Fréttir
30. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ: Horfið verði frá hugmyndum um upptöku aflaheimilda nú þegar
30. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra: Ekki verði gerð atlaga að þeim fyrirtækjum sem eru starfandi í dag
„Við verðum að byggja upp á nýjan leik á þeim grunni sem fyrir er í landinu. Við verðum að hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir hendi eru og geta starfað í framtíðinni og skapa þeim góð rekstrarskilyrði til þess að svo geti orðið, " sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ í gær.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Raunsæi og heilbrigð skynsemi verður að ráða för"
„Eftir að kvótakerfinu var komið á og sérstaklega með tilkomu frjálsa framsalsins 1991 tók við mikið umbyltingarskeið í íslenskum sjávarútvegi. Viðvarandi taprekstur vék fyrir hagræðingu og arðsemi. Það er á grundvelli þessarar umbyltingar að stærstur hluti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja mun standa af sér þær hamfarir sem á þeim hafa dunið á undanförnu," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í ræðu sinni á aðalfundi útvegsmanna í dag.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir rafbjögunarsíu
Árni Bergmann Pétursson, hugvitsmaður og forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í dag.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Vilja deila og drottna
„Síðastliðin 25 ár hefur umræða um kvótakerfið verið fyrirferðarmikil í þjóðmálunum. Í upphafi var meginmarkmið laganna nýjar leiðir við verndun fiskistofna og hagnýtingu þeirra: Aflamarki var úthlutað á skip og þannig dregið úr lítt heftri og óhagkvæmri sókn í fiskistofna." Þannig hefst grein Sveins Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings LÍÚ, í Fiskifréttum í morgun.
28. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Ákvörðun um makrílveiðar næsta árs tekin einhliða af Íslendingum
Ákvörðun um makrílveiðar íslenskra skipa á árinu 2010 verður tekin einhliða af íslenskum stjórnvöldum. Í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í morgun segir m.a.: „Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, tiltekur að þá verði augljóslega litið til veiðanna undanfarin ár og jafnframt til vaxandi útbreiðslu makríls innan íslensku efnahagslögsögunnar." Fréttatilkynningin fer hér í heild:
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Tíundi fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál
Fulltrúar Íslands og Rússlands í samstarfsnefnd landanna um tiltekna þætti á sviði sjávarútvegsmála hittust á tíunda fundi nefndarinnar í Moskvu dagana 19.-21. október sl. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna á vettvangi sjávarútvegsmála og fiskveiða. Í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um fundinn segir m.a.:
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Pínulítill kall"
„Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra fór afar niðrandi orðum um tvær mikilvægar atvinnugreinar í ræðu sinni á ársfundi ASÍ," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
„Orð ráðherrans eru honum ekki einungis til minnkunar vegna þess hroka sem hann sýndi þeim sem vinna við þessar atvinnugreinar. Þau eru einnig vanvirða við það góða fólk sem mátti sitja undir ræðu hans. Hæstvirtur ráðherrann virðist telja að þeir sem sækja ársfund ASÍ falli fyrir innantómum frösum og upphrópunum lýðskrumarans.
Mér finnst ráðherra, sem hefur orðið sér til slíkrar raðminnkunar, best lýst í þekktu lagi Þursaflokksins, sem má spila hér," segir Friðrik.
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Strandríkjasamningar um stjórn síld- og kolmunnaveiða árið 2010
Á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr kolmunnastofninum sem lauk í Lundúnum á fimmtudag, náðist samkomulag um að heildaraflamarkið verði 540.000 tonn. Hlutdeild íslenskra skipa verður 87.625 tonn. Þá var einnig var skrifað undir samning um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum og er heildaraflamarkið 1.483.000 tonn árið 2010. Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilt að veiða 215.183 tonn.
20. Október 2009 | ÚTVEGURINN
ESB: Reiknað með aukinni veiði þrátt fyrir hættuástand þorskstofnsins
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í gær að hún gerði ráð fyrir því að þorskveiðiheimildir í Norðursjó yrðu auknar á næsta ári þrátt fyrir að að augljóst væri að tilraunir til þess að vernda Norðursjávarþorskinn hefðu mistekist.
16. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Kallar eftir stuðningi hafnarstjórnar við útgerðarfyrirtæki
Formaður stjórnar Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf., Kristján G. Jóhannsson, spyr í bréfi til Hafnarstjórnar Ísafjarðar hvort hún geti hugsað sér að samþykkja ályktun, þar sem þar sem hvatt er til að rekstrarskilyrði útgerðarfyrirtækja verði ekki skert og stutt verði við bakið á raunverulegri nýsköpun á þessu sviði eins og t.d. fiskeldi. Greint er frá bréfinu á vefsíðu fyrirtækisins í dag.
16. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn biðla til einstakra aðildarríkja um stuðning í makríldeilunni við ESB
Deila Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðar á makríl í lögsögu ESB tók nýja stefnu í gær er norsk stjórnvöld sendu öllum aðildarríkjum sambandsins bréf, þar sem hvatt er til þess að þau beiti sér fyrir því opnað verði fyrir makrílveiðar innan lögsögu ESB að nýju. Gangi það ekki eftir muni það setja samninga um gagnkvæmar veiðiheimildir á næsta ári í uppnám.
14. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Óttast að danskur sjávarútvegur drukkni í skrifræði ESB
Formaður hagsmunasamtaka danskra útvegsmanna og sjómanna, Svein-Erik Andersen hjá Danmarks Fiskeriforening, óttast að endanlega sé verið að drekkja dönskum sjávarútvegi í reglugerðarfargani Evrópusambandsins. „Framkvæmdastjórnin undir forystu Svía ætlar að leiða yfir okkur óframkvæmanlega löggjöf," segir Andersen í fréttatilkynningu sem samtökin sendu frá sér í dag.
14. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í september14% meiri en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 77.392 tonnum í september, sem er tæplega 14% meira en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 68.052 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 18,5% meiri í september í ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
13. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði: Stjórn auðlinda betur komin í höndum þeirra sem nýta þær
Elinor Ostrom, sem í gær varð fyrsta konan til þess að hljóta Nóbelsverðlaunin í hagfræði, bendir m.a. á það í rannsóknum sínum að stjórn auðlinda á borð við skóga, vötn og fiskistofna, sé betur komið fyrir í höndum nærliggjandi samfélags en þegar fjarlægt yfirvald heldur á málum.
13. Október 2009 | ÚTVEGURINN
ICES: Dregið verði úr veiðum á síld, makríl og kolmunna
Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, leggur til að dregið verði úr veiðum á síld, makríl og kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári . Skýrsla ráðsins um ástand þessara stofna og veiðiráðgjöf fyrir næsta ár var birt í gær.
12. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Segir ekki hægt að treysta samningum við ESB
Inge Halstensen, formaður stjórnar samtaka norskra útvegsmanna, Fiskebåtredernes Forbund, sendir Evrópusambandinu tóninn í frétt á vef norska ríkisútvarpsins og segir sambandið „ótraustan samningsaðila." Halstensen vísar til makríldeilu milli Noregs og ESB og segir að þar sem ekki sé hægt að treysta gerðum samningum verði Norðmenn að grípa til þess að hindra aðgang ESB-skipa að norskum veiðisvæðum í Norðursjó og Barentshafi.
9. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Samið um veiði á 607 þúsund tonnum af þorski í Barentshafinu
9. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Strandveiðarnar tækifærismennska óábyrgra stjórnmálamanna"
8. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Aðild Íslands að stjórn og nýtingu makrílstofnins hafnað
Ísland hefur afþakkað boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkja um heildarstjórnun makrílveiða síðar í þessum mánuði. Fundarboðendum var tilkynnnt að Ísland tæki ekki þátt í slíkum fundi nema sem fullgilt strandríki. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir fullgilda aðild Íslands frumforsendu þess að að einhver möguleiki sé á því að ná samningi.
8. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Stál í stál í makríldeilu Norðmanna og ESB
Ekkert hefur enn þokast í makríldeilu Norðmanna og ESB eftir að 30 norskum skipum var vísað út af afmörkuðu veiðisvæði undan Hjaltlandseyjum, þar sem þau voru að makrílveiðum í síðustu viku. Ágreiningur er uppi um túlkun tvíhliða samnings en Norðmenn halda því fram að ákvæðið sem deilt er um hafi verið óbreytt frá 1994.
7. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðherra lætur þýða ESB-gögn á íslensku
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið láta þýða öll helstu gögn varðandi aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið tengd þeim málaflokkum sem ráðuneytið ber ábyrgð á. Jón ætlar að láta kanna hvort hægt er að vinna við þýðingar að hluta til úti á landi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu nú síðdegis.
6. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Jafnframt var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Þá var verð á karfa hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. október 2009.
5. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn og ESB takast á um makrílveiðar við Hjaltland
Norskir útgerðarmenn, sem gengið hafa hart fram í gagnrýni sinni á makrílveiðar Íslendinga innan íslensku efnahagslögsögunnar, eru afar ósáttir við þá ákvörðun ESB að vísa um 30 norskum skipum út af afmörkuðu veiðisvæði undan Hjaltlandseyjum, þar sem þau voru að makrílveiðum fyrir helgina.
1. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld falli þegar frá hugmyndum um fyrningu aflaheimilda
Útvegsmannafélag Vestfjarða skorar á stjórnvöld að falla þegar frá hugmyndum um fyrningu aflaheimilda. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í dag. Þá lýsir félagið áhyggjum sínum vegna skerðingar á þorskkvóta og skorar á stjórnvöld að breyta aflareglu í þorski til fyrra horfs. Jafnframt bendir félagið á í ályktuninni að niðurskurður á heildaraflamarki bolfisktegunda á fiskveiðiárinu svari til meðalársafla 100 vertíðarbáta. Ályktunin hljóðar þannig í heild:













