Fréttir
28. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Orðspori Íslands sem ábyrg fiskveiðiþjóð stefnt í hættu
„Það hlýtur að vera einsdæmi að þjóð sem á jafnmikið undir nýtingu náttúruauðlinda og við og hefur náð að skapa sér þá ímynd á alþjóða vettvangi að hún stundi sjálfbæra nýtingu fiskistofna, ábyrgar fiskveiðar og varúðarnálgun við stjórn fiskveiða hafi til meðferðar á þjóðþingi sínu frumvarp sem beinlínis miðar að því að ofveiða ákveðinn fiskistofn" segir í umsögn LÍÚ um frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem hann hefur lagt fram á Alþingi.
17. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenska upprunamerkið „algjörlega nauðsynlegt"
Heimild til notkunar íslensks upprunamerkis fyrir framleiðsluvörur sínar var breska fiskvinnslufyrirtækinu Flatfish „algjörlega nauðsynlegt" að sögn Peter Stokes, fjármálastjóra þess. Flatfish sér m.a. hinni kröfuhörðu verslanakeðju Waitrose fyrir afurðum úr skarkola og þykkvalúru af Íslandsmiðum.
16. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðherra var óheimilt að færa byggðakvóta á milli fiskveiðiára
Sjávarútvegsráðherra var óheimilt að framlengja úthlutunartímabil byggðakvóta fiskveiðiársins 2006-2007 til 31. desember 2007 - og þar með inn á nýtt fiskveiðiár - með útgáfu sérstakrar reglugerðar (nr. 440/2007.) Ákvörðunin átti sér ekki lagastoð og var því brot á lögmætisreglunni. Þetta kemur fram í nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis.
15. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Vinnslustöðin færði Fjölskylduhjálpinni og Mæðrastyrksnefnd 2000 poka af humri
15. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í nóvember mun minni en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 85.690 tonnum í nóvember, sem er rúmlega 27% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 117.837 tonn. Breyting á milli ára skýrist nær alfarið af minni síldarafla, rétt eins og í október. Metinn á föstu verði var aflinn 13,2% minni í nóvemberí ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
14. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Samherji veitir 60 milljónum til samfélagsmála
Útgerðarfélagið Samherji hefur afhent styrki til ýmissa samfélagsverkefna að upphæð 60 milljónir króna. Flestir styrkirnir eru veittir til íþrótta- og æskulýðsfélaga á Akureyri og Dalvík. Afhending styrkjanna fór fram í Flugsafni Íslands á Akureyri.
11. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Vélar Icelandair Cargo bera merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Fraktflugvélar Icelandair Cargo hafa verið merktar með merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga og slagorðinu Absolutely Fresh. Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, segir Ísland í fararbroddi í heiminum í ábyrgri stjórn fiskveiða og að félagið sé stolt af því að bera merkið á vélum félagsins. Finnur Garðarson hjá Fiskifélagi Íslands, sem er formlegur eigandi merkisins, fagnar þessu framtaki Icelandair Cargo.
10. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn segja ESB skorta samningsvilja
Sjávarútvegsráðherra Noregs, Lisbeth Berg-Hansen, hefur lýst vonbrigðum sínum yfir því sem nefnt er „skortur á samningsvilja Evrópusasmbandsins" í viðræðum við Norðmenn um gagnkvæmar veiðiheimildir á næsta ári. Fundi þessara aðila var slitið á þriðjudag án þess að niðurstaða næðist í helstu viðfangsefnunum sem fyrir samninganefndunum lágu.
9. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Við mótmælum þessu útflutningsálagi"
Framkvæmdastjóri LÍÚ, Friðrik J. Arngrímsson, segir nýjar reglur sjávarútvegsráðherra um 5% álag til aflamarks á útflutning ísfisks frá og með 1. janúar næstkomandi fela í sér mismunun. Þær séu jafnframt brot á samningi Íslands og ESB um bættan markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir. Þá megi leiða að því líkum, að þær feli í sér tæknilegar viðskiptahindranir sem gangi í berhögg við EES samninginn um fríverslun með sjávarafurðir til aðildarríkja ESB.
4. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Gæti þurft 1875 vottorð vegna útflutnings á fimm tonnum af fiski til ESB
Norskir útflytjendur standa nú frammi fyrir því að útflutningur á óverulegu magni af fiski getur kallað á gríðarlegt flóð vottorða vegna hertra reglna Evrópusambandsins til þess að stemma stigu við ólöglegum fiskveiðum. Reglugerð þar að lútandi tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi. Eftir breytinguna eru dæmi um að framvísa gæti þurft 1875 upprunavottorðum vegna útflutnings fimm tonna af blönduðum fiski frá Noregi til kaupanda í Þýskalandi.
4. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Fyrningarógninni verður að eyða"
„Það verður að eyða þeirri ógn sem vofir yfir sjávarútveginum með stefnu um fyrningu aflaheimilda. Ég lít svo á - og er þar sammála kollegum mínum í greininni - að fyrningin hefjist með frumvarpi því sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi," skrifar Eiríkur Tómason, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ í grein sem birtist í Morgunblaðinu í morgun.
3. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
„Gæði og afhendingaröryggi eru kröfur markaðarins"
„Gæði og afhendingaröryggi eru kröfur markaðarins," sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í erindi sem hann flutti á morgunverðarfundi Matís, AVS og Samtaka fiskvinnslustöðva um vannýtt tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. Í erindi sínu rakti Þorsteinn mikilvægi þekkingar, gæða, afhendingaröryggis og rekjanleika afurða í allri sölu- og markaðsstarfsemi fyrirtækisins þegar kæmi að samkeppni á markaði.
1. Desember 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Verð á karfa var hækkað um 5%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 1. desember 2009.
27. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert"
„Hækka þarf sjómannaafsláttinn umtalsvert eða breyta honum þannig að hann verði sambærilegur við skattfrjálsar dagpeningagreiðslur til ríkisstarfsmanna og annarra launþega," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, um þær hugmyndir stjórnvalda að fella afsláttinn niður á fjórum árum.
27. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Árangurslaus fundur strandríkja um makríl í Edinborg
Fundi strandríkja um stjórn makrílveiða á árinu 2010 var slitið í Edinborg í morgun án þess að niðurstaða næðist. Greint er frá þessu í vefútgáfu norska dagblaðsins VG. Blaðið vitnar til fréttar frá fréttastofunni NTB sem hefur það eftir fulltrúum norska sjávarútvegsráðuneytisins að andrúmsloftið á fundinum hafi verið erfitt og markast af deilum Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðirétt þeirra fyrrnefndu innan lögsögu ESB.
26. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum"
„Þeir hrópa hæst sem eru með buxurnar á hælunum, hafa farið á hausinn og jafnvel skipt oft um kennitölu og komast upp með það. Svo eru hinir sem standa sig og hafa ekki farið í gjaldþrot, þeir eru sökudólgarnir og eiga að vera að eyðileggja kerfið," segir Þórður Rafn Sigurðsson, formaður Útvegsbændafélags Vestmannaeyja, í nýlegu viðtali við Fréttir í Vestmannaeyjum. Þar lýsir hann óánægju sinni með þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að úthluta 2000 tonnum af skötusel utan kvóta.
21. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið 24 milljarðar króna á 20 árum
20. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Reglugerð um makrílveiðar 2010 gefin út - Betri veiðistjórnun getur skilað milljörðum
Sjávarúvegs- og landbúnaðarráðuneytið gaf í dag út reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Þar kemur m.a. fram að fari heildarafli íslenskra skipa yfir 130.000 tonn ákveði ráðherra hvort veiðar skuli bannaðar eða takmarkaðar með einhverjum hætti.
17. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Hugmyndir ráðherra eins og köld vatnsgusa"
Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf. á Sauðárkróki segir þær hugmyndir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem fram koma í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, eins og kalda vatnsgusu framan í starfsfólk fyrirtækisins og vera með öllu óskiljanlegar. Hann gagnrýnir harðlega hugmyndir í frumvarpinu sem lúta að skerðingu á geymslurétti veiðiheimilda á milli ára.
16. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Dæmigert fyrir óábyrga afstöðu ESB í sjávarútvegsmálum"
„Þetta er dæmigert fyrir óábyrga afstöðu ESB í sjávarútvegsmálum," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ en Evrópusambandið sat hjá sl. föstudag við samþykkt samkomulags NEAFC - Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar - um bætt eftirlit með veiðum og löndun á úthafskarfa sem veiddur er á Reykjaneshrygg.
13. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í október mun minni en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 66.921 tonni í október, sem er tæplega 29% minna en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 93.959 tonn. Breytingin skýrist nær alfarið af síldarafla á milli ára. Metinn á föstu verði var aflinn 3,2% minni í október í ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 5,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
12. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Gengur þvert á gefin loforð"
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að hann hljóti að líta á framlagt frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða sem mistök í ljósi nýlegrar yfirlýsingar forsætis- og fjármálaráðherra. Í þeirri yfirlýsingu var tekið fram að engin breyting hefði orðið varðandi þann sáttafarveg sem endurskoðun fiskveiðistjórnarinnar var sett í með skipun sérstakrar nefndar í sumar.
12. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Nánast óframkvæmanlegt"
„Hafnarvog Vestmannaeyjahafnar hefur hvorki tæki né þau tól sem til þarf við að brúttóvigta öll ílát sem berast að landi í viku hverri ... Við núverandi aðstæður telja hafnaryfirvöld það nánast óframkvæmanlegt miðað við það magn af afla sem berst að landi á þeim skamma tíma sem um ræðir," segir í bréfi sem Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent til sjávarútvegsráðherra. Í bréfinu til ráðherra er hvatt til þess að drög að nýrri reglugerð, sem kveður á um að allur ferskur fiskur sem fer til útflutnings skuli vigtaður hér á landi, verði endurskoðuð.
10. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
„Verðum að fá valdið yfir miðunum heim á ný"
Sjávarútvegsráðherra Skota, Richard Lochhead, sagði á ráðstefnu í síðustu viku að kominn væri tími til þess að hefja uppbyggingarstarf eftir þá eyðileggingu sem hin sameiginlega fiskveiðistefna Evrópusambandsins hefði valdið skoskum sjávarútvegi. „Við verðum að fá valdið yfir miðunum okkar heim á ný," sagði hann.
3. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Samþykktir 70. aðalfundar LÍÚ
Allar samþykktir 70. aðalfundar Landssambands íslenskra útvegsmanna, sem fór fram í Reykjavík dagana 29. og 30. október sl., er nú hægt að nálgast á einum stað með því að smella hér.
2. Nóvember 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Þá var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Verð á karfa var hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 2. nóvember 2009.
30. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ: Horfið verði frá hugmyndum um upptöku aflaheimilda nú þegar
30. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra: Ekki verði gerð atlaga að þeim fyrirtækjum sem eru starfandi í dag
„Við verðum að byggja upp á nýjan leik á þeim grunni sem fyrir er í landinu. Við verðum að hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir hendi eru og geta starfað í framtíðinni og skapa þeim góð rekstrarskilyrði til þess að svo geti orðið, " sagði Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ í gær.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Raunsæi og heilbrigð skynsemi verður að ráða för"
„Eftir að kvótakerfinu var komið á og sérstaklega með tilkomu frjálsa framsalsins 1991 tók við mikið umbyltingarskeið í íslenskum sjávarútvegi. Viðvarandi taprekstur vék fyrir hagræðingu og arðsemi. Það er á grundvelli þessarar umbyltingar að stærstur hluti íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja mun standa af sér þær hamfarir sem á þeim hafa dunið á undanförnu," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í ræðu sinni á aðalfundi útvegsmanna í dag.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir rafbjögunarsíu
Árni Bergmann Pétursson, hugvitsmaður og forstjóri Rafs ehf. á Akureyri, hlaut í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2009 fyrir fyrir rannsóknar- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti Árna verðlaunin á aðalfundi LÍÚ í dag.
29. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Vilja deila og drottna
„Síðastliðin 25 ár hefur umræða um kvótakerfið verið fyrirferðarmikil í þjóðmálunum. Í upphafi var meginmarkmið laganna nýjar leiðir við verndun fiskistofna og hagnýtingu þeirra: Aflamarki var úthlutað á skip og þannig dregið úr lítt heftri og óhagkvæmri sókn í fiskistofna." Þannig hefst grein Sveins Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings LÍÚ, í Fiskifréttum í morgun.
28. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Ákvörðun um makrílveiðar næsta árs tekin einhliða af Íslendingum
Ákvörðun um makrílveiðar íslenskra skipa á árinu 2010 verður tekin einhliða af íslenskum stjórnvöldum. Í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins í morgun segir m.a.: „Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, tiltekur að þá verði augljóslega litið til veiðanna undanfarin ár og jafnframt til vaxandi útbreiðslu makríls innan íslensku efnahagslögsögunnar." Fréttatilkynningin fer hér í heild:
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Tíundi fundur samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um sjávarútvegsmál
Fulltrúar Íslands og Rússlands í samstarfsnefnd landanna um tiltekna þætti á sviði sjávarútvegsmála hittust á tíunda fundi nefndarinnar í Moskvu dagana 19.-21. október sl. Á fundinum voru rædd þau mál sem helst eru á döfinni varðandi samstarf landanna á vettvangi sjávarútvegsmála og fiskveiða. Í fréttatilkynningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um fundinn segir m.a.:
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Pínulítill kall"
„Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra fór afar niðrandi orðum um tvær mikilvægar atvinnugreinar í ræðu sinni á ársfundi ASÍ," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
„Orð ráðherrans eru honum ekki einungis til minnkunar vegna þess hroka sem hann sýndi þeim sem vinna við þessar atvinnugreinar. Þau eru einnig vanvirða við það góða fólk sem mátti sitja undir ræðu hans. Hæstvirtur ráðherrann virðist telja að þeir sem sækja ársfund ASÍ falli fyrir innantómum frösum og upphrópunum lýðskrumarans.
Mér finnst ráðherra, sem hefur orðið sér til slíkrar raðminnkunar, best lýst í þekktu lagi Þursaflokksins, sem má spila hér," segir Friðrik.
26. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Strandríkjasamningar um stjórn síld- og kolmunnaveiða árið 2010
Á fundi strandríkja um stjórnun veiða úr kolmunnastofninum sem lauk í Lundúnum á fimmtudag, náðist samkomulag um að heildaraflamarkið verði 540.000 tonn. Hlutdeild íslenskra skipa verður 87.625 tonn. Þá var einnig var skrifað undir samning um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum og er heildaraflamarkið 1.483.000 tonn árið 2010. Samkvæmt samkomulaginu verður íslenskum skipum heimilt að veiða 215.183 tonn.
20. Október 2009 | ÚTVEGURINN
ESB: Reiknað með aukinni veiði þrátt fyrir hættuástand þorskstofnsins
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins tilkynnti í gær að hún gerði ráð fyrir því að þorskveiðiheimildir í Norðursjó yrðu auknar á næsta ári þrátt fyrir að að augljóst væri að tilraunir til þess að vernda Norðursjávarþorskinn hefðu mistekist.
16. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Kallar eftir stuðningi hafnarstjórnar við útgerðarfyrirtæki
Formaður stjórnar Hraðfrystihússins - Gunnvarar hf., Kristján G. Jóhannsson, spyr í bréfi til Hafnarstjórnar Ísafjarðar hvort hún geti hugsað sér að samþykkja ályktun, þar sem þar sem hvatt er til að rekstrarskilyrði útgerðarfyrirtækja verði ekki skert og stutt verði við bakið á raunverulegri nýsköpun á þessu sviði eins og t.d. fiskeldi. Greint er frá bréfinu á vefsíðu fyrirtækisins í dag.
16. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn biðla til einstakra aðildarríkja um stuðning í makríldeilunni við ESB
Deila Norðmanna og Evrópusambandsins um veiðar á makríl í lögsögu ESB tók nýja stefnu í gær er norsk stjórnvöld sendu öllum aðildarríkjum sambandsins bréf, þar sem hvatt er til þess að þau beiti sér fyrir því opnað verði fyrir makrílveiðar innan lögsögu ESB að nýju. Gangi það ekki eftir muni það setja samninga um gagnkvæmar veiðiheimildir á næsta ári í uppnám.
14. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Óttast að danskur sjávarútvegur drukkni í skrifræði ESB
Formaður hagsmunasamtaka danskra útvegsmanna og sjómanna, Svein-Erik Andersen hjá Danmarks Fiskeriforening, óttast að endanlega sé verið að drekkja dönskum sjávarútvegi í reglugerðarfargani Evrópusambandsins. „Framkvæmdastjórnin undir forystu Svía ætlar að leiða yfir okkur óframkvæmanlega löggjöf," segir Andersen í fréttatilkynningu sem samtökin sendu frá sér í dag.
14. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Heildarafli í september14% meiri en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 77.392 tonnum í september, sem er tæplega 14% meira en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 68.052 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 18,5% meiri í september í ár en í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 6,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.
13. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði: Stjórn auðlinda betur komin í höndum þeirra sem nýta þær
Elinor Ostrom, sem í gær varð fyrsta konan til þess að hljóta Nóbelsverðlaunin í hagfræði, bendir m.a. á það í rannsóknum sínum að stjórn auðlinda á borð við skóga, vötn og fiskistofna, sé betur komið fyrir í höndum nærliggjandi samfélags en þegar fjarlægt yfirvald heldur á málum.
13. Október 2009 | ÚTVEGURINN
ICES: Dregið verði úr veiðum á síld, makríl og kolmunna
Alþjóða hafrannsóknaráðið, ICES, leggur til að dregið verði úr veiðum á síld, makríl og kolmunna í Norðaustur-Atlantshafi á næsta ári . Skýrsla ráðsins um ástand þessara stofna og veiðiráðgjöf fyrir næsta ár var birt í gær.
12. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Segir ekki hægt að treysta samningum við ESB
Inge Halstensen, formaður stjórnar samtaka norskra útvegsmanna, Fiskebåtredernes Forbund, sendir Evrópusambandinu tóninn í frétt á vef norska ríkisútvarpsins og segir sambandið „ótraustan samningsaðila." Halstensen vísar til makríldeilu milli Noregs og ESB og segir að þar sem ekki sé hægt að treysta gerðum samningum verði Norðmenn að grípa til þess að hindra aðgang ESB-skipa að norskum veiðisvæðum í Norðursjó og Barentshafi.
9. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Samið um veiði á 607 þúsund tonnum af þorski í Barentshafinu
9. Október 2009 | ÚTVEGURINN
„Strandveiðarnar tækifærismennska óábyrgra stjórnmálamanna"
8. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Aðild Íslands að stjórn og nýtingu makrílstofnins hafnað
Ísland hefur afþakkað boð um að senda áheyrnarfulltrúa á fund strandríkja um heildarstjórnun makrílveiða síðar í þessum mánuði. Fundarboðendum var tilkynnnt að Ísland tæki ekki þátt í slíkum fundi nema sem fullgilt strandríki. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir fullgilda aðild Íslands frumforsendu þess að að einhver möguleiki sé á því að ná samningi.
8. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Stál í stál í makríldeilu Norðmanna og ESB
Ekkert hefur enn þokast í makríldeilu Norðmanna og ESB eftir að 30 norskum skipum var vísað út af afmörkuðu veiðisvæði undan Hjaltlandseyjum, þar sem þau voru að makrílveiðum í síðustu viku. Ágreiningur er uppi um túlkun tvíhliða samnings en Norðmenn halda því fram að ákvæðið sem deilt er um hafi verið óbreytt frá 1994.
7. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðherra lætur þýða ESB-gögn á íslensku
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið láta þýða öll helstu gögn varðandi aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið tengd þeim málaflokkum sem ráðuneytið ber ábyrgð á. Jón ætlar að láta kanna hvort hægt er að vinna við þýðingar að hluta til úti á landi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu nú síðdegis.
6. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski og ýsu um 15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 15%. Jafnframt var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 15%. Þá var verð á karfa hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 6. október 2009.
5. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn og ESB takast á um makrílveiðar við Hjaltland
Norskir útgerðarmenn, sem gengið hafa hart fram í gagnrýni sinni á makrílveiðar Íslendinga innan íslensku efnahagslögsögunnar, eru afar ósáttir við þá ákvörðun ESB að vísa um 30 norskum skipum út af afmörkuðu veiðisvæði undan Hjaltlandseyjum, þar sem þau voru að makrílveiðum fyrir helgina.
1. Október 2009 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld falli þegar frá hugmyndum um fyrningu aflaheimilda
Útvegsmannafélag Vestfjarða skorar á stjórnvöld að falla þegar frá hugmyndum um fyrningu aflaheimilda. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í dag. Þá lýsir félagið áhyggjum sínum vegna skerðingar á þorskkvóta og skorar á stjórnvöld að breyta aflareglu í þorski til fyrra horfs. Jafnframt bendir félagið á í ályktuninni að niðurskurður á heildaraflamarki bolfisktegunda á fiskveiðiárinu svari til meðalársafla 100 vertíðarbáta. Ályktunin hljóðar þannig í heild:
30. September 2009 | ÚTVEGURINN
„Sýnir best tilgangsleysi strandveiðanna“
„Það sýnir best tilgangsleysi strandveiðanna í sumar að veitt voru 554 leyfi til þess að veiða um 4.000 tonn af fiski. Fiskiskipum í aflamarks- og krókaaflamarkskerfinu hefur hins vegar fækkað um 574 sl. fimm ár. Markmið þeirrar fækkunar er hagræðing til að treysta rekstrargrundvöll útgerða og auka arðsemi þeirra,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
29. September 2009 | ÚTVEGURINN
Fiskiskipum fækkaði um 574 á fimm árum
Íslenskum fiskiskipum fækkaði um 574 á árunum 2004 – 2009 eða um 44,7% samkvæmt samantekt LÍÚ, byggðri á gögnum Fiskistofu. Alls voru skráð fiskiskip 1283 talsins fiskveiðiárið 2004/2005 en þeim hafði fækkað niður í 709 fiskveiðiárið 2008/2009.
28. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegur getur gegnt lykilhlutverki við endurreisn atvinnulífs
Sjávarútvegur getur gegnt lykilhlutverki við endurreisn atvinnulífs á Íslandi, svo fremi stjórnvöld hætti við áform um fyrningarleið og innköllun veiðiheimilda. Þetta kom fram í ræðu Arnars Sigurmundssonar, formanns Samtaka fiskvinnslustöðva, á aðalfundi þeirra sl. föstudag.
18. September 2009 | ÚTVEGURINN
Minni undirmálsýsa norskra úr Barentshafinu?
Norskir útvegsmenn hafa farið þess á leit við norsku hafrannsóknastofnunina, Havforskningsinstituttet, að hún kanni áhrif þess á lífríkið í norska hluta Barentshafsins ef stærð undirmálsýsu yrði miðuð við 42 sm í stað þeirra 44 sm nú er. Beiðnin er byggð á veiðireynslu Norðmanna í Barentshafi á síðustu árum.
17. September 2009 | ÚTVEGURINN
Þriðja leiðin – tillaga Josephs Stiglitz
Mikið hefur verið fjallað um heimsókn hagfræðingsins og nóbelsverðlaunahafans Josephs Stiglitz hingað til lands undanfarna daga. Það fór ekki milli mála að þann mikla fjölda gesta sem hlustaði á hann í fyrirlestrarsal Háskóla Íslands í Öskju í síðustu viku hungraði eftir leiðsögn hans ef marka má þá athygli og undirtektir sem málflutningur hans vakti.
17. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sakar ESB um hroka og rányrkju á Afríkumiðum
Ráðgjafi í sjávarútvegsmálum hjá Einingarsamtökum Afríku ásakar Evrópusambandið um hroka í samskiptum við Afríkuþjóðir og rányrkju á fiskimiðum þeirra. Þetta kemur fram í viðtali við Nancy Gitonga frá Kenýa við danska blaðið Arbejderen í dag. Yfirskrift viðtalsins er „Þeir stela fiskinum okkar.“
16. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mikið tap norskra þorskeldisfyrirtækja í fyrra
Samanlagt tap tólf stærstu þorskeldisfyrirtækja Noregs nam 525 milljónum norskra króna á síðasta ári eða sem svarar til ríflega 10 milljarða íslenskra króna. Þetta er mun verri afkoma en árið áður en þá nam tap sömu fyrirtækja rúmlega 4 milljörðum íslenskra króna.
16. September 2009 | ÚTVEGURINN
Ísland í 16. sæti yfir aflahæstu fiskiveiðiþjóðir heims 2006
Ísland var í 16. sæti listans yfir aflahæstu fiskveiðiþjóðir heims árið 2006 með heildarafla upp á 1,35 milljónir tonna. Kínverjar bera ægishjálm yfir aðrar fiskveiðiþjóðir hvað aflamagn varðar. Heildarafli þeirra árið 2006 var 17,4 milljónir tonna. Næstir á eftir þeim koma Perúmenn með 7 milljónir tonna.
15. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sektaður fyrir að selja svikinn þorsk
Eigandi „Fish‘n‘Chips“ veitingastaðar í Kidderminster í Worcestershire í Englandi hefur verið dæmdur til að greiða sekt sem svarar til 675.000 íslenskra króna fyrir að selja viðskiptavinum sínum eldisfiskinn pangasius sem þorsk. Þetta er annað tilvikið af þessum toga sem upp kemur í umræddri borg.
15. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mun minni heildarafli í ágúst en í sama mánuði 2008
Heildarafli íslenskra skipa nam 112.550 tonnum í ágúst, sem er rúmlega 20% minna í tonnum talið en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá 142.123 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 11,9% minni í ágúst í ár en í fyrra.
10. September 2009 | ÚTVEGURINN
Mikið mælist af loðnu, þorski og ýsu í Barentshafi
Mikið hefur mælst af loðnu, þorski og ýsu í Barentshafinu í rannsóknum norsku hafrannsóknastofnunarinnar, Havforskningsinstituttet, sem hófust snemma í ágúst og standa yfir þar til í októberlok. Þá er útkoma seiðamælinga athyglisverð, m.a. hvað síld áhrærir.
9. September 2009 | ÚTVEGURINN
„Felst enginn ávinningur í að gera út fleiri báta en þörf er fyrir“
„Svo virðist sem íslensk stjórnvöld vilji skipta um stefnu og afnema kvótakerfið. Það væri það heimskasta sem þau gætu gert. Það felst enginn ávinningur í að gera út fleiri báta en þörf er fyrir,“ segir Rögnvaldur Hannesson, prófessor í fiskihagfræði við Verslunarháskóla Noregs í Björgvin, í viðtali í nýjasta tölublaði Northern Fisheries, sem gefið er út af Norræna ráðherraráðinu.
7. September 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á þorski um 5% og karfa um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 5%. Ákveðið var einnig að hækka verð á karfa um 10%. Verð þetta gildir frá og með deginum í dag, 7. september 2009.
3. September 2009 | ÚTVEGURINN
Ýsukvótinn skertur um 33,3% en línuívilnun í ýsu aukin um 31%
„Það skýtur óneitanlega skökku við í upphafi nýs fiskveiðiárs, að á sama tíma og aflamark og krókaaflamark í ýsu er skert um 33,3% á milli ára er línuívilnun í ýsu aukin um 31%. Nú eru 2100 tonn í línuívilnunarpottinum en voru 1600 á síðasta fiskveiðiári. Þetta er sérkennileg aðferðafræði en í anda þeirra mismununar sem viðgengst í fiskveiðistjórninni. Það er ekki sama Jón eða séra Jón, þar sem sumir þurfa að kaupa veiðiheimildir en aðrir ekki," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
3. September 2009 | ÚTVEGURINN
Veiddu meira en milljón tonn af makríl umfram veiðiráðgjöf
Norðmenn hafa að undanförnu gagnrýnt makrílveiðar okkar Íslendinga og m.a. haldið því fram að um ólögmætar veiðar sé að ræða. Mikil umfjöllun hefur verið um málið í norska sjávarútvegsblaðinu Fiskeribladet Fiskaren. Af þessu tilefni sendi Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, blaðinu grein til birtingar í síðasta mánuði þar sem sýnt er fram á að makrílveiðar okkar eru löglegar.
2. September 2009 | ÚTVEGURINN
Hjalti í Jákupsstovu: Sóknarmarkskerfið ekki skilað árangri í Færeyjum
Sóknarmarkskerfið sem notað er við stjórnun fiskveiða í Færeyjum hefur ekki skilað þeim árangri sem til var ætlast. Sú mynd sem við blasir í dag er offjárfesting, slæm afkoma sjávarútvegsins og bágt ástand mikilvægra fiskistofna, einkum þorsks þar sem veiðin hefur hrunið á síðustu árum. Færeyingar eiga mikið undir sjávarútvegi enda um 95% útflutningstekna þeirra af sjávarafurðum.
2. September 2009 | ÚTVEGURINN
Sjómenn framtíðarinnar í lífsins ólgusjó
Þeir gripu tækifærið höndum tveim vinirnir Dagur Freyr Sævarsson og Ingólfur Ásgrímsson þegar þeim bauðst að fara í síldveiðitúr með Ásgrími Halldórssyni SF 250 rétt fyrir upphaf skólaársins.
1. September 2009 | ÚTVEGURINN
Góð reynsla af notkun kvótakerfa við fiskiveiðistjórnun í heiminum
Kvótakerfi með framseljanlegum
aflaheimildum er samnefnari þeirra framfara sem orðið hafa í
fiskveiðum og stjórnun þeirra, sagði dr. Ragnar Árnason, prófessor
í fiskihagfræði við Hagfræðideild Háskóla Íslands, m.a. í
erindi sínu á ráðstefnu um skilvirka fiskveiðistjórnun sem lauk í
Reykjavík fyrir helgina.
31. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Uppsagnir hjá 3X á Ísafirði m.a. raktar til óvissu um fyrirkomulag aflaheimilda
Mikil óvissa um fyrirkomulag aflaheimilda
er eitt þeirra atriða sem framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði
vísar til í
fréttum sem ástæðu fyrir uppsögnum níu starfsmanna
fyrirtækisins sl. föstudag. Þar með hefur um fjórðungi starfsmanna
3X verið sagt upp það sem af er ári. Framkvæmdastjóri 3X Technology
lýsti í vor áhyggjum sínum yfir afleiðingum fyrningarhugmynda
stjórnvalda.
28. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
„Má ekki vanmeta þann tíma sem tekur að ná árangri“
Það kostar bæði fé og fyrirhöfn að þróa og innleiða fyrirkomulag á
borð við það sem við tókum upp, en við teljum árangur okkar
athyglisverðan. Það má ekki vanmeta þann tíma sem það tekur að ná
árangri. Þetta gerist ekki á einni nóttu, sagði Stan Crothers,
fyrrum starfsmaður sjávarútvegsráðuneytis Nýja Sjálands, á
ráðstefnu um skilvirka fiskveiðistjórnun sem nú stendur yfir í
Reykjavík.
28. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Leyft hlutfall makríls sem meðafla með síldinni hækkað í 20%
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf
í dag út nýja reglugerð, sem heimilar að hlutfall makríls sem
meðafla megi vera allt að 20% af heildarafla hvers skips úr
norsk-íslenska síldarstofninum fyrir tímabilið 9. júlí til 30.
september. Heimilt er að flytja meðaflaheimild á milli skipa.
27. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Kvótakerfi með framseljanlegum aflaheimildum lykillinn að árangri
Kvótakerfi með framseljanlegum
aflaheimildum er lykillinn að árangursríkri fiskveiðistjórnun. Við
upptöku þess fyrirkomulags við stjórnun fiskveiða fyrir rúmum
áratug urðu alger umskipti til hins betra í útgerð í Bresku
Kolumbíu í Kanada. Sjávarútvegur í fylkinu var þá nánast kominn í
þrot.
19. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Skoskt dagblað: Næsta þorskastríð Íslands háð í fundarsölum í Brussel
Í grein í skoska dagblaðinu The Inverness Courier segir að Ísland
eigi framundan nýtt þorskastríð, sem að þessu sinni verði háð í
fundarsölum í Brussel en ekki á hafi úti. Skoskir sjómenn og
útgerðarmenn, sem lengi hafa haft horn í síðu fiskveiðistefnu
Evrópusambandsins, ætla að fylgjast grannt með því hvernig
Íslendingum reiðir af í aðildarviðræðum við ESB um
sjávarútvegsmál.
17. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Meiri afli í júlí en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 160.152 tonnum í júlí, sem er um
4,3% meira en kom á land í sama mánuði á síðasta ári. Aflinn var þá
153.463 tonn. Metinn á föstu verði var aflinn 1,5% minni í
júlí í ár en í fyrra. Fyrstu fimm mánuði ársins nam aflaverðmæti
íslenskra skipa hins vegar um 42 milljörðum króna, sem er 4,2%
aukning frá síðasta ári.
13. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Makrílveiðar Íslendinga eru löglegar
Ekki er enn ljóst hvort Íslandi verður meinuð þátttaka í fundum
hinna strandríkjanna um stjórnun veiða úr makrílstofninum fyrir
árið 2010. Þar til þau viðurkenna Ísland sem fullgildan aðila að
stjórn veiðanna og réttmæta hlutdeild okkar munum við stunda
lögmætar makrílveiðar á okkar forsendum, segir Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í niðurlagi greinar sem birtist
í Fiskifréttum í dag.
12. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Öll norsk-íslenska síldin veiddist innan íslensku lögsögunnar í júlí

Öll sú norsk-íslenska síld sem landað var í júlí veiddist innan íslensku lögsögunnar. Þetta er einsdæmi á þessum árstíma að því er kemur fram á vef Fiskistofu, sem heldur utan um alla tölfræði veiðanna. Heildaraflinn í júlí nam 62.953 tonnum.
12. Ágúst 2009 | ÚTVEGURINN
Skilvirk fiskveiðistjórnun - ráðstefna í Háskóla Íslands
Skilvirk fiskveiðistjórnun er yfirskrift
tveggja daga ráðstefnu í fiskihagfræði sem Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands skipuleggur f.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.
Ráðstefnan fer fram í Öskju, Háskóla Íslands dagana 27. og 28.
ágúst nk.
22. Júlí 2009 | ÚTVEGURINN
Aflinn í júní tvöfalt meiri en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa
nam 127.595 tonnum í júní, sem er ríflega tvöfalt það aflamagn sem
kom á land í sama mánuði á síðasta ári er aflinn var 61.028 tonn.
Mestu munar um stórauknar uppsjávarveiðar og þar vegur makríll
þyngst. Metinn á föstu verði var aflinn 55% meiri í júní í ár en í
fyrra. Það sem af er ári hefur heildarafli hins vegar aukist um
10,2% frá árinu 2008 á föstu verði.
22. Júlí 2009 | ÚTVEGURINN
Makríll í miklu magni víða innan íslensku lögsögunnar

Íslensk skip hafa veitt rúmlega 90 þúsund tonn af makríl innan íslensku lögsögunnar í júní og júlí. Makríls hefur orðið vart í miklu magni víða umhverfis landið, nú síðast langt norður af Melrakkasléttu, þar sem íslensk skip hafa verið á veiðum á Norsk-íslenskri síld.
2. Júlí 2009 | ÚTVEGURINN
Landhelgisgæslan fær nýja, glæsilega flugvél
Ný flugvél
Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kom til landsins í gær og var komu
hennar fagnað með viðhöfn. Með tilkomu TF-SIF verður umbylting í
möguleikum Landhelgisgæslunnar í leit á sjó og á landi þar sem
tæknibúnaður vélarinnar nemur umhverfið með hætti sem ekki hefur
áður verið til staðar hér á landi.
29. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Skelfileg reynsla skosks sjávarútvegs af ESB
Telja menn virkilega að þeir
muni láta það viðgangast að Íslendingar verði stikkfrí gagnvart
sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB ef til inngöngu kemur? Ja, mikil
er trú þeirra manna þó ekki væri nema með vísan til nýfenginnar
reynslu okkar af samningum við Breta í öðru og óskyldu
máli Icesave. Þannig hljóðar niðurlag greinar Sveins
Hjartar Hjartarsonar, hagfræðings LÍÚ, sem birtist í Fiskifréttum
sl. fimmtudag.
19. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Yfirgnæfandi hlutfall aflaheimilda er á landsbyggðinni

Yfirgnæfandi hlutfall aflaheimilda er á landsbyggðinni, þ.e. utan Reykjavíkur- og Suðvesturkjördæma. Þetta kemur fram í svari Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn forvera hans, Einars K. Guðfinnssonar, á Alþingi. Þessar upplýsingar undirstrika að landsbyggðin verður harðast úti verði svokallaðar fyrningarhugmyndir stjórnvalda í sjávarútvegi að veruleika.
15. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Hornafjarðar hafnar fyrningu aflaheimilda.
Í bókun sinni þann 11. júní sl. lýsir
Bæjarstjórn Hornafjarðar yfir miklum áhyggjum vegna þeirra óvissu
sem kominn er upp í rekstri fyrirtækja í sjávarútvegi á Hornfirði.
Í bókuninni segir að nú þegar hefur ákvörðun ríkisstjórnarinnar um
að fara svokallaða fyrningarleið á úthlutuðum kvóta valdið
fyrirtækjum skaða og sett rekstur þeirra í uppnám. Auk
sjávarútvegsfyrirtækja hefur þetta mikil áhrif á nýsköpun og þau
fyrirtæki sem hafa atvinnu af þjónustu við sjávarútveginn.
11. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Strandveiðar styrkja hvorki byggð né treysta atvinnu
Strandveiðar munu ekki styrkja
byggð eða treysta atvinnu í sjávarbyggðum, þær hafa þveröfug áhrif.
Fyrirtæki þurfa hráefni allt árið um kring, en þessar strandveiðar
geta ekki stuðlað að öruggum eða arðbærum rekstri þar sem
skammtímasjónarmið ráða. Við þetta má bæta að gæðum hráefnis verður
í einhverjum tilfellum ábótavant og þá er rangt að beina veiðinni á
sumartímann og á grunnslóðina þar sem smærri fiskur heldur sig.
11. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðstefna í London um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Um 60 manns sóttu ráðstefnu um
ábyrgar fiskveiðar Íslendinga í sendiráði Íslands í London í gær.
Flestir ráðstefnugesta voru fulltrúar fiskkaupenda í Bretlandi og
hagsmunaaðilar í breskum sjávarútvegi. Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, ávarpaði ráðstefnuna.
9. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
„Alið á óvissu í atvinnugreininni“
Allt í kringum okkur í nálægum löndum
keppast stjórnvöld við, með öllum tiltækum ráðum, að standa
vörð um lykilatvinnuvegi þjóðanna. Íslensk stjórnvöld virðast telja
það mesta óþarfa. Nú skal greiða sjávarútveginum náðarhöggið.
Veiðiheimildir fyrndar, með öðrum orðum teknar af fyrirtækjunum og
þeim síðan endurúthlutað að geðþótta stjórnmálamanna. Þannig fórust
Hirti Gíslasyni, formanni Útvegsmannafélags Reykjavíkur, m.a. orð í
ræðu á Sjómannadaginn.
9. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Tryggja ber langtíma stöðugleika í samningum
Mikilvægt er að tryggja að
kvótaúthlutun feli í sér langtíma stöðugleika í samningum.
Nauðsynlegt er einnig að vinna að því að ná samkomulagi um þá fáu
stofna, þar sem skipting aflaheimilda hefur ekki farið fram. Þetta
var á meðal þess sem kom fram á 14. fundi sjávarútvegsráðherra við
Norður-Atlantshafið á árlegum fundi þeirra í síðustu
viku. Fundurinn fór fram í Kaliningrad í Rússlandi
8. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin: „Ekkert bendir til að arðsemi aukist eða hagur vænkist“
Eyrún Ingibjörg
Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarðarhrepps, fór hörðum orðum um
fyrirhugaða fyrningarleið stjórnvalda, í ræðu sem hún flutti á á
málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum
fyrir helgina. Ekkert í boðaðri stefnu bendir til að arðsemi
greinarinnar aukist eða hagur starfsmanna og sjávarbyggða
vænkist.
6. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórinn í Bolungarvík: „Verið að fyrna landsbyggðina“
Elías Jónatansson, bæjarstjóri
í Bolungarvík, segir fyrningarleiðina firru og hún þýði einfaldlega
fyrningu landsbyggðarinnar. Hún er ekki leiðin til að leiðrétta það
sem betur má fara í kvótakerfinu. Á kvótakerfinu þarf vissulega að
gera lagfæringar sem tryggja að heilu byggðarlögin sem byggja á
sjávarútvegi standi ekki uppi án aflaheimilda einn daginn. Til þess
verða menn þó að finna aðrar leiðir.
6. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
„Engin áhætta tekin með því að veiða 160 þúsund tonn af þorski“
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir tillögur í veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar sem
kynntar voru í gær, lægri en menn hefðu viljað sjá. Okkar mat er að
engin áhætta væri tekin með því að veiða 160 þúsund tonn af þorski
á næsta fiskveiðiári, segir Friðrik en stofnunin leggur til veiðar
á 150 þúsundum tonn af þorski. Það er 26 þúsund tonnum meira
en lagt var til fyrir ári þegar ráðgjöfin hljóðaði upp á 124 þúsund
tonn.
5. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Varaformaður LÍÚ: Pólitískur stöðugleiki er sjávarútvegi nauðsynlegur
Það er alger nauðsyn að
sjávarútvegur fái að búa við stöðugleika í pólitísku umhverfi, nógu
mikill er óstöðugleikinn sem búa verður við hvað varðar
gengisskráningu, stærð fiskistofna, veðurfar, að ekki sé talað um
þá hörðu samkeppni sem atvinnugreinin býr við á markaði með vörur
sínar, þar sem oft er keppt við ríkisstyrktan sjávarútveg annarra
þjóða.
5. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
„Aldrei eins mikil óvissa um framtíð atvinnulífs okkar í þúsund ár“
Í þau þúsund ár sem við
Eyjamenn og fleiri höfum lifað á fiskveiðum og vinnslu
hefur aldrei ríkt eins mikil óvissa um framtíð atvinnulífs
okkar. Aldrei hefur deilan um nýtingu
sjávarauðlindarinnar og sjávarútvegins verið eins mikil og núna,
sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, í upphafi
ræðu sinnar á málþingi um auðlindastýringu og fyrningarleið í
Vestmannaeyjum í gær.
4. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Skorar á stjórnvöld að gerast „raunverulegir sáttasemjarar”
Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri
Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, skoraði í dag á
stjórnvöld að gerast raunverulegir sáttasemjarar í deilum
um fyrningaráform í sjávarútvegi. Sjávarútvegsfyrirtæki og
sveitarfélög um land allt hafa lýst andstöðu sinni við
hugmyndir stjórnvalda.
4. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
„Pólitískt sjálfsmorð“ að kollvarpa sjávarútveginum
Atli Gíslason, þingmaður VG og
formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis, sagði í ræðu á málþingi um
auðlindastýringu og fyrningarleið í Vestmannaeyjum í dag, að
innköllunarleið aflaheimilda yrði ekki farin ef sýnt yrði að
hún myndi skaða atvinnulíf og byggð í landinu.
2. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Fimm ríki ESB leggjast gegn breytingum á reglum um hlutfallslegum stöðugleika
Fimm ríki Evrópusambandsins Portúgal,
Spánn, Ítalía, Frakkland og Litháen eru andvíg því að gerðar
verði breytingar á reglunni um svokallaðan hlutfallslegan
stöðugleika. Þetta kemur fram í
nýlegri fundargerð Poul Oma sem sem starfar fyrir fastanefnd
Norðmanna fyrir ESB.
1. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ýsu og karfa um 10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu,
sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um
10%. Ákveðið var að hækka verð á karfa um 10%. Verð þetta gildir
frá og með 1. júní 2009.
1. Júní 2009 | ÚTVEGURINN
Vesturbyggð bætist í hóp sveitarfélaga sem vara við fyrningarleið
Ekkert er mikilvægara en að
skapa stöðugleika þegar efnahagslífið er rústir einar og
sjávarútvegurinn sú grunnstoð sem þjóðin byggir framtíðina á. Svo
segir í ályktun Vesturbyggðar, sem hefur nú bæst í hóp þeirra
fjölmörgu sveitarfélaga sem hafa ályktað gegn fyrningaráformum
stjórnvalda í sjávarútvegi.
30. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Að snúa hlutunum á haus - Aðalsteini Baldurssyni svarað
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur
LÍÚ, segir í grein í Morgunblaðinu í gær að Aðalsteinn Baldursson,
verkalýðsforkólfur á Húsavík, fari með rangt mál í um launaþróun
hjá fiskvinnslufólki í viðtali sem tekið var við hann í blaðinu
fyrr í vikunni. Grein Sveins fer hér á eftir:
29. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Málþing í Eyjum um auðlindastýringu og fyrningarleið
Auðlindastýring og
fyrningarleið ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi er
inntak málþings sem haldið verður í Vestmannaeyjum þann 4.
júní næstkomandi. Þar tala fulltrúar hinna ýmsu greina
sjávarútvegsins ásamt sjávarútvegsráðherra og fleirum. Það eru
Vestmannaeyjabær, Þekkingarsetur Vestmannaeyja,
Atvinnuþróunarsjóður og tímaritið Sjávarútvegurinn sem standa að
málþinginu.
26. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Okkar réttlætiskennd verulega misboðið“

Okkar saga er mjög svipuð sögu meirihluta sjávarútvegsfyrirtækja í kringum okkur á Snæfellsnesi og einnig víðar á landinu. Okkar réttlætiskennd er því verulega misboðið að hlusta á umræðu um að öll sjávarútvegsfyrirtæki séu sögð hafa braskað með veiðiheimildir, hlutabréf og fleira sem mjög margir tóku ekki þátt í. Svo segir í grein útgerðarfjölskyldu frá Rifi sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu.
26. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Adolf fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands
Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Gullbergs ehf. á Seyðisfirði og formaður Landssambands íslenskra
útvegsmanna, fékk fyrir stuttu afhent Hvatningarverðlaun
Þróunarfélags Austurlands, sem nú voru veitt í níunda sinn frá
upphafi. Tilgangur verðlaunanna er að heiðra þann aðila sem að mati
dómnefndar félagsins er best að slíkri viðurkenningu komin, fyrir
vel unnin störf í þágu fyrirtækja eða stofnana á Austurlandi og/eða
hafi verið öðrum í atvinnulífi á Austurlandi sérstök hvatning eða
fyrirmynd.
22. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Vill ESB upptökuleiðina?
Friðrik J.
Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna, veltir því fyrir sér í grein í Fréttablaðinu í dag
hvort fiskimálastjóri Evrópusambandsins, Joe Borg, sé að vísa
til upptökuleiðar íslenskra stjórnvalda þar sem hann kallaði
eftir reynslu og þekkingu Íslendinga við mótum fiskveiðistefnu ESB
í grein í blaðinu í gær.
20. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Hreint skemmdarverk á sjávarútveginum“
Þetta er í rauninni hreint
skemmdarverk sem að verið er að vinna á sjávarútveginum með þessu
tali, sagði Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra í viðtali í þættinum Auðlindin á Rás 1 í
morgun. Þar gagnrýndi hann harðlega fyrirhugaða fyrningarleið
stjórnvalda í sjávarútvegi og fullyrti að fréttir af þessum
væntanlegu aðgerðum væru þegar farnar að hafa neikvæð áhrif.
20. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Grýtubakkahreppur: Ekki verði hróflað við kvótakerfi nema í samvinnu við útgerðarmenn
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps
lýsir í bókun sinni áhyggjum vegna fyrirhugaðrar fyrningarleiðar í
sjávarútvegi og varar við því að hróflað verði við kvótakerfinu
nema í góðri samvinnu við útgerðarmenn. Grýtubakkahreppur er tólfta
sveitarfélagið sem á skömmum tíma varar í bókun við áhrifum
fyrningarleiðarinnar.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Líkir fyrningarleið í sjávarútvegi við stjórnarhætti Mugabe
Björn Dagbjartsson líkir
hugmyndum íslenskra stjórnvalda um fyrningarleiðina í sjávarútvegi
við stjórnarhætti Roberts Mugabe í Zimbabwe í grein sem hann
skrifar í Morgunblaðið í gær. Að hugsa ekkert um það hvaða
afleiðingar aðgerðirnar munu hafa. Þetta voru aðferðir Mugabe í
Zimbabwe, segir Björn m.a. í greininni.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Áhrif fyrningarleiðar á 3X Technology: „Fyrirtæki draga úr fjárfestingum“
Jóhann Jónasson,
framkvæmdastjóri 3X Technology, segist í samtali við Útveginn
óttast að áhrif fyrningarhugmynda stjórnvalda hafi svipuð áhrif á
fyrirtækið og niðurskurður aflaheimilda hafði árið 2007. Þá
var það eins og við manninn mælt, salan dróst verulega saman, segir
Jóhann.
19. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fjarðabyggð: Varað við aðgerðum sem veikja grundvöll sjávarútvegsins
Bæjarráð Fjarðabyggðar segir í
bókun sem samþykkt var í dag, að mikilvægt sé að varpa ekki fyrir
róða þeim árangri sem náðst hefur með gildandi stjórnkerfi
fiskveiða. Þá varar ráðið í bókunni við aðgerðum sem veikt geta
starfsgrundvöll sjávarútvegsins og stefnt búsetu í óvissu.
Fjarðabyggð er ellefta sveitarfélagið sem á skömmum tíma sendir frá
sér bókun í kjölfar þess að stjórnvöld tilkynntu um svokallaða
fyrningarleið í sjávarútvegi.
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fylgja Norðmenn í kjölfarið gangi Íslendingar í ESB?
Heimssýn, hreyfing
sjálfstæðissinna í Evrópumálum, efnir til opins umræðufundar
á Háskólatorgi Háskóla Íslands (sal HT 101) þriðjudaginn 19. maí
frá kl. 12:00-13:15. Þar verður m.a. velt upp spurningunni af
hverju Norðmenn höfnuðu tvívegis aðild að ESB.
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Illa ígrunduð vinnubrögð – hagfræðiprófessor svarað
Hvað gengur manninum til? Hvernig má það
vera að prófessor við Háskóla Íslands skuli koma fram með þvílíkan
málflutning án þess að þurfa að byggja hann á einni einustu
tilvísun í rannsóknir máli sínu til stuðnings? Verða menn ekki í
slíkri stöðu að greina á milli málefnalegrar umræðu og óvildar?
18. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Fyrningarleiðin „reiðarslag fyrir útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki“
Meirihluti hreppsnefndar
Tálknafjarðarhrepps lýsir í bókun sinni þungum áhyggjum yfir þeirri
óvissu er ríkir um fiskveiðistjórnunarkerfið. Í bókuninni eru
hugmyndir um fyrningarleið og upptöku strandveiða sagðar reiðarslag
fyrir útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki í
sveitarfélaginu.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmætið 16 milljarðar króna í janúar og febrúar
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 16
milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2009 samanborið
við 12,1 milljarð á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því
aukist um 3,8 milljarða eða 31,5% á milli ára. Þetta kemur
fram í frétt frá Hagstofu Íslands í morgun.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarráð Seyðisfjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum yfir fyrningarleiðinni
Meirihluti bæjarráðs
Seyðisfjarðarkaupstaðar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar
miklu óvissu sem skapast um fiskveiðistjórnunarkerfið með hugmyndum
stjórnvalda um svokallaða fyrningarleið. Svo segir í bókun
frá fundi ráðsins sem haldinn var sl. miðvikudag.
15. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra hvattur til að beita sér gegn fyrningarleið
Jón Bjarnason, nýskipaður
sjávarútvegs- og landbúnaðrráðherra, var gestur á stjórnarfundi LÍÚ
fyrr í dag. Útvegsmenn buðu hann velkominn til starfa og árnuðu
honum velfarnaðar í embættisverkum sínum. Ráðherra var jafnframt
hvattur til þess að beita áhrifum sínum til þess að horfið verði
frá áformum stjórnvalda um svokallaða fyrningarleið í
sjávarútvegi.
14. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Varaformaður LÍÚ líkir fyrningarhugmyndum við ofbeldisaðgerðir
Bara það að svona yfirlýsingar séu settar
í stjórnarsáttmála rikisstjórnar hefur strax þau áhrif að menn í
greininni draga saman seglin, fara varlega í allar fjárfestingar
sem fyrirhugaðar voru. Óvissa tekur við af öryggi, segir Eiríkur
Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og
varaformaður LÍÚ. Hann líkir fyrningarhugmyndum í sjávarútvegi
við ofbeldisaðgerðir í viðtali við
Fiskifréttir í dag.
14. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarráð Ölfuss: Fyrningarleiðin er á kostnað landsbyggðarinnar
Með því að gera svo víðtækar breytingar á
atvinnugrein sem er jafn mikilvæg og sjávarútvegur er ríkisstjórnin
að setja þessa atvinnugrein í mikla óvissu og enn og aftur á að
gera það á kostnað landsbyggðarinnar. Svo segir í ítarlegri bókun
bæjarráðs Ölfuss, sem samþykkt var fyrr í dag.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Umtalsverður aflasamdráttur varð í apríl á milli ára
Heildarafli íslenskra skipa nam 94.828
tonnum tonnum í apríl, sem er verulegur aflasamdráttur frá sama
mánuði í fyrra er aflinn var 130.871 tonn. Rétt eins og í
mars vegur þyngst í heildarmyndinni að engin loðnuveiði var í
apríl. Metinn á föstu verði var aflinn 16,3% minni í apríl í ár en
í fyrra. Það sem af er ári hefur heildarafli hins vegar aukist um
7.8% frá árinu 2008 á föstu verði.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Grundarfjarðar varar við áhrifum fyrningarleiðar
Bæjarstjórn Grundarfjarðar
varar við áhrifum fyrningarleiðarinnar í sjávarútvegi í bókun sem
hún samþykkti í gær. Með bókuninni bætist Grundarfjörður í vaxandi
hóp annarra sveitarfélaga sem lýsa áhyggjum sínum yfir umræddum
hugmyndum.
13. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Vel heppnuð ráðstefna í Eyjum um rannsóknir og nýsköpun í sjávarútvegi
Aukin samvinna á milli
einstakra rannsóknarstofnana og fræðasetra og efling trausts á
milli þeirra og atvinnugreinarinnar í heild var á meðal þess sem
kom fram á vel heppnaðri og fjölsóttri ráðstefnu í Vestmannaeyjum
fyrir helgina. Ráðstefnan bar yfirskriftina Þátttaka atvinnulífsins
í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi og var skipulögð af
Þekkingarsetri Vestmannaeyja í samvinnu við fjölda aðila.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Langanesbyggð: Búsetuskilyrðum ógnað með fyrningarleið
Það er nóg að þurfa að glíma
við gæftir, aflabrest og stærð fiskistofna, segir m.a. í bókun
hreppsnefndar Langanesbyggðar, sem hún sendi frá sér fyrr í dag. Í
bókuninni segir m.a. að fyrirhuguð fyrningarleið í sjávarútvegi
ógni búsetuskilyrðum á svæðinu.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Nýr sjávarútvegsráðherra boðar víðtækt samráð
Jón Bjarnason, nýskipaður
sjávarútvegsráðherra, boðar víðtækt samráð um endurskoðun
sjávarútvegsstefnunnar með það að markmiði að ná góðri sátt um
sjálfbærar veiðar og trygga atvinnu fólks í sjávarbyggðunum. Þetta
kom fram í hádegisfréttum ríkisútvaprsins. Þar vildi ráðherra ekki
slá neinu föstu um innköllun aflaheimilda.
12. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Stjórn SF leggst eindregið gegn hugmyndum um fyrningarleið í sjávarútvegi
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva leggst
eindregið gegn öllum tillögum og hugmyndum um fyrningarleið í
sjávarútvegi eins og hún hefur verið kynnt í samstarfsyfirlýsingu
þeirra flokka sem nú skipa ríkisstjórn Íslands. Afstaða SF kemur
fram í ályktun sem samtökin sendu frá sér í dag.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti sjávarafurða 171,3 milljarðar í fyrra
Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam 171,3
milljörðum króna á síðasta ári og jókst um 34,3% frá árinu áður.
Mæld á föstu verði dróst framleiðsla saman um 1,5%.
Heildarverðmæti framleiðslu til útflutnings nam hins vegar 181
milljarði króna. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu
Íslands um útgáfu ritsins Útflutningur og
útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2008. Skýrsluna má nálgast
hér.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Byggðaráð Skagafjarðar: Stjórnvöld standi vörð um sjávarbyggðir
Byggðaráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar lýsir í ályktun sinni, sem send var út um
helgina, þungum áhyggjum yfir þeirri óvissu sem nú ríkir um
fiskveiðistjórnunarkerfið og hvetur stjórnvöld til að standa vörð
um stöðu og framtíð sjávarbyggðanna.
11. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Vestmannaeyja: Fyrningarleiðin aðför að byggð í Eyjum
Bæjarstjórn Vestmannaeyja
varar sterklega við svokallaðri fyrningarleið í sjávarútvegi og
telur hana beina aðför að atvinnulífi Vestmannaeyja og þar með að
byggð í Eyjum. Bæjarstjórn hafnar því harðlega að þessi boðaða
fyrningarleið nýrrar ríkisstjórnar verði farin. Svo segir í
ítarlegri ályktun sem bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur sent frá
sér.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Yfirlýsing frá Samtökum atvinnulífsins
Samtök atvinnulífsins skora á
Samfylkinguna og Vinstri hreyfinguna - grænt framboð að hverfa frá
öllum hugmyndum um upptöku og uppboð aflaheimilda
sjávarútvegsfyrirtækja. Það er mikilvægt að stöðugleiki ríki í
rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja eins og annarra
fyrirtækja.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Sveitarstjórn Grímseyjahrepps mótmælir harðlega fyrningarleið á veiðiheimildum
Sveitarstjórn Grímseyjarhepps mótmælir
harðlega fyrirhugaðri fyrningarleið stjórnvalda á veiðiheimildum.
Þetta er sú alversta hugmynd sem komið hefur fram í
sjávarútvegsstefnu okkar Íslendinga segir í bréfi hreppsins til
sjávarútvegsráðherra.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar lýsir þungum áhyggjum yfir boðaðri fyrningarleið í sjávarútvegi
Áður en farið verður í að
hrófla við núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi þarf að fara vandlega
yfir það hvaða afleiðingar breytingarnar hafi á hag þeirra sem lifa
og starfa í sjávarútvegi segir m.a. í bókun bæjarstjórnar
Snæfellsbæjar.
8. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Útvegsmenn skora á bæjarstjórn Ísafjarðar að berjast gegn fyrningarleið
Útvegsmenn á Vestfjörðum
afhentu síðdegis í dag áskorun til bæjarstjórnar Ísafjarðar, þar
sem skorað er á hana að beita áhrifum sínum til þess að koma í veg
fyrir að hugmyndir um svokallaða fyrningarleið í sjávarútvegi nái
fram að ganga.
7. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Bæjaryfirvöld í Grindavík hafna fyrningarleið í sjávarútvegi
Bæjaryfirvöld í Grindavík
samþykktu í gær bókun á fundi bæjarráðs þar sem því er harðlega
hafnað að farin verði það sem nefnt hefur verið fyrningarleið í
sjávarútvegi, sem sé lífæðin og grundvallaratvinnugrein
byggðarinnar. Meirihluti bæjarstjórnar Grindavíkur,
sem öll sat fund bæjarráðs í gær, er skipaður fulltrúum
Samfylkingar og Framsóknarflokks.
6. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Flutti erindi um vottun sjávarafurða á ráðstefnu OECD og FAO
Fjölmenni var á ráðstefnu,
sem boðað var til í Den Haag í Hollandi fyrir skömmu á vegum
Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD og Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, FAO, í samvinnu við
hollensk stjórnvöld. Ráðstefnan markar upphaf þriggja ára ferlis,
þar sem farið verður ofan í saumana á því hver áhrif
umhverfismerkinga eru í sjávarútvegi.
5. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Economist: Evrópusambandið gæti lært af reynslu Íslendinga
Evrópusambandið gæti lært af
reynslu Íslendinga og Nýsjálendinga þegar kemur að stjórnun
fiskveiða. Þetta kemur fram í grein í nýjasta hefti tímaritsins The
Economist, þar sem fjallað um nýútkomna Grænbók um hina
sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB.
4. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
„Uppboðsleiðin grefur undan íslenskum sjávarútvegi“
Hugmyndir um upptöku aflaheimilda og að
setja þær á uppboð eru ógn við íslenskan sjávarútveg. Uppboðsleiðin
var reynd í byggingastarfsemi í Grafarholti á árunum 1999-2002 með
hörmulegum afleiðingum. Hún grefur undan íslenskum sjávarútvegi,
segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
4. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Óttast aðgang veiðiflota annara ESB-þjóða að skoskum fiskimiðum

Fulltrúar allra skosku stjórnmálaflokkanna á Evrópuþinginu, að skoska þjóðarflokknum undanskildum, greiddu því atkvæði sitt í fyrri viku að flytja mætti óveiddan kvóta skoskra fiskiskipa til annarra aðildarlanda ESB. Ian Hudghton, formaður skoska þjóðarflokksins, er æfur yfir niðurstöðunum.
1. Maí 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð á ýsu og karfa
Á fundi Úrskurðarnefndar
sjómanna og útvegsmanna var ákveðið að hækka verð á slægðri ýsu,
sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seld til skyldra aðila, um
10%. Verð á óslægðri ýsu var hækkað um 17% . Ákveðið var að hækka
verð á karfa um 13%. Verð þetta gildir frá og með 1. maí 2009.
30. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Financial Times: Yrði aðild Íslands að ESB of dýru verði keypt?
Tilhugsunin um aðild að
Evrópusambandinu er notaleg trygging þegar illa árar. Þegar
eyjarskeggjar standa frammi fyrir skilmálum aðildar og gjaldinu sem
greiða þarf fyrir gæti svo farið að þeir hrökkluðust til baka.
Þannig lýkur grein í vefútgáfu Financial Times í gær. Þar er
fjallað um stöðu Íslands gagnvart ESB eftir nýafstaðnar
alþingiskosningar.
30. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Íslandi boðið á strandríkjafund um stjórn makrílveiða
Ísland hefur þekkst boð frá
ESB, Færeyjum og Noregi um að taka þátt í fundi um stjórn
makrílveiða sem haldinn verður í London 29.-30. júní n.k. Í frétt
frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu í dag kemur fram að
Ísland hafi boðið hinum strandríkjunum til fundar í Reykjavík fyrr
í þessum mánuði en að því boði hafi ekki verið svarað.
29. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Strandríkin hunsuðu boð Íslands um þátttöku í makrílfundi
Ekkert strandríkjanna sem
eiga aðild að samningum um stjórn makrílveiða í NA-Atlantshafi
lét svo lítið sem að svara boði sjávarútvegsráðuneytisins um að
sækja fyrirhugaðan fund hér á landi dagana 17. og 18. apríl sl. Þar
var markmiðið að reyna að leysa úr deilum ríkjanna.
28. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Ráðstefna um þátttöku atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun
Þekkingarsetur Vestmannaeyja,
í samvinnu við fjölmarga aðila á landinu stendur fyrir ráðstefnu
undir yfirskriftinni
Þátttaka atvinnulífsins í rannsóknum og nýsköpun í sjávarútvegi
í Vestmannaeyjum föstudaginn 8. maí 2009 frá kl. 9 -16.
28. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Eigið fé sjávarútvegsfyrirtækja 110 milljarðar í árslok 2007
Eigið fé íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja í árslok 2007 var 110 milljarðar eða 25,3%. Þetta kemur fram í ritinu Hagur fiskveiða og fiskvinnslu árið 2007 sem Hagstofa Íslands hefur gefið út. Niðurstöður efnahagsreiknings sýna að heildareignir sjávarútvegsins í voru 435 milljarðar króna en heildarskuldir 325 milljarðar króna.
24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Sjómenn séu slysatryggðir á ferðum til og frá heimili að skipshlið
Sjómenn eiga að njóta
slysatryggingaverndar almannatrygginga á ferðum sínum á vegum
útgerða frá heimilum sínum. Þetta er niðurstaða dóms í máli
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar gegn Tryggingastofnun ríkisins. Dómur
var kveðinn upp þann 20. mars sl.
24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Grænbók ESB: Ekkert hald í hlutfallslega stöðugleikanum
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins kemst að því í svokallaðri Grænbók um hina
sameiginlegu sjávarútvegsstsefnu sambandsins að reglan um
hlutfallslegan stöðugleika (e. relative stability) tryggi ekki
lengur að fiskveiðiréttindi haldist hjá viðkomandi veiðiþjóð.
Grænbókin var formlega kynnt á miðvikudag.
24. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Upptaka aflaheimilda – réttlæti í nafni hverra?
Það stoðar lítt þótt þessum
hugmyndum sé pakkað inn í umbúðir réttlætis og jöfnuðar. Í gegnum
umbúðirnar skín, að þetta er hrein og klár eignaupptaka, segir í
grein Sigurðar Sverrissonar, upplýsinga- og kynningasrfulltrúa LÍÚ,
í Fiskifréttum í vikunni. Greinin ber yfirskriftina Upptaka
aflaheimilda réttlæti í nafni hverra?
22. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Útgerð Dala- Rafns fær skaðabætur vegna samráðs olíufélaga
Útgerðarfélagið Dala-Rafn ehf.
í Vestmannaeyjum fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdar 2,3
milljónir króna með vöxtum í bætur vegna þess að sannað þótti
að ólögmæt háttsemi olíufélaganna hafi valdið útgerðinni tjóni.
21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
„Alvarlega vegið að atvinnuöryggi starfsfólks okkar“
Umræðan um þessar
upptökuhugmyndir í sjávarútvegi var ofarlega í huga manna á
aðalfundinum hjá okkur, segir Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri
Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfurði, en aðalfundur fyrirtækisins var
haldinn fyrir helgina.
21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Upptökuhugmyndirnar eru „skipbrot heilbrigðrar skynsemi“
Guðmundur Smári Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði,
er vægast sagt ósáttur við þær hugmyndir að taka árlega 5%
aflaheimilda af sjávarútvegsfyrirtækjum. Hann telur að verði þessar
hugmyndir að veruleika séu þær til marks um skipbrot
heilbrigðrar skynsemi.
21. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Tekur ESB upp kvótakerfi að íslenskri fyrirmynd?
Upptaka framseljanlegra aflaheimilda er
ein þeirra leiða sem Evrópusambandið horfir nú til í því augnamiði
að koma böndum á hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu þess. Þetta
kemur fram í í svonefndri grænbók ESB um sjávarútvegsstefnu
sambandsins sem kynnt verður á morgun og vefur BBC greinir frá í
dag.
20. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
„Sýður á mönnum vegna 5% landsbyggðarskattsins“
Það sýður á mönnum vegna þessa 5%
landsbyggðarskatts, sem við köllum þær fyrningarhugmyndir
aflaheimilda sem Samfylkingin og VG hafa verið að boða þannig að ég
reikna með fjölmenni á fundinn í kvöld, segir Ólafur Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands hf. og formaður
Útvegsmannafélags Snæfellsness. Félagið hefur í samvinnu við
Snæfell, félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, boðað til fundar með
fulltrúum allra flokka í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík kl. 20 í
kvöld.
20. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Athugasemd frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Steingrímur J. Sigfússon,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur óskað eftir því við
Útveginn að birt verði athugasemd hans við frétt frá 13. apríl
sl., þar sem vitnað var í viðtal við Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, í blaðinu
Fréttum í Vestmannaeyjum. Athugasemd ráðherra fer hér á eftir í
heild.
17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Samningur undirritaður um Sjávarútvegsmiðstöð á Akureyri
Steingrímur J. Sigfússon,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans á Akureyri, undirrituðu í gær samning um
stofnun Sjávarútvegsmiðstöðvar á Akureyri.
17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Kynningarbæklingur LÍÚ nú aðgengilegur í A4 broti
Kynningarbæklingur um
íslenskan sjávarútveg, sem LÍÚ gaf út fyrir stuttu, er nú einnig
aðgengilegur í
A4 broti, sem hentar vel fyrir þá sem vilja prenta
hann út. Tengil á þessa viðbótarútgáfu er að finna undir myndinni
af forsíðu bæklingsins efst í hægra dálki vefsíðunnar.
17. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Útgerðarstjóri líkir fyrningarleiðinni við skottulækningar
Sverrir Pétursson,
útgerðarstjóri hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf., segir að
hugmyndum Samfylkingar um fyrningu aflaheimilda um 5% á ári
megi e.t.v. best líkja við skottulækningar; sjúklingurinn er
sjaldnast til frásagnar eftir aðgerð.
16. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Engin loðna en 10% meiri botnfisksafli í mars en í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa
nam 108.612 tonnum tonnum í mars, sem er verulegur aflasamdráttur
frá sama mánuði í fyrra er aflinn var 169.690 tonn. Þar vegur
þyngst að engin loðnuveiði var í mars en botnfisksafli var hins
vegar tæplega 10% meiri en í mars 2008.
16. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Pétur H. Pálsson: Illskárra að ríkið hirði hlutaféð en kvótann
Ég satt að segja trúi því
ekki að stjórnvöld umturni núverandi kerfi með þeim hætti sem hér
hefur verið rætt um. Það væri skömminni til skárra að ríkið hirti
5% af hlutafé eigenda fyrirtækjanna á ári þangað til þau væru að
fullu komin í ríkiseigu, segir Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis í Grindavík, í viðtali við Fiskifréttir í dag.
15. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Steingrímur J.: Ekkert gert án samráðs við útvegsmenn
Það stendur ekki til að gera
neitt í þessum efnum af okkar hálfu án þess að hafa þar útvegsmenn
og sjómenn við borðið, segir Steingrímur J. Sigfússon,
sjávarútvegsráðherra. Hann segir að segir að breytingar á
fiskveiðistjórnun verði ekki gerðar án þess að hlusta á sjónarmið
þessara aðila og taka eftir atvikum tillit til þeirra.
13. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Óttast skelfilegar afleiðingar fyrningarleiðar í sjávarútvegi
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segist
óttast skelfilegar og ófyrirséðar afleiðingar fyrningar
aflaheimilda. Hann telur fyrningarleiðina hvetja til þess að
langtímahugsun í rekstri verði varpað fyrir róða. Vinnslustöðin er
leiðandi fyrirtæki í humarveiðum og -vinnslu.
8. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn auka makrílkvóta sinn einhliða um 70.000 tonn
Norska sjávarútvegsráðuneytið
hefur tekið einhliða ákvörðun um að norskum skipum verði heimilt að
veiða 70.000 tonnum meira af makríl á þessu ári en á síðasta
ári. Heildarkvóti Norðmanna er því 190.802 tonn í ár en var
120.450 tonn í fyrra.
8. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Boðið til fundar í makríldeilunni á Íslandi í þessum mánuði
Íslensk stjórnvöld hafa boðið
Norðmönnum, Færeyingum og Evrópusambandinu til fundar um miðjan
þennan mánuð til að leysa úr þeim deilum sem uppi eru á meðal
strandríkja um framtíðarstjórnun makrílveiða í NA-Atlantshafi.
Þetta kemur fram í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.
7. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna
auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði,
sjávarvistfræði, sjávarlíffræði, fiskalífeðlisfræði, haffræði,
veiðarfærafræði og skyldum greinum.
7. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
LÍÚ gefur út kynningarbækling um íslenskan sjávarútveg
6. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
„Tillögur Samfylkingarinnar eru ávísun á fjöldagjaldþrot“
Ég fæ ekki betur séð en að
rústa eigi öllum þeim árangri sem náðst hefur í íslenskum
sjávarútvegi með þessum tillögum Samfylkingarinnar í
sjávarútvegsmálum, segir Guðrún Lárusdóttir, útgerðarkona hjá
Stálskipum í Hafnarfirði, í viðtali við Útveginn. Hún lýsir
vonbrigðum með þá fljótaskrift sem henni finnst einkenna
stefnumótun flokksins í þessum málaflokki.
2. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
„Fiskveiðistefna ESB breytir heiðvirðum sjómönnum í skúrka“
Tveir breskir sjómenn, feðgar,
hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að landa umframafla
fremur en að kasta honum í sjóinn eins og reglur hinnar
sameiginlegu fiskveiðistefnu Evrópusambandsins kveða á um. Brot
feðganna var fest á filmu í þáttaröð BBC um breskan
sjávarútveg.
2. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
„Hrein og klár eignaupptaka“
Okkur finnst þetta fáranlegt, það er
ekkert annað orð yfir þetta. Þetta er hrein og klár eignaupptaka,
þjóðnýting, segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, í viðtali við BB í dag um
hugmyndir um fyrningu aflaheimilda um 5% á ári.
1. Apríl 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar þorskverð um 12%
Ákveðið var á fundi Úrskurðarnefndar
sjómanna og útvegsmanna að lækka verð á slægðum og óslægðum þorski,
sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um
12%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um 3%. Verð á karfa
var hins vegar hækkað um 10%. Verð þetta gildir frá og með 1. apríl
2009.
29. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Munu áfram kaupa Alaskalax án vottunar MSC
Framkvæmdastjóri
matvælarisans Findus í Frakklandi, Mattieux Lambeaux, sagði
fyrir helgina, að fyrirtækið myndi ekki hætta að kaupa lax frá
Alaska þótt afurðirnar bæru ekki lengur merki
vottunarfyrirtækisins.
29. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Afrakstur þróunaraðstoðar ógnar norskum sjávarútvegi
Norðmenn standa nú frammi
fyrir þeirri sérkennilegu stöðu að afraksturinn af þróunaraðstoð
þeirra í Víetnam um langt árabil er farinn að ógna markaðsstöðu
norsks sjávarútvegs í Evrópu.
20. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Bankar og sparisjóðir hafi frumkvæði að lækkun vaxta
Landssamband íslenskra útvegsmanna skorar
á banka og sparisjóði í landinu að taka frumkvæði til bjargar
heimilum og atvinnulífi og lækka nú þegar vexti umtalsvert.
Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands í gær bendir ekki til þess að
peningastefnunefnd, sem sérstaklega var skipuð, sé í nægilegum
tengslum við þann raunveruleika sem við þjóðinni blasir.
19. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Skuldir sjávarútvegs innan við 2% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja
Brúttóskuldir íslenskra
sjávarútvegsfyrirtækja voru 300,3 milljarðar króna í lok ársins
2007. Heildarskuldir íslenskra fyrirtækja námu á sama tíma 15.685
milljörðum króna samkvæmt frétt Morgunblaðsins í gær, sem byggir á
upplýsingum frá ríkisskattstjóra. Samkvæmt þessu voru skuldir
sjávarútvegsins innan við 2% af heildarskuldum allra fyrirtækja í
árslok 2007.
19. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn ekki í aðstöðu til að gagnrýna makrílveiðar Íslendinga
Samtök framleiðenda
uppsjávarfisks í Danmörku líta svo á að Norðmenn séu ekki í neinni
aðstöðu til að kvarta undan makrílveiðum Íslendinga. Christian
Olsen, talsmaður samtakanna, segir í samtali við Fishing News
International, að bæði Norðmenn og Færeyingar hafi úthlutað sér
viðbótarkvótum í makríl.
18. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga vekur athygli erlendis
Erlendir fjölmiðlar hafa
fjallað nokkuð um íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga,
sem kynnt var fyrir fullum sal gesta á sjávarútvegssýningunni í
Boston fyrr í vikunni. Almenna merkið var fyrst kynnt á
Íslensku sjávarútvegssýningunni í byrjun október. Það merki er án
vottunar, en vísar til íslensks uppruna og
yfirlýsingar um ábyrgar fiskveiðar.
17. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
„Óskiljanlegar kvartanir Norðmanna“
Réttur okkur til þessara veiða
er óskoraður og það er ekki við okkur að sakast þótt við þurfum að
setja veiðiheimildir einhliða. Ósk okkar um að fá að koma að stjórn
veiða úr makrílstofninum í NA-Atlantshafi hefur ítrekað verið
hafnað. Í því ljósi eru þetta óskiljanlegar kvartanir Norðmanna,
segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
16. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Umfangsmikilli loðnuleit lokið
Umfangsmikilli loðnuleit
hafrannsóknaskipa og fiskiskipa er nú lokið án þess að loðnukvóti
væri gefinn út. Ekki náðist að mæla þau 400 þúsund tonn sem miðað
er við sem grundvöll til útgáfu aflamarks. Þetta er í fyrsta sinn
frá veiðitímabilinu 1982/1983 sem ekki hefur verið gefinn út
loðnukvóti.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Heildaraflinn 16% meiri í febrúar en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 99.648
tonnum í nýliðnum febrúar og var tæplega 16% meiri í tonnum talið
en í sama mánuði árið 2008 þegar hann var 85.808 tonn. Sé
aflinn metinn á föstu verði var hann 27% meiri í febrúar 2009 en í
sama mánuði árið áður.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Kristján Loftsson: Verður vandalaust að selja hvalkjötið
Ég hef engar áhyggjur af sölu
afurðanna. Við erum búnir að komast með kjötið okkar inn á
markaðinn og ég er þess fullviss að það verður vandalaust að selja
það, segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í viðtali við
Fiskifréttir. Undirbúningur fyrir komandi hvalvertíð er kominn á
fulla ferð. Áætlað er að hefja veiðar í byrjun júní.
13. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Íslenskum skipum heimilt að veiða svipað magn af makríl og í fyrra
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag reglugerð um makrílveiðar
íslenskra skipa á þessu ári. Miðað er við að heildarafli á árinu
fari ekki yfir 112.000 tonn, þar af 20.000 tonn á alþjóðlegu
hafsvæði utan lögsögu ríkja. Fari aflinn yfir þetta magn mun
ráðherra ákveða hvort gripið skuli til veiðibanns eða takmarkana.
Þetta er svipað magn og veiddist í fyrra.
12. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Eru 15% af 2 milljónum ekki 300.000 hjá Hafró?
Sigurður Sverrisson,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, segir það rangt hjá Gísla
Víkingssyni, sérfræðingi hjá Hafrannsóknastofnuninni, að vísað hafi
verið til þess í frétt á vef LÍÚ að útreikningar á heildaráti
hrefnu á þorski og ýsu hafi komið frá stofnuninni. Sigurður birti í
Morgunblaðinu í dag svargrein við athugasemd Gísla.
11. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Hrefnuveiðileyfi auglýst til umsóknar
Þeir sem hyggja á hrefnuveiðar á komandi
vertíð þurfa að uppfylla þau skilyrði, að a.m.k. einn úr áhöfn hafi
reynslu af hrefnuveiðum. Þá skulu skyttur sem annist veiðar og
aflífun dýra hafa sótt námskeið í meðferð skutulbyssna og
sprengiskutlna og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa
skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.
10. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Fiskneysla bætir námsárangur sænskra táningspilta
Niðurstöður vísindamanna við háskólann í
Gautaborg benda eindregið til þess að fiskneysla stuðli að bættum
námsárangri táningspilta. Könnun sænsku vísindamannanna er hin
fyrsta í heiminum sem einvörðungu tekur tillit til áhrifs
fiskneyslu á þennan tiltekna þjóðfélagshóp.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Hrefnan étur allt að 300 þúsund tonn af þorski og ýsu á ári
Niðurstöður hrefnurannsókna
Hafrannsóknastofnunarinnar á árunum 2003-2007 benda til þess
hrefnan éti árlega allt að 300.000 tonn af þorski og ýsu. Það er
fimmfalt meira magn en eldri rannsóknir hafa leitt í ljós. Til
samanburðar má nefna að heildaraflamark þorsks og ýsu á
yfirstandandi fiskveiðiári er um 250.000 tonn.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Boð og bönn eru þjóðinni í óhag
Sjávarútvegurinn skilar þjóðarbúinu mestu
þegar hann getur nýtt tiltæka markaði eins og best verður á kosið
hverju sinni. Þetta er einmitt mjög mikilvægt núna þegar
efnahagsástand á helstu markaðssvæðum okkar er erfitt og aðstæður
hafa farið hratt versnandi, skrifar Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, í grein í Fiskifréttum í dag sem ber
yfirskriftina Boð og bönn eru þjóðinni í óhag.
5. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
„Megum ekki draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur”
Við megum ekki undir neinum
kringumstæðum draga úr því öryggi sem þyrlurnar veita okkur, segir
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og lýsir áhyggjum
sínum yfir þeim áhrifum sem niðurskurður ríkisútgjalda hefur á
starfsemi Landhelgisgæslunnar.
3. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Fyrsta löndun íslensks fiskiskips í Grimsby í tæp 9 ár
Tæp níu ár voru liðin
frá því íslenskt fiskiskip landaði síðast í Grimsby þegar Sturla GK
12 seldi afla sinn þar í gær.
2. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð um 10-15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna í dag, 2. mars, var ákveðið að lækka verð á slægðum og
óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til
skyldra aðila, um 15%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var lækkað um
10% . Verð á karfa var ákveðið óbreytt. Verð þetta gildir frá og
með 1. mars 2009.
2. Mars 2009 | ÚTVEGURINN
Sturla GK 12 sigldi á Grimsby og seldi hluta aflans í dag
Það eru einhver ár frá því
íslenskt fiskiskip landaði þarna síðast, segir Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, en skip félagsins,
Sturla GK 12, seldi í dag 65 tonn af blönduðum afla á fiskmarkaði í
Grimsby. Meðalverðið var 264 kr. á kíló.
27. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Hvenær kaupir maður þorsk og hvenær kaupir maður ekki þorsk?
Hvenær kaupir maður þorsk og
hvenær kaupir maður ekki þorsk? Fréttamaður vefsíðunnar IntraFish
veltir þessari spurningu upp í vikunni og gagnrýnir þekkt
umhverfissamtök fyrir misvísandi upplýsingar.
26. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Engin störf tapast í fiskvinnslu vegna hvalveiða
Það hafa engin störf tapast í
fiskvinnslu vegna hvalveiða okkar. Að halda slíku fram er oftúlkun
á innihaldi bréfs bresku Waitrose-verslanakeðjunnar til íslenskra
stjórnvalda, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ.
25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Ný gulldeplumið fundin djúpt suður af Eyjum
Ný gulldeplumið eru fundin
djúpt suður af Vestmannaeyjum. Sjö skip eru nú þar á veiðum. Öll
fengu þau einhvern afla í gær en bræla og leiðindaveður er á
svæðinu og því ekki hægt að kasta í morgun. Guðmundur Guðmundsson,
skipstjóri á Hugin VE, sagði í samtali við Útveginn að menn
vonuðust til að úr rættist með veður þannig að hægt væri að hefja
veiðarnar á ný.
25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Sjómannafélag Íslands samþykkir samninga við LÍÚ
Kjarasamningur Sjómannafélags
Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur verið
samþykktur með 75,8% greiddra atkvæða. Andvígir samningnum voru 23%
en 1,2% seðla voru auðir. Áður höfðu VM félag vélstjóra og
málmtæknimanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands og
Sjómannasamband Íslands samþykkt kjarasamninga við LÍÚ.
25. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Útflutningsverðmæti gulldeplu orðið 800 milljónir króna
Útflutningsverðmæti gulldepluafurða eru nú
orðið um 800 milljónir króna að mati Stefáns Friðrikssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum. Stefán telur að reikna megi með 25-26 þúsund
krónum fyrir tonnið af útfluttum afurðum en fiskurinn er
unninn í mjöl og lýsi.
24. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Krefja ESB um endurgreiðslu 200 millj. kr. jöfnunargjalds á lax
Þrír útflytjendur laxaafurða í Noregi
hafa höfðað mál á hendur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og
krefjast þess að þeim verði endurgreiddar sem svarar 200 millj.
ísl. króna vegna sérstaks jöfnunargjalds sem þeir þurftu að
greiða.
23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Joe Borg fiskimálastjóri ESB: „Ofveiðinni verður að linna“
Joe Borg, fiskimálastjóri
Evrópusambandsins, var þungorður í garð hinnar sameiginlegu
sjávarútvegsstefnu sambandsins í ræðu sem hann flutti á opnum fundi
sjávarútvegsnefndar Evrópuþingsins fyrir skömmu. Ofveiðinni verður
að linna, sagði hann m.a. og bætti við að gera þyrfti
grundvallarbreytingar á stefnunni svo stunda mætti sjávarútveg
innan ESB með sjálfbærum hætti.
23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
FFSÍ og VM samþykkja kjarasamning við LÍÚ
Kjarasamningur Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands og Landssambands íslenskra útvegsmanna
hefur verið samþykktur með 86,8% greiddra atkvæða. Talningu atkvæða
lauk í morgun.
23. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Deilur um Norðursjávarþorsk rugla Þjóðverja í ríminu
Sú ákvörðun World Wildlife Fund, WWF, að
halda Norðursjávarþorski á svokölluðum rauðum lista hefur
valdið misskilningi á meðal kaupenda sjávarafurða, neytenda og
stjórnmálamanna. Sjávarútvegsvefurinn IntraFish hefur þetta eftir
heimildarmönnum innan atvinnugreinarinnar í Þýskalandi.
20. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Evrópusambandið getur breytt löggjöf á sviði fiskimála að vild“
Evrópusambandið getur breytt
löggjöf á sviði fiskimála að vild með auknum meirihluta, sagði
Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, í
hádegisverðarerindi á vegum Lögfræðingafélags Íslands í vikunni.
Erindi Stefáns bar yfirskriftina Eru fiskveiðireglur
Evrópusambandsins andstæðar hagsmunum Íslands?
18. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Ákvörðun um hvalveiðar óbreytt fyrir yfirstandandi ár
Steingrímur J. Sigfússson,
sjávarútvegsráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi nú fyrir stundu
að ákvörðun forvera hans um hvalveiðar stæði óbreytt fyrir
yfirstandandi ár. Hann setti hins vegar fyrirvara um veiðarnar
næstu fjögur ár og sagði öll tvímæli tekin af um að hvalveiðimenn
geti ekki gengið að því sem vísu að ákvörðun forvera hans stæði
hvað það varðaði.
17. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Eignarhald í sjávarútvegi myndi líklega færast í hendur útlendinga“
Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor við
Háskóla Íslands, segir í viðtali við The Scotsman fyrrir stuttu að
með aðild að Evrópusambandinu myndi eignarhald í
sjávarútvegi líklega smám saman færast í hendur útlendinga. Í
greininni kemur fram að íslenskur sjávarútvegur og örlög hans yrði
úrslitavaldur kæmi til aðildarviðræðna Íslands og
Evrópusambandsins.
16. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Framleiðendur laxafurða í Alaska í stríð við vottunarfyrirtækið MSC?
Djúpstæður ágreiningur er nú
sprottinn upp á milli framleiðenda laxafurða í Alaska og
vottunarfyrirtækisins Marine Stewardship Council, MSC. Í frétt á
IntraFish fyrir helgina er látið að því liggja að ef ekki takist
sættir í málinu muni vottun MSC á laxaafurðum frá Alaska heyra
sögunni til síðar á þessu ári.
15. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Dylgjur um flutningskostnað ómerkilegur málflutningur“
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals
hf., segir að þær tölur sem nefndar voru á Alþingi í vikunni um
flutningskostnað á 82 tonnum af frystum hvalaafurðum með flugi til
Japans séu fráleitar og úr öllu samhengi við raunveruleikann.
13. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Aukin þorskveiði en samdráttur janúarafla tæplega 8% á milli ára
Heildarafli íslenskra skipa
nam 70.852 tonnum í nýliðnum janúar og var tæplega 8% minni en í
sama mánuði árið 2007 er hann var 76.891 tonn. Sé aflinn metinn á
föstu verði var hann 33% meiri í janúar 2009 en í sama mánuði árið
áður.
13. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn óttast að eldisfiskur frá Víetnam eyðileggi markaðinn
Stóraukinn innflutningur
Evrópusambandsins á eldisfiskinum Pangasius frá Víetnam er þegar
farinn að ógna hefðbundnum mörkuðum sjávarafurða að mati
forvígismanna í norskum sjávarútvegi. Þetta kom fram á
IntraFish-vefnum í vikunni. Norðmenn búast við því að stutt sé í að
þessi fiskur verði til sölu í kæliborðum norskra verslana.
12. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Norðmenn setja 340 milljónir í markaðsstarf á þorski
Norðmenn ætla á næstunni að verja sem
svarar 340 milljónum ísl. króna til markaðsstarfs á þorski.
Þessi markaðsherferð er samstarfsverkefni norskra stjórnvalda og
samtaka í norskum sjávarútvegi að því er segir í frétt frá
IntraFish í gær. Stutt er síðan skýrt var frá því á þessum
vettvangi að
norsk stjórnvöld hefðu ákveðið að stórauka lán og ábyrgðir til
fyrirtækja í norskum sjávarútvegi.
12. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Hvalasérfræðingur: Rangt að setja alla langreyðarstofna undir sama hatt
Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá
Hafrannsóknastofnuninni, setur fyrirvara við þau vinnubrögð samtaka
á borð við IUGN (International Union for Conservation of Nature) að
setja t.d. alla langreyðarstofna undir einn og sama hatt. Þetta er
í grundvallaratriðum sambærilegt við að friða hreindýr á Íslandi
vegna þess að hreindýrastofninn í Kanada væri illa á sig kominn,
segir Gísli í viðtali við Fiskifréttir í dag.
11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Danir auka aflaverðmæti með kvótaskiptum við ESB
Dönsk útgerðarfyrirtæki juku á
síðasta ári aflaverðmæti sitt um á þriðja milljarð íslenskra króna
með því að hafa kvótaskipti við aðrar útgerðir innan
Evrópusambandsins. Þetta er haft eftir danska ráðherranum Evu Kjær
Hansen i FiskeribladetFiskaren í gær en matvælaframleiðsla heyrir
undir ráðuneyti hennar.
11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Ekki samstaða um að draga úr karfaveiðum á Reykjaneshrygg
Ekki náðist samstaða um
að draga úr karfaveiðum á Reykjaneshrygg á þessu ári eins og
fulltrúar Íslands lögðu til á samráðsfundi sem lauk í London fyrr í
dag. Auk fulltrúa Íslands sátu fundinn fulltrúar Færeyja,
Grænlands, Evrópusambandsins, Noregs og Rússlands.
11. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Meirihluti þingmanna skrifar undir þingsályktunartillögu um hvalveiðar
Alls hafa 36 þingmenn skrifað undir
þingsályktunartillögu um að veiðum á hrefnu og langreyði hér við
land skuli haldið áfram, veiðileyfi gefin út til næstu fimm ára og
að árlegur leyfilegur heildarafli verði eins og kveðið er á um í
veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar. Tillagan var lögð fram á
Alþingi fyrir stundu. Hana má sjá í heild sinni hér.
10. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra gefur út 15.000 tonna rannsóknarkvóta í loðnu
Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, gaf síðdegis í gær út 15.000 tonna
rannsóknarkvóta til loðnuskipa en enn hefur ekki tekist að mæla þau
400.000 tonn af loðnu sem samkvæmt aflareglu þarf að skilja eftir
til hrygningar ár hvert. Fjögur veiðiskip aðstoða nú
Hafrannsóknastofnunina við loðnuleit.
6. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Ég hef mikinn áhuga á því að við leysum þetta mál á farsælan hátt“
Ef menn halda að þetta hvalamál sé erfitt
fyrir mig geta menn hætt að hafa áhyggjur af því. Það eru
smámunir í samanburði við það sem við stöndum nú frammi fyrir
sem þjóð. Ég hef mikinn áhuga á því að við leysum þetta mál á
farsælan hátt. Það er nóg annað að þvælast fyrir okkur, sagði
Steingrímur J. Sigfússon, nýskipaður sjávarútvegsráðherra á
borgarafundi um hvalveiðimál á Akranesi í gærkvöld.
6. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Fiskiskipum fækkaði um tæplega 600 á fimm árum
Íslenskum fiskiskipum
fækkaði um 43,5% á árunum 2003 2008 samkvæmt samantekt
hagfræðings LÍÚ. Alls voru skráð fiskiskip 1356 talsins
fiskveiðiárið 2003/2004. Þeim hafði fækkað niður í 767
fiskveiðiárið 2007/2008. Fækkunin nemur 589 skipum.
5. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Skotist til Íslands af Brussel-vaktinni
Fjórir fulltrúar Evrópuskrifstofu
Þrændalaga (Trøndelags Europakontor) heimsóttu skrifstofur LÍÚ í
morgun til þess að kynna sér afstöðu útvegsmanna til
Evrópusambandsins.
4. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Viðvörunarljósin gegn aðild Íslands að ESB loga skært“
Viðvörunarljósin gegn aðild
Íslands að Evrópusambandinu loga skært. Ímyndið ykkur
stöðu ykkar innan ESB ef sambandið ákvæði einn daginn að nýta
fiskistofnana ykkar í þágu aðildarríkjanna allra. Hugmyndir ykkar
um fullveldisrétt myndu þá reynast léttvægar. Þar er reynsla
Íra frá því í síðustu viku gott dæmi, segir Daniel
Hannan, þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, í samtali
við Útveginn.
4. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Hækkun hlutabréfa kynti undir þenslu"
Samanburður á fjórum mismunandi vísitölum
frá janúar 2001 til janúar 2009 leiðir í ljós að þróun OMX 15
hlutabréfavísitölunnar hefur leikið lykilhlutverk í þeirri þenslu
sem einkenndi íslenskt efnahagslíf frá síðustu aldamótum fram að
bankahruninuí haust. Þetta er þvert á skoðanir þeirra sem hafa
haldið því fram að rót efnahagsvandans megi rekja til frjáls
framsals aflaheimilda.
3. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Tekjutap vegna afráns hvala nemur tugum milljarða króna
Samkvæmt fjölstofnalíkani
Hafrannsóknastofnunarinnar gæti afrakstur þorskstofnsins orðið um
20% minni en ella njóti hvalastofnar algerrar friðunar.
Hvalastofnar við Íslandsstrendur eru eru nú taldir nálægt
upprunalegri stærð. Sérfræðingar stofnunarinnar leggja til að
hvalveiðar séu stundaðar með sjálfbærum hætti og hvalastofnum
haldið í 70% af hámarksstærð.
3. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Capacent Gallup: Tveir þriðju hlutar landsmanna hlynntir hvalveiðum
Tveir þriðju hlutar landsmanna eru
hlynntir hvalveiðum í atvinnuskyni. Þetta er niðurstaða
skoðanakönnunar sem Capacent Gallup vann fyrir Sjávarnytjar um
helgina. Spurt var: Ertu hlynntur því eða andvígur að Íslendingar
stundi hvalveiðar í atvinnuskyni?
2. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd lækkar verð um 5-10%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna í dag, 2. febrúar, var ákveðið að lækka verð á slægðum
og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur
til skyldra aðila, um 10%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var
lækkað um 5%. Verð á karfa var ákveðið óbreytt. Verð þetta gildir
frá og með 1. febrúar 2009.
2. Febrúar 2009 | ÚTVEGURINN
Skotar vilja Ísland í ESB til að fá aðgang að fiskimiðunum
Skoskir sjómenn og
forvígisimenn samtaka þeirra bíða þess nú í ofvæni að Ísland gerist
aðili að Evrópusambandinu. Þannig vonast þeir til að Íslandsmið
opnist hugsanlega fyrir þeim að nýju. Þetta kemur fram í frétt The
Press and Journal í Aberdeen á laugardag.
30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Verður ESB-líflínan snara um háls íslensks sjávarútvegs?
Bandaríska blaðið Christian
Science Monitor, sem gefið er út í Boston, veltir því upp í grein í
vikunni hvort áhugi Íslendinga á aðild að Evrópusambandinu muni
reynast banabiti íslensks sjávarútvegs. Greinin ber yfirskriftina
Will EU lifeline sink Iceland's fishing industry.
30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Framsóknarflokkurinn andvígur afturköllun hvalveiðiheimilda
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, lýsti því yfir í fréttaskýringaþættinum
Kastljósi í gærkvöld að ólíklegt væri að flokkurinn styddi
hugmyndir Samfylkingar og VG um að afturkalla reglugerð um
hvalveiðar. Ég geri ráð fyrir því að þingflokkurinn ... greiði
atkvæði gegn því að þetta verði afturkallað, sagði hann.
30. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Samningar um veiðar úr deilistofnum mikilvægir kæmi til ESB-aðildar
Stefán Ásmundsson, skrifstofustjóri
alþjóðaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, segir
í viðtali við Fiskifréttir í gær að kæmi til aðildar að
Evrópusambandinu yrði mikilvægt að ná sátt um veiðar úr
deilistofnum. Þessir stofnar eru um 30% aflaverðmætis
íslenskra skipa. Stefán hefur um langt skeið verið
aðalsamningamaður Íslands í viðræðum við aðrar þjóðir um
deilistofna.
28. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Tenglar á vef- og bloggsíður skipa nú á vef LÍÚ
Með gerbreyttu fjölmiðlamynstri og
síaukinni netnotkun hefur vef- og bloggsíðum íslenskra fiskiskipa
fjölgað ört á síðustu árum. Margar þeirra eru mjög lifandi og gefa
glögga mynd af lífinu um borð, hvað er veitt og hvað menn eru
almennt að fást við. Þannig greindu skipverjar á Faxa RE 9 í gær frá stærsta kolmunna
sem þeir höfðu veitt. Listi yfir tenglana á skipin er undir Tenglar
í veftrénu hér til vinstri en einnig má nálgast þá hér.
27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Hópur norskra þingmanna heimsækir LÍÚ
Um 20 manna hópur þingmanna
norska Stórþingsins sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í morgun.
Heimsóknin var hluti af dagskrá þingmannanna í ferð þeirra til
Íslands. Inge Lønning, þingmaður Hægriflokksins og forseti neðri
deildar Stórþingsins, hafði enda á orði að lærdómsríkt væri að
upplifa það umrót sem nú ríkti í íslensku þjóðlífi. Við gætum ekki
hafa tímasett ferð okkar betur hvað þetta varðar, sagði hann.
27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
LÍÚ fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um hvalveiðar
Landssamband íslenskra útvegsmanna fagnar
þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni í sumar.
LÍÚ hefur ítrekað hvatt til þess undanfarin ár að hvalveiðar í
atvinnuskyni verði hafnar á ný.
27. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Stóraukin lán og ábyrgðir norska ríkisins til fyrirtækja í sjávarútvegi
Norsk stjórnvöld hafa ákveðið
að stórauka framlög ríkisins til lána og ábyrgða í gegnum norska
nýsköpunarsjóðinn, Innovation Norge. Þessar aðgerðir eru liður
í brýnni áætlun til þess að styrkja stöðu norskra sjávarútvegs- og
fiskeldisfyrirtækja og ábyrgjast greiðslur á afurðum þeirra á
erlendum mörkuðum. Aðgerðirnar voru kynntar af Helgu Petersen,
sjávarútvegsráðherra Noregs, í gær.
23. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Mönnunarnefnd bar að virða 30 tonna réttindin
Samgönguráðuneytið hefur
kveðið upp úrskurð þar sem hnekkt er ákvörðun mönnunarnefndar skipa
í máli Keilis ehf. frá því sl. sumar. Þar hafnaði nefndin beiðni
útgerðarinnar um að sami maður fengi að gegna stöðu skipstjóra og
vélstjóra eins og verið hafði frá árinu 2004. Málinu hefur verið
vísað til nefndarinnar að nýju.
22. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Veiðiráðgjöf næstu ára í þorski: Vanhæfi forstjóra Hafró algert
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir að eftir yfirlýsingar forstjóra
Hafrannsóknastofnunarinnar sé vanhæfi hans algert til að koma að
veiðiráðgjöf næstu ára í þorski. Friðrik segir einsýnt að ráðherra
þurfi að kalla eftir mati óháðra vísindamanna á mælingum og ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar á næstu árum komi forstjórinn þar að
málum. Þetta kemur fram í grein sem framkvæmdastjóri LÍÚ skrifar í
Fiskifréttir í dag.
21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti jókst um 15,6% á milli ára
Heildaraflaverðmæti íslenskra
fiskiskipa nam 79,7 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði nýliðins
árs. Á sama tíma árið áður, þ.e. janúar-október 2007, var verðmætið
68,9 milljarðar króna. Verðmætaaukningin er 15,6% á milli ára. Í
október nam verðmæti aflans 9,3 milljarðar en var 6,1 milljarður í
sama mánuði árið 2007.
21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Súperaðild" að ESB er ekki til
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir í leiðara Bændablaðsins þann 13. janúar
sl. að afstaða samtakanna til Evrópusambandsins byggi á reynslu og
staðreyndum, ekki vonum og væntingum sem alltof mikið er reynt að
halda á lofti. Haraldur varar við undanlátssemi í umræðunni um
ESB.
21. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna undirritaður í dag
Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara í dag um franlegingu á kjarasamningi aðila. Samningurinn tekur annars vegar til Sjómannafélags Íslands og hins vegar Landssambands íslenskra útvegsmanna og Samtaka atvinnulífsins.
19. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Neðansjávarmyndir Erlendar Bogasonar á forsíðunni
Neðansjávarmyndir Erlendar
Bogasonar kafara hafa vakið verðskuldaða athygli þeirra sem skoðað
hafa Útveginn, fréttavef LÍÚ, að undanförnu. Þessar myndir Erlendar
birtust fyrst í ársskýrslu LÍÚ í októberlok en hann hefur nú veitt
góðfúslegt leyfi til að nota þær á þessum vettvangi. Erlendur á
mikið myndasafn úr djúpunum og það sem birtist hér að ofan er
aðeins lítið brot þess.
16. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Aflamark í þorski aukið um 30.000 tonn
Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð
þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn.
Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi
fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu.
16. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Stjórn LÍÚ fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Stjórn Landssambands íslenskra
útvegsmanna, LÍÚ, fagnar þeirri ákvörðun Einars K. Guðfinnssonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að auka heildaraflamark í
þorski á yfirstandandi fiskveiðiári um 30.000 tonn.
14. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Aflaaukning í desember 10% á milli ára
Heildarafli íslenskra skipa
nam 85.774 tonnum í nýliðnum desember og var 9,5% meiri en í sama
mánuði árið 2007 er hann var 78.329 tonn. Sé aflinn metinn á föstu
verði var hann 10% meiri í desember 2008 en í sama mánuði árið
áður. Metinn á föstu verði dróst heildarafli ársins 2008 hins vegar
saman um 2,6% miðað við árið 2007.
14. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Löndun lokið á 650 tonna gulldeplufarmi í Eyjum
Nýlokið er löndun á 650 tonnum af
gulldeplu úr Hugin VE 55 í Vestmannaeyjum. Aflinn veiddist á
Grindavíkurdjúpi. Gulldeplan finnst nú í stórum torfum suður af
landinu. Þetta er mjög smár fiskur, tæpur helmingur af lengd loðnu
eða 5-6 sm. Stærstu fiskarnir eru ekki nema sjö sentimetrar. Við
höfum kallað þetta kreppukóð í gríni, sagði Páll Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Hugins, í samtali við Útveginn.
13. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2009 úr stofni bláuggatúnfisks
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
auglýst úthlutun aflaheimilda fyrir árið 2009 úr stofni
Austur-Atlantshafs bláuggatúnfisks. Útgerðir, sem
hafa áhuga á að taka þátt í þessum veiðum, skulu sækja um
veiðiheimildir til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins fyrir
31. janúar 2009.
12. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Myndum framselja lagasetningarvaldið“
Menn verða að vera raunsæir.
Þeir mega ekki vekja falsvonir um að unnt sé að ganga í
Evrópusambandið án þess að afsala sér forræðinu yfir
sjávarauðlindinni. Það er skilyrðið fyrir inngöngu. Ég tel
óhugsandi að við fengjum varanlegar undanþágur frá nokkrum þeim
atriðum sem máli skipta, sagði Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, í viðtali við Fiskifréttir fyrir helgina.
12. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Húsfyllir á fundi Heimssýnar um sjávarútveginn og ESB
Húsfyllir, á annað hundrað
manns, var á fundi um sjávarútveginn og Evrópusambandið í
Þjóðminjasafninu í gær. Aðalræðumaður fundarins var Peter Ørebech,
þjóðréttarfræðingur við Háskólann í Tromsö í Noregi. Hann er
sérfræðingur í EES rétti, sjávarútvegsmálum og reglum
ESB.
10. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Evrópusambandið – nýr tengill á vefsíðu LÍÚ
Nýr tengill, Evrópusambandið,
hefur verið settur inn á á vefsíðu LÍÚ. Tengillinn er neðst til
vinstri í röð tengla á forsíðu. Þessum efnisþætti er ætlað að svara
kalli tímans en umræða um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu er
nú mjög fyrirferðarmikil í íslensku samfélagi. Þarna er að finna
afstöðu LÍÚ til Evrópusambandsins, fróðlegar skýrslur og
samantektir,efni frá LÍÚ, ræður og áhugaverðar greinar. Nýju efni
verður bætt inn jafnt og þétt.
9. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Kjarasamningar Sjómannasambands Íslands og LÍÚ samþykktir
Nýgerður kjarasamningur
Sjómannasambands Íslands og Landssambands íslenskra
útvegsmanna var samþykktur með afgerandi meirihluta atkvæða innan
SSÍ.
9. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Blekktu bankarnir sjávarútvegsfyrirtækin, lífeyrissjóðina og þjóðina?
Hvöttu eigendur stóru viðskiptabankanna
starfsfólk sitt vísvitandi til þess að selja
útflutningsatvinnuvegunum og lífeyrissjóðum í landinu
gjaldeyrisskiptasamninga, þar sem staða var tekin með með krónunni?
Unnu þeir svo sjálfir að því að fella gengi krónunnar með verulegum
hagnaði og vógu þannig að sjávarútvegsfyrirtækjum, lífeyrissjóðunum
og íslensku þjóðinni um leið?
8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn og ESB – áhugaverður fundur nk. sunnudag
Heimssýn gengst fyrir opnum fundi í
Þjóðminjasafninu kl. 15 á sunnudag, 11. janúar nk., undir
yfirskriftinni Sjávarútvegurinn og ESB. Á meðal ræðumanna er Peter
Ørebech, þjóðréttarfræðingur við Háskólann í Tromsö í Noregi. Hann
er sérfræðingur í EES rétti, sjávarútvegsmálum og reglum
ESB.
8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
„Jón forseti var fjármagnaður með erlendu lánsfé“
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir í samtali við Útveginn að það sé engin nýlunda að
íslensk sjávarútvegsfyrirtæki skuldi erlendum aðilum fjármuni enda
hafi þau verið fjármögnuð með erlendu lánsfé í meira en hundrað
ár. Jón forseti RE 108, fyrsti togarinn sem smíðaður var
fyrir okkur Íslendinga og kom til landsins 1907, var fjármagnaður
með erlendu lánsfé og svo hefur verið alla tíð síðan, segir
Friðrik.
8. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Regla ESB um hlutfallslegan stöðugleika „engin trygging“
Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ, sagði
á fjölmennum fundi auðlindahóps Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins
í hádeginu í dag, að ljóst væri að ekki væri hægt að treysta því að
ekki yrði hróflað við reglunni um hlutfallslegan stöðugleika, einni
meginreglu hinnar sameiginlegu sjávarútvegsstefnu
Evrópusambandsins.
6. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Samningsforræði lykilatriði við ákvörðun veiða úr deilistofnum
Gerðist Ísland aðili að Evrópusambandinu
flyttist forræði á stjórn veiða úr deilistofnum frá Íslandi til
ESB. Veiðar úr deilistofnum nema um 30% aflatekna af íslenskum
sjávarafurðum. Til deilistofna teljast m.a. úthafskarfi, loðna,
norsk-íslensk síld, kolmunni, makríll og grálúða. Þetta kom fram í
ræðu Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, í ræðu á
fundi auðlindahóps Evrópunefndar
Sjálfstæðisflokksins nýlega.
5. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
Tímamót í loðnuleit
Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson er
farið til loðnuleitar ásamt þremur fiskiskipum; Berki (mynd t.v.),
Lundey og Faxa. Loðnuleitin að þessu sinni markar ákveðin tímamót
því í fiskiskipunum er nú búnaður sem hefur verið kvarðaður í
samræmi við búnað rannsóknarskipsins þannig að samvörun sé á milli
mælinga.
5. Janúar 2009 | ÚTVEGURINN
The Economist: Framseljanlegar aflaheimildir lausnin fyrir ESB
Framseljanlegar aflaheimildir
eru lausnin á vanda sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.
Fiskveiðistjórnun á Íslandi er til eftirbreytni á sama tíma og
sjávarútvegsstefna ESB með öllum sínum ríkisstyrkjum hefur beðið
algert skipbrot. Sú stefna er ein meginástæða þess að Noregur og
Ísland, sem bæði láta sér annt um hafið, hafa hvorugt gengið í
Evrópusambandið. Þetta er megininntak ítarlegrar umfjöllunar
í tímaritinu The Economist nú um áramótin













