Fréttir
28. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Orðspori Íslands sem ábyrg fiskveiðiþjóð stefnt í hættu
„Það hlýtur að vera einsdæmi að þjóð sem á jafnmikið undir nýtingu náttúruauðlinda og við og hefur náð að skapa sér þá ímynd á alþjóða vettvangi að hún stundi sjálfbæra nýtingu fiskistofna, ábyrgar fiskveiðar og varúðarnálgun við stjórn fiskveiða hafi til meðferðar á þjóðþingi sínu frumvarp sem beinlínis miðar að því að ofveiða ákveðinn fiskistofn" segir í umsögn LÍÚ um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hann hefur lagt fram á Alþingi.
17. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenska upprunamerkið „algjörlega nauðsynlegt"
Heimild til notkunar íslensks upprunamerkis fyrir framleiðsluvörur sínar var breska fiskvinnslufyrirtækinu Flatfish „algjörlega nauðsynlegt" að sögn Peter Stokes, fjármálastjóra þess. Flatfish sér m.a. hinni kröfuhörðu verslanakeðju Waitrose fyrir afurðum úr skarkola og þykkvalúru af Íslandsmiðum.
16. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðherra var óheimilt að færa byggðakvóta á milli fiskveiðiára
Sjávarútvegsráðherra var óheimilt að framlengja úthlutunartímabil byggðakvóta fiskveiðiársins 2006-2007 til 31. desember 2007 - og þar með inn á nýtt fiskveiðiár - með útgáfu sérstakrar reglugerðar (nr. 440/2007.) Ákvörðunin átti sér ekki lagastoð og var því brot á lögmætisreglunni. Þetta kemur fram í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis.
15. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Vinnslustöðin færði Fjölskylduhjálpinni og Mæðrastyrksnefnd 2000 poka af humri
15. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í nóvember mun minni en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 85.690 tonnum í nóvember, sem er rúmlega 27% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 117.837 tonn. Breyting á milli ára skýrist nær alfarið af minni síldarafla, rétt eins og í október. Metinn á föstu verði var aflinn 13,2% minni í nóvemberí ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
14. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Samherji veitir 60 milljónum til samfélagsmála
Útgerðarfélagið Samherji hefur afhent styrki til ýmissa samfélagsverkefna að upphæð 60 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru veittir til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akureyri og Dalvík. Afhending styrkjanna fór fram í Flugsafni Íslands á Akureyri.
11. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Vélar Icelandair Cargo bera merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Fraktflugvélar Icelandair Cargo hafa verið merktar með merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga og slagorðinu Absolutely Fresh. Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, segir Ísland í fararbroddi í heiminum í ábyrgri stjórn fiskveiða og að félagið sé stolt af því að bera merkið á vélum félagsins. Finnur Garðarson hjá Fiskifélagi Íslands, sem er formlegur eigandi merkisins, fagnar þessu framtaki Icelandair Cargo.
10. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn segja ESB skorta samningsvilja
Sjávarútvegsráðherra Noregs, Lisbeth Berg-Hansen, hefur lýst vonbrigðum sínum yfir því sem nefnt er „skortur á samningsvilja Evrópusasmbandsins" í viðræðum við Norðmenn um gagnkvæmar veiðiheimildir á næsta ári. Fundi þessara aðila var slitið á þriðjudag án þess að niðurstaða næðist í helstu viðfangsefnunum sem fyrir samninganefndunum lágu.
9. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Við mótmælum þessu útflutningsálagi"
Framkvæmdastjóri LÍÚ, Friðrik J. Arngrímsson, segir nýjar reglur sjávarútvegsráðherra um 5% álag til aflamarks á útflutning ísfisks frá og með 1. janúar næstkomandi fela í sér mismunun. Þær séu jafnframt brot á samningi Íslands og ESB um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir. Þá megi leiða að því líkum, að þær feli í sér tæknilegar viðskiptahindranir sem gangi í berhögg við EES samninginn um fríverslun með sjávarafurðir til aðildarríkja ESB.
4. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Gæti þurft 1875 vottorð vegna útflutnings á fimm tonnum af fiski til ESB
Norskir útflytjendur standa nú frammi fyrir því að útflutningur á óverulegu magni af fiski getur kallað á gríðarlegt flóð vottorða vegna hertra reglna Evrópusambandsins til þess að stemma stigu við ólöglegum fiskveiðum. Reglugerð þar að lútandi tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi. Eftir breytinguna eru dæmi um að framvísa gæti þurft 1875 upprunavottorðum vegna útflutnings fimm tonna af blönduðum fiski frá Noregi til kaupanda í Þýskalandi.
4. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Fyrningarógninni verður að eyða"
„Það verður að eyða þeirri ógn sem vofir yfir sjávarútveginum með stefnu um fyrningu aflaheimilda. Ég lít svo á - og er þar sammála kollegum mínum í greininni - að fyrningin hefjist með frumvarpi því sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi," skrifar Eiríkur Tómason, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ í grein sem birtist í Morgunblaðinu í morgun.
3. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Gæði og afhendingaröryggi eru kröfur markaðarins"
„Gæði og afhendingaröryggi eru kröfur markaðarins," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Matís, AVS og Samtaka fiskvinnslustöðva um vannýtt tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. Í erindi sínu rakti Þorsteinn mikilvægi þekkingar, gæða, afhendingaröryggis og rekjanleika afurða í allri sölu- og markaðsstarfsemi fyrirtækisins þegar kæmi að samkeppni á markaði.
1. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Verð á karfa var hækkað um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. desember 2009.













