Fréttir
30. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Að snúa hlutunum á haus - Aðalsteini Baldurssyni svarað
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LÍÚ, segir í grein í Morgunblaðinu í gær að Aðalsteinn Baldursson,
verkalýðsforkólfur á Húsavík, fari með rangt mál í um launaþróun
hjá fiskvinnslufólki í viðtali sem tekið var við hann í blaðinu
fyrr í vikunni. Grein Sveins fer hér á eftir:
29. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Málþing í Eyjum um auðlindastýringu og fyrningarleið
Auðlindastýring og
fyrningarleið ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi er
inntak málþings sem haldið verður í Vestmannaeyjum þann 4.
júní næstkomandi. Þar tala fulltrúar hinna ýmsu greina
sjávarútvegsins ásamt sjávarútvegsráðherra og fleirum. Það eru
Vestmannaeyjabær, Þekkingarsetur Vestmannaeyja,
Atvinnuþróunarsjóður og tímaritið Sjávarútvegurinn sem standa að
málþinginu.
26. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Okkar réttlætiskennd verulega misboðið“

Okkar saga er mjög svipuð sögu meirihluta sjávarútvegsfyrirtækja í kringum okkur á Snæfellsnesi og einnig víðar á landinu. Okkar réttlætiskennd er því verulega misboðið að hlusta á umræðu um að öll sjávarútvegsfyrirtæki séu sögð hafa braskað með veiðiheimildir, hlutabréf og fleira sem mjög margir tóku ekki þátt í. Svo segir í grein útgerðarfjölskyldu frá Rifi sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu.
26. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Adolf fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands
Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Gullbergs ehf. á Seyðisfirði og formaður Landssambands íslenskra
útvegsmanna, fékk fyrir stuttu afhent Hvatningarverðlaun
Þróunarfélags Austurlands, sem nú voru veitt í níunda sinn frá
upphafi. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra þann aðila sem að mati
dómnefndar félagsins er best að slíkri viðurkenningu komin, fyrir
vel unnin störf í þágu fyrirtækja eða stofnana á Austurlandi og/eða
hafi verið öðrum í atvinnulífi á Austurlandi sérstök hvatning eða
fyrirmynd.
22. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Vill ESB upptökuleiðina?
Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna, veltir því fyrir sér í grein í Fréttablaðinu í dag
hvort fiskimálastjóri Evrópusambandsins, Joe Borg, sé að vísa
til upptökuleiðar íslenskra stjórnvalda þar sem hann kallaði
eftir reynslu og þekkingu Íslendinga við mótum fiskveiðistefnu ESB
í grein í blaðinu í gær.
20. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Hreint skemmdarverk á sjávarútveginum“
Þetta er í rauninni hreint
skemmdarverk sem að verið er að vinna á sjávarútveginum með þessu
tali, sagði Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra í viðtali í þættinum Auðlindin á Rás 1 í
morgun. Þar gagnrýndi hann harðlega fyrirhugaða fyrningarleið
stjórnvalda í sjávarútvegi og fullyrti að fréttir af þessum
væntanlegu aðgerðum væru þegar farnar að hafa neikvæð áhrif.
20. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Grýtubakkahreppur: Ekki verði hróflað við kvótakerfi nema í samvinnu við útgerðarmenn
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps
lýsir í bókun sinni áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fyrningarleiðar í
sjávarútvegi og varar við því að hróflað verði við kvótakerfinu
nema í góðri samvinnu við útgerðarmenn. Grýtubakkahreppur er tólfta
sveitarfélagið sem á skömmum tíma varar í bókun við áhrifum
fyrningarleiðarinnar.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Líkir fyrningarleið í sjávarútvegi við stjórnarhætti Mugabe
Björn Dagbjartsson líkir
hugmyndum íslenskra stjórnvalda um fyrningarleiðina í sjávarútvegi
við stjórnarhætti Roberts Mugabe í Zimbabwe í grein sem hann
skrifar í Morgunblaðið í gær. Að hugsa ekkert um það hvaða
afleiðingar aðgerðirnar munu hafa. Þetta voru aðferðir Mugabe í
Zimbabwe, segir Björn m.a. í greininni.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Áhrif fyrningarleiðar á 3X Technology: „Fyrirtæki draga úr fjárfestingum“
Jóhann Jónasson,
framkvæmdastjóri 3X Technology, segist í samtali við Útveginn
óttast að áhrif fyrningarhugmynda stjórnvalda hafi svipuð áhrif á
fyrirtækið og niðurskurður aflaheimilda hafði árið 2007. Þá
var það eins og við manninn mælt, salan dróst verulega saman, segir
Jóhann.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fjarðabyggð: Varað við aðgerðum sem veikja grundvöll sjávarútvegsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar segir í
bókun sem samþykkt var í dag, að mikilvægt sé að varpa ekki fyrir
róða þeim árangri sem náðst hefur með gildandi stjórnkerfi
fiskveiða. Þá varar ráðið í bókunni við aðgerðum sem veikt geta
starfsgrundvöll sjávarútvegsins og stefnt búsetu í óvissu.
Fjarðabyggð er ellefta sveitarfélagið sem á skömmum tíma sendir frá
sér bókun í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um svokallaða
fyrningarleið í sjávarútvegi.
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fylgja Norðmenn í kjölfarið gangi Íslendingar í ESB?
Heimssýn, hreyfing
sjálfstæðissinna í Evrópumálum, efnir til opins umræðufundar
á Háskólatorgi Háskóla Íslands (sal HT 101) þriðjudaginn 19. maí
frá kl. 12:00-13:15. Þar verður m.a. velt upp spurningunni af
hverju Norðmenn höfnuðu tvívegis aðild að ESB.
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Illa ígrunduð vinnubrögð – hagfræðiprófessor svarað
Hvað gengur manninum til? Hvernig má það
vera að prófessor við Háskóla Íslands skuli koma fram með þvílíkan
málflutning án þess að þurfa að byggja hann á einni einustu
tilvísun í rannsóknir máli sínu til stuðnings? Verða menn ekki í
slíkri stöðu að greina á milli málefnalegrar umræðu og óvildar?
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin „reiðarslag fyrir útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki“
Meirihluti hreppsnefndar
Tálknafjarðarhrepps lýsir í bókun sinni þungum áhyggjum yfir þeirri
óvissu er ríkir um fiskveiðistjórnunarkerfið. Í bókuninni eru
hugmyndir um fyrningarleið og upptöku strandveiða sagðar reiðarslag
fyrir útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í
sveitarfélaginu.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið 16 milljarðar króna í janúar og febrúar
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 16
milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2009 samanborið
við 12,1 milljarð á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því
aukist um 3,8 milljarða eða 31,5% á milli ára. Þetta kemur
fram í frétt frá Hagstofu Íslands í morgun.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarráð Seyðisfjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum yfir fyrningarleiðinni
Meirihluti bæjarráðs
Seyðisfjarðarkaupstaðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar
miklu óvissu sem skapast um fiskveiðistjórnunarkerfið með hugmyndum
stjórnvalda um svokallaða fyrningarleið. Svo segir í bókun
frá fundi ráðsins sem haldinn var sl. miðvikudag.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra hvattur til að beita sér gegn fyrningarleið
Jón Bjarnason, nýskipaður
sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra, var gestur á stjórnarfundi LÍÚ
fyrr í dag. Útvegsmenn buðu hann velkominn til starfa og árnuðu
honum velfarnaðar í embættisverkum sínum. Ráðherra var jafnframt
hvattur til þess að beita áhrifum sínum til þess að horfið verði
frá áformum stjórnvalda um svokallaða fyrningarleið í
sjávarútvegi.
14. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Varaformaður LÍÚ líkir fyrningarhugmyndum við ofbeldisaðgerðir
Bara það að svona yfirlýsingar séu settar
í stjórnarsáttmála rikisstjórnar hefur strax þau áhrif að menn í
greininni draga saman seglin, fara varlega í allar fjárfestingar
sem fyrirhugaðar voru. Óvissa tekur við af öryggi, segir Eiríkur
Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og
varaformaður LÍÚ. Hann líkir fyrningarhugmyndum í sjávarútvegi
við ofbeldisaðgerðir í viðtali við
Fiskifréttir í dag.
14. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarráð Ölfuss: Fyrningarleiðin er á kostnað landsbyggðarinnar
Með því að gera svo víðtækar breytingar á
atvinnugrein sem er jafn mikilvæg og sjávarútvegur er ríkisstjórnin
að setja þessa atvinnugrein í mikla óvissu og enn og aftur á að
gera það á kostnað landsbyggðarinnar. Svo segir í ítarlegri bókun
bæjarráðs Ölfuss, sem samþykkt var fyrr í dag.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Umtalsverður aflasamdráttur varð í apríl á milli ára
Heildarafli íslenskra skipa nam 94.828
tonnum tonnum í apríl, sem er verulegur aflasamdráttur frá sama
mánuði í fyrra er aflinn var 130.871 tonn. Rétt eins og í
mars vegur þyngst í heildarmyndinni að engin loðnuveiði var í
apríl. Metinn á föstu verði var aflinn 16,3% minni í apríl í ár en
í fyrra. Það sem af er ári hefur heildarafli hins vegar aukist um
7.8% frá árinu 2008 á föstu verði.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Grundarfjarðar varar við áhrifum fyrningarleiðar
Bæjarstjórn Grundarfjarðar
varar við áhrifum fyrningarleiðarinnar í sjávarútvegi í bókun sem
hún samþykkti í gær. Með bókuninni bætist Grundarfjörður í vaxandi
hóp annarra sveitarfélaga sem lýsa áhyggjum sínum yfir umræddum
hugmyndum.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Vel heppnuð ráðstefna í Eyjum um rannsóknir og nýsköpun í sjávarútvegi
Aukin samvinna á milli
einstakra rannsóknarstofnana og fræðasetra og efling trausts á
milli þeirra og atvinnugreinarinnar í heild var á meðal þess sem
kom fram á vel heppnaðri og fjölsóttri ráðstefnu í Vestmannaeyjum
fyrir helgina. Ráðstefnan bar yfirskriftina Þátttaka atvinnulífsins
í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi og var skipulögð af
Þekkingarsetri Vestmannaeyja í samvinnu við fjölda aðila.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Langanesbyggð: Búsetuskilyrðum ógnað með fyrningarleið
Það er nóg að þurfa að glíma
við gæftir, aflabrest og stærð fiskistofna, segir m.a. í bókun
hreppsnefndar Langanesbyggðar, sem hún sendi frá sér fyrr í dag. Í
bókuninni segir m.a. að fyrirhuguð fyrningarleið í sjávarútvegi
ógni búsetuskilyrðum á svæðinu.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Nýr sjávarútvegsráðherra boðar víðtækt samráð
Jón Bjarnason, nýskipaður
sjávarútvegsráðherra, boðar víðtækt samráð um endurskoðun
sjávarútvegsstefnunnar með það að markmiði að ná góðri sátt um
sjálfbærar veiðar og trygga atvinnu fólks í sjávarbyggðunum. Þetta
kom fram í hádegisfréttum ríkisútvaprsins. Þar vildi ráðherra ekki
slá neinu föstu um innköllun aflaheimilda.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Stjórn SF leggst eindregið gegn hugmyndum um fyrningarleið í sjávarútvegi
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva leggst
eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum um fyrningarleið í
sjávarútvegi eins og hún hefur verið kynnt í samstarfsyfirlýsingu
þeirra flokka sem nú skipa ríkisstjórn Íslands. Afstaða SF kemur
fram í ályktun sem samtökin sendu frá sér í dag.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti sjávarafurða 171,3 milljarðar í fyrra
Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam 171,3
milljörðum króna á síðasta ári og jókst um 34,3% frá árinu áður.
Mæld á föstu verði dróst framleiðsla saman um 1,5%.
Heildarverðmæti framleiðslu til útflutnings nam hins vegar 181
milljarði króna. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu
Íslands um útgáfu ritsins Útflutningur og
útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2008. Skýrsluna má nálgast
hér.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Byggðaráð Skagafjarðar: Stjórnvöld standi vörð um sjávarbyggðir
Byggðaráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar lýsir í ályktun sinni, sem send var út um
helgina, þungum áhyggjum yfir þeirri óvissu sem nú ríkir um
fiskveiðistjórnunarkerfið og hvetur stjórnvöld til að standa vörð
um stöðu og framtíð sjávarbyggðanna.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Vestmannaeyja: Fyrningarleiðin aðför að byggð í Eyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
varar sterklega við svokallaðri fyrningarleið í sjávarútvegi og
telur hana beina aðför að atvinnulífi Vestmannaeyja og þar með að
byggð í Eyjum. Bæjarstjórn hafnar því harðlega að þessi boðaða
fyrningarleið nýrrar ríkisstjórnar verði farin. Svo segir í
ítarlegri ályktun sem bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur sent frá
sér.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins skora á
Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá
öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda
sjávarútvegsfyrirtækja. Það er mikilvægt að stöðugleiki ríki í
rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra
fyrirtækja.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Sveitarstjórn Grímseyjahrepps mótmælir harðlega fyrningarleið á veiðiheimildum
Sveitarstjórn Grímseyjarhepps mótmælir
harðlega fyrirhugaðri fyrningarleið stjórnvalda á veiðiheimildum.
Þetta er sú alversta hugmynd sem komið hefur fram í
sjávarútvegsstefnu okkar Íslendinga segir í bréfi hreppsins til
sjávarútvegsráðherra.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar lýsir þungum áhyggjum yfir boðaðri fyrningarleið í sjávarútvegi
Áður en farið verður í að
hrófla við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi þarf að fara vandlega
yfir það hvaða afleiðingar breytingarnar hafi á hag þeirra sem lifa
og starfa í sjávarútvegi segir m.a. í bókun bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn skora á bæjarstjórn Ísafjarðar að berjast gegn fyrningarleið
Útvegsmenn á Vestfjörðum
afhentu síðdegis í dag áskorun til bæjarstjórnar Ísafjarðar, þar
sem skorað er á hana að beita áhrifum sínum til þess að koma í veg
fyrir að hugmyndir um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi nái
fram að ganga.
7. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafna fyrningarleið í sjávarútvegi
Bæjaryfirvöld í Grindavík
samþykktu í gær bókun á fundi bæjarráðs þar sem því er harðlega
hafnað að farin verði það sem nefnt hefur verið fyrningarleið í
sjávarútvegi, sem sé lífæðin og grundvallaratvinnugrein
byggðarinnar. Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur,
sem öll sat fund bæjarráðs í gær, er skipaður fulltrúum
Samfylkingar og Framsóknarflokks.
6. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Flutti erindi um vottun sjávarafurða á ráðstefnu OECD og FAO
Fjölmenni var á ráðstefnu,
sem boðað var til í Den Haag í Hollandi fyrir skömmu á vegum
Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD og Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, í samvinnu við
hollensk stjórnvöld. Ráðstefnan markar upphaf þriggja ára ferlis,
þar sem farið verður ofan í saumana á því hver áhrif
umhverfismerkinga eru í sjávarútvegi.
5. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Economist: Evrópusambandið gæti lært af reynslu Íslendinga
Evrópusambandið gæti lært af
reynslu Íslendinga og Nýsjálendinga þegar kemur að stjórnun
fiskveiða. Þetta kemur fram í grein í nýjasta hefti tímaritsins The
Economist, þar sem fjallað um nýútkomna Grænbók um hina
sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.
4. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Uppboðsleiðin grefur undan íslenskum sjávarútvegi“
Hugmyndir um upptöku aflaheimilda og að
setja þær á uppboð eru ógn við íslenskan sjávarútveg. Uppboðsleiðin
var reynd í byggingastarfsemi í Grafarholti á árunum 1999-2002 með
hörmulegum afleiðingum. Hún grefur undan íslenskum sjávarútvegi,
segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
4. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Óttast aðgang veiðiflota annara ESB-þjóða að skoskum fiskimiðum

Fulltrúar allra skosku stjórnmálaflokkanna á Evrópuþinginu, að skoska þjóðarflokknum undanskildum, greiddu því atkvæði sitt í fyrri viku að flytja mætti óveiddan kvóta skoskra fiskiskipa til annarra aðildarlanda ESB. Ian Hudghton, formaður skoska þjóðarflokksins, er æfur yfir niðurstöðunum.
1. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ýsu og karfa
Á fundi Úrskurðarnefndar
sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri ýsu,
sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um
10%. Verð á óslægðri ýsu var hækkað um 17% . Ákveðið var að hækka
verð á karfa um 13%. Verð þetta gildir frá og með 1. maí 2009.













