Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

27. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Hvenær kaupir maður þorsk og hvenær kaupir maður ekki þorsk?

Hvenær kaupir maður þorsk og hvenær kaupir maður ekki þorsk? Fréttamaður vefsíðunnar IntraFish veltir þessari spurningu upp í vikunni og gagnrýnir þekkt umhverfissamtök fyrir misvísandi upplýsingar.

26. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Engin störf tapast í fiskvinnslu vegna hvalveiða

Það hafa engin störf tapast í fiskvinnslu vegna hvalveiða okkar. Að halda slíku fram er oftúlkun á innihaldi bréfs bresku Waitrose-verslanakeðjunnar til íslenskra stjórnvalda, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.  

25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Ný gulldeplumið fundin djúpt suður af Eyjum

Ný gulldeplumið eru fundin djúpt suður af Vestmannaeyjum. Sjö skip eru nú þar á veiðum. Öll fengu þau einhvern afla í gær en bræla og leiðindaveður er á svæðinu og því ekki hægt að kasta í morgun. Guðmundur Guðmundsson, skipstjóri á Hugin VE, sagði í samtali við Útveginn að menn vonuðust til að úr rættist með veður þannig að hægt væri að hefja veiðarnar á ný.

25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Sjómannafélag Íslands samþykkir samninga við LÍÚ

Kjarasamningur Sjómannafélags Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur verið samþykktur með 75,8% greiddra atkvæða. Andvígir samningnum voru 23% en 1,2% seðla voru auðir. Áður höfðu VM félag vélstjóra og málmtæknimanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og Sjómannasamband Íslands samþykkt kjarasamninga við LÍÚ.

25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Útflutningsverðmæti gulldeplu orðið 800 milljónir króna

Útflutningsverðmæti gulldepluafurða eru nú orðið um 800 milljónir króna að mati Stefáns Friðrikssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Stefán telur að reikna megi með 25-26 þúsund krónum fyrir tonnið af útfluttum afurðum en fiskurinn er unninn í mjöl og lýsi.

24. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Krefja ESB um endurgreiðslu 200 millj. kr. jöfnunargjalds á lax

Þrír útflytjendur laxaafurða í Noregi hafa höfðað mál á hendur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og krefjast þess að þeim verði endurgreiddar sem svarar 200 millj. ísl. króna vegna sérstaks jöfnunargjalds sem þeir þurftu að greiða.

23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Joe Borg fiskimálastjóri ESB: „Ofveiðinni verður að linna“

Joe Borg, fiskimálastjóri Evrópusambandsins, var þungorður í garð hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu sambandsins í ræðu sem hann flutti á opnum fundi sjávarútvegsnefndar Evrópuþingsins fyrir skömmu. Ofveiðinni verður að linna, sagði hann m.a. og bætti við að gera þyrfti grundvallarbreytingar á stefnunni svo stunda mætti sjávarútveg innan ESB með sjálfbærum hætti.

23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

FFSÍ og VM samþykkja kjarasamning við LÍÚ

Kjarasamningur Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur verið samþykktur með 86,8% greiddra atkvæða. Talningu atkvæða lauk í morgun.

23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Deilur um Norðursjávarþorsk rugla Þjóðverja í ríminu

Sú ákvörðun World Wildlife Fund, WWF, að halda Norðursjávarþorski á svokölluðum  rauðum lista hefur valdið misskilningi á meðal kaupenda sjávarafurða, neytenda og stjórnmálamanna. Sjávarútvegsvefurinn IntraFish hefur þetta eftir heimildarmönnum innan atvinnugreinarinnar í Þýskalandi.

20. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Evrópusambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild“

Evrópusambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild með auknum meirihluta, sagði Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, í hádegisverðarerindi á vegum Lögfræðingafélags Íslands í vikunni. Erindi Stefáns bar yfirskriftina Eru fiskveiðireglur Evrópusambandsins andstæðar hagsmunum Íslands?

18. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Ákvörðun um hvalveiðar óbreytt fyrir yfirstandandi ár

Steingrímur J. Sigfússson, sjávarútvegsráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi nú fyrir stundu að ákvörðun forvera hans um hvalveiðar stæði óbreytt fyrir yfirstandandi ár. Hann setti hins vegar fyrirvara um veiðarnar næstu fjögur ár og sagði öll tvímæli tekin af um að hvalveiðimenn geti ekki gengið að því sem vísu að ákvörðun forvera hans stæði hvað það varðaði.

17. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Eignarhald í sjávarútvegi myndi líklega færast í hendur útlendinga“

Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, segir í viðtali við The Scotsman fyrrir stuttu að með aðild að Evrópusambandinu myndi eignarhald í sjávarútvegi líklega smám saman færast í hendur útlendinga. Í greininni kemur fram að íslenskur sjávarútvegur og örlög hans yrði úrslitavaldur kæmi til aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins.

16. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Framleiðendur laxafurða í Alaska í stríð við vottunarfyrirtækið MSC?

Djúpstæður ágreiningur er nú sprottinn upp á milli framleiðenda laxafurða í Alaska og vottunarfyrirtækisins Marine Stewardship Council, MSC. Í frétt á IntraFish fyrir helgina er látið að því liggja að ef ekki takist sættir í málinu muni vottun MSC á laxaafurðum frá Alaska heyra sögunni til síðar á þessu ári.

15. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Dylgjur um flutningskostnað ómerkilegur málflutningur“

Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., segir að þær tölur sem nefndar voru á Alþingi í vikunni um flutningskostnað á 82 tonnum af frystum hvalaafurðum með flugi til Japans séu fráleitar og úr öllu samhengi við raunveruleikann.

13. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Aukin þorskveiði en samdráttur janúarafla tæplega 8% á milli ára

Heildarafli íslenskra skipa nam 70.852 tonnum í nýliðnum janúar og var tæplega 8% minni en í sama mánuði árið 2007 er hann var 76.891 tonn. Sé aflinn metinn á föstu verði var hann 33% meiri í janúar 2009 en í sama mánuði árið áður.

13. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Norðmenn óttast að eldisfiskur frá Víetnam eyðileggi markaðinn

Stóraukinn innflutningur Evrópusambandsins á eldisfiskinum Pangasius frá Víetnam er þegar farinn að ógna hefðbundnum mörkuðum sjávarafurða að mati forvígismanna í norskum sjávarútvegi. Þetta kom fram á IntraFish-vefnum í vikunni. Norðmenn búast við því að stutt sé í að þessi fiskur verði til sölu í kæliborðum norskra verslana.

12. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Norðmenn setja 340 milljónir í markaðsstarf á þorski

Norðmenn ætla á næstunni að verja sem svarar 340 milljónum ísl. króna til markaðsstarfs á þorski. Þessi markaðsherferð er samstarfsverkefni norskra stjórnvalda og samtaka í norskum sjávarútvegi að því er segir í frétt frá IntraFish í gær. Stutt er síðan skýrt var frá því á þessum vettvangi að norsk stjórnvöld hefðu ákveðið að stórauka lán og ábyrgðir til fyrirtækja í norskum sjávarútvegi.

12. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Hvalasérfræðingur: Rangt að setja alla langreyðarstofna undir sama hatt

Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni, setur fyrirvara við þau vinnubrögð samtaka á borð við IUGN (International Union for Conservation of Nature) að setja t.d. alla langreyðarstofna undir einn og sama hatt. Þetta er í grundvallaratriðum sambærilegt við að friða hreindýr á Íslandi vegna þess að hreindýrastofninn í Kanada væri illa á sig kominn, segir Gísli í viðtali við Fiskifréttir í dag.

11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Danir auka aflaverðmæti með kvótaskiptum við ESB

Dönsk útgerðarfyrirtæki juku á síðasta ári aflaverðmæti sitt um á þriðja milljarð íslenskra króna með því að hafa kvótaskipti við aðrar útgerðir innan Evrópusambandsins. Þetta er haft eftir danska ráðherranum Evu Kjær Hansen i FiskeribladetFiskaren í gær en matvælaframleiðsla heyrir undir ráðuneyti hennar.

11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Ekki samstaða um að draga úr karfaveiðum á Reykjaneshrygg

Ekki náðist samstaða  um að draga úr karfaveiðum á Reykjaneshrygg á þessu ári eins og fulltrúar Íslands lögðu til á samráðsfundi sem lauk í London fyrr í dag. Auk fulltrúa Íslands sátu fundinn fulltrúar Færeyja, Grænlands, Evrópusambandsins, Noregs og Rússlands.

11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Meirihluti þingmanna skrifar undir þingsályktunartillögu um hvalveiðar

Alls hafa 36 þingmenn skrifað undir þingsályktunartillögu um að veiðum á hrefnu og langreyði hér við land skuli haldið áfram, veiðileyfi gefin út til næstu fimm ára og að árlegur leyfilegur heildarafli verði eins og kveðið er á um í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Tillagan var lögð fram á Alþingi fyrir stundu. Hana má sjá í heild sinni hér.

10. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegsráðherra gefur út 15.000 tonna rannsóknarkvóta í loðnu

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gaf síðdegis í gær út 15.000 tonna rannsóknarkvóta til loðnuskipa en enn hefur ekki tekist að mæla þau 400.000 tonn af loðnu sem samkvæmt aflareglu þarf að skilja eftir til hrygningar ár hvert. Fjögur veiðiskip aðstoða nú Hafrannsóknastofnunina við loðnuleit.

6. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Ég hef mikinn áhuga á því að við leysum þetta mál á farsælan hátt“

Ef menn halda að þetta hvalamál sé erfitt fyrir mig geta menn hætt að hafa áhyggjur af því. Það eru smámunir  í samanburði við það sem við stöndum nú frammi fyrir sem þjóð. Ég hef mikinn áhuga á því að við leysum þetta mál á farsælan hátt. Það er nóg annað að þvælast fyrir okkur, sagði Steingrímur J. Sigfússon, nýskipaður sjávarútvegsráðherra á borgarafundi um hvalveiðimál á Akranesi í gærkvöld.

6. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Fiskiskipum fækkaði um tæplega 600 á fimm árum

Íslenskum fiskiskipum  fækkaði um 43,5% á árunum 2003 2008 samkvæmt samantekt hagfræðings LÍÚ. Alls voru skráð fiskiskip 1356 talsins fiskveiðiárið 2003/2004. Þeim hafði fækkað niður í 767 fiskveiðiárið 2007/2008. Fækkunin nemur 589 skipum.

5. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Skotist til Íslands af Brussel-vaktinni

Fjórir fulltrúar Evrópuskrifstofu Þrændalaga (Trøndelags Europakontor) heimsóttu skrifstofur LÍÚ í morgun til þess að kynna sér afstöðu útvegsmanna til Evrópusambandsins.

4. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að ESB loga skært“

Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu loga skært. Ímyndið ykkur stöðu ykkar innan ESB ef sambandið ákvæði einn daginn að nýta fiskistofnana ykkar í þágu aðildarríkjanna allra. Hugmyndir ykkar um fullveldisrétt myndu þá reynast léttvægar. Þar er reynsla Íra frá því í síðustu viku gott dæmi,  segir  Daniel Hannan, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, í samtali við Útveginn.

4. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Hækkun hlutabréfa kynti undir þenslu"

Samanburður á fjórum mismunandi vísitölum frá janúar 2001 til janúar 2009 leiðir í ljós að þróun OMX 15 hlutabréfavísitölunnar hefur leikið lykilhlutverk í þeirri þenslu sem einkenndi íslenskt efnahagslíf frá síðustu aldamótum fram að bankahruninuí haust. Þetta er þvert á skoðanir þeirra sem hafa haldið því fram að rót efnahagsvandans megi rekja til frjáls framsals aflaheimilda.

3. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Tekjutap vegna afráns hvala nemur tugum milljarða króna

Samkvæmt fjölstofnalíkani Hafrannsóknastofnunarinnar gæti afrakstur þorskstofnsins orðið um 20% minni en ella njóti hvalastofnar algerrar friðunar. Hvalastofnar við Íslandsstrendur eru eru nú taldir nálægt upprunalegri stærð. Sérfræðingar stofnunarinnar leggja til að hvalveiðar séu stundaðar með sjálfbærum hætti og hvalastofnum haldið í 70% af hámarksstærð.

3. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Capacent Gallup: Tveir þriðju hlutar landsmanna hlynntir hvalveiðum

Tveir þriðju hlutar landsmanna eru hlynntir hvalveiðum í atvinnuskyni. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Capacent Gallup vann fyrir Sjávarnytjar um helgina. Spurt var: Ertu hlynntur því eða andvígur að Íslendingar stundi hvalveiðar í atvinnuskyni?

2. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd lækkar verð um 5-10%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 2. febrúar, var ákveðið að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 10%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 5%. Verð á karfa var ákveðið óbreytt. Verð þetta gildir frá og með 1. febrúar 2009.

2. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN

Skotar vilja Ísland í ESB til að fá aðgang að fiskimiðunum

Skoskir sjómenn og forvígisimenn samtaka þeirra bíða þess nú í ofvæni að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu. Þannig vonast þeir til að Íslandsmið opnist hugsanlega fyrir þeim að nýju. Þetta kemur fram í frétt The Press and Journal í Aberdeen á laugardag.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta