Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

31. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Uppsagnir hjá 3X á Ísafirði m.a. raktar til óvissu um fyrirkomulag aflaheimilda

Mikil óvissa um fyrirkomulag aflaheimilda er eitt þeirra atriða sem framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði vísar til í fréttum sem ástæðu fyrir uppsögnum níu starfsmanna fyrirtækisins sl. föstudag. Þar með hefur um fjórðungi starfsmanna 3X verið sagt upp það sem af er ári. Framkvæmdastjóri 3X Technology lýsti í vor áhyggjum sínum yfir afleiðingum fyrningarhugmynda stjórnvalda.

28. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

„Má ekki vanmeta þann tíma sem tekur að ná árangri“

Það kostar bæði fé og fyrirhöfn að þróa og innleiða fyrirkomulag á borð við það sem við tókum upp, en við teljum árangur okkar athyglisverðan. Það má ekki vanmeta þann tíma sem það tekur að ná árangri. Þetta gerist ekki á einni nóttu, sagði Stan Crothers, fyrrum starfsmaður sjávarútvegsráðuneytis Nýja Sjálands, á ráðstefnu um skilvirka fiskveiðistjórnun sem nú stendur yfir í Reykjavík.

28. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Leyft hlutfall makríls sem meðafla með síldinni hækkað í 20%

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf í dag út nýja reglugerð, sem heimilar að hlutfall makríls sem meðafla megi vera allt að 20% af heildarafla hvers skips úr norsk-íslenska síldarstofninum fyrir tímabilið 9. júlí til 30. september. Heimilt er að flytja meðaflaheimild á milli skipa.

27. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Kvótakerfi með framseljanlegum aflaheimildum lykillinn að árangri

Kvótakerfi  með framseljanlegum aflaheimildum er lykillinn að árangursríkri fiskveiðistjórnun. Við upptöku þess fyrirkomulags við stjórnun fiskveiða fyrir rúmum áratug urðu alger umskipti til hins betra í útgerð í Bresku Kolumbíu í Kanada. Sjávarútvegur í fylkinu var þá nánast kominn í þrot.

19. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Skoskt dagblað: Næsta þorskastríð Íslands háð í fundarsölum í Brussel

Í grein í skoska dagblaðinu The Inverness Courier segir að Ísland eigi framundan nýtt þorskastríð, sem að þessu sinni verði háð í fundarsölum í Brussel en ekki á hafi úti. Skoskir sjómenn og útgerðarmenn, sem lengi hafa haft horn í síðu fiskveiðistefnu Evrópusambandsins, ætla að fylgjast grannt með því hvernig Íslendingum reiðir af í aðildarviðræðum við ESB um sjávarútvegsmál.

17. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Meiri afli í júlí en í sama mánuði í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa nam 160.152 tonnum í júlí, sem er um 4,3% meira en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 153.463 tonn.  Metinn á föstu verði var aflinn 1,5% minni í júlí í ár en í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins nam aflaverðmæti íslenskra skipa hins vegar um 42 milljörðum króna, sem er 4,2% aukning frá síðasta ári.

13. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Makrílveiðar Íslendinga eru löglegar

Ekki er enn ljóst hvort Íslandi verður meinuð þátttaka í fundum hinna strandríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum fyrir árið 2010. Þar til þau viðurkenna Ísland sem fullgildan aðila að stjórn veiðanna og réttmæta hlutdeild okkar munum við stunda lögmætar makrílveiðar á okkar forsendum, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í niðurlagi greinar sem birtist í Fiskifréttum í dag.

12. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Öll norsk-íslenska síldin veiddist innan íslensku lögsögunnar í júlí

Öll sú norsk-íslenska síld sem landað var í júlí veiddist innan íslensku lögsögunnar. Þetta er einsdæmi á þessum árstíma að því er kemur fram á vef Fiskistofu, sem heldur utan um alla tölfræði veiðanna. Heildaraflinn í júlí nam 62.953 tonnum.

12. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN

Skilvirk fiskveiðistjórnun - ráðstefna í Háskóla Íslands

Skilvirk fiskveiðistjórnun er yfirskrift tveggja daga ráðstefnu í fiskihagfræði sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skipuleggur f.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Ráðstefnan fer fram í Öskju, Háskóla Íslands dagana 27. og 28. ágúst nk.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta