Fréttir
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Fjöltækniskóli Íslands og Iðnskólinn sameinast
Til verður stærsti framhaldsskóli landsins
Samningur um sameiningu
Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík var undirritaður í
dag. Samkvæmt samningnum mun Menntafélagið ehf. annast rekstur nýs
skóla sem verður stærsti framhaldsskóla landsins og lang stærsti
starfsmenntaskólinn á framhaldsskólastigi með um 2000 nemendur í
reglulegu námi og ef nemendur í kvöldskóla, fjarnámi og á
námskeiðum eru taldir með eru þeir vel yfir 3000. Námsbrautir í
skólanum verða um 40 talsins. Menntafélagið ehf. er í eigu Samtaka
iðnaðarins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samorku, Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík.
Samningurinn er til fimm ára og gildir frá 1. júlí 2008. Viðræður
um sameiningu skólanna hafa staðið í á annað ár.
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Þorskverð hækkar um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 29. febrúar var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 5%. Verð á karfa lækkar um 5% en verð á slægðri og óslægðri ýsu er óbreytt. Breytingar þessar taka gildi frá og með 1. mars. n.k.
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Japönsk stjórnvöld íhuga að taka upp aflamarkskerfi
Japönsk stjórnvöld
íhuga að taka upp aflamarkskerfi með framseljanlegum aflaheimildum.
Þetta kom fram á fundi sem fulltrúar LÍÚ áttu með Dr. Masayuki
Komatsu en hann á sæti í svokallaðri Takagi nefnd um umbætur á
stjórnun veiða við Japan, en miklir erfiðleikar steðja þar að
sjávarútvegi um þessar mundir.













