Fréttir
29. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Munu áfram kaupa Alaskalax án vottunar MSC
Framkvæmdastjóri
matvælarisans Findus í Frakklandi, Mattieux Lambeaux, sagði
fyrir helgina, að fyrirtækið myndi ekki hætta að kaupa lax frá
Alaska þótt afurðirnar bæru ekki lengur merki
vottunarfyrirtækisins.
29. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Afrakstur þróunaraðstoðar ógnar norskum sjávarútvegi
Norðmenn standa nú frammi
fyrir þeirri sérkennilegu stöðu að afraksturinn af þróunaraðstoð
þeirra í Víetnam um langt árabil er farinn að ógna markaðsstöðu
norsks sjávarútvegs í Evrópu.
20. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Bankar og sparisjóðir hafi frumkvæði að lækkun vaxta
Landssamband íslenskra útvegsmanna skorar
á banka og sparisjóði í landinu að taka frumkvæði til bjargar
heimilum og atvinnulífi og lækka nú þegar vexti umtalsvert.
Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands í gær bendir ekki til þess að
peningastefnunefnd, sem sérstaklega var skipuð, sé í nægilegum
tengslum við þann raunveruleika sem við þjóðinni blasir.
19. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Skuldir sjávarútvegs innan við 2% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja
Brúttóskuldir íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja voru 300,3 milljarðar króna í lok ársins
2007. Heildarskuldir íslenskra fyrirtækja námu á sama tíma 15.685
milljörðum króna samkvæmt frétt Morgunblaðsins í gær, sem byggir á
upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Samkvæmt þessu voru skuldir
sjávarútvegsins innan við 2% af heildarskuldum allra fyrirtækja í
árslok 2007.
19. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn ekki í aðstöðu til að gagnrýna makrílveiðar Íslendinga
Samtök framleiðenda
uppsjávarfisks í Danmörku líta svo á að Norðmenn séu ekki í neinni
aðstöðu til að kvarta undan makrílveiðum Íslendinga. Christian
Olsen, talsmaður samtakanna, segir í samtali við Fishing News
International, að bæði Norðmenn og Færeyingar hafi úthlutað sér
viðbótarkvótum í makríl.
18. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga vekur athygli erlendis
Erlendir fjölmiðlar hafa
fjallað nokkuð um íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga,
sem kynnt var fyrir fullum sal gesta á sjávarútvegssýningunni í
Boston fyrr í vikunni. Almenna merkið var fyrst kynnt á
Íslensku sjávarútvegssýningunni í byrjun október. Það merki er án
vottunar, en vísar til íslensks uppruna og
yfirlýsingar um ábyrgar fiskveiðar.
17. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
„Óskiljanlegar kvartanir Norðmanna“
Réttur okkur til þessara veiða
er óskoraður og það er ekki við okkur að sakast þótt við þurfum að
setja veiðiheimildir einhliða. Ósk okkar um að fá að koma að stjórn
veiða úr makrílstofninum í NA-Atlantshafi hefur ítrekað verið
hafnað. Í því ljósi eru þetta óskiljanlegar kvartanir Norðmanna,
segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
16. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Umfangsmikilli loðnuleit lokið
Umfangsmikilli loðnuleit
hafrannsóknaskipa og fiskiskipa er nú lokið án þess að loðnukvóti
væri gefinn út. Ekki náðist að mæla þau 400 þúsund tonn sem miðað
er við sem grundvöll til útgáfu aflamarks. Þetta er í fyrsta sinn
frá veiðitímabilinu 1982/1983 sem ekki hefur verið gefinn út
loðnukvóti.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Heildaraflinn 16% meiri í febrúar en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 99.648
tonnum í nýliðnum febrúar og var tæplega 16% meiri í tonnum talið
en í sama mánuði árið 2008 þegar hann var 85.808 tonn. Sé
aflinn metinn á föstu verði var hann 27% meiri í febrúar 2009 en í
sama mánuði árið áður.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Kristján Loftsson: Verður vandalaust að selja hvalkjötið
Ég hef engar áhyggjur af sölu
afurðanna. Við erum búnir að komast með kjötið okkar inn á
markaðinn og ég er þess fullviss að það verður vandalaust að selja
það, segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í viðtali við
Fiskifréttir. Undirbúningur fyrir komandi hvalvertíð er kominn á
fulla ferð. Áætlað er að hefja veiðar í byrjun júní.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenskum skipum heimilt að veiða svipað magn af makríl og í fyrra
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerð um makrílveiðar
íslenskra skipa á þessu ári. Miðað er við að heildarafli á árinu
fari ekki yfir 112.000 tonn, þar af 20.000 tonn á alþjóðlegu
hafsvæði utan lögsögu ríkja. Fari aflinn yfir þetta magn mun
ráðherra ákveða hvort gripið skuli til veiðibanns eða takmarkana.
Þetta er svipað magn og veiddist í fyrra.
12. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Eru 15% af 2 milljónum ekki 300.000 hjá Hafró?
Sigurður Sverrisson,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, segir það rangt hjá Gísla
Víkingssyni, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnuninni, að vísað hafi
verið til þess í frétt á vef LÍÚ að útreikningar á heildaráti
hrefnu á þorski og ýsu hafi komið frá stofnuninni. Sigurður birti í
Morgunblaðinu í dag svargrein við athugasemd Gísla.
11. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Hrefnuveiðileyfi auglýst til umsóknar
Þeir sem hyggja á hrefnuveiðar á komandi
vertíð þurfa að uppfylla þau skilyrði, að a.m.k. einn úr áhöfn hafi
reynslu af hrefnuveiðum. Þá skulu skyttur sem annist veiðar og
aflífun dýra hafa sótt námskeið í meðferð skutulbyssna og
sprengiskutlna og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa
skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.
10. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Fiskneysla bætir námsárangur sænskra táningspilta
Niðurstöður vísindamanna við háskólann í
Gautaborg benda eindregið til þess að fiskneysla stuðli að bættum
námsárangri táningspilta. Könnun sænsku vísindamannanna er hin
fyrsta í heiminum sem einvörðungu tekur tillit til áhrifs
fiskneyslu á þennan tiltekna þjóðfélagshóp.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Hrefnan étur allt að 300 þúsund tonn af þorski og ýsu á ári
Niðurstöður hrefnurannsókna
Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess
hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Það er
fimmfalt meira magn en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til
samanburðar má nefna að heildaraflamark þorsks og ýsu á
yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Boð og bönn eru þjóðinni í óhag
Sjávarútvegurinn skilar þjóðarbúinu mestu
þegar hann getur nýtt tiltæka markaði eins og best verður á kosið
hverju sinni. Þetta er einmitt mjög mikilvægt núna þegar
efnahagsástand á helstu markaðssvæðum okkar er erfitt og aðstæður
hafa farið hratt versnandi, skrifar Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, í grein í Fiskifréttum í dag sem ber
yfirskriftina Boð og bönn eru þjóðinni í óhag.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
„Megum ekki draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur”
Við megum ekki undir neinum
kringumstæðum draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur, segir
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og lýsir áhyggjum
sínum yfir þeim áhrifum sem niðurskurður ríkisútgjalda hefur á
starfsemi Landhelgisgæslunnar.
3. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Fyrsta löndun íslensks fiskiskips í Grimsby í tæp 9 ár
Tæp níu ár voru liðin
frá því íslenskt fiskiskip landaði síðast í Grimsby þegar Sturla GK
12 seldi afla sinn þar í gær.
2. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð um 10-15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna í dag, 2. mars, var ákveðið að lækka verð á slægðum og
óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til
skyldra aðila, um 15%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um
10% . Verð á karfa var ákveðið óbreytt. Verð þetta gildir frá og
með 1. mars 2009.
2. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Sturla GK 12 sigldi á Grimsby og seldi hluta aflans í dag
Það eru einhver ár frá því
íslenskt fiskiskip landaði þarna síðast, segir Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, en skip félagsins,
Sturla GK 12, seldi í dag 65 tonn af blönduðum afla á fiskmarkaði í
Grimsby. Meðalverðið var 264 kr. á kíló.













