Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

28. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Ný skýrsla: Róttækar úrbætur strax eða sjávarútvegur í ESB líður undir lok

EvrópusambandiðVerði ekki þegar í stað gripið til róttækra ráðstafana til þess að bæta úr ágöllum sameiginlegrar sjávarútvegssstefnu Evrópusambandsins kann svo að fara að sjávarútvegur í löndum sambandsins verði liðinn undir lok þegar kemur að næstu endurskoðun stefnunnar. Varað er við þessu í nýrri skýrslu sem lögð hefur verið fram á Evrópusambandsþinginu.

26. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Verulegir fjármunir verið lagðir í þróun makrílveiða og -vinnslu

Fjölmenni á makrílmálstofuÍslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lagt verulega fjármuni í rannsóknir og þróun veiða á makríl á undanförnum árum um leið og þau hafa smám saman verið að ná tökum á veiðum og vinnslu þessarar mikilvægu uppsjávartegundar. Þetta kom fram á fjölsóttri málstofu um um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir í vikunni.

25. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Greiningarskýrsla ESB: „Staðfestir að við missum forræðið yfir fiskimiðunum"

Fridrik-litil„Þessi skýrsla ESB kemur ekki á óvart og er í raun staðfesting á öllu því sem við höfum sagt um áhrif hugsanlegrar aðildar að sambandinu á sjávarútveginn á Íslandi," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna um greiningarskýrslu  (e. Analytical Report) framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að ESB, sem kynnt var í gær.

23. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Fyrningarleiðin leggur auknar byrðar á landsbyggðina

Rósa Guðmundsdóttir„Ég er landsbyggðarmanneskja og stolt af því. Ég veit að u.þ.b. 90% af aflaheimildum Íslands eru utan höfuðborgarsvæðisins. Því segi ég að svokölluð fyrningaleið er bara ein leið til að leggja auknar byrðar á okkur sem búum á hér landsbyggðinni," sagði Rósa Guðmundsdóttir í ræðu sem hún flutti á fjölmennum baráttufundi um sjávarútveg í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fyrir helgina.

22. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

„Þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn"

Kristín Björk Gislfjörð„Nú boðar sitjandi ríkisstjórn grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða. Hin svokallaða fyrningarleið er hennar lausn og að sjálfsögðu er fyrningin sett fram í nafni réttlætis. Auðvitað vilja allir réttlæti! En þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn. Og réttlæti fyrir nokkra getur verið ranglæti fyrir marga," sagði Kristín Björk Gilsfjörð, sjómannskona á Hellissandi, í áhrifaríkri ræðu í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl. fimmtudag.

22. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Baráttufundurinn á Snæfellsnesi aðgengilegur á YouTube

YouTubeFjölmennur baráttufundur sem haldinn var í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl. fimtudagskvöld, er nú aðgengilegur á YouTube-vefnum. Á fundinum var sjónum beint að því óvissuástandi sem ríkir um framtíðarskipan sjávarútvegs vegna fyrningaráforma stjórnvalda. Upptökur má nálgast með því að smella á YouTube-merkið.

21. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti 106 milljarðar króna fyrstu 11 mánuðina 2009

þorskur í kari, forsAflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 106 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2009, samanborið við 91 milljarð yfir sama tímabil 2008. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 16,6% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 10,4 milljörðum króna en var 11,3 milljarðar í nóvember 2008.

20. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Heildarafli í janúar tæpum fjórðungi minni en í sama mánuði 2009

sild2Heildarafli íslenskra skipa nam 55.445 tonnum í janúar. Það er 22,5% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 71.520 tonn. Breyting á milli ára skýrist að mestu af minni afla uppsjávartegunda, rétt eins og í mánuðum á undan. Metinn á föstu verði var aflinn 8,9% minni í janúar en árið áður.  

19. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Rautt spjald á fyrningarleiðina á fjölmennum fundi á Snæfellsnesi

Rautt spjaldAllir frummælendur úr hópi heimamanna, á fjölmennum baráttufundi í Ólafsvík í gærkvöld, sýndu stjórnvöldum rauða spjaldið þegar fyrningarleið í sjávarútvegi bar á góma í máli þeirra. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, sagði fyrningarleiða mikla ógn fyrir byggðalag eins og Snæfellsbæ og Snæfellsnesið allt.  „Sú óvissa sem þessum vangaveltum fylgir hefur þegar unnið heilmikinn skaða í sjávarbyggðum um allt land."  

19. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Undirstöðuatvinnugrein hætta búin

Tómas Már Sigurðsson „Sjávarútvegurinn er ein mikilvægasta atvinnugrein landsmanna og á honum byggja mörg byggðarlög afkomu sína. Mikil tækifæri eru enn til staðar í íslenskum sjávarútvegi og vaxtarmöguleikar eru miklir í greininni. Ljóst er að til að Íslendingar geti unnið sig út úr þeirri kreppu sem þeir glíma nú við, þarf öflugar útflutningsgreinar. Þar mun íslenskur sjávarútvegur gegna lykilhlutverki og því er mikilvægt að skapa honum eins hagstæð skilyrði og kostur er," skrifar Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, í grein sem birtist í Austurglugganum í síðustu viku. Greinin fer hér á eftir:

18. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Rökin fyrir fyrningarleiðinni?

Hjörtur Gíslason„Ríkisstjórnin áformar að hefja fyrningu aflaheimilda í haust. Það liggur ljóst fyrir að fyrningarleiðin færir þjóðinni ekki aukin verðmæti. Félagar mínir í útgerð hafa hver á fætur öðrum komið fram undanfarið og varað við þessum hugmyndum. Forystumenn sjómannasamtakanna vara við þeim. Sveitarstjórnir um land allt vara við þeim. Stjórnvöld hlusta ekki," skrifar Hjörtur Gíslason, stjórnarformaður Ögurvíkur hf., m.a. í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Greinin fer hér á eftir í heild:

18. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Baráttufundur um sjávarútvegsmál á Snæfellsnesi í kvöld

Félagsheimilið KlifAlmennur baráttufundur verður í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í kvöld, 18. febrúar, kl. 20:30. Þar verður kastljósum einkum beint að þeim efnahags- og samfélagslegu áhrifum sem ríkjandi óvissa um framtíðarskipan í sjávarútvegi hefur á fiskvinnslufyrirtæki, fiskvinnslufólk, smábátaútgerð og mannlíf yfirleitt í byggðarlögum á Snæfellsnesi, meðal annars vegna hugmynda um svokallaða fyrningarleið.

17. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Um félagsmálaráðherra, spilafífl og apaketti

Friðrik2007„Ráðherra félagsmála velur að sjálfsögðu það orðfæri sem hann telur henta til að koma sjálfum sér og málstað sínum á framfæri við almenning. Það væri hinsvegar æskilegt að hann umgengist staðreyndir af meiri virðingu en fram kemur í þessu viðtali," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann svarar ummælum sem höfð voru eftir félagsmálaráðherra í blaðinu sl. laugardag. Greinin fer hér í heild:

12. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Morgunverðarfundur LÍÚ nú aðgengilegur á netinu

YouTubeUpptökur af fjölmennum morgunverðarfundi LÍÚ á Grand Hótel í gær eru nú aðgengilegar á vefsvæðinu YouTube. Vegna takmarkana á lengd einstakra upptaka á vefsvæðinu hefur upptökunum verið skipt niður í 20 númeraða styttri hluta. Upptökurnar má nálgast með því að smella á YouTube-merkið.

12. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

„Algjörlega galin" niðurstaða háskólaprófessorsins

Þorvarður Gunnarsson_portrett„Prófessorinn heldur því meðal annars fram, að það að sjávarútvegsfyrirtæki skipti á aflaheimildum eða leigi aflaheimildir sín á milli sé sambærilegt við það að háar fjárhæðir séu teknar út úr sjávarútveginum í formi auðlindagjalds. Sú niðurstaða hans er algjörlega galin," segir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, í grein í Morgunblaðinu í morgun. Þar svarar hann dylgjum Ólínu Þorvarðardóttur í garð fyrirtæksins og úttektar sem það vann um áhrif fyrningarleiðarinnar á sjávarútveginn. Grein fer hér í heild:

11. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Troðfullur salur á fundi um fyrningarleiðina á Grand Hótel

Grand_fundur_RagnarUm 250 manns sóttu morgunverðarfund Landssambands íslenskra útvegsmanna á Grand Hótel í morgun undir yfirskriftinni Fyrningarleið í sjávarútvegi?  Þar fluttu erindi þeir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjóri var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

9. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

„Óvissuástandið sem nú ríkir er óþolandi og því verður að linna"

Smári Geirsson„Nú er tími fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, sveitarfélög og verkalýðshreyfinguna að taka höndum saman og tryggja að menn stígi ekki óskynsamleg skref hvað varðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Óvissuástandið sem nú ríkir er óþolandi og því verður að linna," sagði Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð í ræðu sem hann flutti á opnum fundi fyrir fullu húsi á Eskfirði í gær. Yfirskrift fundarins var Sjávarútvegur í óvissu!

9. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Skötuselsfrumvarpið „sprengja“ inn í sáttaumræðu

Gunnþór Ingvason„Á sama tíma og sáttanefnd er að störfum, til reyna ná lendingu um framtíðarstjórnkerfi fiskveiða, eru menn að störfum við ýmsar breytingar og viðbætur við stjórnkerfið sem engan veginn geta verið ásættanlegar fyrir framtíðarrekstrarskilyrði greinarinnar. Skötuselsfrumvarpið svokallaða er einn hluti af þessum breytingum," sagði Gunnþór Ingvason, formaður Útvegsmannafélags Austurlands, í ræðu sinni á opnum fundi á Eskifirði í gær.

8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Fullt hús á Eskifirði á fundi um fyrningarleið

Adolf_official„Þetta var mjög vel sóttur, góður og málefnalegur fundur," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, um fund sem haldinn var síðdegis undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu! Fundarefnið var afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi og afnám sjómannaafsláttarins. Fullt hús var í Valhöll á Eskifirði eða um 140 manns þrátt fyrir að loðnuvertíð sé nú í fullum gangi þar eystra.

8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegur í óvissu!: Fyrningarleiðin rædd á fundi á Eskifirði í dag

EskifjörðurSeyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð og Útvegsmannafélag Austurlands boða til almenns fundar í Valhöll á Eskifirði kl. 17:00 í dag, undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu!  Fundarefnið er afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi og afnám sjómannaafsláttarins. Frumælendur verða Eggert Guðmundsson, forstjóri HB-Granda hf., Gunnþór Ingvason, formaður Útvegsmannafélags Austurlands, Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls starfsgreinafélags. Fundarstjóri verður Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Morgunverðarfundur LÍÚ: Fyrningarleið í sjávarútvegi?

LÍÚ logoLandssamband íslenskra útvegsmanna boðar til morgunverðarfundar á Grand Hótel nk. fimmtudag, 11. febrúar, kl. 8.00-9.30 undir yfirskriftinni: Fyrningarleið í sjávarútvegi? Á fundinum verða flutt þrjú erindi um áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin og þjóðhagsleg áhrif hennar. Fyrirlesarar eru þeir Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. á Sauðárkróki og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Nýtt strandveiðifrumvarp: „Fullkomin vanvirða við sjómenn og útvegsmenn"

Friðrik2007Aflaheimildir, sem ráðstafað verður til svokallaðra strandveiða í sumar, verða allt að 6000 tonn samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þetta er veruleg aukning frá veiðunum síðasta sumar. Strandveiðitímabilið verður jafnframt lengt um einn mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Áskorun LÍÚ, FFSÍ, SSÍ og VM til stjórnvalda: Eflum þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar

Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda um að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum. Áskorunin er svohljóðandi:

5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Framboð á innlendum fiskmörkuðum ekki meira í sjö ár

Fiskur í kari, forsÞvert á yfirlýsingar í umræðu að undanförnu um að lítið framboð á fiski hafi háð fiskvinnslufyrirtækjum án útgerðar var framboð á innlendum fiskmörkuðum á síðasta ári meira en það hefur verið allt frá árinu 2003. Þetta kemur fram í frétt á vef Fiskmarkaðs Íslands.

3. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Fyrningarleiðin er óleysanlegt verkefni

Pétur H Pálsson„Ég held enn í þá von að rökstuddur málflutningur þeirra sem vara við fyrningu aflaheimilda nái eyrum þeirra sem nú hafa örlög sjávarútvegsins í hendi sér. Ef ekki væri fyrir þessa von væri ég þegar búinn að gera starfsfólki okkar, mörgu til áratuga, ljóst hvaða áhætta fylgdi því að starfa áfram hjá okkur. Ég á mér þá ósk, að enginn þeirra þúsunda starfsmanna, sem vinna hjá sjávarútvegsfyrirtækjum um land allt, þurfi nokkurn tímann að mæta á starfsmannafund þar sem þetta er fundarefnið."

2. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir"

Einar Valur_eldri mynd

„Þetta kemur mér auðvitað ekkert á óvart en eftir því sem dýpra er kafað  ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.

2. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Allur ísfirskur strandveiðiafli seldur til aðila utan löndunarhafnar

þorskur2Aflinn sem strandveiðibátarnir veiddu síðastliðið sumar og var landað á Ísafirði, var allur seldur beint til aðila utan löndunarhafnar. Sömu sögu má segja um Bíldudal, Þingeyri, Norðurfjörð, Hólmavík og Patreksfjörð. Frá þessu er greint í frétt á vef Bæjarins Besta á Ísafirði fyrr í dag.

1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Hver gaf hverjum hvað?

Ólafur Ágúst Einarsson„Þegar menn hófu veiðar á þessum tegundum [kolmunna og úthafskarfa] var það vegna þess að verkefnaskortur var hjá skipunum. Það þurfti mikið áræði og kjark til þess að fara í þessar veiðar. Kostnaður var gríðarlegur og innkoman að sama skapi mjög lítil. Sjómenn og útgerðarmenn á þessum skipum báru lítið úr býtum lengi vel. Með miklum dugnaði og fórnarkostnaði tókst mönnum sem betur fer að ná tökum á þessum veiðum," skrifar Ólafur Ágúst Einarsson, skipstjóri á Álsey VE 2, í grein sem birtist fyrir helgina. Grein hans má lesa í heild hér á eftir:

1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 9-10%

þorskur2Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2010.

1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN

Heggur sá er hlífa skyldi

Jón Guðmann Pétursson„Nú kann að vera að stjórnvöld vilji auka nytina fyrir sameiginlegan sjóð landsmanna hjá þeirri gjöfulu mjólkurkú sem íslenskur sjávarútvegur er. Til þess kunna að vera leiðir. Sú leið stjórnvalda, sem nú er til umræðu, má helst líkja við bóndann sem veltir því fyrir sér að skjóta mjólkurkúna sína í hausinn, til að athuga hvort hún bæti ekki við sig í afurðum," skrifar Jón Guðmann Pétursson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar í grein sem birtist fyrir helgina. Greinin er birt hér í heild með góðfúslegu leyfi hans:


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta