Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

30. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Financial Times: Yrði aðild Íslands að ESB of dýru verði keypt?

Tilhugsunin um aðild að Evrópusambandinu er notaleg trygging þegar illa árar. Þegar eyjarskeggjar standa frammi fyrir skilmálum aðildar og gjaldinu sem greiða þarf fyrir gæti svo farið að þeir hrökkluðust til baka. Þannig lýkur grein í vefútgáfu Financial Times í gær. Þar er  fjallað um stöðu Íslands gagnvart ESB eftir  nýafstaðnar alþingiskosningar.

30. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Íslandi boðið á strandríkjafund um stjórn makrílveiða

Ísland hefur þekkst boð frá ESB, Færeyjum og Noregi um að taka þátt í fundi um stjórn makrílveiða sem haldinn verður í London 29.-30. júní n.k. Í frétt frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í dag kemur fram að Ísland hafi boðið hinum strandríkjunum til fundar í Reykjavík fyrr í þessum mánuði en að því boði hafi ekki verið svarað.

29. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Strandríkin hunsuðu boð Íslands um þátttöku í makrílfundi

Ekkert strandríkjanna sem eiga aðild að samningum um stjórn makrílveiða í NA-Atlantshafi lét svo lítið sem að svara boði sjávarútvegsráðuneytisins um að sækja fyrirhugaðan fund hér á landi dagana 17. og 18. apríl sl. Þar var markmiðið að reyna að leysa úr deilum ríkjanna.

28. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Ráðstefna um þátttöku atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun

Þekkingarsetur Vestmannaeyja, í samvinnu við fjölmarga aðila á landinu stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Þátttaka atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum föstudaginn 8. maí 2009 frá kl. 9 -16. 

28. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Eigið fé sjávarútvegsfyrirtækja 110 milljarðar í árslok 2007

Eigið fé íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í árslok 2007 var 110 milljarðar eða 25,3%. Þetta kemur fram í ritinu Hagur fiskveiða og fiskvinnslu árið 2007 sem Hagstofa Íslands hefur gefið út.  Niðurstöður efnahagsreiknings sýna að heildareignir sjávarútvegsins í voru 435 milljarðar króna en heildarskuldir 325 milljarðar króna.

24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Sjómenn séu slysatryggðir á ferðum til og frá heimili að skipshlið

Sjómenn eiga að njóta slysatryggingaverndar almannatrygginga á ferðum sínum á vegum útgerða frá heimilum sínum. Þetta er niðurstaða dóms í máli Hraðfrystistöðvar Þórshafnar gegn Tryggingastofnun ríkisins. Dómur var kveðinn upp þann 20. mars sl.

24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Grænbók ESB: Ekkert hald í hlutfallslega stöðugleikanum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kemst að því í svokallaðri Grænbók um hina sameiginlegu sjávarútvegsstsefnu sambandsins að reglan um hlutfallslegan stöðugleika (e. relative stability) tryggi ekki lengur að fiskveiðiréttindi haldist hjá viðkomandi veiðiþjóð. Grænbókin var formlega kynnt á miðvikudag.

24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Upptaka aflaheimilda – réttlæti í nafni hverra?

Það stoðar lítt þótt þessum hugmyndum sé pakkað inn í umbúðir réttlætis og jöfnuðar. Í gegnum umbúðirnar skín, að þetta er hrein og klár eignaupptaka, segir í grein Sigurðar Sverrissonar, upplýsinga- og kynningasrfulltrúa LÍÚ, í Fiskifréttum í vikunni. Greinin ber yfirskriftina Upptaka aflaheimilda réttlæti í nafni hverra?

22. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Útgerð Dala- Rafns fær skaðabætur vegna samráðs olíufélaga

Útgerðarfélagið Dala-Rafn ehf. í Vestmannaeyjum fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdar 2,3 milljónir króna með vöxtum í bætur vegna þess að sannað þótti að ólögmæt háttsemi olíufélaganna hafi valdið útgerðinni tjóni.

21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

„Alvarlega vegið að atvinnuöryggi starfsfólks okkar“

Umræðan um þessar upptökuhugmyndir í sjávarútvegi var ofarlega í huga manna á aðalfundinum hjá okkur, segir Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfurði, en aðalfundur fyrirtækisins var haldinn fyrir helgina. 

21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Upptökuhugmyndirnar eru „skipbrot heilbrigðrar skynsemi“

Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði, er vægast sagt ósáttur við þær hugmyndir að taka árlega 5% aflaheimilda af sjávarútvegsfyrirtækjum. Hann telur að verði þessar hugmyndir að veruleika séu þær til marks um skipbrot heilbrigðrar skynsemi.

21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Tekur ESB upp kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd?

Upptaka framseljanlegra aflaheimilda er ein þeirra leiða sem Evrópusambandið horfir nú til í því augnamiði að koma böndum á hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu þess. Þetta kemur fram í í svonefndri grænbók ESB um sjávarútvegsstefnu sambandsins sem kynnt verður á morgun og vefur BBC greinir frá í dag.

20. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

„Sýður á mönnum vegna 5% landsbyggðarskattsins“

Það sýður á mönnum vegna þessa 5% landsbyggðarskatts, sem við köllum þær fyrningarhugmyndir aflaheimilda sem Samfylkingin og VG hafa verið að boða þannig að ég reikna með fjölmenni á fundinn í kvöld, segir Ólafur Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands hf. og formaður Útvegsmannafélags Snæfellsness. Félagið hefur í samvinnu við Snæfell, félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, boðað til fundar með fulltrúum allra flokka í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík kl. 20 í kvöld.

20. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Athugasemd frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir því við Útveginn að birt verði athugasemd hans við frétt frá 13. apríl sl., þar sem vitnað var í viðtal við Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, í blaðinu Fréttum í Vestmannaeyjum. Athugasemd ráðherra fer hér á eftir í heild.

17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Samningur undirritaður um Sjávarútvegsmiðstöð á Akureyri

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, undirrituðu  í gær samning um stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar á Akureyri.

17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Kynningarbæklingur LÍÚ nú aðgengilegur í A4 broti

Kynningarbæklingur um íslenskan sjávarútveg, sem LÍÚ gaf út fyrir stuttu, er nú einnig aðgengilegur í A4 broti, sem hentar vel fyrir þá sem vilja prenta hann út. Tengil á þessa viðbótarútgáfu er að finna undir myndinni af forsíðu bæklingsins efst í hægra dálki vefsíðunnar.

17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Útgerðarstjóri líkir fyrningarleiðinni við skottulækningar

Sverrir Pétursson, útgerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf., segir að hugmyndum Samfylkingar um fyrningu aflaheimilda um 5% á ári  megi e.t.v. best líkja við skottulækningar; sjúklingurinn er sjaldnast til frásagnar eftir aðgerð.

16. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Engin loðna en 10% meiri botnfisksafli í mars en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa nam 108.612 tonnum tonnum í mars, sem er verulegur aflasamdráttur frá sama mánuði í fyrra er aflinn var 169.690 tonn.  Þar vegur þyngst að engin loðnuveiði var í mars en botnfisksafli var hins vegar tæplega 10% meiri en í mars 2008.

16. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Pétur H. Pálsson: Illskárra að ríkið hirði hlutaféð en kvótann

Ég satt að segja trúi því ekki að stjórnvöld umturni núverandi kerfi með þeim hætti sem hér hefur verið rætt um. Það væri skömminni til skárra að ríkið hirti 5% af hlutafé eigenda fyrirtækjanna á ári þangað til þau væru að fullu komin í ríkiseigu, segir Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík, í viðtali við Fiskifréttir í dag.

15. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Steingrímur J.: Ekkert gert án samráðs við útvegsmenn

Það stendur ekki til að gera neitt í þessum efnum af okkar hálfu án þess að hafa þar útvegsmenn og sjómenn við borðið, segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra. Hann segir að segir að breytingar á fiskveiðistjórnun verði ekki gerðar án þess að hlusta á sjónarmið þessara aðila og taka eftir atvikum tillit til þeirra.

13. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Óttast skelfilegar afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segist óttast skelfilegar og ófyrirséðar afleiðingar fyrningar aflaheimilda. Hann telur fyrningarleiðina hvetja til þess að langtímahugsun í rekstri verði varpað fyrir róða. Vinnslustöðin er leiðandi fyrirtæki í humarveiðum og -vinnslu.

8. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Norðmenn auka makrílkvóta sinn einhliða um 70.000 tonn

Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur tekið einhliða ákvörðun um að norskum skipum verði heimilt að veiða 70.000 tonnum meira af makríl á þessu ári en á síðasta ári. Heildarkvóti Norðmanna er því 190.802 tonn í ár en var 120.450 tonn í fyrra.

8. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Boðið til fundar í makríldeilunni á Íslandi í þessum mánuði

Íslensk stjórnvöld hafa boðið Norðmönnum, Færeyingum og Evrópusambandinu til fundar um miðjan þennan mánuð til að leysa úr þeim deilum sem uppi eru á meðal strandríkja um framtíðarstjórnun makrílveiða í NA-Atlantshafi. Þetta kemur fram í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.

7. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum

Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði, sjávarlíffræði, fiskalífeðlisfræði, haffræði, veiðarfærafræði og skyldum greinum.

7. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

LÍÚ gefur út kynningarbækling um íslenskan sjávarútveg

LÍÚ hefur gefið út bækling um íslenskan sjávarútveg. Þar er að finna stutta samantekt um þjóðhagslegt gildi sjávarútvegs fyrir íslenskt samfélag og ýmsar tölfræðilegar staðreyndir um sjávarútveg á Íslandi.

6. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

„Tillögur Samfylkingarinnar eru ávísun á fjöldagjaldþrot“

Ég fæ ekki betur séð en að rústa eigi öllum þeim árangri sem náðst hefur í íslenskum sjávarútvegi með þessum tillögum Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum, segir Guðrún Lárusdóttir, útgerðarkona hjá Stálskipum í Hafnarfirði, í viðtali við Útveginn. Hún lýsir vonbrigðum með þá fljótaskrift sem henni finnst einkenna stefnumótun flokksins í þessum málaflokki.

2. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

„Fiskveiðistefna ESB breytir heiðvirðum sjómönnum í skúrka“

Tveir breskir sjómenn, feðgar, hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að landa umframafla fremur en að kasta honum í sjóinn eins og reglur hinnar sameiginlegu fiskveiðistefnu Evrópusambandsins kveða á um. Brot feðganna var fest á filmu í þáttaröð BBC um breskan sjávarútveg.

2. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

„Hrein og klár eignaupptaka“

Okkur finnst þetta fáranlegt, það er ekkert annað orð yfir þetta. Þetta er hrein og klár eignaupptaka, þjóðnýting, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, í viðtali við BB í dag um hugmyndir um fyrningu aflaheimilda um 5% á ári.  

1. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd lækkar þorskverð um 12%

Ákveðið var á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 12%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 3%. Verð á karfa var hins vegar hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með 1. apríl 2009.

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta