafood hf. en ekki Þórólfur Gíslason eins og skilja mátti af frétt Stöðvar 2 í síðustu viku. Félagsmenn  í KS eru 1500 talsins. Þetta kemur fram í athugasemd frá FISK-Seafood hf. vegna fréttarinnar, þar sem jafnframt er óskað eftir leiðréttingu á henni. 

29. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Þjóðhagslega hagkvæmt að halda hvalveiðum áfram

Hvalur 352„Miðað við þá þætti sem skoðaðir voru í þessari skýrslu virðist þjóðhagslega hagkvæmt að halda hvalveiðum áfram. Þessar niðurstöður gæti þó þurft að endurmeta komi síðar í ljós að veiðarnar hafi veruleg neikvæð áhrif á ferðaiðnaðinn, virði umhverfisgæða fyrir Íslendinga eða ímynd þjóðarinnar út á við," segir í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og kynnt var í dag. Skýrslan ber yfirskriftina Þjóðhagsleg áhrif hvalveiða.

26. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi sameinaðir gegn fyrningarleið

Eyrún I Sigþórsdóttir„Ríksstjórninni tókst að sameina alla hagsmunaaðila í sjávarútvegi með framsetningu á fyrningarleið, það hefur ekki nokkurri ríkisstjórn tekist fyrr," sagði Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, í ræðu sem hún flutti á fjölmennum fundi á Ísafirði á miðvikudagskvöld. Hún sagði breiða og almenna samstöðu á meðal hagsmunaðaila innan sjávarútvegsins hvað fyrningarleið áhrærði. „Það væri mikið ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda að virða slíka samstöðu að vettugi."

25. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Árni Bjarnason á Ísafjarðarfundinum í gær: Sáttanefndin fjær sátt en áður

Ísafjarðarfundur

Sáttanefndin er fjær því nú að ná niðurstöðu en þegar hún var sett á laggir og hóf störf, sagði Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna og fulltrúi í nefndinni, á fundi um óvissu í sjávarútvegi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gærkvöld. Björn Valur Gíslason, varaformaður sáttanefndar, hafði fyrr á sama fundi sagt að nefndinni miðaði vel og tiltölulega lítið vantaði upp á að ná þar samkomulagi. Árni kvaðst ekki kannast við þá lýsingu á stöðu mála.

25. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Samherji hf. boðar til opins fundar á Dalvík í kvöld

Samherji_DalvíkSamherji hf. boðar til opins fundar í Bergi, menningarhúsi á Dalvík kl. 20 í kvöld, þar sem farið verður yfir atvinnumál og starfsemi Samherja kynnt. Frummælandi er Þorsteinn Már Baldvinsson. Að lokinni framsögu er opið fyrir spurningar úr sal. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem fyrirtækið hyggst efna til við Eyjafjörð. Um 200 manns sóttu fyrsta fundinn, sem haldinn var á Hótel KEA á Akureyri í morgun.

24. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

„Grundvallarbreyting á fiskveiðistjórnun og upphaf fyrningarleiðar"

Eiríkur Tómasson_2009„Þetta frumvarp snýst fyrst og síðast um grundvallarbreytingu á fiskveiðistjórnun og það markar upphaf fyrningarleiðar sem við höfum barist svo eindregið gegn," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ. Hann birti í dag grein undir heitinu Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þar sem hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir framgöngu þeirra í skötuselsmálinu og skorar jafnframt á þau að fella úr gildi umrætt ákvæði nýsamþykkts frumvarps sjávarútvegsráðherra.

23. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Fréttatilkynning SA: Kornið sem fyllti mælinn - Stöðugleikasáttmálanum slitið

SA logo„Traust milli SA og ríkisstjórnarinnar hefur brostið. Kornið sem fyllti mælinn er frumvarp um breytingar á stjórn fiskveiða sem samþykkt var á Alþingi í gær. Þar er heimiluð veiði nytjastofns allt að 80% (2.000 tonn) umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Af  hálfu SA var sá fyrirvari gerður við undirritun sáttmálans að málefni er tengjast stjórn fiskveiða  yrðu  í þeim sáttafarvegi sem samkomulag var um." Svo segir m.a. í fréttatilkynningu sem Samtök atvinnulífsins sendu frá sér í dag.

23. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Óvissa í sjávarútvegi! - Almennur fundur á Ísafirði annað kvöld

Edinborgarhúsið á ÍsafirðiAlmennur fundur, sem ber yfirskriftina Óvissa í sjávarútvegi!, verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði annað kvöld, miðvikudaginn 24. mars kl. 20:00. Fundarefnið er fyrningarleið í sjávarútvegi, afnám sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Bein vefútsending verður frá fundinum á heimasíðu vestfirska fréttablaðsins Bæjarins besta.

19. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

„Óljós áform stjórnvalda um breytingar á fiskveiðilöggjöfinni magna upp óvissu"

Dalvíkurbyggð„Erfið staða efnahagsmála, þröng kvótastaða margra fyrirtækja og óljós áform stjórnvalda um breytingar á fiskveiðilöggjöfinni magna upp óvissu í greininni sem veldur spennu víða um land. Menn vilja vinnufrið og efasemdir um að nú sé rétti tíminn til að breyta verða sífellt háværari."

18. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Ekkert samkomulag um makrílinn - nýr fundur boðaður í Reykjavík í apríl

Makríll í kösÁkveðið hefur verið að fulltrúar strandríkja í NA-Atlantshafi komi saman í Reykjavík dagana 19. og 20. apríl nk. til frekari fundarhalda um heildarstjórn makrílveiða en fundi ríkjanna í Álasundi er lokið án þess að náðst hafi samkomulag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

17. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti íslenskra skipa 16% meira í fyrra en árið 2008

Brim-BrimnesAflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 115 milljörðum króna á árinu 2009, samanborið við 99 milljarða yfir árið 2008. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands í dag. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam 8,5 milljörðum króna en var 8 milljarðar í desember 2008.

16. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra „samrýmist ekki stefnu um sjálfbæra nýtingu"

Skötuselur„Núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, brýtur blað í sögu fiskveiðistjórnunar á Íslandi með því að óska eftir lagaheimild frá Alþingi til þess að fá að ofveiða tiltekinn fiskistofn, skötusel, sem nemur 80% umfram ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunarinnar. Þessi beiðni ráðherra er í algerri mótsögn við þá ímynd sem Ísland hefur skapað sér á meðal ábyrgra fiskveiðiþjóða. Þá er hún í fullkominni andstöðu við yfirlýstar áherslur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um mikilvægi sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda."

16. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Skora á stjórnvöld að draga skötuselsfrumvarpið til baka

Eyrún I Sigþórsdóttir„Sjávarútvegurinn er atvinnugrein sem heldur uppi heilu byggðarlögunum og skapar afleidd störf, er styrktaraðili íþróttafélaga, ýmissa góðgerðarsamtaka, sjúkrahúsa, mennta- og rannsóknarstofnana og kemur að atvinnuþróun í samstarfi við sveitarfélögin svo eitthvað sé nefnt. Því skiptir gengi greinarinnar öllu fyrir afkomu íbúa og sveitarfélaga á Vestfjörðum sem og landinu öllu."

15. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Heildarafli í febrúar 7% meiri í tonnum talið en í sama mánuði 2009

Ýsa2Heildarafli íslenskra skipa nam 106.704 tonnum í febrúar. Það er 7% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 99.696 tonn. Breyting á milli ára skýrist með meiri afla uppsjávartegunda. Metinn á föstu verði var aflinn 8,5% minni í febrúar en árið áður.  

12. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Ábyrgar fiskveiðar eða vísvitandi ofveiði?

kristjanÞ„Vert er að hafa í huga að aflamark í skötusel á yfirstandandi fiskveiðiári (2009/2010) er 2500 tonn og er það magn í samræmi við ráðgjöf vísindamanna Hafrannsóknastofnunarinnar. Tilvitnað frumvarpsákvæði felur því í sér heimild til ráðherra til að leyfa veiðar á 80% meira magni skötusels en vísindamenn hafa ráðlagt. Augljóst er að ef þetta ákvæði verður að lögum þá fer það á svig við þær þjóðréttarlegu áherslur og skuldbindingar sem Íslendingar hafa haft forystu um að móta í meira en hálfa öld."

11. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Segir dægurþras hindra vöxt og uppbyggingu atvinnulífs

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson„Auknar skattaálögur auk hugmynda um fyrningu aflaheimilda eru til umræðu, ásamt inngöngu í ESB og upptöku evru, á sama tíma og heimagerður vandi heldur nauðsynlegu fjármagni frá atvinnulífinu og kæfir það smám saman þannig að hvert á fætur öðru missa fyrirtækin samkeppnishæfi sitt, markaðshlutdeild og rekstrarhæfi. Til lengri tíma er þetta ávísun á dýpri og lengri kreppu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, í grein sem hann skrifar í morgun.

11. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Binni í Vinnslustöðinni: Nýtum sóknarfærin eða köllum yfir okkur stöðnun

Binni Í VSV_2010„Við höfum annars vegar um það að velja að nýta sóknarfærin og hins vegar að kalla yfir okkur stöðnun og hnignun með áframhaldandi innbyrðis slagsmálum um skipulag í sjávarútvegi. Þetta eru kostirnir í stöðunni," segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í nýlegu viðtali.

10. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

„Stjórnmálamenn verða að hætta að slá ryki í augu fólks"

Gunnþór Ingvason„Samkeppnisfær sjávarútvegur er það sem við þurfum. Við spólum ekki þeirri þróun til baka sem átt hefur sér stað. Við verðum að horfast í augu við að afköst á manntíma í vinnslunni hafa stóraukist og á sama tíma hefur afli minnkað. Greinin þarf færra fólk en áður til að vinna úr þeim fiski sem við veiðum. Skipum hefur fækkað. Stjórnmálamenn verða að hætta að slá ryki í augu fólks með því að halda því fram að allt geti orðið eins og áður."

8. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Alaska fylgir fordæmi Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða

Fiskiskip frá Alaska

Alaska hefur ákveðið að feta í fótspor Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða. Stjórn markaðsstofnunar sjávarútvegsins í Alaska (The Alaska Seafood Marketing Institute) tilkynnti fyrir helgina að hún hefði falið óháðum, faggiltum aðila, Global Trust Certification Ltd., að votta fiskveiðistjórnunarkerfi ríkisins.

6. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Sjávarafurðir námu 42,42% vöruútflutnings á síðasta ári

Hlutfall sjávarútvegs í vöruútflutningi 2009Hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi landsmanna nam 42,42% á síðasta ári. Þetta hlutfall er 5,7 prósentustigum hærra en árið 2008 er það var 36,75% og ívið hærra en árið 2007 er það var 41,82%. Hlutfall sjávarútvegs af vergri landsframleiðslu var 13,76%  og hefur ekki verið hærra frá árinu 2002. 

5. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Dæmi um 14 brot sama strandveiðibáts á reglu um hámarksafla

þorskur2Dæmi er um að sami strandveiðibáturinn hafi brotið regluna um 800 kílóa hámarksafla í hverri veiðiferð í 14 tilvikum síðasta sumar. Þetta má lesa úr úttekt Háskólaseturs Vestfjarða á framgangi og áhrifum strandveiðanna.  Í úttektinni er að finna töflu sem sýnir að tugir dæma eru um báta sem brutu þessa reglu fimm sinnum eða oftar á meðan veiðarnar stóðu yfir. 

2. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Fyrningarleiðin vegur að markaðsstarfi í sjávarútvegi

Sverrir Pétursson„Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sjávarútvegsráðherra, þar sem kveðið er á um heimild hans til að leyfa veiðar á 4.000 tonnum af skötusel utan aflamarks á þessu og næsta fiskveiðiári eða sem nemur 80% umfram ráðleggingar fiskifræðinga. Þetta frumvarp sjávarútvegsráðherra og hugmyndir stjórnvalda um upptöku aflaheimilda munu ekki aðeins raska  erlendu markaðsstarfi sem unnið hefur verið um margra ára skeið heldur einnig grafa undan ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar," segir m.a. í grein eftir Sverri Pétursson, útgerðarstjóra hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. á Ísafirði.

2. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Helmingur strandveiðibáta braut reglur um hámarksafla í veiðiferð

Þorskur í sjó_zoom„Það er staðreynd að a.m.k. helmingur þeirra 554 báta sem stunduðu svokallaðar strandveiðar á síðasta sumri braut gegn ákvæðum reglugerðar um hámarksafla," segir Friðrik Friðriksson, lögmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna.

1. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Skip án veiðarfæra landar mestum þorski á Vestfjörðum

Papey við kvíarÞað sem af er yfirstandandi fiskveiðiári hefur ekkert skip landað jafn miklu af þorski á Vestfjörðum og Papey eða 1044 tonn. Það sem greinir þetta „fengsæla" skip frá öðrum sem landa þar um slóðir er sú staðreynd að það er veiðarfæralaust með öllu. Þetta kemur fram á vefsíðu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf.

1. Mars 2010 | ÚTVEGURINN

Kynning á vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga

Upprunalogo_betraSkipaður hefur verið sjö manna starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki sem staðfestir ábyrgar fiskveiðar Íslendinga.  Hópurinn var skipaður á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Fiskifélag Íslands boðaði til þann 25. febrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskifélaginu fyrr í dag.

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta