Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

29. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Skelfileg reynsla skosks sjávarútvegs af ESB

Telja menn virkilega að þeir muni láta það viðgangast að Íslendingar verði stikkfrí gagnvart sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB ef til inngöngu kemur? Ja, mikil er trú þeirra manna þó ekki væri nema með vísan til nýfenginnar reynslu okkar af  samningum við  Breta í öðru og óskyldu máli Icesave.  Þannig hljóðar niðurlag greinar Sveins Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings LÍÚ, sem birtist í Fiskifréttum sl. fimmtudag.

19. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Yfirgnæfandi hlutfall aflaheimilda er á landsbyggðinni

Yfirgnæfandi hlutfall aflaheimilda er á landsbyggðinni, þ.e. utan Reykjavíkur- og Suðvesturkjördæma. Þetta kemur fram í svari Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn forvera hans, Einars K. Guðfinnssonar, á Alþingi. Þessar upplýsingar undirstrika að landsbyggðin verður harðast úti verði svokallaðar fyrningarhugmyndir stjórnvalda í sjávarútvegi að veruleika.

15. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Bæjarstjórn Hornafjarðar hafnar fyrningu aflaheimilda.

Í bókun sinni þann 11. júní sl. lýsir Bæjarstjórn Hornafjarðar yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu sem kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði. Í bókuninni segir að nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.

11. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Strandveiðar styrkja hvorki byggð né treysta atvinnu

Strandveiðar munu ekki styrkja byggð eða treysta atvinnu í sjávarbyggðum, þær hafa þveröfug áhrif. Fyrirtæki þurfa hráefni allt árið um kring, en þessar strandveiðar geta ekki stuðlað að öruggum eða arðbærum rekstri þar sem skammtímasjónarmið ráða. Við þetta má bæta að gæðum hráefnis verður í einhverjum tilfellum ábótavant og þá er rangt að beina veiðinni á sumartímann og á grunnslóðina þar sem smærri fiskur heldur sig.

11. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Ráðstefna í London um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga

Um 60 manns sóttu ráðstefnu um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga í sendiráði Íslands í London í gær. Flestir ráðstefnugesta voru fulltrúar fiskkaupenda í Bretlandi og hagsmunaaðilar í breskum sjávarútvegi. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ávarpaði ráðstefnuna.

9. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

„Alið á óvissu í atvinnugreininni“

Allt í kringum okkur í nálægum löndum keppast stjórnvöld við,  með öllum tiltækum ráðum, að standa vörð um lykilatvinnuvegi þjóðanna. Íslensk stjórnvöld virðast telja það mesta óþarfa. Nú skal greiða sjávarútveginum náðarhöggið. Veiðiheimildir fyrndar, með öðrum orðum teknar af fyrirtækjunum og þeim síðan endurúthlutað að geðþótta stjórnmálamanna. Þannig fórust Hirti Gíslasyni, formanni Útvegsmannafélags Reykjavíkur, m.a. orð í ræðu á Sjómannadaginn.

9. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Tryggja ber langtíma stöðugleika í samningum

Mikilvægt er að tryggja að kvótaúthlutun feli í sér langtíma stöðugleika í samningum. Nauðsynlegt er einnig að vinna að því að ná samkomulagi um þá fáu stofna, þar sem skipting aflaheimilda hefur ekki farið fram. Þetta var á meðal þess sem kom fram á 14. fundi sjávarútvegsráðherra við Norður-Atlantshafið á árlegum fundi þeirra í síðustu viku. Fundurinn fór fram í Kaliningrad í Rússlandi

8. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Fyrningarleiðin: „Ekkert bendir til að arðsemi aukist eða hagur vænkist“

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, fór hörðum orðum um fyrirhugaða fyrningarleið stjórnvalda, í ræðu sem hún flutti á á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum fyrir helgina. Ekkert í boðaðri stefnu bendir til að arðsemi greinarinnar aukist eða hagur starfsmanna og sjávarbyggða vænkist.

6. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Bæjarstjórinn í Bolungarvík: „Verið að fyrna landsbyggðina“

Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir fyrningarleiðina firru og hún þýði einfaldlega fyrningu landsbyggðarinnar. Hún er ekki leiðin til að leiðrétta það sem betur má fara í kvótakerfinu. Á kvótakerfinu þarf vissulega að gera lagfæringar sem tryggja að heilu byggðarlögin sem byggja á sjávarútvegi standi ekki uppi án aflaheimilda einn daginn. Til þess verða menn þó að finna aðrar leiðir.

6. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

„Engin áhætta tekin með því að veiða 160 þúsund tonn af þorski“

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir tillögur í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar sem kynntar voru í gær, lægri en menn hefðu viljað sjá. Okkar mat er að engin áhætta væri tekin með því að veiða 160 þúsund tonn af þorski á næsta fiskveiðiári, segir Friðrik en stofnunin leggur til veiðar á 150 þúsundum tonn af þorski. Það er 26 þúsund tonnum meira en lagt var til fyrir ári þegar ráðgjöfin hljóðaði upp á 124 þúsund tonn.

5. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Varaformaður LÍÚ: Pólitískur stöðugleiki er sjávarútvegi nauðsynlegur

Það er alger nauðsyn að sjávarútvegur fái að búa við stöðugleika í pólitísku umhverfi, nógu mikill er óstöðugleikinn sem búa verður við hvað varðar gengisskráningu, stærð fiskistofna, veðurfar, að ekki sé talað um þá hörðu samkeppni sem atvinnugreinin býr við á markaði með vörur sínar, þar sem oft er keppt við ríkisstyrktan sjávarútveg annarra þjóða.

5. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

„Aldrei eins mikil óvissa um framtíð atvinnulífs okkar í þúsund ár“

Í þau þúsund ár sem við Eyjamenn og fleiri höfum lifað á fiskveiðum og vinnslu hefur aldrei ríkt eins mikil óvissa um framtíð atvinnulífs okkar. Aldrei hefur deilan um nýtingu sjávarauðlindarinnar og sjávarútvegins verið eins mikil og núna, sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, í upphafi ræðu sinnar á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum í gær.

4. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Skorar á stjórnvöld að gerast „raunverulegir sáttasemjarar”

Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, skoraði í dag á stjórnvöld að gerast raunverulegir sáttasemjarar í deilum um fyrningaráform í sjávarútvegi. Sjávarútvegsfyrirtæki og sveitarfélög um land allt  hafa lýst andstöðu sinni við hugmyndir stjórnvalda.

4. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

„Pólitískt sjálfsmorð“ að kollvarpa sjávarútveginum

Atli Gíslason, þingmaður VG og formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, sagði í ræðu á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum í dag, að innköllunarleið aflaheimilda yrði ekki farin ef  sýnt yrði að hún myndi skaða atvinnulíf og byggð í landinu.

2. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Fimm ríki ESB leggjast gegn breytingum á reglum um hlutfallslegum stöðugleika

Fimm ríki Evrópusambandsins Portúgal, Spánn, Ítalía, Frakkland og Litháen  eru andvíg því að gerðar verði breytingar á reglunni um svokallaðan hlutfallslegan stöðugleika. Þetta kemur fram í nýlegri fundargerð Poul Oma sem sem starfar fyrir fastanefnd Norðmanna fyrir ESB.

1. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd hækkar verð á ýsu og karfa um 10%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um 10%. Ákveðið var að hækka verð á karfa um 10%. Verð þetta gildir frá og með 1. júní 2009.

1. Júní 2009 | ÚTVEGURINN

Vesturbyggð bætist í hóp sveitarfélaga sem vara við fyrningarleið

Ekkert er mikilvægara en að skapa stöðugleika þegar efnahagslífið er rústir einar og sjávarútvegurinn sú grunnstoð sem þjóðin byggir framtíðina á. Svo segir í ályktun Vesturbyggðar, sem hefur nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu sveitarfélaga sem hafa ályktað gegn fyrningaráformum stjórnvalda í sjávarútvegi.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta