Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

20. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

ESB styrkir til útgerða vegna olíuverðshækkunar

Þegar sjávarútvegsráðherrar ESB landanna hittast í Luxemborg í næstu viku mun olíuverðskrísan verða  helsta umræðuefnið á dagskrá fundarins. Mörg aðildarlönd ESB hafa óskað eftir því að  viðbrögð við háu olíuverði og slæm áhrif þess á afkomu fiskveiða verði rædd. ESB hefur unnið fjölda tillagna um hvernig bregðast megi við ört hækkandi olíuverði og lækka tilkostnað við fiskveiðar í  aðildarlöndunum.

19. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Framtíð sjávarútvegs

Alþjóðleg ráðstefna á Akureyri 12. júní 2008

Þann 12. júní sl. var  haldin athyglisverð aþjóðleg ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri  sem bar yfirskriftina Framtíð sjávarútvegsins. Ráðstefnan var haldin á Hótel KEA og í Borgum, glæsilegum húsakynnum háskólans. Meðal fyrirlesara voru bæði innlendir og erlendir fræðimenn og atvinnurekendur sem teljast margir hverjir fremstir á sínu sviði og fjölluðu þeir um það sem efst er á baugi á þeirra sviði í sjávarútveginum. 

11. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á óslægðum þorski lækkar um 5%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna  11. júní var ákveðið að lækka verð á óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 5% frá og með 11. júní

10. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Ánægja með vinnu í tengslum við íslenskt umhverfismerki

4. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Enn tillögur um samdrátt

3. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Sjávarútvegurinn stendur á traustum grunni

Hjörtur Gíslason, formaður Útvegsmannafélags Reykjavíkur.                               Ræða flutt á sjómannadegi í Reykjavík 2008. 

Þjóð sem er jafn háð veiðum og við Íslendingar verður að standa vörð um sjálfbæra nýtingu fiskistofnanna. Við gerum kröfu til þeirra sem ætla að stjórna landinu að þeir standi vörð um megin kjarnann í nýtingarstefnu þjóðarinnar, sem er sjálfbær nýting náttúruauðlinda.

2. Júní 2008 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á slægðum þorski, slægðri og óslægðri ýsu og karfa lækkar

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 2. júní var ákveðið að lækka verð á slægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um - 8%, slægðri og óslægðri ýsu um - 4% og lækka verð á karfa um - 5% frá og með 1. júní.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta