Fréttir
30. September 2009 | ÚTVEGURINN
„Sýnir best tilgangsleysi strandveiðanna“
„Það sýnir best tilgangsleysi strandveiðanna í sumar að veitt voru 554 leyfi til þess að veiða um 4.000 tonn af fiski. Fiskiskipum í aflamarks- og krókaaflamarkskerfinu hefur hins vegar fækkað um 574 sl. fimm ár. Markmið þeirrar fækkunar er hagræðing til að treysta rekstrargrundvöll útgerða og auka arðsemi þeirra,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
29. September 2009 | ÚTVEGURINN
Fiskiskipum fækkaði um 574 á fimm árum
Íslenskum fiskiskipum fækkaði um 574 á árunum 2004 – 2009 eða um 44,7% samkvæmt samantekt LÍÚ, byggðri á gögnum Fiskistofu. Alls voru skráð fiskiskip 1283 talsins fiskveiðiárið 2004/2005 en þeim hafði fækkað niður í 709 fiskveiðiárið 2008/2009.
28. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegur getur gegnt lykilhlutverki við endurreisn atvinnulífs
Sjávarútvegur getur gegnt lykilhlutverki við endurreisn atvinnulífs á Íslandi, svo fremi stjórnvöld hætti við áform um fyrningarleið og innköllun veiðiheimilda. Þetta kom fram í ræðu Arnars Sigurmundssonar, formanns Samtaka fiskvinnslustöðva, á aðalfundi þeirra sl. föstudag.
18. September 2009 | ÚTVEGURINN
Minni undirmálsýsa norskra úr Barentshafinu?
Norskir útvegsmenn hafa farið þess á leit við norsku hafrannsóknastofnunina, Havforskningsinstituttet, að hún kanni áhrif þess á lífríkið í norska hluta Barentshafsins ef stærð undirmálsýsu yrði miðuð við 42 sm í stað þeirra 44 sm nú er. Beiðnin er byggð á veiðireynslu Norðmanna í Barentshafi á síðustu árum.
17. September 2009 | ÚTVEGURINN
Þriðja leiðin – tillaga Josephs Stiglitz
Mikið hefur verið fjallað um heimsókn hagfræðingsins og nóbelsverðlaunahafans Josephs Stiglitz hingað til lands undanfarna daga. Það fór ekki milli mála að þann mikla fjölda gesta sem hlustaði á hann í fyrirlestrarsal Háskóla Íslands í Öskju í síðustu viku hungraði eftir leiðsögn hans ef marka má þá athygli og undirtektir sem málflutningur hans vakti.
17. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sakar ESB um hroka og rányrkju á Afríkumiðum
Ráðgjafi í sjávarútvegsmálum hjá Einingarsamtökum Afríku ásakar Evrópusambandið um hroka í samskiptum við Afríkuþjóðir og rányrkju á fiskimiðum þeirra. Þetta kemur fram í viðtali við Nancy Gitonga frá Kenýa við danska blaðið Arbejderen í dag. Yfirskrift viðtalsins er „Þeir stela fiskinum okkar.“
16. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mikið tap norskra þorskeldisfyrirtækja í fyrra
Samanlagt tap tólf stærstu þorskeldisfyrirtækja Noregs nam 525 milljónum norskra króna á síðasta ári eða sem svarar til ríflega 10 milljarða íslenskra króna. Þetta er mun verri afkoma en árið áður en þá nam tap sömu fyrirtækja rúmlega 4 milljörðum íslenskra króna.
16. September 2009 | ÚTVEGURINN
Ísland í 16. sæti yfir aflahæstu fiskiveiðiþjóðir heims 2006
Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. Kínverjar bera ægishjálm yfir aðrar fiskveiðiþjóðir hvað aflamagn varðar. Heildarafli þeirra árið 2006 var 17,4 milljónir tonna. Næstir á eftir þeim koma Perúmenn með 7 milljónir tonna.
15. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sektaður fyrir að selja svikinn þorsk
Eigandi „Fish‘n‘Chips“ veitingastaðar í Kidderminster í Worcestershire í Englandi hefur verið dæmdur til að greiða sekt sem svarar til 675.000 íslenskra króna fyrir að selja viðskiptavinum sínum eldisfiskinn pangasius sem þorsk. Þetta er annað tilvikið af þessum toga sem upp kemur í umræddri borg.
15. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mun minni heildarafli í ágúst en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 112.550 tonnum í ágúst, sem er rúmlega 20% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 142.123 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 11,9% minni í ágúst í ár en í fyrra.
10. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mikið mælist af loðnu, þorski og ýsu í Barentshafi
Mikið hefur mælst af loðnu, þorski og ýsu í Barentshafinu í rannsóknum norsku hafrannsóknastofnunarinnar, Havforskningsinstituttet, sem hófust snemma í ágúst og standa yfir þar til í októberlok. Þá er útkoma seiðamælinga athyglisverð, m.a. hvað síld áhrærir.
9. September 2009 | ÚTVEGURINN
„Felst enginn ávinningur í að gera út fleiri báta en þörf er fyrir“
„Svo virðist sem íslensk stjórnvöld vilji skipta um stefnu og afnema kvótakerfið. Það væri það heimskasta sem þau gætu gert. Það felst enginn ávinningur í að gera út fleiri báta en þörf er fyrir,“ segir Rögnvaldur Hannesson, prófessor í fiskihagfræði við Verslunarháskóla Noregs í Björgvin, í viðtali í nýjasta tölublaði Northern Fisheries, sem gefið er út af Norræna ráðherraráðinu.
7. September 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski um 5% og karfa um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Ákveðið var einnig að hækka verð á karfa um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 7. september 2009.
3. September 2009 | ÚTVEGURINN
Ýsukvótinn skertur um 33,3% en línuívilnun í ýsu aukin um 31%
„Það skýtur óneitanlega skökku við í upphafi nýs fiskveiðiárs, að á sama tíma og aflamark og krókaaflamark í ýsu er skert um 33,3% á milli ára er línuívilnun í ýsu aukin um 31%. Nú eru 2100 tonn í línuívilnunarpottinum en voru 1600 á síðasta fiskveiðiári. Þetta er sérkennileg aðferðafræði en í anda þeirra mismununar sem viðgengst í fiskveiðistjórninni. Það er ekki sama Jón eða séra Jón, þar sem sumir þurfa að kaupa veiðiheimildir en aðrir ekki," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
3. September 2009 | ÚTVEGURINN
Veiddu meira en milljón tonn af makríl umfram veiðiráðgjöf
Norðmenn hafa að undanförnu gagnrýnt makrílveiðar okkar Íslendinga og m.a. haldið því fram að um ólögmætar veiðar sé að ræða. Mikil umfjöllun hefur verið um málið í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskeribladet Fiskaren. Af þessu tilefni sendi Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, blaðinu grein til birtingar í síðasta mánuði þar sem sýnt er fram á að makrílveiðar okkar eru löglegar.
2. September 2009 | ÚTVEGURINN
Hjalti í Jákupsstovu: Sóknarmarkskerfið ekki skilað árangri í Færeyjum
Sóknarmarkskerfið sem notað er við stjórnun fiskveiða í Færeyjum hefur ekki skilað þeim árangri sem til var ætlast. Sú mynd sem við blasir í dag er offjárfesting, slæm afkoma sjávarútvegsins og bágt ástand mikilvægra fiskistofna, einkum þorsks þar sem veiðin hefur hrunið á síðustu árum. Færeyingar eiga mikið undir sjávarútvegi enda um 95% útflutningstekna þeirra af sjávarafurðum.
2. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sjómenn framtíðarinnar í lífsins ólgusjó
Þeir gripu tækifærið höndum tveim vinirnir Dagur Freyr Sævarsson og Ingólfur Ásgrímsson þegar þeim bauðst að fara í síldveiðitúr með Ásgrími Halldórssyni SF 250 rétt fyrir upphaf skólaársins.
1. September 2009 | ÚTVEGURINN
Góð reynsla af notkun kvótakerfa við fiskiveiðistjórnun í heiminum
Kvótakerfi með framseljanlegum
aflaheimildum er samnefnari þeirra framfara sem orðið hafa í
fiskveiðum og stjórnun þeirra, sagði dr. Ragnar Árnason, prófessor
í fiskihagfræði við Hagfræðideild Háskóla Íslands, m.a. í
erindi sínu á ráðstefnu um skilvirka fiskveiðistjórnun sem lauk í
Reykjavík fyrir helgina.













