Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Verður ESB-líflínan snara um háls íslensks sjávarútvegs?

Bandaríska blaðið Christian Science Monitor, sem gefið er út í Boston, veltir því upp í grein í vikunni hvort áhugi Íslendinga á aðild að Evrópusambandinu muni reynast banabiti íslensks sjávarútvegs. Greinin ber yfirskriftina Will EU lifeline sink Iceland's fishing industry.

30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Framsóknarflokkurinn andvígur afturköllun hvalveiðiheimilda

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í fréttaskýringaþættinum Kastljósi í gærkvöld að ólíklegt væri að flokkurinn styddi hugmyndir Samfylkingar og VG um að afturkalla reglugerð um hvalveiðar. Ég geri ráð fyrir því að þingflokkurinn ... greiði atkvæði gegn því að þetta verði afturkallað, sagði hann.

30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Samningar um veiðar úr deilistofnum mikilvægir kæmi til ESB-aðildar

Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir í viðtali við Fiskifréttir í gær að kæmi til aðildar að Evrópusambandinu yrði mikilvægt að ná sátt um veiðar úr deilistofnum. Þessir stofnar eru um 30% aflaverðmætis íslenskra skipa. Stefán hefur um langt skeið verið aðalsamningamaður Íslands í viðræðum við aðrar þjóðir um deilistofna.

28. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Tenglar á vef- og bloggsíður skipa nú á vef LÍÚ

Með gerbreyttu fjölmiðlamynstri og síaukinni netnotkun hefur vef- og bloggsíðum íslenskra fiskiskipa fjölgað ört á síðustu árum. Margar þeirra eru mjög lifandi og gefa glögga mynd af lífinu um borð, hvað er veitt og hvað menn eru almennt að fást við. Þannig greindu skipverjar á Faxa RE 9 í gær frá stærsta kolmunna sem þeir höfðu veitt. Listi yfir tenglana á skipin er undir Tenglar í veftrénu hér til vinstri en einnig má nálgast þá hér.

27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Hópur norskra þingmanna heimsækir LÍÚ

Um 20 manna hópur þingmanna norska Stórþingsins sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í morgun. Heimsóknin var hluti af dagskrá þingmannanna í ferð þeirra til Íslands. Inge Lønning, þingmaður Hægriflokksins og forseti neðri deildar Stórþingsins, hafði enda á orði að lærdómsríkt væri að upplifa það umrót sem nú ríkti í íslensku þjóðlífi. Við gætum ekki hafa tímasett ferð okkar betur hvað þetta varðar, sagði hann.

27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

LÍÚ fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar

Landssamband íslenskra útvegsmanna fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni í sumar. LÍÚ hefur ítrekað hvatt til þess undanfarin ár að hvalveiðar í atvinnuskyni verði hafnar á ný.

27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Stóraukin lán og ábyrgðir norska ríkisins til fyrirtækja í sjávarútvegi

Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að stórauka framlög ríkisins til lána og ábyrgða í gegnum norska nýsköpunarsjóðinn, Innovation Norge. Þessar aðgerðir eru liður í brýnni áætlun til þess að styrkja stöðu norskra sjávarútvegs- og fiskeldisfyrirtækja og ábyrgjast greiðslur á afurðum þeirra á erlendum mörkuðum. Aðgerðirnar voru kynntar af Helgu Petersen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í gær.

23. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Mönnunarnefnd bar að virða 30 tonna réttindin

Samgönguráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð þar sem hnekkt er ákvörðun mönnunarnefndar skipa í máli Keilis ehf. frá því sl. sumar. Þar hafnaði nefndin beiðni útgerðarinnar um að sami maður fengi að gegna stöðu skipstjóra og vélstjóra eins og verið hafði frá árinu 2004. Málinu hefur verið vísað til nefndarinnar að nýju.

22. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Veiðiráðgjöf næstu ára í þorski: Vanhæfi forstjóra Hafró algert

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að eftir yfirlýsingar forstjóra Hafrannsóknastofnunarinnar sé vanhæfi hans algert til að koma að veiðiráðgjöf næstu ára í þorski. Friðrik segir einsýnt að ráðherra þurfi að kalla eftir mati óháðra vísindamanna á mælingum og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar á næstu árum komi forstjórinn þar að málum. Þetta kemur fram í grein sem framkvæmdastjóri LÍÚ skrifar í Fiskifréttir í dag.

21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti jókst um 15,6% á milli ára

Heildaraflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam 79,7 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði nýliðins árs. Á sama tíma árið áður, þ.e. janúar-október 2007, var verðmætið 68,9 milljarðar króna. Verðmætaaukningin er 15,6% á milli ára. Í október nam verðmæti aflans 9,3 milljarðar en var 6,1 milljarður í sama mánuði árið 2007.

21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Súperaðild" að ESB er ekki til

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, segir í leiðara Bændablaðsins þann 13. janúar sl. að afstaða samtakanna til Evrópusambandsins byggi á reynslu og staðreyndum, ekki vonum og væntingum sem alltof mikið er reynt að halda á lofti. Haraldur varar við undanlátssemi í umræðunni um ESB.

21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna undirritaður í dag

Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag um franlegingu á kjarasamningi aðila. Samningurinn tekur annars vegar til Sjómannafélags Íslands og hins vegar Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins.

 

19. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Neðansjávarmyndir Erlendar Bogasonar á forsíðunni

Neðansjávarmyndir Erlendar Bogasonar kafara hafa vakið verðskuldaða athygli þeirra sem skoðað hafa Útveginn, fréttavef LÍÚ, að undanförnu. Þessar myndir Erlendar birtust fyrst í ársskýrslu LÍÚ í októberlok en hann hefur nú veitt góðfúslegt leyfi til að nota þær á þessum vettvangi. Erlendur á mikið myndasafn úr djúpunum og það sem birtist hér að ofan er aðeins lítið brot þess.

16. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Aflamark í þorski aukið um 30.000 tonn

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu.

16. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Stjórn LÍÚ fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra

Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að auka heildaraflamark í þorski á yfirstandandi fiskveiðiári um 30.000 tonn.

14. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Aflaaukning í desember 10% á milli ára

Heildarafli íslenskra skipa nam 85.774 tonnum í nýliðnum desember og var 9,5% meiri en í sama mánuði árið 2007 er hann var 78.329 tonn. Sé aflinn metinn á föstu verði var hann 10% meiri í desember 2008 en í sama mánuði árið áður. Metinn á föstu verði dróst heildarafli ársins 2008 hins vegar saman um 2,6% miðað við árið 2007.

14. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Löndun lokið á 650 tonna gulldeplufarmi í Eyjum

Nýlokið er löndun á 650 tonnum af gulldeplu úr Hugin VE 55 í Vestmannaeyjum. Aflinn veiddist á Grindavíkurdjúpi. Gulldeplan finnst nú í stórum torfum suður af landinu. Þetta er mjög smár fiskur, tæpur helmingur af lengd loðnu eða 5-6 sm. Stærstu fiskarnir eru ekki nema sjö sentimetrar. Við höfum kallað þetta kreppukóð í gríni, sagði Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins, í samtali við Útveginn.

13. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2009 úr stofni bláuggatúnfisks

Sjávarútvegsráðuneytið hefur auglýst úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2009 úr stofni Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks. Útgerðir, sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum veiðum, skulu sækja um veiðiheimildir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir 31. janúar 2009.

12. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Myndum framselja lagasetningarvaldið“

Menn verða að vera raunsæir. Þeir mega ekki vekja falsvonir um að unnt sé að ganga í Evrópusambandið án þess að afsala sér forræðinu yfir sjávarauðlindinni. Það er skilyrðið fyrir inngöngu. Ég tel óhugsandi að við fengjum varanlegar undanþágur frá nokkrum þeim atriðum sem máli skipta, sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í viðtali við Fiskifréttir fyrir helgina.

12. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Húsfyllir á fundi Heimssýnar um sjávarútveginn og ESB

Húsfyllir, á annað hundrað manns, var á fundi um sjávarútveginn og Evrópusambandið í Þjóðminjasafninu í gær. Aðalræðumaður fundarins var Peter Ørebech, þjóðréttarfræðingur við Háskólann í Tromsö í Noregi. Hann er sérfræðingur í EES rétti, sjávarútvegsmálum og reglum ESB. 

10. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Evrópusambandið – nýr tengill á vefsíðu LÍÚ

Nýr tengill, Evrópusambandið, hefur verið settur inn á á vefsíðu LÍÚ. Tengillinn er neðst til vinstri í röð tengla á forsíðu. Þessum efnisþætti er ætlað að svara kalli tímans en umræða um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu er nú mjög fyrirferðarmikil í íslensku samfélagi. Þarna er að finna afstöðu LÍÚ til Evrópusambandsins, fróðlegar skýrslur og samantektir,efni frá LÍÚ, ræður og áhugaverðar greinar. Nýju efni verður bætt inn jafnt og þétt.

9. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Kjarasamningar Sjómannasambands Íslands og LÍÚ samþykktir

Nýgerður kjarasamningur Sjómannasambands Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna var samþykktur með afgerandi meirihluta atkvæða innan SSÍ.

9. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Blekktu bankarnir sjávarútvegsfyrirtækin, lífeyrissjóðina og þjóðina?

Hvöttu eigendur stóru viðskiptabankanna starfsfólk sitt vísvitandi til þess að selja útflutningsatvinnuvegunum og lífeyrissjóðum í landinu gjaldeyrisskiptasamninga, þar sem staða var tekin með með krónunni? Unnu þeir svo sjálfir að því að fella gengi krónunnar með verulegum hagnaði og vógu þannig að sjávarútvegsfyrirtækjum, lífeyrissjóðunum og íslensku þjóðinni um leið?

8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegurinn og ESB – áhugaverður fundur nk. sunnudag

Heimssýn gengst fyrir opnum fundi í Þjóðminjasafninu kl. 15 á sunnudag, 11. janúar nk., undir yfirskriftinni Sjávarútvegurinn og ESB. Á meðal ræðumanna er Peter Ørebech, þjóðréttarfræðingur við Háskólann í Tromsö í Noregi. Hann er sérfræðingur í EES rétti, sjávarútvegsmálum og reglum ESB. 

8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

„Jón forseti var fjármagnaður með erlendu lánsfé“

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir í samtali við Útveginn að það sé engin nýlunda að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skuldi erlendum aðilum fjármuni enda hafi þau verið fjármögnuð með erlendu lánsfé í meira en hundrað ár.  Jón forseti RE 108, fyrsti togarinn sem smíðaður var fyrir okkur Íslendinga og kom til landsins 1907, var fjármagnaður með erlendu lánsfé og svo hefur verið alla tíð síðan, segir Friðrik.

8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Regla ESB um hlutfallslegan stöðugleika „engin trygging“

Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ, sagði á fjölmennum fundi auðlindahóps Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins í hádeginu í dag, að ljóst væri að ekki væri hægt að treysta því að ekki yrði hróflað við reglunni um hlutfallslegan stöðugleika, einni meginreglu hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

6. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Samningsforræði lykilatriði við ákvörðun veiða úr deilistofnum

Gerðist Ísland aðili að Evrópusambandinu flyttist forræði á stjórn veiða úr deilistofnum frá Íslandi til ESB. Veiðar úr deilistofnum nema um 30% aflatekna af íslenskum sjávarafurðum. Til deilistofna teljast m.a. úthafskarfi, loðna, norsk-íslensk síld, kolmunni, makríll og grálúða. Þetta kom fram í ræðu Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, í ræðu á fundi auðlindahóps Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins nýlega.

5. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

Tímamót í loðnuleit

Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson er farið til loðnuleitar ásamt þremur fiskiskipum; Berki (mynd t.v.), Lundey og Faxa. Loðnuleitin að þessu sinni markar ákveðin tímamót því í fiskiskipunum er nú búnaður sem hefur verið kvarðaður í samræmi við búnað rannsóknarskipsins þannig að samvörun sé á milli mælinga.

5. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN

The Economist: Framseljanlegar aflaheimildir lausnin fyrir ESB

Framseljanlegar aflaheimildir eru lausnin á vanda sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Fiskveiðistjórnun á Íslandi er til eftirbreytni á sama tíma og sjávarútvegsstefna ESB með öllum sínum ríkisstyrkjum hefur beðið algert skipbrot. Sú stefna er ein meginástæða þess að Noregur og Ísland, sem bæði láta sér annt um hafið, hafa hvorugt gengið í Evrópusambandið.  Þetta er megininntak ítarlegrar umfjöllunar í tímaritinu The Economist nú um áramótin


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta