Fréttir
30. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Engar forsendur til að gera áætlanir fram í tímann
Viðvarandi óvissa um framtíð fiskveiðistjórnunar í tíð núverandi stjórnvalda veldur því að sjávarútvegsfyrirtækin hafa engar forsendur til þess að gera áætlanir fram í tímann, sem þó eru þeim nauðsynlegar. Þetta var á meðal þess sem fram kom í ræðu Árna Bjarnasonar, forseta Farmanna- og fiskimannasambandsins, á íbúafundi um sjávarútveg og velferð á Neskaupstað í gær.
30. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Samherji afhendir 75 milljónir til samfélagsverkefna
Samherji hf. afhenti í gær styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu að upphæð 75 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum.
29. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Ýsuafli aflamarksskipa og krókaaflamarksskipa hlutfallslega hinn sami á milli fiskveiðiára
Samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu frá 1. september til 29. desember 2010 hafa aflamarksskip veitt 81,32% þess ýsuafla, sem þau veiddu á sama tímabili á síðasta fiskveiðiári eða alls 10.987 tonn. Þetta er sama hlutfall og hjá krókaaflamarksskipum, sem hafa veitt 81,43% þess ýsuafla, sem þau veiddu á sama tímabili á síðasta fiskveiðiári eða alls 6.877 tonn.
28. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Síldarvinnslan boðar til íbúafundar um sjávarútveg og velferð
Síldarvinnslan á Neskaupstað hefur boðað til íbúafundar kl. 13 á morgun, 29. desember, undir yfirskriftinni „Hagkvæmur sjávarútvegur er mikilvæg undirstaða velferðar." Fundurinn er öllum opinn sem „hafa áhuga á sjávarútvegi og velferð landsins," eins og segir í tilkynningu frá Síldarvinnslunni.
27. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Norðmenn gætu lært af Íslendingum í markaðsmálum
Norðmenn gætu lært það af Íslendingum hvernig á að hlusta eftir þörfum markaðarins. Þetta segir Yannick Forget-Dugaret, forstjóri stærsta framleiðanda og dreifingaraðila ferskra sjávarafurða í Frakklandi. Fyrirtækið Pomona, sem er með höfuðstöðvar sínar í Boulogne, rekur átján dreifingarstöðvar fyrir sjávarafurðir þar í landi.
23. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Vinnslustöðin greiðir landvinnslufólki 200 þús. kr. jólabónus
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að starfsmenn í landvinnslu fyrirtækisins fái greiddan 200.000 króna kaupauka nú fyrir jólin, þ.e. þeir sem hafa verið í fullu starfi allt árið. Aðrir fá greitt í samræmi við starfshlutfall. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
22. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Þeir sem tóku á sig skerðingu njóti aukningar
„Þorskurinn er verðmætasta fisktegund okkar og því eru það afar jákvæðar fréttir að heildarvísitala þorsksins mældist 20% hærri en í fyrra," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um niðurstöður haustralls Hafrannsóknastofnunarinnar sem kynntar voru í gær. Þá segir hann mjög mikilvægt að vísitölur fyrir eins árs og tveggja ára þorsk, þ.e. árganganna frá 2008 og 2009, mældust þær hæstu frá því að stofnmælingar að hausti hófust árið 1996. Þessir árgangar koma inn í viðmiðunarstofninn 2012 og 2013.
21. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Met í aflaverðmæti hjá Vilhelm Þorsteinssyni EA 11
Með löndun á fullfermi af frystum síldarflökum í síðustu veiðiferð ársins setti áhöfn Vilhelms Þorsteinssonar EA 11met hvað aflaverðmæti snertir. Áhöfnin hefur á árinu veitt um 50.000 tonn af uppsjávartegundum að útflutningsverðmæti 3,3 milljarðar króna. Nánar er skýrt frá þessu á vefsíðu Samherja hf.
17. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Makrílkvótinn verður 147 þúsund tonn 2011
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur tilkynnt að heimilt verði að veiða 146.818 tonn af makríl á næsta ári. Að viðbættum þeim 8.000 tonnum, sem ekki tókst að veiða á þessu ári, gæti heildarmakrílafli íslenskra skipa á árinu 2011 orðið allt að 155 þúsund tonnum. Kvóti þessa árs var 130 þúsund tonn.
17. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í nóvember 2,2% minni í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 83.811 tonnum í nóvember. Það er 2,2% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 85.698 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 0,5% minni í nóvember en árið áður. Það sem af er ári hefur afli metinn á föstu verði dregist saman um 8%.
16. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Ábyrgar þorskveiðar staðfestar með vottun
Veiðar Íslendinga á þorski í íslenskri fiskveiðilögsögu hafa hlotið vottun sem byggist á ströngustu kröfum sem settar eru á alþjóðavettvangi. Vottunin staðfestir ábyrga fiskveiðistjórnun og góða umgengni um auðlindir sjávar.
15. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
„Norðmenn og ESB hafa ákveðið að makrílafli fari langt fram úr veiðiráðgjöf"
„Með því að taka til sín 90% þess makrílafla, sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) leggur til, hafa Norðmenn og Evrópusambandið ákveðið að makrílaflinn á næsta ári fari langt fram úr því sem veiðiráðgjöf hljóðar upp á," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
14. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Eskja og Síldarvinnslan greiða 260 þús. króna launauppbót
Bæði Síldarvinnslan hf. og Eskja hf. hafa ákveðið að fylgja fordæmi Samherja hf. og greiða starfsfólki sínu 260 þúsund króna launauppbót miðað við fullt starfshlutfall og -tíma á árinu. Bæði fyrirtækin greindu frá þessu með tilkynningum í gær.
13. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti Björgólfs EA yfir milljarðinn
Aflaverðmæti Björgólfs EA 312 fór í fyrsta sinn yfir milljarð króna er skipið kom inn með fullfermi til löndunar á Dalvík í dag. Skipið á líklega enn eftir að landa þrívegis á árinu þannig að 970 milljóna króna heildarverðmæti afla skipsins á síðasta ári verður bætt rækilega á árinu 2010.
9. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
HB Grandi hefur loðnufrystingu á Vopnafirði
Loðnufrysting hófst hjá HB Granda á Vopnafirði í gær eftir að Ingunn AK kom til hafnar með um 750 tonna loðnufarm í fyrrinótt og Faxi RE með um 260 tonn seint í gær. Að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Ingunni AK, verður víða vart við loðnu en hún hefur verið dreifð og staðið djúpt. Skýrt er frá þessu á vefsíðu HB Granda.
9. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra úr takti
„Þessar hugmyndir eru ekkert annað en grímulaus fyrningarleið. Samkvæmt þeim ætlar ríkið að taka til sín aflaheimildir af handhöfum aflahlutdeildar og leigja þær síðan. Hugmyndir af þessum toga grafa undan atvinnugreininni, veikja rekstrargrundvöll fyrirtækjanna og þar með stöðu landsbyggðarinnar," skrifar Adolf Guðmundsson, formnaður LÍÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í morgun undir yfirskriftinni Sjávarútvegsráðherra úr takti.
7. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Allt eftirlit með sjávarútvegi flutt í ríkisforsjá
Matvælastofnun, MAST, tilkynnti skoðunarstofum þann 23. nóvember sl. að stofnunin muni ekki fela faggildum aðilum framkvæmd eftirlits með sjávarútvegsfyrirtækjum frá og með 1. mars 2011. Með ákvörðun sinni hafa stjórnvöld hafnað vilja LÍÚ, SF og SA, og tilmælum sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, um að viðhalda ætti núverandi skoðunarstofufyrirkomulagi í sjávarútvegi og ákveðið að snúa alfarið til ríkisrekins eftirlits
6. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Mótmæli við hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum
Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Sjómannasamband Íslands og VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau mótmæla harðlega öllum hugmyndum um sölu ríkisins á aflaheimildum. Yfirlýsingin fer hér í heild:
2. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Dragnótamenn líkja aðför að sér við galdraofsóknir
„Með aðferðum sem minna á galdraofsóknir hefur ráðherra sett útgerð og framtíðarrekstur fjölmargra dragnótabáta í fullkomið uppnám. Án nokkurs vísindalegs rökstuðnings hefur ráðherra gróflega mismunað útgerðum eftir tegund veiðarfæra," segir m.a. í ályktun aðalfundar Samtaka dragnótamanna sem haldinn var laugardaginn 27. nóvember sl. Ályktunina má lesa hér í heild.
2. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Samherji greiðir starfsfólki í landi 260 þúsund króna launauppbót
Samherji hf. hefur ákveðið að greiða starfsmönnum í landi 260 þúsund króna launauppbót nú í desember, til viðbótar umsaminni 46 þúsund króna desemberuppbót. Þetta er í annað skiptið á árinu sem Samherji greiðir uppbót á laun. Starfsmaður í fullu starfi fær því samtals 320 þúsund króna aukagreiðslur á árinu. Þetta er jafnframt annað árið í röð sem Samherji greiðir um 300 starfsmönnum eingreiðslur umfram kjarasamninga.
1. Desember 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á ýsu um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. desember 2010.
30. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Verðmæti sjávarafla fyrstu átta mánuðina eykst á milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 91 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 77 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14 milljarða eða 18,2% á milli ára.
29. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
„Ef markmiðið er fiskvernd verður að loka á öll veiðarfæri"
Ómar Karlsson, útgerðarmaður á dragnótabátnum Hörpu HU 4, segir í viðtali í nýjasta tölublaði Fishing News International að sér reynist erftitt að skilja þær ástæður sem liggja að baki þeim takmörkunum sem settar hafi verið á dragnótaveiðar. „Ef markmiðið er fiskvernd verður að loka veiðisvæðunum fyrir öllum tegundum veiðarfæra," segir Ómar.
25. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Óheimilt að tengja saman undanþágur og 14 klst. sérreglu
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið úrskurðaði í máli Brim hf. gegn undanþágunefnd þann 3. nóvember sl., á þann veg að meirihluta undanþágunefndar var óheimilt að krefjast þess að sérregla yrði afturkölluð ef samþykkja ætti undanþágu fyrir skipverja til að gegna starfi vélavarðar. Sérreglan kveður á um um að ekki þurfi að vera vélavörður í áhöfn Sólborgar RE-270 þegar útivist skipsins er styttri en 14 klst.
24. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
EFTA og ESB: Um 15% alls landaðs afla á Íslandi
Um 15% alls þess afla sem landað var í EFTA- og ESB ríkjunum árið 2008 var landað á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Evrópusambandsins yfir landaðan fiskafla í ESB ríkjunum 27 auk EFTA-ríkjanna Íslands og Noregs.
22. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Skotland: Sex skipstjórar játa stórfelld fiskveiðibrot
Sex skoskir skipstjórar játuðu við yfirheyrslur fyrir hæstarétti í Edinborg í dag að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsundum tonna af makríl og síld. Tveir skipstjóranna eru í stjórn samtaka skoskra uppsjávarveiðimanna (Scottish Pelagic Fishermen's Association). Þessi sömu samtök hafa haft sig mjög í frammi í gagnrýni á makrílveiðar íslenskra skipa.
22. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Undirskriftasöfnun hafin gegn brottkasti innan ESB
Rúmlega 30.000 manns hafa nú undirritað áskorun til fiskveiðistjóra Evrópusambandsins, Maria Damanaki, um að brottkast á fiski verði þegar í stað bannað innan Evrópusambandsins.
19. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Mikilvægt að stjórnun fiskveiða verði í áfram í traustum farvegi
„Lykilatriði í hámarksnýtingu fiskimiðanna, bæði í líffræðilegu og efnahagslegu tilliti, er hvernig við högum stjórnun veiðanna og gætum þess að ofveiða ekki fiskistofnana. Ef okkur tekst ekki með trúverðugum hætti að standa vörð um skynsama nýtingu fiskimiðanna er viðbúið að markaðurinn muni bregðast við því og það muni gera sölu afurðanna erfiðari til framtíðar. Við eigum því mikið undir því að stjórnun fiskveiða verði í áfram í traustum og ásættanlegum farvegi," skrifar Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ, m.a. í grein sem birtist í Fiskifréttum í gær undir yfirskriftinni Villtur fiskur og eldisfiskur.
18. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Hafró leggur til 200 þús. tonna aflamark í loðnu
„Hafrannsóknastofnunin leggur því til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2010/2011 verði samtals 200 þúsund tonn. Jafnframt leggur stofnunin til að ekki verði gerðar breytingar á núgildandi reglum um takmörkun á notkun flotvörpu við veiðarnar," segir í tilkynningu frá stofnuninni sem send var út fyrr í dag.
16. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Samtök dragnótamanna: Alþingi endurskoði vald ráðherra
„Það er skoðun okkar dragnótamanna að þessar mótsagnir kalli á að vinnubrögð í ráðuneytinu verði rannsökuð og að Alþingi endurskoði vald ráðherra," segir í bréfi sem Samtök dragnótamanna hafa sent sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
15. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í október 24% meiri í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
11. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Aflamarksskip veiddu 93% heildaraflans á síðasta fiskiveiðiári
Heildarafli íslenska fiskiskipaflotans á síðasta fiskveiðiári var samtals 1.041.795 tonn. Aflamarksskip veiddu tæplega 93% af heildaraflanum en krókaaflamarks- og strandveiðibátar rúmlega 7%. Heildarveiði síðasta fiskveiðiárs er um 14% minni en á fiskveiðiárinu 2008-2009 þegar aflinn var 1.210.009 tonn. Munurinn liggur einkum í samdrætti í afla uppsjávartegunda á milli fiskveiðiára.
9. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Stuðningur við samningaleiðina eykst og mælist nú 57,4%
Stuðningur við svokallaða samningaleið í sjávarútvegi vex og nú eru 57,4% kjósenda fylgjandi því að hún verði farin. Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar sem fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, vann fyrir LÍÚ dagana 3. -5. nóvember sl. Í sambærilegri könnun sem unnin var í byrjun október mældist fylgi við samningaleiðina 51,7%.
8. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Sérstök skattlagning á sjávarútveg skaðleg fyrir efnahagslífið
Beint framlag sjávarútvegs til vergrar landsframleiðslu er 8-9% í dag samanborið við 6-8% fyrir nokkrum árum. Framlag sjávarútvegs er þó í raun mun meira en mælist í beinum þjóðhagsreikningum. Þetta kom m.a. fram í erindi Ragnars Árnasonar, hagfræðiprófessors við Háskóls Íslands, á aðalfundi LÍÚ fyrir skömmu.
4. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Forseti FFSÍ: Óskiljanleg aðför að undirstöðuvatvinnugrein okkar
„Hvað mönnum gengur til með aðför að þessari undirstöðuatvinnugrein okkar er fullkomlega óskiljanlegt." Þannig skrifar Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, í grein sem birtist í Fiskifréttum í dag. Í greininni fer forseti FFSÍ hörðum orðum um vinnubrögð sjávarútvegsráðherra í ýmsum málum og þær hugmyndir sem hann hefur nýverið kynnt. Árni segir með þessu grafið undan kjörum sjómanna og annarra stétta sem starfa að sjávarútvegi.
4. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Aflamark í síld ákveðið 40 þúsund tonn
Sjávarútvegsráðherra tilkynnti í gær, að úthlutað yrði 25 þúsund tonna síldarkvóta til viðbótar þeim 15 þúsundum tonna sem tilkynnt var um fyrir skömmu. Þetta er í samræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunar, sem kynntar voru í gær, um að heildaraflamark fyrir íslenska sumargotssíld fari ekki yfir 40 þúsund tonn á vertíðinni 2010-2011.
2. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti eykst á milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa var rúmlega 12 milljörðum króna meira fyrstu sjö mánuði yfirstandandi árs en það var á sama tíma árið 2009. Frá upphafi árs og til loka júlí nam verðmætið rúmum 79 milljörðum króna samanborið við tæpa 67 milljarða á sama tímabili í fyrra. Þetta er 18,8% aukning á milli ára.
1. Nóvember 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á karfa um 7%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. nóvember 2010.
29. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ mótmælir harðlega hugmyndum sjávarútvegsráðherra um að taka fyrirhugaða aukningu aflaheimilda og selja þær öðrum
„Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28. og 29. október 2010 mótmælir harðlega hugmynd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að taka fyrirhugaða aukningu aflaheimilda í þorski, ýsu, gullkarfa, ufsa og síld af útgerðum og selja þær öðrum." Svo segir í tillögu sem samþykkt var samhljóða á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna sem lauk í dag.
29. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Slysavarnaskóli sjómanna hlýtur Viðurkenningu LÍÚ 2010
Slysavarnaskóli sjómanna hlaut í dag Viðurkenningu LÍÚ 2010 fyrir mikilsvert framlag til öryggismála sjómanna í meira en 20 ár. Hilmar Snorrason skólastjóri Slysavarnaskólans veitti viðurkenningarskjali móttöku úr hendi Adolfs Guðmundssonar, formanns LÍÚ, á aðalfundi samtakanna í dag en þau hafa af þessu tilefni ákveðið að færa skólanum framlag til kaupa á kennslubúnaði.
28. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Norðmenn og ESB ætla Íslendingum 3,1% hlutdeild í makrílnum
„Af makrílviðræðunum er það að frétta að Noregur lagði til í morgun að hlutdeild Íslands í makrílveiðunum á næsta ári yrði 3,1% og lýsti Evrópusambandið stuðningi við tillöguna. Afstaða Norðmanna kemur í sjálfu sér ekki á óvart enda hafa þeir ekki sýnt neinn sveigjanleika í samningaviðræðunum fram að þessu," sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, í ræðu sinni er hann flutti fulltrúum og gestum á aðalfundi LÍÚ í dag fregnir af gangi makrílviðræðna strandríkja í London.
28. Október 2010 | ÚTVEGURINN
„Árangri og orðspori okkar má ekki kasta fyrir róða með upptöku og uppboði aflaheimilda"
„Íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður, hátæknivæddur þekkingariðnaður þar sem fjölmargir aðilar leggja hönd á plóg, bæði beint og óbeint. Við eigum í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi um sölu sjávarafurða og alla daga eru þúsundir manna og kvenna að vinna frábært starf í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna í dag.
21. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn á Snæfellsnesi mótmæla fáheyrðum vinnubrögðum sjávarútvegsráðherra
„Aðalfundur Útvegsmannafélags Snæfellsness mótmælir þeim fáheyrðu vinnubrögðum sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur viðhaft í fjöldamörgum málum sem lúta að stjórnun fiskveiða. Ráðherra hefur í öllum málum hunsað fullkomlega allt sem heitið gæti samráð við atvinnugreinina." Svo segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi Útvegsmannafélags Snæfellsness í fyrrakvöld.
21. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Fundi strandríkja um norsk-íslenska síld og kolmunna lokið
Á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem lauk í Lundúnum í dag, náðist samkomulag um að heildarafli verði 988.000 tonn árið 2011. Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilt að veiða 143.359 tonn á næsta ári.
20. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Hugmyndir sjávarútvegsráðherra skyggja á afmælisgleði útvegsbænda í Eyjum
Útvegsbændafélag Vestmannaeyja fagnar í dag, 20. október, 90 ára afmæli sínu. Félagið var stofnað árið 1920 og til þess að minnast tímamótanna hefur saga þess verið gefin út. Útgáfu bókarinnar var fagnað á stjórnarfundi í morgun en í fréttatilkynningu segir að nokkur uggur sé í brjóstum stjórnarmanna vegna hugmynda sjávarútvegsráðherra um aukna skattheimtu á sjávarútveginn.
15. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Upphafsúthlutun 15.000 tonna aflamarks í sumargotssíld
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tilkynnti í dag ákvörðun um að úthluta 15.000 lesta afla í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Er það upphafsúthlutun í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið en ákvörðun um endanlega úthlutun heildarafla liggur ekki fyrir.
14. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Ekkert samkomulag en makrílviðræðum haldið áfram síðar í mánuðinum
Ekkert samkomulag náðist um stjórn makrílveiða á næsta ári en þriggja daga fundi strandríkja lauk í London í dag. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að fundurinn hafi verið gagnlegur og að ákveðið hafi verið að halda viðræðum áfram i London eftir tvær vikur.
13. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í september 21% meiri í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 93.736 tonnum í september. Það er 21% meiri afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 77.464 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 2,2% minni í september en árið áður.
12. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Næstum helmingur Breta vill ganga úr Evrópusambandinu
Samkvæmt nýlegri könnun myndi tæpur helmingur breskra kjósenda greiða atkvæði með úrsögn úr Evrópusambandinu yrði efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Evrópumálaráðherra Breta segir niðurstöður könnunarinnar endurspegla það vantraust sem einkenni afstöðu breskra kjósenda til ESB.
11. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Meirihluti vill semja við núverandi handhafa um veiðiheimildir gegn gjaldi
Meirihluti kjósenda eða 51,7% vill semja við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi eins og lagt er til í svokallaðri samningaleið. Þetta er niðurstaða könnunar sem fyrirtækið Markaðs- og miðlarannsóknir, MMR, vann fyrir LÍÚ dagana 5. -8. október sl.
7. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Ráðgjöf ICES: Samdráttur útflutningstekna gæti numið 10 milljörðum króna
Verði farið að ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, við ákvörðun kvóta í norsk-íslenskri síld og kolmunna á næsta ári yrði það þungt högg fyrir uppsjávarútgerðir og -vinnslu að sögn Gunnþórs Ingvasonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar á Neskaupstað. Hann telur í viðtali við Fiskifréttir í morgun að ráðlagður niðurskurður í síldar- og kolmunnakvóta geti haft í för með sér um tíu milljarða króna samdrátt útflutningstekna.
6. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á þorski um 8% og ýsu um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 8%. Jafnframt var ákveðið að lækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 10%. Verð þetta gildir frá og með 5. október 2010.
5. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Áætlað útflutningsverðmæti uppsjávarafla 52 milljarðar á árinu
Áætlað heildarútflutningsverðmæti uppsjávarafla íslenskra fiskiskipa verður um 52 milljarðar króna á þessu ári. Af einstökum tegundum er heildarverðmæti norsk-íslensku síldarinnar mest en makríll kemur þar skammt á eftir.
5. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Framkvæmdastjóri LÍÚ vísar ásökunum skosks Evrópuþingmanns á bug
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, vísar í aðsendri svargrein á bug ásökunum Struan Stevenson, þingmanns Skota á Evrópuþinginu, í garð Íslendinga vegna makrílveiða okkar. Greinin birtist í nýjasta tölublaði Scotland on Sunday, sunnudagsútgáfu dagblaðsins Scotsman, en Stevenson hafði áður á þeim vettvangi sakað Íslendinga um yfirgang.
1. Október 2010 | ÚTVEGURINN
Ráðgjöf ICES: Verulegur samdráttur í síld og kolmunna en aukning í makríl
Samkvæmt stofnmælingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES, sem birtar voru í dag, mælast stofnar norsk-íslenskrar síldar og kolmunna umtalsvert minni en samkvæmt síðasta stofnmati. Makrílstofninn mælist hins vegar stærri.
29. September 2010 | ÚTVEGURINN
Rúm milljón tonn af makríl innan íslensku lögsögunnar í sumar
Heildarmagn makríls innan íslenskrar lögsögu var um 1,1 milljón tonna í sumar samkvæmt endurmati á niðurstöðum sameiginlegs rannsóknarverkefnis Íslands, Noregs og Færeyja sem stóð yfir frá 9. júlí til 20. ágúst. Þetta er mun meira magn en fyrstu niðurstöður gáfu til kynna. Heildarmagn makríls á svæðinu sem rannsakað var er áætlað 4,85 milljónir tonna.
29. September 2010 | ÚTVEGURINN
Umtalsverð aukning aflaverðmætis á fyrri helmingi ársins borið saman við 2009
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 68 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 54 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um rúma 13 milljarða eða 24,7% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt sem Hagstofa Íslands hefur sent frá sér.
27. September 2010 | ÚTVEGURINN
Skotar og Írar veiddu tæp 200 þús. tonn af makríl og síld umfram kvóta á árunum 2001-2005
Skosk og írsk fiskiskip veiddu tæplega 200 þúsund tonn af makríl og síld umfram kvóta á árunum 2001-2005. Þetta kemur fram í fylgigögnum með reglugerð Evrópusambandsins frá 2007. Reglugerðin tekur til skerðingar á kvóta skoskra og írskra fiskiskipa á árunum 2007-2012 til að mæta ofveiðinni á fyrrgreindu tímabili.
15. September 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í ágúst 3% meiri í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 116.026 tonnum í ágúst. Það er rétt rúmlega 3% meiri afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 112.500 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 7,5% meiri í ágúst en árið áður.
8. September 2010 | ÚTVEGURINN
Ábyrgir Skotar uppvísir að ólöglegum veiðum á tugum þúsunda tonna af makríl og síld
Sex skoskir skipstjórar hafa viðurkennt fyrir hæstarétti í Glasgow að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsundum tonna af makríl og síld. Tveir skipstjóranna eru í stjórn samtaka skoskra uppsjávarveiðimanna (Scottish Pelagic Fishermen's Association). Þessi sömu samtök hafa haft sig mjög í frammi í gagnrýni á makrílveiðar Íslendinga að undanförnu.
7. September 2010 | ÚTVEGURINN
Breið samstaða um aflamarkskerfi og langtíma rétt til aflaheimilda
„Starfshópur um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða hefur nú skilað skýrslu sinni. Í starfshópnum myndaðist breið samstaða um að byggja áfram á aflamarkskerfi og fara svokallaða samningaleið. Sú leið grundvallast á samningum ríkisins og rétthafa aflaheimilda um langtíma afnotarétt og skýrum ákvæðum um framlengingu samninga." Svo segir í yfirlýsingu sem LÍÚ hefur sent frá sér. Yfirlýsingin fer hér á eftir:
7. September 2010 | ÚTVEGURINN
Dragnótamenn leita til umboðsmanns Alþingis
Félag dragnótamanna hefur sent umboðsmanni Alþingis bréf, þar sem óskað er eftir liðsinni embættisins við að kalla eftir skriflegum svörum við ítrekuðum fyrirspurnum samtakanna til sjávarútvegsráðherra vegna ákvörðunar hans um að takmarka dragnótaveiðar í sjö fjörðum við landið frá og með 1. september sl.
1. September 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á ýsu um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. september 2010.
1. September 2010 | ÚTVEGURINN
Ákvörðun ráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju er ólögmæt
Sú ákvörðun sjávarútvegsráðherra að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju á komandi fiskveiðiári er ólögleg samkvæmt lögfræðiáliti sem unnið hefur verið fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna og ráðuneytinu hefur verið kynnt. Í álitinu segir m.a. að ákvörðun ráðherra „ ... stenst ekki lög um stjórn fiskveiða og er því ólögmæt og ógildanleg."
31. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti jókst um tæpan þriðjung fyrstu fimm mánuði ársins
Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um tæplega þriðjung fyrstu fimm mánuði ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Alls nam verðmætið rúmum 57 milljörðum króna samanborið við 43,1 milljarð á sama tímabili 2009. Verðmætaaukning á milli ára er því tæpir 14 milljarðar eða 32,4%.
26. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Innistæðulaus gagnrýni
„Samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og Úthafsveiðisamningnum ber Norðmönnum og ESB skylda til að semja við Ísland um stjórn makrílveiðanna. Með því að útiloka Ísland með ólögmætum hætti frá samningaviðræðum um heildarstjórn makrílveiðanna í áratug hafa Noregur og Evrópusambandið verulega rýrt trúverðugleika eigin aðferða við stjórn veiðanna," segir m.a. í grein eftir upplýsinga- og kynningarfulltrúa LÍÚ í Fiskifréttum í morgun.
25. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðstefnan haldin 6. og 7. september
Boðað hefur verið til ráðstefnu um sjávarútveg á Grand Hóteli í Reykjavík dagana 6. og 7. september næstkomandi undir yfirskriftinni Sjávarútvegsráðstefnan - Hafsjór tækifæra. Á vefsíðu ráðstefnunnar, www.sjavarutvegsradstefnan.is, er hægt að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar. Í kynningu á ráðstefnunni segir m.a. að hugmyndin með henni sé „að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi" og einnig að „stuðla að faglegri og fræðandi umfjöllun um sjávarútveg."
24. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Skýlaus réttur Íslands til makrílveiða
„Í stuttri aðsendri grein í Fréttablaðinu þann 20. ágúst sl. var því haldið fram að Ísland hefði ekki rétt til að veiða makríl innan íslenskrar lögsögu. Þetta er alrangt. Það er einmitt vegna þess að að makríllinn er innan íslenskrar lögsögu að réttur íslenskra skipa til veiðanna er skýlaus samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna," segir í grein sem Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, skrifaði í Fréttablaðið í morgun. Greinin fer hér á eftir í heild:
19. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Heildaraflinn á árinu 2009 sá minnsti í 18 ár
Heildarafli ísenskra fiskiskipa á árinu 2009 var tæplega 1130 þúsund tonn. Það er 153 þúsundum tonna minni afli en árið 2009. Þetta er minnsti afli íslenska fiskiskipaflotans frá árinu 1991. Heildaraflaverðmæti nam 115 milljörðum króna og jókst um 16,4% frá árinu áður. Mælt á föstu verðu dróst verðmæti aflans hins vegar saman um 2,8%. Þetta er á meðal þess sem lesa má í nýútkomnu riti Hagstofu Íslands, Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2009.
16. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Umdeild vinnubrögð ráðherra í dragnótamálinu vekja athygli erlendis
Fjallað er í opnugrein í nýjasta hefti tímaritsins Fishing News International um þá umdeildu ákvörðun sjávarútvegsráðherra að takmarka dragnótaveiðar án þess að nokkur vísindaleg rök liggi þar að baki. Yfirskrift greinarinnar má lauslega þýða: „Reglugerð sem byggir á pólitík en ekki vísindum bitnar á dragnótabátum" (e. Politics wins over science as seine netters fall foul of policy).
13. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Blekking um ESB og deilistofna
Það er blekking að aðild að ESB styrki samningsstöðu Íslands um hlutdeild í deilistofnum eins og sumir aðildarsinnar hafa haldið fram. Ýjað er að þessu í niðurlagi leiðara Fréttablaðsins þann 11. ágúst sl., þar sem fjallað er um makrílveiðar og hugsanleg staða gagnvart Noregi tekin sem dæmi.
13. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í júlí 27% meiri í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 116.820 tonnum í júlí. Það er rúmlega 27% minni afli í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 160.132 tonn. Mismunurinn á milli ára skýrist að mestu leyti af minni afla makríls og síldar í ár en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 13,2% minni í júlí en árið áður.
6. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing formanns LÍÚ: Engin breyting á afstöðu LÍÚ til aðildar Íslands að ESB
Að gefnu tilefni vill undirritaður árétta að engin breyting hefur orðið á afstöðu LÍÚ til aðildar að Evrópusambandinu. Ummæli mín undir lok viðtals í síðdegisþætti á Rás 2 í sl. miðvikudag voru í fréttum RÚV síðar þann sama dag af einhverri ástæðu slitin úr samhengi við annað sem ég hafði sagt fyrr í þættinum.
6. Ágúst 2010 | ÚTVEGURINN
Makrílveiðar Íslendinga eru jafn lögmætar og makrílveiðar Evrópusambandsins og Norðmanna
„Ísland er í í fullum rétti til að veiða makríl innan íslenslu efnahagslögsögunnar, rétt eins og Norðmenn og aðildarríki Evrópusambandsins hafa rétt til makrílveiða innan sinna eigin efnahagslögsagna. Makrílveiðar Íslendinga eru því jafnlögmætar og makrílveiðar Noregs og Evrópusambandsríkjanna."
9. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
„Fordómar gegn dragnót ótrúlega lífseigir"
„Dragnót! Menn hafa fælst nafnið eins og myrkfælin börn grýlu! Dragnótaveiðar! Á nú að gerspilla fiskimiðum landsins, setja hjer allt í vargakjafta, svo við stöndum hjer allslausir eftir nokkur ár." Þannig lýsir fiskifræðingurinn Árni Friðriksson fordómum, sem einkenndu afstöðu andstæðinga dragnótaveiða fyrir 80 árum, í bók sinni Skarkolaveiðar Íslendinga og dragnótin.
8. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Skora á ráðherra að afturkalla reglugerð um bann við dragnótaveiðum
„Um leið og Samtök dragnótamanna mótmæla framkominni reglugerð um takmarkanir á vistvænum strandveiðum í dragnót skora þau á þig að draga hana til baka," segir í bréfi sem Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var sent í morgun.
7. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Af dragnótaveiðum, trúarbragðablæ, geðshræringu og ofsa
„Dragnótaveiðar, eins og annað, sem fær á sig trúarbragðablæ, geta sett menn í geðshræringu og ofsa," skrifar Árni Friðriksson fiskifræðingur m.a. í bók sinni, Skarkolaveiðar Íslendinga og dragnótin, sem kom út árið 1932. Í bókinni segir Árni dragnótina vera „eitt af þeim meinlausustu veiðarfærum, sem til eru" og telur ljóst að ungfiski nytjastofna stafi ekki hætta af veiðarfærinu.
6. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Segir Skagfirðingum att gegn dragnótaveiðum með blekkingum
„Það er ekki síður dapurlegt til þess að vita að þessar undirskriftir, sem fengnar voru á fölskum forsendum á sínum tíma, eru í raun aðalhvatinn að þeim takmörkunum á dragnótaveiðum sem sjávarútvegsráðherra hefur boðað með gildistöku nýrrar reglugerðar þann 1. september nk. Vinnubrögð ráðuneytisins við undirbúning reglugerðarinnar eru svo kapítuli út af fyrir sig, sem væri efni í aðra og lengri grein en þessa," skrifar Gylfi Gunnarsson, útgerðarmaður í Grímsey, í grein sem birtist í héraðsfréttablaðinu Feyki fyrir helgina. Grein Gylfa má lesa hér í heild:
2. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Vestmannaeyjar: Bæjarstjórn skorar á stjórnvöld að falla frá fyrningarleiðinni
Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í gær ályktun þar sem skorað er á sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnina alla að falla tafarlaust alfarið frá boðaðri fyrningarleið. „Þess í stað ber að leita áfram leiða til að efla sjávarútveg í sátt við íbúa sjávarbyggða, starfsmenn greinarinnar og landsmenn alla," segir í ályktuninni.
2. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Hagnaður VSV 900 millj. kr. í fyrra - skuldir ekki minni í evrum frá 2003
Rekstur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum skilaði 5,6 milljóna evra hagnaði, jafnvirði um 900 milljóna króna, á árinu 2009. Skuldir VSV nema 61 milljón evra og hefur fyrirtækið ekki skuldað minna í evrum frá árinu 2003. Tekjur fyrirtækisins voru 20 milljónum evra meiri árið 2009 en 2003. Skuldir fyrirtækisins tvöfölduðust hins vegar í íslenskum krónum við fall bankanna 2008 „og á slíka stærð er horft í umræðunni en hún segir augljóslega hverfandi sögu um raunverulega stöðu VSV," segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu en en aðalfundur þess er nýlega afstaðinn.
1. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð á þorski um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. júlí 2010.
1. Júlí 2010 | ÚTVEGURINN
Guðjón Már Sigurðsson hlýtur námsstyrk LÍÚ
Guðjón Már Sigurðsson, sem stundar doktorsnám í sjávarlíffræði við New Brunswick-háskólann í St. John á Nýfundnalandi, hefur hlotið námsstyrk LÍÚ að þessu sinni. Verkefni hans snýr að nýliðun humars og þá sérstaklega að búsvæðavali og uppvexti humarlirfa. Guðjón lauk Mastersnámi í sjávarlíffræði við Háskóla Íslands árið 2009 að undangengnu B.S. prófi í líffræði við HÍ.
30. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti jókst um rúm 34% á fyrsta ársfjórðungi
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæplega 35,7 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins 2010 samanborið við 26,5 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti jókst því um rúmlega 9 milljarða eða rúmlega 34% á milli ára. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands í dag.
29. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Þorbjörn hf. opnar sýningu á munum og minjum úr útgerð og fiskvinnslu
Útgerðarfyrirtækið Þorbjörn hf. í Grindavík hefur opnað sýningu á gömlum munum og minjum sem tengjast útgerð og fiskvinnslu og hafa safnast upp hjá fyrirtækinu á löngum tíma. Á flettiskjám eru sýndar gamlar myndir úr starfseminni. Sýningin er í níu gluggum sem hafa verið útbúnir sem sýningargluggar. Framan við gluggana er búið að koma fyrir ankeri (sjá mynd) sem er með viðfestu kynningarskilti. Ankerið fékk Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 í trollið á togslóð á 100 faðma dýpi austur í Lónsdýpi fyrir réttu ári.
24. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Aflareglu í þorski þarf að endurskoða
„Frá því að Hafrannsóknastofnunin lagði til að 20% aflareglu yrði fylgt hafa komið fram sterkar vísbendingar um að ástand þorskstofnsins sé mun betra en reiknað var með. Með nokkurri einföldun má segja að við séum nú nálægt því að vera á þeim stað sem stofnunin taldi í fyrra líklegt að við yrðum á árið 2013," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í morgun. Greinina má lesa hér í heild:
24. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Leyfilegur heildarafli sumargotssíldar aukinn um 5.000 tonn
Leyfilegur heildarafli í íslenskri sumargotssíld á yfirstandandi fiskveiðiári hefur verið aukinn um 5.000 lestir samkvæmt breytingu á reglugerð sem tilkynnt var í gær. Heildarkvótinn verður því 52.000 lestir. Breytingin er gerð til að mæta óhjákvæmilegum veiðum á síldinni sem meðafla við makrílveiðar. Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu segir m.a. að komi ekki til þessarar aukningar sé fyrirséð að ekki sé hægt að stunda makrílveiðanar með eðlilegum hætti.
21. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
„Ákvörðun ráðherra niðurlægjandi fyrir íslenska sjómenn"
„Það eru hrein og klár fiskverndarsjónarmið að baki þeim takmörkunum Norðmanna sem vísað er til og þær snúast ekki á nokkurn hátt um takmörkun veiða með dragnót vegna meintrar skaðsemi veiðarfærisins á lífríki sjávar eins og leynt og ljóst hefur verið ýjað að hérlendis," segir Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótamanna.
16. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra rassskelltur
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fær sannkallaða rassskellingu í grein í Fiskifréttum í dag, þar sem tveir sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar gagnrýna harðlega vinnubrögð ráðherra við lokun svæða fyrir veiðum með dragnót. „Þessi vinnubrögð geta vart talist til eftirbreytni og alls ekki það sem kallast gæti góð stjórnsýsla," skrifa þau Haraldur Á. Einarsson, fiskifræðingur og veiðarfærasérfræðingur og Guðrún G. Þórarinsdóttir sjávarlíffræðingur m.a. í greininni.
15. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í maí 14,5% meiri í tonnum talið en í sama mánuði 2009
Heildarafli íslenskra skipa nam 73.569 tonnum í maí. Það er 14,5% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 64.239 tonn. Breyting á milli ára skýrist að meiri afla uppsjávartegunda en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 5,5% minni í maí en árið áður.
11. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Júpíter landaði 100 tonnum af makríl í Eyjum
„Við vorum að ljúka við að landa um 100 tonnum af stórum og fallegum makríl sem við fengum í tveimur köstum í Háfadjúpi í gær, svona 15 mílur SA af Eyjum," sagði Jón Axelsson, skipstjóri á Júpíter ÞH í samtali við Útveginn fyrr í dag. Önnur skip voru ekki að makrílveiðum á þessum slóðum í gær.
10. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Segja sjávarútvegsráðherra beita blekkingum
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra beitir blekkingum í fréttatilkynningu sem send var út til fjölmiðla þann 3. júní sl. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem þeir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótamanna hafa sent frá sér. Tilkynningin fer hér á eftir í heild:
9. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Er þörf á sjávarútvegsráðuneyti ef þetta eru vinnubrögðin?
„En ef þetta er hið nýja Ísland, þar sem veiðum er stjórnað eftir ólýðræðislega unnum undirskriftarlistum eða ófaglegum samþykktum sveitastjórna, er ekki nokkur þörf á að halda úti sjávarútvegsráðuneyti," skrifar Friðrik G. Halldórsson, útgerðartæknir og talsmaður dragnótamanna, í grein sem birtist í morgun. Greinin fer hér á eftir:
8. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Stjórn LÍÚ fordæmir vinnubrögð ráðherra við takmarkanir á dragnótaveiðum
„Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna fordæmir þau vinnubrögð sem sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra viðhafði í aðdraganda og við útgáfu nýlegrar reglugerðar um takmarkanir á dragnótaveiðum. Reglugerðin gildir til fimm ára frá og með 1. september næstkomandi og tekur til sjö fjarða." Svo segir í ályktun sem stjórn LÍÚ hefur samþykkt. Ályktunin fylgir hér á eftir í heild:
8. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Mótmæli gegn litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1
Það telst ekki til tíðinda að skip fari í slipp og þaðan af síður telst það merkilegt að þau séu máluð. En liturinn skiptir augljóslega máli. Tæplega 180 manns hafa nú mótmælt litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1 á sérstakri síðu sem stofnuð hefur verið á samskiptavefnum Facebook. Skipið er nú í slipp þar sem verið er að mála það rautt eins og önnur skip Ramma hf. Sigurbjörgin var áður blá. Skýrt er frá þessu á vefsíðu fyrirtækisins.
4. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Tillögur Hafró: Heimilt verði að veiða 160 þús. tonn af þorski
Hafrannsóknastofnunin leggur til að heimilt verði að veiða 160 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári. Þetta er 10 þúsundum tonna meira en stofnunin lagði til fyrir réttu ári. Stofnunin metur stærð þorskstofnsins nú 850 þúsund tonn.
4. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Gildistaka fimm ára dragótaveiðibanns færð aftur til 1. september
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að breyta gildistöku banns við dragnótaveiðum í sjö fjörðum. Samkvæmt reglugerð tekur bannið gildi frá og með 1. september 2010 og gildir til 1. september 2015. Fyrr í vikunni var tilkynnt að bannið tæki gildi næstkomandi mánudag, 7. júní. Dragnótamenn mótmæltu skömmum fyrirvara og var tillit teið til sjónarmiða þeirra. Bannið tekur því gildi við upphaf nýs fiskveiðiárs.
3. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Góður úthafskarfaafli skipa HB Granda á Reykjaneshrygg
Aflabrögð fjögurra frystitogara HB Granda hafa verið góð á Reykjaneshryggnum að undanförnu þrátt fyrir að mörg skip hafi verið að veiðum á tiltölulega litlu svæði á mörkum landhelgislínunnar. Þegar mest hefur verið hafa um 50 skip verið að veiðum í einu. Birkir Hrannar Hjálmarsson, rekstrarstjóri togara HB Granda, segir í frétt á vefsíðu fyrirtækisins að það sé mat sumra skipstjóra að meira sé um karfa á Reykjaneshryggnum í ár en undanfarin ár.
3. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Rækjuverksmiðja Ramma fær BRC gæðavottun
Rækjuvinnsla Ramma á Siglufirði fékk nýlega svokallaða BRC (British Retail Consortium) gæðavottun þannig að hún er nú samþykkt sem framleiðandi fyrir flesta af kröfuhörðustu kaupendum á Bretlandsmarkaði. Verksmiðjan hefur tekið um 1300 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur framleiðslan gengið vel og rækjan selst jafnóðum. Greint er frá þessu á vefsíðu fyrirtækisins.
2. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Framkvæmdastjóri LÍÚ: Sjávarútvegsráðherra svíkur dragnótamenn
„Það er ekki hægt að segja að það komi lengur á óvart, en okkur þykir það samt miður að enn á ný skuli Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ganga á bak orða sinna," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann segir að ráðherra hafi á fundi með dragnótamönnum lofað að fara frekar yfir málið með þeim áður en til ákvörðunar kæmi. Það loforð hafi verið svikið.
2. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
„Rétt markaðssetning hefur skapað ímynd hágæðavöru"
„Markaðssetning er kostnaðarsöm og eitt árið var 19% af veltunni varið til markaðs- og kynningastarfs á bleikjunni sem var og er víða óþekkt vara," sagði Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, á almennum atvinnumálafundi fyrirtækisins á Akureyri. Bleikjueldi er vaxandi þáttur í fjölþættri starfsemi Samherja.
1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Ráðherra lokar sjö fjörðum fyrir dragnótaveiðum í fimm ár
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur með útgáfu reglugerðar ákveðið að loka sjö fjörðum á norðanverðu landinu til fimm ára fyrir dragnótaveiðum frá og með 7. júní. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var út í dag. Um er að ræða grunnslóð í Önundarfirði, Hrútafirði/Miðfirði, Húnafirði, Skagafirði og Seyðisfirði/Loðmundarfirði.
1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Makríls vart skammt undan Vestmannaeyjum
Júpíter ÞH, skip Ísfélags Vestmannaeyja, varð í síðustu viku vart við makríl skammt undan Eyjum. Lítilræði af honum ánetjaðist er verið var að prófa nýja gerð trolls að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélagsins.
1. Júní 2010 | ÚTVEGURINN
Alþjóðlegt kynningar- og umsagnarferli vegna vottunar ábyrgra fiskveiða Íslendinga
Fiskifélag Íslands mun frá og með deginum í dag hefja alþjóðlegt kynningar- og umsagnarferli vegna kröfulýsingar sem vottun ábyrgra fiskveiða mun byggja á. Leiðbeiningar um hvernig skila á inn umsögnum og athugasemdum er að finna á vefslóðinni http://www.responsiblefisheries.is/
31. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Árangurslaus fundur strandríkja um makríl í London
Fundi strandríkja lauk í Lundúnum í gær án þess að nokkuð þokaðist í samkomulagsátt um framtíðarstjórnun makrílveiða í NA-Atlantshafi. Auk fulltrúa Íslands sátu fundinn fulltrúar Noregs, Evrópusambandsins og Færeyja. Nýr fundur hefur verið boðaður í sumarlok. Fréttatilkynning sjávarútvegsráðuneytisins.
27. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Íslensk þýðing á spurningum og svörum um sjávarútveg og ESB
Þýðing á spurningum Evrópusambandsins varðandi íslenskan sjávarútveg og svörum sjávarútvegsráðuneytisins við þeim hefur nú verið gerð aðgengileg á vef sjávarútvegs- og lanbúnaðrráðuneytisins.
27. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Skuldir sjávarútvegsins 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja
Skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja voru 543 milljarðar króna í lok ársins 2008. Heildarskuldir íslenskra fyrirtækja námu á sama tíma samtals 22.675 milljörðum króna að því er kemur fram í Tíund, riti ríkisskattstjóra. Samkvæmt þessu voru skuldir sjávarútvegsfyrirtækja því 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja í árslok 2008.
21. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Snæfellsbær: Skora á ráðherra að afturkalla tillögur um bann við dragnótaveiðum
Tillögum sjávarútvegsráðherra um að loka sjö fjörðum á norðanverðu landinu fyrir dragnótaveiðum hefur formlega verið mótmælt í bréfi sem skipstjórar, sjómenn og útgerðarmenn dragnótabáta á Snæfellsbæ hafa afhent. Baldur Freyr Kristinsson, útgerðarmaður dragnótabáts á Snæfellsnesi og stjórnarmaður í Félagi dragnótamanna, skorar á sjávarútvegsráðherra að draga tillögur sínar til baka.
20. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Grímseyingar skora á ráðherra að draga til baka tillögur um lokanir veiðisvæða fyrir dragnót
Meirihluti kosningabærra íbúa í Grímsey hefur skrifað undir áskorun til sjávarútegsráðherra, þar sem skorað er á hann að draga til baka tillögur um lokun sjö fjarða á norðanverðu landinu fyrir dragnótaveiðum. Bent er á að þrír dragnótabátar séu gerðir út frá Grímsey og á þeim starfi 14-15 sjómenn. Frekari lokun veiðisvæða fyrir Norðurlandi komi því sérstaklega illa við útgerð þeirra.
19. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
„Stöðugleikinn hefur fært okkur forskot en nú eru aðrir að ná okkur"
„Stöðugleikinn hefur fært okkur forskot en nú eru aðrir að ná okkur," sagði Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood, sölufyrirtækis Samherja í Bretlandi, í erindi sem hann flutti á opnum morgunverðarfundi á Akureyri í síðustu viku.
18. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Framkvæmdastjóri LÍÚ um skýrslu RHA: „Fyrningarleiðin er ófær"
„Þótt skýrsluhöfundar komi sér hjá því að segja það berum orðum dylst engum sem les skýrslu Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri (RHA) að niðurstaða hennar er að fyrningarleiðin er ófær," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Skýrslan, sem RHA vann fyrir starfshóp skipaðan af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar, hefur nú verið gerð opinber.
17. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í apríl um 20% minni í tonnum talið en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 79.680 tonnum í apríl. Það er tæplega 20% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 99.267 tonn. Breyting á milli ára skýrist að mestu með breytingum á afla uppsjávartegunda. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 16,5% minni í nýliðnum apríl en í sama mánuði árið 2009.
17. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Ráðherra stingur skýrslu Hafró um dragnótaveiðar undir stól
„Andúð núverandi sjávarútvegsráðherra á dragnótaveiðum fer ekki dult. Nýleg skýrsla Hafrannsóknastofnunarinnar, byggð á rannsóknum í Skagafirði, bendir ekki til þess að dragnótin hafi nein merkjanleg áhrif á botndýralíf - þvert á það sem andstæðingar veiðarfærisins hafa haldið fram. Þar sem skýrslan var ekki að skapi ráðherra brá hann á það ráð að stinga henni undir stól."
14. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Takmarkanir á dragnótaveiðum: Ákvarðanir byggi á vísindalegum og faglegum grunni
„Það er álit bæjarstjórnar Snæfellsbæjar að þegar ákvarðanir um lokanir svæða fyrir einstök veiðarfæri er teknar, þá séu slíkar ákvarðanir byggðar á vísindalegum og faglegum grunni en ekki á tilfinningum eða vegna þrýstings án vísindalegra raka."
13. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarafurðir fluttar út fyrir tæpa 209 milljarða í fyrra
Útflutningur sjávarafurða nam 208,6 milljörðum króna á síðasta ári. Þrátt fyrir að magn hafi dregist saman um 4% á milli ára jókst verðmætið um 21,8% frá árinu áður að því er kemur fram í nýlegri frétt frá Hagstofu Íslands. Alls voru flutt út 669.000 tonn af sjávarafurðum í fyrra en magnið nam 697.000 tonnum árið 2008.
12. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Hvetja til að horfið verði frá fyrirhuguðum stjórnkerfisbreytingum
Samtök í sjávarútvegi, landbúnaði, lax-og silungveiði hafa sent forsætisráðherra og fjármálaráðherra bréf vegna fyrirhugaðra stjórnkerfisbreytinga og áhrifum þeirra á verkefni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Samtökin lýsa þungum áhyggjum yfir boðuðum breytingum á verkefnum ráðuneytisins og hvetja til þess að horfið verði frá þeim. Bréf samtakanna fer hér á eftir ásamt minnisblaði.
12. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Ísland í harðri samkeppni á mörkuðum fyrir sjávarafurðir
Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood, sölufyrirtækis Samherja í Bretlandi, segir Ísland eiga í harðri samkeppni á mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Hann segir að á meðal helstu samkeppnisaðila séu t.d. Norðmenn sem búi við mikinn stöðugleika og öflugan stuðning stjórnvalda í markaðsstarfi og sölutryggingu afurða.
10. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Talsmaður dragnótarmanna: „Ekki verið leitað eftir okkar sjónarmiðum"
„Það er merkilegt að ráðherra telji sig vera að fara „bil beggja" eins og það er orðað í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Ég kannast ekki við að hann hafi leitað eftir sjónarmiðum okkar þrátt fyrir að komið sé nærri ár frá því við óskuðum eftir því að fá fund með honum," segir Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótarmanna.
6. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Námsmöguleikar fyrir sjómenn kynntir á DVD diski
5. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði eða sjávarlíffræði. Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum vegna framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári.
4. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Segir grundvelli kippt undan útgerðinni með takmörkunum á dragnótaveiðum
„Þessar nýju tillögur sjávarútvegsráðherra um að loka sjö svæðum fyrir dragnótaveiðum þýða það einfaldlega að það er verið að hindra aðgang að mörgum af bestu veiðisvæðunum í Húnaflóa og Skagafirði án þess að fyrir því liggi nokkur vísindaleg rök," segir Friðgeir Höskuldsson á Drangsnesi, sem gerir út dragnótabátinn Grímsey ST 2. Hann telur að gangi tillögurnar eftir sé grundvellinum kippt undan útgerð hans.
4. Maí 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarafli í janúar: Verðmætaaukning 9% á milli ára
Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa jókst um 9% í janúar í ár borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Heildarverðmætið nam 8 milljörðum króna og jókst um 700 milljónir króna frá janúar 2009. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.
30. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
„Búum við óþolandi óvissu um grundvallarforsendur atvinnugreinarinnar"
Stórfelldur niðurskurður á aflaheimildum, óvissa um rekstrarumhverfi til framtíðar og á tíðum fjandsamleg orðræða um atvinnugreinina. Þetta eru þeir þættir sem valda sjávarútvegsfyrirtækjum mestum vanda í dag að mati Stefáns Friðrikssonar, framkvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja. Þetta kom fram í ræðu hans á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í síðustu viku.
27. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Promens á Dalvík: Minni eftirspurn innanlands vegna óvissu í sjávarútvegi
Daði Valdimarsson, framkvæmdastjóri Promens á Dalvík, segir að þrátt fyrir alþjóðlegu efnahagskreppuna gangi salan erlendis vel en innlend eftirspurn hafi minnkað, m.a. vegna óvissu í sjávarútvegi sem hafi skapast vegna áforma ríkisstjórnarinnar. Promens hefur um árabil verið í fremstu röð fyrirtækja í heiminum, sem framleiða fiskiker og aðrar sambærilegar vörur.
26. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Varaformaður LÍÚ: Nauðsynlegt að sátt náist um málefni sjávarútvegsins
Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, segir að rekstur fyrirtækisins gangi vel en öllum áformum um framkvæmdir hafi verið slegið á frest á meðan ríkisstjórnin hafi fyrningarleiðina á stefnuskrá sinni. Eiríkur segir fyrningarleiðina mjög skaðlega íslenskum sjávarútvegi en nauðsynlegt sé að sátt náist um málefni sjávarútvegsins svo fyrirtæki innan hans og starfsfólk þeirra geti unnið í friði. Þetta kemur fram í viðtali við hann á vef SA.
26. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Þriggja vikna stopp í fiskvinnslu HG vegna strandveiðanna
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf, segir að loka þurfi fiskvinnslu fyrirtækisins í þrjár vikur í sumar vegna strandveiðanna. Hann segir það „nöturlegt" í viðtali við Fiskifréttir að verið sé að færa atvinnu frá þeim sem hafa lífsviðurværi sitt af sjávarútvegi til „hobbýkarla" eins og hann orðar það.
21. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Litla, gula hænan
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, rifjar upp dæmisöguna um litlu, gulu hænuna í grein sem hann skrifar í Fiskifréttir í morgun. Þar vekur hann athygli á því að útgerðir hafi lagt í ómældan kostnað til að afla sjálfum sér og íslenskri þjóð rétt til veiða úr deilistofnum og stofnum sem halda sig alfarið utan lögsögu Íslands. „Þegar brauðið hefur verið bakað hafa aðilar í líki svínsins, kattarins og hundsins jafnan risið upp - og svo er enn," segir í niðurlagi greinarinnar.
16. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Framkvæmdastjóri LÍÚ: Niðurstöður togararallsins vonbrigði
14. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í mars 9% meiri í tonnum talið en í sama mánuði 2009
Heildarafli íslenskra skipa nam 117.707 tonnum í mars. Það er 8,8% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 108.136 tonn. Breyting á milli ára skýrist af meiri loðnuafla en í fyrra. Metinn á föstu verði var aflinn hins vegar 21,5% minni í mars en í sama mánuði árið áður.
7. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
„Gagnrýnin á úthlutun veiðiheimilda í makríl er vægast sagt undarleg"
„Gagnrýnin á úthlutun veiðiheimilda í makríl er vægast sagt undarleg," segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins í Vestmannaeyjum. „Af umræðunni að dæma mætti halda að þessi nýja tegund hafi dottið í fang okkar af himnum ofan," segir Páll en skip fyrirtækisins, Huginn VE-55, hefur veitt mest allra íslenskra skipa af makríl undanfarin ár.
6. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarmakrílveiði uppsjávarskipa tæp 270 þús. tonn sl. fjögur ár
Heildarveiði íslenskra uppsjávarflotans á makríl undanfarin fjögur ár nemur 269.226 tonnum. Þetta eru 99,99% alls makríls sem íslensk skip hafa veitt á þessu tímabili. Það er á grundvelli þessarar veiðireynslu að ákvörðun hefur verið tekin um að leyfa veiðar á allt að 130.000 tonnum af makríl á þessu ári. Samkvæmt nýlegri reglugerð sjávarútvegsráðherra þar að lútandi er 112.000 tonnum ráðstafað til útgerða uppsjávarveiðiskipanna.
5. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Forseti FFSÍ um strandveiðarnar: „Atvinnusjómönnum ekki hlátur í huga"
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, gagnrýnir strandveiðar og verulegar tilfærslur aflaheimilda af stærri fiskiskipum til smábáta í pistli sem hann skrifar í nýjasta tölublað Fiskifrétta. Árni segir að þótt þeir sem geri út á strandveiðar í sumar á kostnað atvinnusjómanna hlægi e.t.v. út í eitt sé þeim síðarnefndu ekki hlátur í huga.
4. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Samherji kynnir starfsemi sína á Glerártorgi
Samherji hefur sett upp kynningu á starfsemi fyrirtækisins í máli og myndum á Glerártorgi á Akureyri. Sýningin er í senn áhugaverð fyrir Eyfirðinga sem og aðra gesti, þar sem hún tekur til starfsemi fyrirtækisins jafnt innanlands sem utan. Þá dregur hún fram samfélagsleg áhrif starfseminnar, t.d. á Eyjafjarðarsvæðið. Sýningin stendur til 19. apríl.
3. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Formaður SSÍ segir fyrningarleiðina ekki góða fyrir sjómenn
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, segir sambandið leggjast gegn þeirri hugmynd að útgerðarmenn verði látnir greiða fyrir afnot af auðlindinni með því að leigja kvóta af ríkinu. „Ef útgerðin þarf að leigja kvótann bendir allt til þess að leigan verði dregin frá skiptaverði eins og verið hefur. Með fyrningarleiðinni væri því verið að varpa hluta auðlindagjaldsins á herðar sjómanna."
1. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski um 7% og ýsu um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 7%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. apríl 2010.
1. Apríl 2010 | ÚTVEGURINN
Reglugerð um makrílveiðar 2010 gefin út
Samkvæmt reglugerð um makrílveiðar íslenskra skipa, sem gefin var út í gær, er gert ráð fyrir því að 112.000 tonn af leyfðum 130.000 tonna heildarafla verði ráðstafað til útgerða uppsjávarveiðiskipa sem veitt hafa makrílinn undanfarin ár. Alls munu 18.000 tonn standa öðrum til boða. Undanfarin fjögur ár hefur uppsjávarflotinn veitt 269.226 tonn af makríl eða 99,99% heildaraflans. Samkvæmt nýrri reglugerð verður þetta hlutfall nú rúm 86%.
31. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Segir aukna línuívilnun þegar farna að leiða til afturfarar
„Nú eru uppi áform um að auka línuívilnun í þorski, ýsu og steinbít upp í 20 % og auka þannig enn meira mismunun milli þeirra sem eru með beitningavél og þeirra sem beita í landi. Til skýringar fyrir þá sem þetta lesa þá felst ívilnun í því að fyrir hver veidd 10 tonn dragast 8 tonn frá kvóta þeirra sem beita í landi í stað 10 tonna hjá okkur. Þarna er mikil mismunun sem þegar er farin að leiða til afturfarar."
31. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Strandveiðar - tilraun sem mistókst
„En hverjir voru það þá sem fóru á strandveiðar? Jú, það voru menn sem meðal annars voru búnir að leigja eða selja frá sér veiðiheimildir. Hin frábæra strandveiðitilraun var notuð til að verðlauna menn fyrir að braska með veiðiheimildir! Þeim var gert kleift að laumast enn einu sinni bakdyramegin inn í kerfið. Allt í nafni réttlætis - í boði stjórnvalda."
30. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Þorsteinn Már: „Mælirinn er fullur - við munum verja hagsmuni allra hjá Samherja"
„Það er skylda okkar sem stjórnenda að hafa hagsmuni starfsmanna okkar í huga og spyrna við fótum þegar að þeim er sótt og störfum þeirra. Fyrning er ekkert annað en tilflutningur á fjármunum frá fyrirtækjum og starfsmönnum og mun óhjákvæmilega hafa áhrif á vinnuumhverfi okkar," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, m.a. í ræðu sem hann flutti á árshátíð fyrirtækisins á laugardag.
30. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
FISK-Seaood hf. í eigu 1500 félagsmanna KS
Kaupfélag Skagfirðinga er eini eigandi FISK-Seafood hf. en ekki Þórólfur Gíslason eins og skilja mátti af frétt Stöðvar 2 í síðustu viku. Félagsmenn í KS eru 1500 talsins. Þetta kemur fram í athugasemd frá FISK-Seafood hf. vegna fréttarinnar, þar sem jafnframt er óskað eftir leiðréttingu á henni.
29. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Þjóðhagslega hagkvæmt að halda hvalveiðum áfram
„Miðað við þá þætti sem skoðaðir voru í þessari skýrslu virðist þjóðhagslega hagkvæmt að halda hvalveiðum áfram. Þessar niðurstöður gæti þó þurft að endurmeta komi síðar í ljós að veiðarnar hafi veruleg neikvæð áhrif á ferðaiðnaðinn, virði umhverfisgæða fyrir Íslendinga eða ímynd þjóðarinnar út á við," segir í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem unnin var að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og kynnt var í dag. Skýrslan ber yfirskriftina Þjóðhagsleg áhrif hvalveiða.
26. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi sameinaðir gegn fyrningarleið
„Ríksstjórninni tókst að sameina alla hagsmunaaðila í sjávarútvegi með framsetningu á fyrningarleið, það hefur ekki nokkurri ríkisstjórn tekist fyrr," sagði Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, í ræðu sem hún flutti á fjölmennum fundi á Ísafirði á miðvikudagskvöld. Hún sagði breiða og almenna samstöðu á meðal hagsmunaðaila innan sjávarútvegsins hvað fyrningarleið áhrærði. „Það væri mikið ábyrgðarleysi af hálfu stjórnvalda að virða slíka samstöðu að vettugi."
25. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Árni Bjarnason á Ísafjarðarfundinum í gær: Sáttanefndin fjær sátt en áður
25. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Samherji hf. boðar til opins fundar á Dalvík í kvöld
Samherji hf. boðar til opins fundar í Bergi, menningarhúsi á Dalvík kl. 20 í kvöld, þar sem farið verður yfir atvinnumál og starfsemi Samherja kynnt. Frummælandi er Þorsteinn Már Baldvinsson. Að lokinni framsögu er opið fyrir spurningar úr sal. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem fyrirtækið hyggst efna til við Eyjafjörð. Um 200 manns sóttu fyrsta fundinn, sem haldinn var á Hótel KEA á Akureyri í morgun.
24. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
„Grundvallarbreyting á fiskveiðistjórnun og upphaf fyrningarleiðar"
„Þetta frumvarp snýst fyrst og síðast um grundvallarbreytingu á fiskveiðistjórnun og það markar upphaf fyrningarleiðar sem við höfum barist svo eindregið gegn," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ. Hann birti í dag grein undir heitinu Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þar sem hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir framgöngu þeirra í skötuselsmálinu og skorar jafnframt á þau að fella úr gildi umrætt ákvæði nýsamþykkts frumvarps sjávarútvegsráðherra.
23. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Fréttatilkynning SA: Kornið sem fyllti mælinn - Stöðugleikasáttmálanum slitið
„Traust milli SA og ríkisstjórnarinnar hefur brostið. Kornið sem fyllti mælinn er frumvarp um breytingar á stjórn fiskveiða sem samþykkt var á Alþingi í gær. Þar er heimiluð veiði nytjastofns allt að 80% (2.000 tonn) umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Af hálfu SA var sá fyrirvari gerður við undirritun sáttmálans að málefni er tengjast stjórn fiskveiða yrðu í þeim sáttafarvegi sem samkomulag var um." Svo segir m.a. í fréttatilkynningu sem Samtök atvinnulífsins sendu frá sér í dag.
23. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Óvissa í sjávarútvegi! - Almennur fundur á Ísafirði annað kvöld
Almennur fundur, sem ber yfirskriftina Óvissa í sjávarútvegi!, verður haldinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði annað kvöld, miðvikudaginn 24. mars kl. 20:00. Fundarefnið er fyrningarleið í sjávarútvegi, afnám sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Bein vefútsending verður frá fundinum á heimasíðu vestfirska fréttablaðsins Bæjarins besta.
19. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
„Óljós áform stjórnvalda um breytingar á fiskveiðilöggjöfinni magna upp óvissu"
„Erfið staða efnahagsmála, þröng kvótastaða margra fyrirtækja og óljós áform stjórnvalda um breytingar á fiskveiðilöggjöfinni magna upp óvissu í greininni sem veldur spennu víða um land. Menn vilja vinnufrið og efasemdir um að nú sé rétti tíminn til að breyta verða sífellt háværari."
18. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Ekkert samkomulag um makrílinn - nýr fundur boðaður í Reykjavík í apríl
Ákveðið hefur verið að fulltrúar strandríkja í NA-Atlantshafi komi saman í Reykjavík dagana 19. og 20. apríl nk. til frekari fundarhalda um heildarstjórn makrílveiða en fundi ríkjanna í Álasundi er lokið án þess að náðst hafi samkomulag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
17. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti íslenskra skipa 16% meira í fyrra en árið 2008
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 115 milljörðum króna á árinu 2009, samanborið við 99 milljarða yfir árið 2008. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands í dag. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða eða 16% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam 8,5 milljörðum króna en var 8 milljarðar í desember 2008.
16. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Skötuselsfrumvarp sjávarútvegsráðherra „samrýmist ekki stefnu um sjálfbæra nýtingu"
„Núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, brýtur blað í sögu fiskveiðistjórnunar á Íslandi með því að óska eftir lagaheimild frá Alþingi til þess að fá að ofveiða tiltekinn fiskistofn, skötusel, sem nemur 80% umfram ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunarinnar. Þessi beiðni ráðherra er í algerri mótsögn við þá ímynd sem Ísland hefur skapað sér á meðal ábyrgra fiskveiðiþjóða. Þá er hún í fullkominni andstöðu við yfirlýstar áherslur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs um mikilvægi sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda."
16. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Skora á stjórnvöld að draga skötuselsfrumvarpið til baka
„Sjávarútvegurinn er atvinnugrein sem heldur uppi heilu byggðarlögunum og skapar afleidd störf, er styrktaraðili íþróttafélaga, ýmissa góðgerðarsamtaka, sjúkrahúsa, mennta- og rannsóknarstofnana og kemur að atvinnuþróun í samstarfi við sveitarfélögin svo eitthvað sé nefnt. Því skiptir gengi greinarinnar öllu fyrir afkomu íbúa og sveitarfélaga á Vestfjörðum sem og landinu öllu."
15. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í febrúar 7% meiri í tonnum talið en í sama mánuði 2009
Heildarafli íslenskra skipa nam 106.704 tonnum í febrúar. Það er 7% meira í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 99.696 tonn. Breyting á milli ára skýrist með meiri afla uppsjávartegunda. Metinn á föstu verði var aflinn 8,5% minni í febrúar en árið áður.
12. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Ábyrgar fiskveiðar eða vísvitandi ofveiði?
„Vert er að hafa í huga að aflamark í skötusel á yfirstandandi fiskveiðiári (2009/2010) er 2500 tonn og er það magn í samræmi við ráðgjöf vísindamanna Hafrannsóknastofnunarinnar. Tilvitnað frumvarpsákvæði felur því í sér heimild til ráðherra til að leyfa veiðar á 80% meira magni skötusels en vísindamenn hafa ráðlagt. Augljóst er að ef þetta ákvæði verður að lögum þá fer það á svig við þær þjóðréttarlegu áherslur og skuldbindingar sem Íslendingar hafa haft forystu um að móta í meira en hálfa öld."
11. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Segir dægurþras hindra vöxt og uppbyggingu atvinnulífs
„Auknar skattaálögur auk hugmynda um fyrningu aflaheimilda eru til umræðu, ásamt inngöngu í ESB og upptöku evru, á sama tíma og heimagerður vandi heldur nauðsynlegu fjármagni frá atvinnulífinu og kæfir það smám saman þannig að hvert á fætur öðru missa fyrirtækin samkeppnishæfi sitt, markaðshlutdeild og rekstrarhæfi. Til lengri tíma er þetta ávísun á dýpri og lengri kreppu," segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, í grein sem hann skrifar í morgun.
11. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Binni í Vinnslustöðinni: Nýtum sóknarfærin eða köllum yfir okkur stöðnun
„Við höfum annars vegar um það að velja að nýta sóknarfærin og hins vegar að kalla yfir okkur stöðnun og hnignun með áframhaldandi innbyrðis slagsmálum um skipulag í sjávarútvegi. Þetta eru kostirnir í stöðunni," segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, í nýlegu viðtali.
10. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
„Stjórnmálamenn verða að hætta að slá ryki í augu fólks"
„Samkeppnisfær sjávarútvegur er það sem við þurfum. Við spólum ekki þeirri þróun til baka sem átt hefur sér stað. Við verðum að horfast í augu við að afköst á manntíma í vinnslunni hafa stóraukist og á sama tíma hefur afli minnkað. Greinin þarf færra fólk en áður til að vinna úr þeim fiski sem við veiðum. Skipum hefur fækkað. Stjórnmálamenn verða að hætta að slá ryki í augu fólks með því að halda því fram að allt geti orðið eins og áður."
8. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Alaska fylgir fordæmi Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða
Alaska hefur ákveðið að feta í fótspor Íslands í vottun á ábyrgri stjórn fiskveiða. Stjórn markaðsstofnunar sjávarútvegsins í Alaska (The Alaska Seafood Marketing Institute) tilkynnti fyrir helgina að hún hefði falið óháðum, faggiltum aðila, Global Trust Certification Ltd., að votta fiskveiðistjórnunarkerfi ríkisins.
6. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarafurðir námu 42,42% vöruútflutnings á síðasta ári
Hlutfall sjávarafurða í vöruútflutningi landsmanna nam 42,42% á síðasta ári. Þetta hlutfall er 5,7 prósentustigum hærra en árið 2008 er það var 36,75% og ívið hærra en árið 2007 er það var 41,82%. Hlutfall sjávarútvegs af vergri landsframleiðslu var 13,76% og hefur ekki verið hærra frá árinu 2002.
5. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Dæmi um 14 brot sama strandveiðibáts á reglu um hámarksafla
2. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin vegur að markaðsstarfi í sjávarútvegi
„Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp sjávarútvegsráðherra, þar sem kveðið er á um heimild hans til að leyfa veiðar á 4.000 tonnum af skötusel utan aflamarks á þessu og næsta fiskveiðiári eða sem nemur 80% umfram ráðleggingar fiskifræðinga. Þetta frumvarp sjávarútvegsráðherra og hugmyndir stjórnvalda um upptöku aflaheimilda munu ekki aðeins raska erlendu markaðsstarfi sem unnið hefur verið um margra ára skeið heldur einnig grafa undan ímynd Íslands sem ábyrgrar fiskveiðiþjóðar," segir m.a. í grein eftir Sverri Pétursson, útgerðarstjóra hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. á Ísafirði.
2. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Helmingur strandveiðibáta braut reglur um hámarksafla í veiðiferð
„Það er staðreynd að a.m.k. helmingur þeirra 554 báta sem stunduðu svokallaðar strandveiðar á síðasta sumri braut gegn ákvæðum reglugerðar um hámarksafla," segir Friðrik Friðriksson, lögmaður Landssambands íslenskra útvegsmanna.
1. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Skip án veiðarfæra landar mestum þorski á Vestfjörðum
Það sem af er yfirstandandi fiskveiðiári hefur ekkert skip landað jafn miklu af þorski á Vestfjörðum og Papey eða 1044 tonn. Það sem greinir þetta „fengsæla" skip frá öðrum sem landa þar um slóðir er sú staðreynd að það er veiðarfæralaust með öllu. Þetta kemur fram á vefsíðu Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf.
1. Mars 2010 | ÚTVEGURINN
Kynning á vottun ábyrgra fiskveiða Íslendinga
Skipaður hefur verið sjö manna starfshópur til að undirbúa kynningu á vottuðu merki sem staðfestir ábyrgar fiskveiðar Íslendinga. Hópurinn var skipaður á fundi með forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi, sem Fiskifélag Íslands boðaði til þann 25. febrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fiskifélaginu fyrr í dag.
28. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Ný skýrsla: Róttækar úrbætur strax eða sjávarútvegur í ESB líður undir lok
Verði ekki þegar í stað gripið til róttækra ráðstafana til þess að bæta úr ágöllum sameiginlegrar sjávarútvegssstefnu Evrópusambandsins kann svo að fara að sjávarútvegur í löndum sambandsins verði liðinn undir lok þegar kemur að næstu endurskoðun stefnunnar. Varað er við þessu í nýrri skýrslu sem lögð hefur verið fram á Evrópusambandsþinginu.
26. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Verulegir fjármunir verið lagðir í þróun makrílveiða og -vinnslu
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa lagt verulega fjármuni í rannsóknir og þróun veiða á makríl á undanförnum árum um leið og þau hafa smám saman verið að ná tökum á veiðum og vinnslu þessarar mikilvægu uppsjávartegundar. Þetta kom fram á fjölsóttri málstofu um um veiðar og vinnslu á makríl sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir í vikunni.
25. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Greiningarskýrsla ESB: „Staðfestir að við missum forræðið yfir fiskimiðunum"
„Þessi skýrsla ESB kemur ekki á óvart og er í raun staðfesting á öllu því sem við höfum sagt um áhrif hugsanlegrar aðildar að sambandinu á sjávarútveginn á Íslandi," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna um greiningarskýrslu (e. Analytical Report) framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að ESB, sem kynnt var í gær.
23. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin leggur auknar byrðar á landsbyggðina
„Ég er landsbyggðarmanneskja og stolt af því. Ég veit að u.þ.b. 90% af aflaheimildum Íslands eru utan höfuðborgarsvæðisins. Því segi ég að svokölluð fyrningaleið er bara ein leið til að leggja auknar byrðar á okkur sem búum á hér landsbyggðinni," sagði Rósa Guðmundsdóttir í ræðu sem hún flutti á fjölmennum baráttufundi um sjávarútveg í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík fyrir helgina.
22. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn"
„Nú boðar sitjandi ríkisstjórn grundvallarbreytingar á stjórn fiskveiða. Hin svokallaða fyrningarleið er hennar lausn og að sjálfsögðu er fyrningin sett fram í nafni réttlætis. Auðvitað vilja allir réttlæti! En þeir sem telja sig handhafa réttlætis eru oftast nær hættulegir menn. Og réttlæti fyrir nokkra getur verið ranglæti fyrir marga," sagði Kristín Björk Gilsfjörð, sjómannskona á Hellissandi, í áhrifaríkri ræðu í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl. fimmtudag.
22. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Baráttufundurinn á Snæfellsnesi aðgengilegur á YouTube
Fjölmennur baráttufundur sem haldinn var í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík sl. fimtudagskvöld, er nú aðgengilegur á YouTube-vefnum. Á fundinum var sjónum beint að því óvissuástandi sem ríkir um framtíðarskipan sjávarútvegs vegna fyrningaráforma stjórnvalda. Upptökur má nálgast með því að smella á YouTube-merkið.
21. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti 106 milljarðar króna fyrstu 11 mánuðina 2009
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 106 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2009, samanborið við 91 milljarð yfir sama tímabil 2008. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 16,6% á milli ára. Aflaverðmæti í nóvember nam 10,4 milljörðum króna en var 11,3 milljarðar í nóvember 2008.
20. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í janúar tæpum fjórðungi minni en í sama mánuði 2009
Heildarafli íslenskra skipa nam 55.445 tonnum í janúar. Það er 22,5% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2009. Aflinn var þá 71.520 tonn. Breyting á milli ára skýrist að mestu af minni afla uppsjávartegunda, rétt eins og í mánuðum á undan. Metinn á föstu verði var aflinn 8,9% minni í janúar en árið áður.
19. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Rautt spjald á fyrningarleiðina á fjölmennum fundi á Snæfellsnesi
Allir frummælendur úr hópi heimamanna, á fjölmennum baráttufundi í Ólafsvík í gærkvöld, sýndu stjórnvöldum rauða spjaldið þegar fyrningarleið í sjávarútvegi bar á góma í máli þeirra. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, sagði fyrningarleiða mikla ógn fyrir byggðalag eins og Snæfellsbæ og Snæfellsnesið allt. „Sú óvissa sem þessum vangaveltum fylgir hefur þegar unnið heilmikinn skaða í sjávarbyggðum um allt land."
19. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Undirstöðuatvinnugrein hætta búin
„Sjávarútvegurinn er ein mikilvægasta atvinnugrein landsmanna og á honum byggja mörg byggðarlög afkomu sína. Mikil tækifæri eru enn til staðar í íslenskum sjávarútvegi og vaxtarmöguleikar eru miklir í greininni. Ljóst er að til að Íslendingar geti unnið sig út úr þeirri kreppu sem þeir glíma nú við, þarf öflugar útflutningsgreinar. Þar mun íslenskur sjávarútvegur gegna lykilhlutverki og því er mikilvægt að skapa honum eins hagstæð skilyrði og kostur er," skrifar Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Íslandi, í grein sem birtist í Austurglugganum í síðustu viku. Greinin fer hér á eftir:
18. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Rökin fyrir fyrningarleiðinni?
„Ríkisstjórnin áformar að hefja fyrningu aflaheimilda í haust. Það liggur ljóst fyrir að fyrningarleiðin færir þjóðinni ekki aukin verðmæti. Félagar mínir í útgerð hafa hver á fætur öðrum komið fram undanfarið og varað við þessum hugmyndum. Forystumenn sjómannasamtakanna vara við þeim. Sveitarstjórnir um land allt vara við þeim. Stjórnvöld hlusta ekki," skrifar Hjörtur Gíslason, stjórnarformaður Ögurvíkur hf., m.a. í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Greinin fer hér á eftir í heild:
18. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Baráttufundur um sjávarútvegsmál á Snæfellsnesi í kvöld
Almennur baráttufundur verður í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í kvöld, 18. febrúar, kl. 20:30. Þar verður kastljósum einkum beint að þeim efnahags- og samfélagslegu áhrifum sem ríkjandi óvissa um framtíðarskipan í sjávarútvegi hefur á fiskvinnslufyrirtæki, fiskvinnslufólk, smábátaútgerð og mannlíf yfirleitt í byggðarlögum á Snæfellsnesi, meðal annars vegna hugmynda um svokallaða fyrningarleið.
17. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Um félagsmálaráðherra, spilafífl og apaketti
„Ráðherra félagsmála velur að sjálfsögðu það orðfæri sem hann telur henta til að koma sjálfum sér og málstað sínum á framfæri við almenning. Það væri hinsvegar æskilegt að hann umgengist staðreyndir af meiri virðingu en fram kemur í þessu viðtali," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann svarar ummælum sem höfð voru eftir félagsmálaráðherra í blaðinu sl. laugardag. Greinin fer hér í heild:
12. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Morgunverðarfundur LÍÚ nú aðgengilegur á netinu
12. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Algjörlega galin" niðurstaða háskólaprófessorsins
„Prófessorinn heldur því meðal annars fram, að það að sjávarútvegsfyrirtæki skipti á aflaheimildum eða leigi aflaheimildir sín á milli sé sambærilegt við það að háar fjárhæðir séu teknar út úr sjávarútveginum í formi auðlindagjalds. Sú niðurstaða hans er algjörlega galin," segir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, í grein í Morgunblaðinu í morgun. Þar svarar hann dylgjum Ólínu Þorvarðardóttur í garð fyrirtæksins og úttektar sem það vann um áhrif fyrningarleiðarinnar á sjávarútveginn. Grein fer hér í heild:
11. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Troðfullur salur á fundi um fyrningarleiðina á Grand Hótel
Um 250 manns sóttu morgunverðarfund Landssambands íslenskra útvegsmanna á Grand Hótel í morgun undir yfirskriftinni Fyrningarleið í sjávarútvegi? Þar fluttu erindi þeir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjóri var Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
9. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Óvissuástandið sem nú ríkir er óþolandi og því verður að linna"
„Nú er tími fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, sveitarfélög og verkalýðshreyfinguna að taka höndum saman og tryggja að menn stígi ekki óskynsamleg skref hvað varðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Óvissuástandið sem nú ríkir er óþolandi og því verður að linna," sagði Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð í ræðu sem hann flutti á opnum fundi fyrir fullu húsi á Eskfirði í gær. Yfirskrift fundarins var Sjávarútvegur í óvissu!
9. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Skötuselsfrumvarpið „sprengja“ inn í sáttaumræðu
„Á sama tíma og sáttanefnd er að störfum, til reyna ná lendingu um framtíðarstjórnkerfi fiskveiða, eru menn að störfum við ýmsar breytingar og viðbætur við stjórnkerfið sem engan veginn geta verið ásættanlegar fyrir framtíðarrekstrarskilyrði greinarinnar. Skötuselsfrumvarpið svokallaða er einn hluti af þessum breytingum," sagði Gunnþór Ingvason, formaður Útvegsmannafélags Austurlands, í ræðu sinni á opnum fundi á Eskifirði í gær.
8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fullt hús á Eskifirði á fundi um fyrningarleið
„Þetta var mjög vel sóttur, góður og málefnalegur fundur," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, um fund sem haldinn var síðdegis undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu! Fundarefnið var afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi og afnám sjómannaafsláttarins. Fullt hús var í Valhöll á Eskifirði eða um 140 manns þrátt fyrir að loðnuvertíð sé nú í fullum gangi þar eystra.
8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegur í óvissu!: Fyrningarleiðin rædd á fundi á Eskifirði í dag
Seyðisfjarðarkaupstaður, Fjarðabyggð og Útvegsmannafélag Austurlands boða til almenns fundar í Valhöll á Eskifirði kl. 17:00 í dag, undir yfirskriftinni Sjávarútvegur í óvissu! Fundarefnið er afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi og afnám sjómannaafsláttarins. Frumælendur verða Eggert Guðmundsson, forstjóri HB-Granda hf., Gunnþór Ingvason, formaður Útvegsmannafélags Austurlands, Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð og Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri Afls starfsgreinafélags. Fundarstjóri verður Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar.
8. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Morgunverðarfundur LÍÚ: Fyrningarleið í sjávarútvegi?
Landssamband íslenskra útvegsmanna boðar til morgunverðarfundar á Grand Hótel nk. fimmtudag, 11. febrúar, kl. 8.00-9.30 undir yfirskriftinni: Fyrningarleið í sjávarútvegi? Á fundinum verða flutt þrjú erindi um áhrif fyrningarleiðar á sjávarútvegsfyrirtækin og þjóðhagsleg áhrif hennar. Fyrirlesarar eru þeir Þorvarður Gunnarsson, endurskoðandi og framkvæmdastjóri Deloitte, Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. á Sauðárkróki og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Nýtt strandveiðifrumvarp: „Fullkomin vanvirða við sjómenn og útvegsmenn"
Aflaheimildir, sem ráðstafað verður til svokallaðra strandveiða í sumar, verða allt að 6000 tonn samkvæmt frumvarpi sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Þetta er veruleg aukning frá veiðunum síðasta sumar. Strandveiðitímabilið verður jafnframt lengt um einn mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Áskorun LÍÚ, FFSÍ, SSÍ og VM til stjórnvalda: Eflum þyrluþjónustu Landhelgisgæslunnar
Landssamband íslenskra útvegsmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Sjómannasamband Íslands og VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sent frá sér sameiginlega áskorun til stjórnvalda um að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar þannig að hún fái sinnt því eftirlits- og öryggishlutverki sem henni er ætlað samkvæmt lögum. Áskorunin er svohljóðandi:
5. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Framboð á innlendum fiskmörkuðum ekki meira í sjö ár
Þvert á yfirlýsingar í umræðu að undanförnu um að lítið framboð á fiski hafi háð fiskvinnslufyrirtækjum án útgerðar var framboð á innlendum fiskmörkuðum á síðasta ári meira en það hefur verið allt frá árinu 2003. Þetta kemur fram í frétt á vef Fiskmarkaðs Íslands.
3. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin er óleysanlegt verkefni
„Ég held enn í þá von að rökstuddur málflutningur þeirra sem vara við fyrningu aflaheimilda nái eyrum þeirra sem nú hafa örlög sjávarútvegsins í hendi sér. Ef ekki væri fyrir þessa von væri ég þegar búinn að gera starfsfólki okkar, mörgu til áratuga, ljóst hvaða áhætta fylgdi því að starfa áfram hjá okkur. Ég á mér þá ósk, að enginn þeirra þúsunda starfsmanna, sem vinna hjá sjávarútvegsfyrirtækjum um land allt, þurfi nokkurn tímann að mæta á starfsmannafund þar sem þetta er fundarefnið."
2. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Markmið strandveiðanna hafa á engan hátt gengið eftir"
„Þetta kemur mér auðvitað ekkert á óvart en eftir því sem dýpra er kafað ofan í gögnin sem fyrir liggja um um strandveiðarnar síðasta sumar kemur betur og betur í ljós að markmiðin með þessum veiðum hafa á engan hátt gengið eftir," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. á Ísafirði.
2. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Allur ísfirskur strandveiðiafli seldur til aðila utan löndunarhafnar
1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Hver gaf hverjum hvað?
„Þegar menn hófu veiðar á þessum tegundum [kolmunna og úthafskarfa] var það vegna þess að verkefnaskortur var hjá skipunum. Það þurfti mikið áræði og kjark til þess að fara í þessar veiðar. Kostnaður var gríðarlegur og innkoman að sama skapi mjög lítil. Sjómenn og útgerðarmenn á þessum skipum báru lítið úr býtum lengi vel. Með miklum dugnaði og fórnarkostnaði tókst mönnum sem betur fer að ná tökum á þessum veiðum," skrifar Ólafur Ágúst Einarsson, skipstjóri á Álsey VE 2, í grein sem birtist fyrir helgina. Grein hans má lesa í heild hér á eftir:
1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 9-10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og verð á karfa um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2010.
1. Febrúar 2010 | ÚTVEGURINN
Heggur sá er hlífa skyldi
„Nú kann að vera að stjórnvöld vilji auka nytina fyrir sameiginlegan sjóð landsmanna hjá þeirri gjöfulu mjólkurkú sem íslenskur sjávarútvegur er. Til þess kunna að vera leiðir. Sú leið stjórnvalda, sem nú er til umræðu, má helst líkja við bóndann sem veltir því fyrir sér að skjóta mjólkurkúna sína í hausinn, til að athuga hvort hún bæti ekki við sig í afurðum," skrifar Jón Guðmann Pétursson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar í grein sem birtist fyrir helgina. Greinin er birt hér í heild með góðfúslegu leyfi hans:
29. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Heimilt að veiða 130 þúsund tonn af loðnu
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur í dag ákveðið að fenginni tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar að heimilaðar verði veiðar á 130 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni 2009/2010. Í tilkynningunni frá stofnuninni segir að áætlaður hrygningarstofn loðnunnar sé 530 þúsund tonn en gildandi regla geri ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar.
29. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Gagnrýnir gloppótta sagnfræðikunnáttu þingmanns
„Aflaheimildir voru keyptar til að koma í veg fyrir að fyrirtækin skryppu saman vegna skertra aflaheimilda og jafnframt færslu þeirra til annarra skipaflokka. Fjárfestingin var til að nýta betur afkastamikil skip og fiskvinnslustöðvar, halda uppi atvinnu fjölda fólks og verja mikilvæg, áratugagömul viðskiptasambönd í sölu sjávarafurða."
28. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Þarf að útkljá deilurnar um kvótakerfið"
„Það er alveg ljóst að verði þessi leið farin munu þessi fyrirtæki líða undir lok í þeirri mynd sem þau eru í dag," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Með því að bjóða upp kvótann þá mun fyrirtæki eins og þetta, sem byggir á samfellu frá veiðum að markaði, ekki lengur getað lofað kaupendum að þeir fái sinn fisk," bætir hann við.
27. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Gjaldþrot - áhrif fyrningarleiðarinnar á Eskju hf.
„Ljóst er að núverandi hugmyndir stjórnvalda gera ekkert annað en að skapa óvissu í greininni. Breytingar séu ekki endilega alvondar fyrir fyrirtækið og okkar starfsfólk, en nagandi óvissa er það allra versta sem hægt er að bjóða fólki uppá. Í því ástandi sem almennt er nú uppi ættu stjórnvöld að láta af öllum óljósum hugmyndum um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu," skrifar Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eskju hf. í grein sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Grein Páls fer hér í heild:
26. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Varað við hugmyndum um fyrningu aflaheimilda
„Stjórnir Útvegsmannafélags Snæfellsness og Smábátafélagsins Snæfells vara við öllum hugmyndum stjórnvalda um fyrningu aflaheimilda. Ljóst er að þær munu leiða til fjöldagjaldþrots í atvinnugreininni eins og skýrsla endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte frá síðasta ári sýnir glögglega," segir í ályktun sem samþykkt var á sameiginlegum fundi stjórnanna í gær. Ályktunin er hér í heild. (Myndin er af Bárði SH sem gerður er út frá Arnarstapa)
26. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleið - ógn við samfélagið
„Allir geta verið sammála um að mikilvægt sé að skapa sátt um fiskveiðistjórnunarkerfið þannig að fyrirtækin blómstri, þjóðhagslegur ávinningur verði mestur og þær byggðir sem treysta tilveru sína á sjávarútvegi haldi velli. En slík sátt getur ekki byggst á fyrningarleið og í raun ótrúlegt fyrir þá sem vilja brúa bil á milli ólíkra sjónarmiða að leggja fyrirfram upp með eina tiltekna leið og ríghalda í hana, þrátt fyrir að færð séu góð rök fyrir skaðsemi hennar. Sáttina verður að grundvalla á skynsemi," skrifar Ásgeir Gunnarsson, útgerðarstjóri Skinneyjar-Þinganess og formaður Útvegsmannafélags Hornafjarðar, í nýlegri grein í Eystrahorni.
26. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Dragnótaveiðar álitnar umhverfisvænar í öðrum löndum"
„Það er alveg makalaust að á sama tíma og dragnótaveiðar eru álitnar sem umhverfisvænar fiskveiðar í öðrum löndum ríkir þveröfugt viðhorf til veiðarfærisins hér á landi, segir Friðrik G. Halldórsson, talsmaður dragnótarmanna, í viðtali í nýjasta tölublaði Fishing News International.
26. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin kemur niður á sjómönnum
„Það verður engum til góðs þegar upp er staðið ef á að fara að taka kvóta af þeim sem starfa við sjávarútveginn í dag. Þeir einu sem ég hef heyrt mæla þessu bót er menn sem vilja komast inn í útgerð enn eina ferðina. Þessir sömu menn hafa í sumum tilvikum selt sig út úr aflamarkskerfinu mörgum sinnum en komist jafnharðan inn bakdyramegin. Það geta varla talist góð meðmæli með þessum hugmyndum," skrifar Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjartanssyni Eskifirði, í grein sem birtist í Morgunblaðinu um helgina. Grein hans má lesa hér:
25. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarhugmyndir eru ávísun á stórslys
„Enn er hægt að afstýra því stórslysi sem fyrningarhugmyndir stjórnvalda hefðu í för með sér fyrir sjávarútveginn og efnahag þjóðarinnar. Vilji til að kynna sér raunverulegar afleiðingar þessara hugmynda og horfast í augu við staðreyndir er allt sem þarf," skrifar Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hf., m.a. í grein sem birtist eftir hann í Sunnlenska fréttablaðinu nú nýlega. Grein Eyþórs fer hér á eftir í heild:
25. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleið - hvað veit ég?
„Ég veit að bæjarfélagið mitt byggir á útgerð og stór hluti útsvarstekna þess kemur frá sjómönnum. Ég veit að þjónustufyrirtæki í Fjallabyggð byggja beint og óbeint á tekjum sem verða til í sjávarútvegi ... Ég veit að fyrningarleið er aðför að lífskjörum íbúa Fjallabyggðar," segir m.a. í þessari færslu Björns Valdimarssonar, markaðsstjóra Ramma hf.
25. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Teflum ekki í tvísýnu að óþörfu
„Það er alveg ljóst að sjávarútvegurinn gegnir lykilhlutverki við endurreisn hagkerfisins. Það er því afar mikilvægt að stíga varlega til jarðar varðandi breytingar á kerfinu og gera þær í fullu samráði við hagsmunaaðila. Óvissa og illa ígrundaðar breytingar leiða til neikvæðra áhrifa á samfélagið og líklegt að fyrirtæki haldi að sér höndum varðandi uppbyggingu, viðhald og þróun rekstrar." Svo segir m.a. í grein sem Sigrún Björk Jakobsdóttir, skrifaði í Morgunblaðið fyrir helgina.
25. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Gagnrýni á dragnótaveiðar jaðrar við ofsóknir"
Gylfi Þ. Gunnarsson, útgerðarmaður í Grímsey, er ómyrkur í máli í garð Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegsráðherra, vegna þeirra hugmynda um verndun grunnslóðar sem kynntar voru fyrir rúmri viku. Gylfi telur ráðuneytið hér beina spjótum sínum að veiðum með dragnót þótt nýleg rannsókn Hafrannsóknastofnunarinnar í Skagafirði sýni að áhrif dragnótaveiða á lífríki hafsbotnins séu ekki marktæk.
22. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleið vegur að hagsmunum almennings
„Fram til þessa hafa stjórnvöld neitað að horfast í augu við þá staðreynd að fyrning aflaheimilda ógnar framtíð sjávarútvegsfyrirtækja. Fyrningin vegur að tekjugrunni þeirra og rýrir um leið hag allra þeirra sem starfa við sjávarútveg," skrifar Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, í grein sem hann skrifar í Fréttablaðið í morgun. Grein Eiríks er hér í heild:
22. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Baráttufundurinn í Eyjum aðgengilegur á YouTube
Upptökur af fjölmennum baráttufundi í Vestmannaeyjum í gærkvöld, sem boðaður var til að mótmæla fyrningarleið, álagi á útflutning ísfisks og afnámi sjómannaafsláttar, eru nú aðgengilegar á vefsvæðinu YouTube. Fundurinn var sendur út beint á vef Eyjafrétta í gær. Vegna takmarkana á lengd einstakra upptaka á vefsvæðinu hefur upptökunum verið skipt upp í sjö hluta. Upptökurnar má nálgast með því að smella á YouTube merkið.
22. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld falli þegar í stað frá áformum um fyrningarleið
„Almennur baráttufundur íbúa í Vestmannaeyjum, 21. janúar 2010, krefst þess að stjórnvöld falli þegar í stað frá áformum um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi, enda er hún í eðli sínu aðför að starfsgrundvelli fyrirtækja í sjávarútvegi og þar með að lífskjörum og atvinnuöryggi fólks sem í atvinnugreininni starfar," segir m.a. í ályktun sem samþykkt var á 350 manna fundi í Eyjum í gærkvöld. Ályktuninina má lesa alla hér á eftir:
21. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Bein útsending á netinu frá baráttufundi í Eyjum í kvöld
Vegna mikils áhuga, ekki síst á fastalandinu, hefur verið ákveðið að hafa beina útsendingu frá baráttufundinum sem haldinn verður í kvöld í Vestmannaeyjum á vefnum http://www.eyjafrettir.is/. Fundurinn verður haldinn í samkomuhúsinu Höllinni og hefst klukkan 20.00. Boðað er til fundarins undir yfirskriftinni „Fyrnum fyrningarleiðina" gegn fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni.
21. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Forseti FFSÍ: Skelfileg vanþekking stjórnvalda á málefnum sjávarútvegsins
„Mér finnst blasa við að þeir sem hæst hafa í þessu máli séu jafnframt þeir sem yfir minnstri þekkingu búa um sjávarútveg. Það er hreint út sagt skelfilegt að verða vitni að þeirri vanþekkingu sem við manni blasir þegar þeir sem í forsvari eru af hálfu stjórnvalda tjá sig um málefni sjávarútvegsins," segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands í grein sem hann skrifa í Fiskifréttir í morgun.
21. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Hvers vegna ættum við ekki að sigla flotanum í land?"
„Ráðherrann [Jón Bjarnason] sagðist ekki trúa því að útvegsmenn sigldu í land til að mótmæla fyrningarleiðinni og höfðaði til samfélagslegrar ábyrgðar þeirra. Ég spyr bara á móti af hverju ættu útvegsmenn ekki að sigla skipum sínum í land? Fyrningarleiðin mun rústa atvinnugreininni,. Ekki sýna stjórnmálamenn samfélagslega ábyrgð með því að setja okkur á hausinn," segir Vilhelm Henningsson, skipstjóri á Hásteini ÁR 8 í viðtali við Fiskifréttir í dag en útgerðin er fjölskyldufyrirtæki.
20. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Eyjaflotanum siglt í land á morgun
Á morgun, fimmtudag mun stór hluti flota Eyjamanna sigla í land til að sjómenn geti tekið þátt í baráttufundi sem boðað er til í Vestmannaeyjum annað kvöld til að mótmæla ákvörðunum stjórnvalda um fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfisk, afnám sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Að fundinum stendur breiður hópur fyrirtækja og félaga sem tengjast sjávarútvegi í Vestmannaeyjum og Vestmannaeyjabær. Fréttatilkynningu frá fundarboðendum má lesa hér.
19. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Hefði mátt veiða strandveiðiaflann með mun minni tilkostnaði
Kristján G. Jóhannsson, stjórnarformaður Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf. fullyrðir í grein sem hann hefur birt á vef Bæjarins Besta á Ísafirði, að þeir sem róa allt árið um kring hefðu getað veitt þann afla sem barst á land í höfnum Ísafjarðarbæjar í strandveiðunum sl. sumar með mun minni tilkostnaði en reyndin varð samkvæmt úttekt Háskólaseturs Vestfjarða.
19. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps: Fyrningarleið er ekki leið til sátta
17. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ: „Óþolandi óvissa sett á sjávarútveginn"
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, segir í áramótapistli á vefsíðu sveitarfélagsins að sú óvissa sem stjórnvöld hafi sett á sjávarútveginn sé óþolandi. Í pistlinum segir Kristinn m.a.: „Staðreyndin er bara sú að þegar vel gengur hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum þá gengur betur hjá okkur hinum og það skiptir mestu máli að mínu mati."
16. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
„Skýrslan staðfestir að strandveiðarnar eru sóun á verðmætum"
15. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Arður þjóðarinnar felst í vel reknum sjávarútvegsfyrirtækjum
„Við höfum, eins og aðrir sem starfa í sjávarútvegi, staðið í þeirri trú að við værum að framfylgja þeirri stefnu sem mörkuð var árið 1983 við upptöku aflamarkskerfisins. Þar voru tvö meginmarkmið höfð að leiðarljósi; annars vegar að ná hámarks arðsemi úr fiskveiðum til hagsbóta fyrir íslenskt efnahagslíf og hins vegar til að að byggja upp ofnýtta fiskistofna. Nú á að kasta fyrir róða öllu því sem áunnist hefur á síðustu 25 árum í nafni réttlætis. Fyrningarleiðin er ófær. Við höfum ekki efni á svona lýðskrumi."
15. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin keyrð áfram gegn rauðu ljósi?
„Útvegsmenn standa nú frammi fyrir þeirri ógn að áformuð upptaka aflaheimilda hefst að óbreyttu þann 1. september í haust. Þrátt fyrir ótal röksemdir, skýrslur, ályktanir og viðvaranir víða að eru engin teikn á lofti um að breyta eigi stefnunni. Stjórnvöld virðast staðráðin í að keyra áfram fyrningarleiðina gegn rauðu ljósi. Öllum er ljóst að slíkt aksturslag er ávísun á stórslys. Því slysi verður að afstýra með öllum tiltækum ráðum."
14. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Samfélagsleg ábyrgð að berjast gegn fyrningarleið stjórnvalda
„Samfélagsleg ábyrgð er það leiðarljós sem Landssamband íslenskra útvegsmanna fylgir í baráttu sinni gegn því að áform ríkisstjórnarinnar um að að fyrna afheimildir sjávarútvegsfyrirtækja nái fram að ganga. Orð Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem höfð voru eftir honum fyrr í dag í viðtali við Bylgjuna og síðar á visir.is, um hið gagnstæða eru því öfugmæli," segir í yfirlýsingu sem LÍÚ hefur sent frá sér.
13. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleið ógnar atvinnu og afkomu fólks á landsbyggðinni
„Fyrningarleiðin, eða upptökuleiðin eins og ég vil frekar nefna það, er ávísun á afturhvarf til ríkisvæðingar og miðstýringar og rekstrarumhverfis, sem við höfum unnið okkur markvisst út úr á 20 árum," segir í Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. á Ísafirði. Þetta kemur fram í grein sem hann hefur skrifað.
13. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í desember 2009 þriðjungi minni en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 57.635 tonnum í desember á nýliðnu ári. Það er tæplega 33% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði árið 2008. Aflinn var þá 85.639 tonn. Breyting á milli ára skýrist nær alfarið af minni afla uppsjávartegunda, rétt eins og í október og nóvember. Metinn á föstu verði var aflinn 10,3% minni í desember en árið áður. Sé horft á árið 2009 í heild jókst afli, metinn á föstu verði, um 2,9% frá árinu 2008.
12. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Hvaða gagn er í sáttanefnd ef stjórnvöld ætla í raun eigin leiðir?
„Hvaða gagn er í sáttanefnd um fiskveiðistjórnun ef ríkisstjórnin ætlar sér í raun að fara eigin leiðir, hvað sem tautar og raular, einhliða og á eigin forsendum?" spyr Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnlustöðvarinnar í Vestmannaeyjum í nýlegri blaðagrein sem bar yfirskriftina Að tala tungum tveim.
7. Janúar 2010 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ýsu um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 5%. Verð á þorski og karfa er óbreytt frá síðustu ákvörðun. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 7. janúar 2010.













