Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

29. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Stjórnvöld kanni nú þegar kosti einhliða upptöku annars gjaldmiðils

Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur samþykkt eftirfarandi áskorun til stjórnvalda: Stjórn LÍÚ skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil.

27. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Sérlega meiðandi“ að saka LÍÚ um að hindra lýðræðislega umræðu

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir í bréfi til Hrundar Rudolfsdóttur, formanns Samtaka verslunar og þjónustu, sem sent var fyrir stuttu að fullyrðingar hennar um að LÍÚ hafi reynt að hindra lýðræðislega umræðu innan Samtaka atvinnulífsins séu sérlega meiðandi.

27. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Brottkast vottað sem sjálfbærar veiðar innan ESB?

Tvískinnungurinn, sem viðgengst um borð í fiskveiðiskipum ESB-þjóðanna, er harðlega gagnrýndur af norskum útvegsmanni í Fiskeribladet/Fiskaren í vikunni. Hann segir það undarlega þversögn að stunda brottkast með annarri höndinni en nota hina til að innbyrða afla sem síðan hljóti sjálfbærnivottorð aðila á borð við Marine Stewardship Council (MSC).

26. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Misskilningur um makrílkveiðar

Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, vekur athygli á því í grein í Fréttablaðinu í dag að fjölmiðlar, sem sakað hafa Íslendinga um ofveiði á makríl, séu annars vegar að rugla saman veiðum innan íslenskrar lögsögu og hins vegar 20 þúsund tonna úthafskvóta, sem önnur strandríki úthlutuðu Íslandi við gerð samkomulags um makrílveiðar.

25. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Um 500 gestir á opnum degi Brims á Akureyri

Um 500 gestir á öllum aldri sóttu landvinnslu Brims hf. á Akureyri heim á opnum degi sem fyrirtækið efndi til sl. laugardag. Þar var bæjarbúum og öðrum gestum boðið að koma í heimsókn og kynna sér starfsemi fyrirtækisins við Fiskitanga.

24. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Síldarvinnslan býður Hafró aðgang að gögnum

Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur látið setja í skip sín, Börk og Birting, sams konar dýptarmæla og notaðir eru í rannsóknarskipum Hafrannsóknastofnunarinnar. Um leið hefur fyrirtækið boðið stofnuninni aðgang að gögnunum.

24. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Samtök atvinnulífsins og aðild að Evrópusambandinu

Eftirfarandi bréf var sent út til félagsmanna LÍÚ og SF fyrir stundu:

Til félagsmanna LÍÚ og SF.

Frá því að Samtök atvinnulífsins voru stofnuð hefur það legið fyrir að samtökin beiti sér ekki í málefnum sem ganga gegn grundvallarhagsmunun einstakra aðildarsamtaka.

21. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Formaður LÍÚ: Tekst okkur það sem Thatcher og Blair tókst ekki?

Adolf Guðmundsson, nýkjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, er ómyrkur í máli um Evrópusambandið og fiskveiðistefnu þess í viðtali í Fiskifréttum í dag. Frá sjónarhóli íslensks sjávarútvegs höfum við ekkert inn í Evrópusambandið að gera á meðan sjávarútvegsstefna þess er óbreytt.

21. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Málstofa: Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum

Hafréttarstofnun Íslands og Lagadeild Háskóla Íslands efna til málstofu undir yfirskriftinni Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum nk. miðvikudag, 26. nóvember, kl. 12.30 14.00, í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101.

20. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Opinn dagur í landvinnslu Brims á Akureyri

Landvinnsla Brims hf. á Akureyri efnir til opins dags frá kl. 13 16 nk. laugardag, 22. nóvember, þar sem bæjarbúum og öðrum gestum er boðið að koma í heimnsókn og kynna sér starfsemi fyrirtækisins við Fiskitanga.

20. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Ótrúverðugir stuðningsmenn ESB-aðildar

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda, heldur því fram í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í morgun að stuðningsmenn ESB-aðildar verði aldrei trúverðugir nema þeir takist á við þann vanda, sem sjávarútveginum verður búinn með aðild.

19. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Kvótakerfið er grundvöllur arðbærni í sjávarútvegi“

Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, segir í samtali við vefsíðu LÍÚ að hann fái með engu móti skilið þá umræðu að einhver lausn felist í því að riðla núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Kvótakerfið er grundvöllur arðbærni í sjávarútvegi, önnur meginstoðanna sem íslenska þjóðin byggir afkomu sína á, segir Eiríkur.

19. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

ESB freistar þess að bjarga þorskinum

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa samþykkt áætlun sem miðar að því að efla síminnkandi þorskstofna. Greint er frá þessu á vef BBC nú fyrir stundu. Á meðal þess sem grípa á til eru endurbætt veiðarfæri með stærri möskvum jafnframt því sem veiðar verða bannaðar á hrygningarsvæðum.

18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

HB Grandi búinn með síldarkvótann innan norsku lögsögunnar

Skip HB Granda hafa nú lokið við að veiða þann kvóta sem fékk í norsk-íslenskri síld innan norskrar lögsögu. Þetta kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins. Ingunn AK er nú á leiðinni til Trænö í Norður-Noregi með um 390 tonna síldarafla.

18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Norðmenn krefjast banns við brottkasti ESB skipa

Norðmenn vilja binda enda á allt brottkast afla sem veiddur er innan norskrar lögsögu. Fiskiskip, sem gerð eru út frá Evrópusambandslöndum og veitt hafa við Noreg, hafa sniðgengið bann Norðmanna við brottkasti með því að sigla út úr lögsögunni áður en aflanum er kastað fyrir borð.

18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Efla þarf traust á íslensku krónunni“

Formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, Adolf Guðmundsson og Friðrik J. Arngrímsson, hafa sent frá sér hvatningu til útvegsmanna. Þar undirstrika þeir mikilvægi þess að útvegsmenn haldi áfram að flytja gjaldeyri fyrir sölu afurða heim eins fljótt og unnt er til þess að styðja við Áætlun Íslands um efnahagsstöðugleika.

18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Krónan er ykkar styrkur“

Ég veit að það hljómar ekki vel á Íslandi þessa dagana en krónan er engu að síður ykkar styrkur í efnahagsástandi eins og nú ríkir. Danska krónan hjálpaði okkur ekki í kreppunni á sínum tíma, sagði Hermann Oskarsson, hagstofustjóri Færeyja (sjá mynd til hægri), á morgunverðarfundi sem fram fór á Grand Hótel í gær.

17. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Aflaverðmæti til ágústloka 63 milljarðar

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2008 samanborið við 58,5 milljarða á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í morgun. Aflaverðmæti hefur aukist um um 4,6 milljarða eða 7,9% á milli ára. Aflaverðmæti í ágúst nam 8,9 milljörðum miðað við 6,2 milljarða í ágúst 2007.

17. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

NEAFC: Ekkert samkomulag um úthafskarfa á Reykjaneshrygg

Ekki náðist samkomulag um veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg á 27. ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, sem lauk í London á föstudag. Ákveðið var að fresta viðræðum fram í febrúar og veiðar eru óheimilar til 1. apríl.

14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Hvað þarf til þess að komast að samningaborði um makríl?

Hvað þarf til þess að Íslandi verði boðið sæti við samningaborð um makrílveiðar? Þessari spurningu er velt upp í grein eftir Sigurð Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúa LÍÚ, sem birtist í Fiskifréttum í dag. Í greininni spyr hann einnig hvort enn meiri veiðar íslenskra skipa innan lögsögunnar þurfi til þess að hægt sé að semja um veiðar á makríl eins og öðrum deilistofnum í NA-Atlantshafi.

14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Framseljanlegir kvótar framtíðin innan ESB?

Framseljanlegir aflakvótar líkt og þekkjast hér á landi eru á meðal þeirra hugmynda sem nú eru skoðaðar innan Evrópusambandsins. Vinnuhópur, sem kynnti drög sín fyrir skömmu, leggur til að róttækar breytingar verði gerðar á fiskveiðistjórnunarstefnu ESB þegar hún kemur til endurskoðunar árið 2012.

14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Seðlabankinn: Mikilvægi fullnægjandi greiðsluskýringa áréttað

Seðlabanki Íslands hefur á vefsíðu sinni áréttað mikilvægi þess að fullnægjandi skýringar fylgi greiðslufyrirmælum þannig að greiðslur á milli landa tefjist ekki.

14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Skoða þarf vandlega ástæður hugsanlegra erfiðleika

Mikilvægt er fyrir banka og fjármálastofnanir að skoða vandlega ástæður hugsanlegra erfiðleika sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru að glíma við í fjármálakreppunni. Hugsanlega er það betri kostur fyrir viðskiptabankana að afskrifa hluta skuldanna fremur en að ganga hart að annars vel reknum fyrirtækjum.

13. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Um 87,5% kvótans hafa verið keypt“

Sú gagnrýni að útgerðarmenn landsins geri út á gjafakvóta er á veikum grunni byggð því könnun frá því í vor sýndi að um 87,5% aflaheimildanna sem úthlutað var 1984 hafa skipt um hendur og verið keyptar af núverandi útgerðaraðilum. Aðeins um 12,5% upphaflegs kvóta er enn í eigu þeirra sem fengu honum úthlutað, segir Adolf Guðmundsson, nýkjörinn formaður LÍÚ.

12. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Aflamark í kolmunna ákveðið 590.000 tonn

Samkomulag hefur náðst á meðal strandríkja um aflamark í kolmunna fyrir næsta ár. Samkvæmt samkomulaginu verður heimilt að veiða 590.000 tonn. Hlutur strandríkjanna verður 543.043 tonn, þar af fær Ísland 95.739 tonn í sinn hlut.

11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

„Steinum kastað úr skosku glerhúsi“

Þessi frétt á vef BBC um ofveiði okkar á makríl er full af rangfærslum. Til að kóróna vitleysuna er vitnað er í talsmann skosku heimastjórnarinnar, sem kemur ekki einu sinni fram undir nafni í fréttinni. Þegar meintur talsmaður sakar Íslendinga um óábyrgar veiðar er verið að kasta steinum úr skosku glerhúsi, segir Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ.

11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Auðlindin snýr aftur á RÚV

Þátturinn Auðlindin á RÚV, sem á sínum tíma fjallaði um sjávarúvegsmál, hefur göngu sína á ný á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember. Þátturinn verður á samtengdum rásum ríkisútvarpsins alla virka daga kl. 18.15 í kjölfar styttri kvöldfréttatíma. Umsjónarmenn þáttarins verða þeir Karl Eskil Pálsson og Þórhallur Jósepsson.

11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

IntraFish: „Stinky fish“ herferðin mistókst

Stinky fish herferð World Wildlife Fund, WWF og Marine Stewardship Council, MSC, snerist svo í höndum samtakanna að þau urðu að endingu að draga hana til baka. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði sjávarútvegsfréttablaðsins IntraFish, þar sem það tekur saman  Það besta og versta á árinu 2008.

11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Aukinn botnfiskafli í október

Heildarbotnfiskafli íslenskra fiskiskipa í október varð 9,3% meiri en í október í fyrra. Alls nam veiðin 41.413 tonnum í samanburði við 37.899 tonn í sama mánuði á síðasta ári. Heildaraflinn í nýliðnum mánuði var hins vegar 6,9% minni en í október 2007. Í ár veiddust alls 91.408 tonn en 98.132 í sama mánuði í fyrra.

10. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Rangir slægingarstuðlar: Hve mörg kíló eru í einu tonni?

Hve mörg kíló eru í einu tonni? Eru þau 1000 eða aðeins 933,3? Svarið er ekki eins augljóst og ætla mætti, a.m.k. ekki þegar kemur að því að vigta fisk við löndun. Það er nefnilega ekki sama hver landar. Þessari mismunun var velt upp í grein Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, í Fiskifréttum fyrir nokkru.

10. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Geymsluréttur aflamarks verði 33% í stað 20%

Fyrsta umræða um frumvarp Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða fer fram á Alþingi í dag. Breytingarfrumvarpið felur í sér að heimilt verður að flytja 33% aflamarks í botnfiski milli fiskveiðiára í stað 20%.

7. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Spá auknum botnfiskafla í heiminum á næsta ári

Botnfisksafli í heiminum kemur til með að aukast lítillega á árinu 2009. Þetta mat sérfræðinga kom fram á Groundfish Forum-ráðstefnunni, sem fram fór í Prag fyrir skemmstu.

6. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Nýta þarf upplýsingar útgerðarinnar við stofnstærðarmat

Við stofnstærðarmat er nauðsynlegt að nýta þær upplýsingar sem fyrir hendi eru í sjávarútvegsfyrirtækjunum. Óþarfi er að eyða fjármunum og fyrirhöfn í að sækja gögn sem þegar liggja fyrir. Þetta kom m.a. fram í erindi  Kristjáns Vilhelmssonar, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, á aðalfundi LÍÚ í síðustu viku og Fiskifréttir fjalla ítarlega um í dag.

5. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Innan ESB hefðum við hent milljarðaverðmætum í sjóinn

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir gagnrýni fulltrúa Evrópusambandsins á makrílveiðar Íslendinga í eigin lögsögu beinlínis hjákátlega. Gagnrýnin kom fram á fundi strandríkja í London í síðustu viku, þar sem heildarmakrílkvótinn í NA-Atlantshafi á næsta ári var ákveðinn 625.000 tonn að sögn norska blaðsins Fiskaren.

4. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Joe Borg: Endurskoða þarf fiskveiðistjórnunarkerfi ESB

Joe Borg, fiskimálastjóri ESB, segir alvarleg brot á reglum fiskveiðistjórnunarkerfis sambandsins undirstrika nauðsyn þess að endurskoða kerfið. Án virkrar stjórnunar tekst okkur aldrei að snúa af þeirri braut hnignunar sem nú einkennir evrópskan sjávarútveg, segir hann.

3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Síldarhólfið við Noreg opnað á ný

Búið er að opna aftur síldarveiðihólfið, þar sem íslensku skipin Hákon EA, Vilhelm EA og Guðmundur VE voru tekin fyrir að hafa veitt fyrir skömmu.

3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Ný stjórn LÍU kjörin á aðalfundi

Á aðalfundi LÍÚ 2008, sem lauk á föstudag var Adolf Guðmundsson, Seyðisfirði kosinn nýr formaður. Einnig komu tveir nýir menn inn í stjórn, þeir Haukur Björnsson, Eskifirði og Ægir Páll Friðbertsson, Vestmannaeyjum.

3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN

Úrskurðarnefnd hækkar verð um 3%

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 3. nóvember, var ákveðið að hækka verð á slægðum þorski, slægðri og óslægðri ýsu svo og karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila, um 3% frá og með 3. nóvember.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta