Fréttir
27. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert"
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert eða breyta honum þannig að hann verði sambærilegur við skattfrjálsar dagpeningagreiðslur til ríkisstarfsmanna og annarra launþega," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, um þær hugmyndir stjórnvalda að fella afsláttinn niður á fjórum árum.
27. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Árangurslaus fundur strandríkja um makríl í Edinborg
Fundi strandríkja um stjórn makrílveiða á árinu 2010 var slitið í Edinborg í morgun án þess að niðurstaða næðist. Greint er frá þessu í vefútgáfu norska dagblaðsins VG. Blaðið vitnar til fréttar frá fréttastofunni NTB sem hefur það eftir fulltrúum norska sjávarútvegsráðuneytisins að andrúmsloftið á fundinum hafi verið erfitt og markast af deilum Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðirétt þeirra fyrrnefndu innan lögsögu ESB.
26. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum"
„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum, hafa farið á hausinn og jafnvel skipt oft um kennitölu og komast upp með það. Svo eru hinir sem standa sig og hafa ekki farið í gjaldþrot, þeir eru sökudólgarnir og eiga að vera að eyðileggja kerfið," segir Þórður Rafn Sigurðsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, í nýlegu viðtali við Fréttir í Vestmannaeyjum. Þar lýsir hann óánægju sinni með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að úthluta 2000 tonnum af skötusel utan kvóta.
21. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið 24 milljarðar króna á 20 árum
20. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Reglugerð um makrílveiðar 2010 gefin út - Betri veiðistjórnun getur skilað milljörðum
Sjávarúvegs- og landbúnaðarráðuneytið gaf í dag út reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Þar kemur m.a. fram að fari heildarafli íslenskra skipa yfir 130.000 tonn ákveði ráðherra hvort veiðar skuli bannaðar eða takmarkaðar með einhverjum hætti.
17. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Hugmyndir ráðherra eins og köld vatnsgusa"
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. á Sauðárkróki segir þær hugmyndir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem fram koma í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, eins og kalda vatnsgusu framan í starfsfólk fyrirtækisins og vera með öllu óskiljanlegar. Hann gagnrýnir harðlega hugmyndir í frumvarpinu sem lúta að skerðingu á geymslurétti veiðiheimilda á milli ára.
16. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Dæmigert fyrir óábyrga afstöðu ESB í sjávarútvegsmálum"
„Þetta er dæmigert fyrir óábyrga afstöðu ESB í sjávarútvegsmálum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ en Evrópusambandið sat hjá sl. föstudag við samþykkt samkomulags NEAFC - Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar - um bætt eftirlit með veiðum og löndun á úthafskarfa sem veiddur er á Reykjaneshrygg.
13. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í október mun minni en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 66.921 tonni í október, sem er tæplega 29% minna en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 93.959 tonn. Breytingin skýrist nær alfarið af síldarafla á milli ára. Metinn á föstu verði var aflinn 3,2% minni í október í ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
12. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Gengur þvert á gefin loforð"
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að hann hljóti að líta á framlagt frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða sem mistök í ljósi nýlegrar yfirlýsingar forsætis- og fjármálaráðherra. Í þeirri yfirlýsingu var tekið fram að engin breyting hefði orðið varðandi þann sáttafarveg sem endurskoðun fiskveiðistjórnarinnar var sett í með skipun sérstakrar nefndar í sumar.
12. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Nánast óframkvæmanlegt"
„Hafnarvog Vestmannaeyjahafnar hefur hvorki tæki né þau tól sem til þarf við að brúttóvigta öll ílát sem berast að landi í viku hverri ... Við núverandi aðstæður telja hafnaryfirvöld það nánast óframkvæmanlegt miðað við það magn af afla sem berst að landi á þeim skamma tíma sem um ræðir," segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent til sjávarútvegsráðherra. Í bréfinu til ráðherra er hvatt til þess að drög að nýrri reglugerð, sem kveður á um að allur ferskur fiskur sem fer til útflutnings skuli vigtaður hér á landi, verði endurskoðuð.
10. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Verðum að fá valdið yfir miðunum heim á ný"
Sjávarútvegsráðherra Skota, Richard Lochhead, sagði á ráðstefnu í síðustu viku að kominn væri tími til þess að hefja uppbyggingarstarf eftir þá eyðileggingu sem hin sameiginlega fiskveiðistefna Evrópusambandsins hefði valdið skoskum sjávarútvegi. „Við verðum að fá valdið yfir miðunum okkar heim á ný," sagði hann.
3. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Samþykktir 70. aðalfundar LÍÚ
Allar samþykktir 70. aðalfundar Landssambands íslenskra útvegsmanna, sem fór fram í Reykjavík dagana 29. og 30. október sl., er nú hægt að nálgast á einum stað með því að smella hér.
2. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Verð á karfa var hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 2. nóvember 2009.













