Fréttir
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Eigendur gjaldeyris hvattir til að bjóða hann til sölu
Seðlabankinn hvetur í frétt á vefsíðu
sinni útflytjendur og aðra þá sem eiga gjaldeyri eindregið til að
bjóða hann til sölu á tilboðsmarkaði. Með því telur bankinn að ætla
megi að unnt sé að auka veltu og styrkja verðmyndun á
tilboðsmarkaðnum. Eru þeir beðnir að snúa sér til
fjármálafyrirtækja sem eiga viðskipti við Seðlabankann og
fela þeim að koma tilboðum sínum á framfæri.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Adolf Guðmundsson kjörinn formaður LÍÚ
Adolf Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn
formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á 69. aðalfundi
samtakanna sem lauk í dag. Adolf tekur við formennsku af Björgólfi
Jóhannssyni sem verið hefur formaður LÍÚ sl. fimm ár.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Breytingar á kvótakerfinu „óábyrgt tal“
Breytingar á kvótakerfinu
koma ekki til greina að mati Geirs H. Haarde, forsætisráðherra.
Þetta kom fram í ávarpi hans á aðalfundi LÍÚ sem lauk fyrr í dag.
Allt tal um slíkt er fullkomlega óábyrgt, sagði ráðherrann.
Hann bætti því við að þegar að því kæmi að þorskkvóti yrði aukinn
myndu þeir njóta þess sem harðast hefðu orðið úti í niðurskurði
aflaheimilda.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ 2008: Mismunun verði afnumin
Samþykkt var á aðalfundi
Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag að beina því til
sjávarútvegsráðherra að tilflutningur aflaheimilda á milli
útgerðaflokka verði stöðvaður. Þannig verði línuívilnun og
byggðakvóti felld niður og slægingarstuðull leiðréttur.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Veraldarvinir hljóta Umhverfisverðlaun LÍÚ 2008
Samtökin Veraldarvinir hlutu
í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2008 fyrir mikilvægt framlag við
hreinsun strandlengju Íslands. Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra afhenti Þórarni Ívarssyni, forsvarsmanni
samtakanna, verðlaunin á 69. aðalfundi LÍÚ sem hófst í dag.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Hagsmunir Íslands eru best tryggðir utan ESB
Björgólfur Jóhannsson,
fráfarandi formaður LÍÚ, sagði í ræðu sinni á aðalfundi sambandsins
í dag að hann væri algerlega ósammála þeim sjónarmiðum að Íslandi
sé fyrir bestu að gerast aðilar að Evrópusambandinu. Hann sagðist
telja þegar íslenskur almenningur kynnti sér betur hvernig að
þessum málum er staðið yrði honum ljóst að að hagsmunir Íslands eru
best tryggðir utan ESB.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn burðarás íslenskt efnahagslífs
Við höfum kallað
sjávarútveginn burðarás efnahagslífsins á Íslandi og það hefur hann
sannarlega verið, sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra
m.a. í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ fyrr í dag. Hann bætti því við að
nú yrði lögð enn meiri ábyrgð á herðar greinarinnar.
28. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Þingmenn frá Evrópuþinginu í heimsókn
Hópur þingmanna frá
Evrópuþinginu sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í gær og átti fund með
forvígismönnum samtakanna. Staða efnahagsmála sem og staða
sjávarútvegsins var erlendu gestunum sérstaklega hugleikin.
28. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Fiskkaupmenn í Hull og Grimsby gripu til eigin ráða
Þegar sýnt var að fjöldi
hefðbundinna Fishnchips verslana á NA-Englandi yrði uppiskroppa með
íslenskan fisk vegna tregðu í bankamillifærslum á milli Bretlands
og Íslands gripu samtök fiskkaupmanna á Humber-svæðinu í Englandi
(Hull og Grimsby) til sinna eigin ráða.
24. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ 2008 haldinn 30. og 31. október
Aðalfundur LÍÚ, sá 69. í röðinni, verður haldinn á Hilton Nordica Hótelinu dagana 30. og 31. október næstkomandi.
23. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Ísland sendir áheyrnarfulltrúa á strandríkjafund um makrílkvóta
Stefán Ásmundsson,
skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins staðfestir í samtali við Fiskifréttir, að
ákveðið hafi verið að þekkjast boð um að senda áheyrnarfulltrúa á
strandríkjafund um makrílkvóta næsta árs. Fundurinn verður í London
í næstu viku. Þetta kemur fram á vefsíðunni skip.is í
morgun.
22. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Danir leita ásjár ESB vegna makrílveiða í íslenskri landhelgi
Ég átta mig ekki alveg á því
af hverju Danirnir eru að biðja Evrópusambandið um að hlutast til
um hvernig við högum veiðum á deilistofnum innan okkar landhelgi.
ESB hefur ekkert um það segja þannig að þetta fellur um sjálft
sig, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
21. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aflahefti Fiskistofu 2007/2008 er komið út
Fiskistofa gefur út aflahefti að loknu
hverju fiskveiðiári. Hefti fyrir síðasta fiskveiðiár er nýkomið út.
Aflaheftið
inniheldur uppgjör fiskveiðiársins. Aflinn borinn saman við
aflaheimildir. Settar eru fram ýmsar upplýsingar um veiðarnar og
viðskipti með aflaheimildir á nýliðnu fiskveiðiári með samanburði
við nokkur síðustu fiskveiðiára.
21. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Umboðsmaður Alþingis átelur seinagang ráðuneytis
Umboðsmaður Alþingis átelur í nýútkominni
skýrslu sinni seinagang stjórnvalda við að svara fyrirspurnum sem
þeim berast. Um er að ræða mál er varða m.a. úthlutun byggðakvóta.
Í skýrslunni tiltekur hann fimm mál sem send voru sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu frá desember 2007 og fram í febrúar
2008. Við ritun skýrslunnar um miðjan ágúst voru svör
enn ókomin.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti 54 milljarðar fyrstu 7 mánuði ársins 2008
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 54
milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2008 samanborið við
52,2 milljarða á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í
morgun. Aflaverðmæti hefur aukist um um 1,8 milljarða eða 3,4% á
milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 8,7 milljörðum miðað við 5,7
milljarða í júlí 2007.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Ákveðið að auka þorskkvóta um 20% í Barentshafi
Samkomulag hefur náðst á milli Norðmanna
og Rússa um að auka þorskkvóta í Barentshafi um 20% frá
yfirstandandi ári. Kvótinn verður 525.000 tonn fyrir árið 2009.
Hlutdeild Íslands í leyfilegum heildarafla þorsks er 1,85%,
sem svarar til ríflega 9.700 tonna upp úr sjó.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Útgerðin í herkví vegna vandamála með greiðsluflæði
Starfsemi margra útgerðarfyrirtækja er í
óvissu sökum vandamála með greiðsluflæði á milli landa. Ein
meginorsök greiðsluflæðivandans er að endurreistir viðskiptabankar
eru ekki til í alþjóðlegum greiðslukerfum.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
ÁRÍÐANDI FRÉTT - Opnað fyrir millifærslur fjármagns í Bretlandi
Breska fjármálaráðuneytið hefur sent frá
sér yfirlýsingu, Financial Sanctions Notice, til allra banka í
Bretlandi, þar sem tilkynnt er að opnað hafi verið fyrir allar
millifærslur fjármagns til Íslands í gegnum breska banka og einnig
Landsbankann ef ljóst er að ekki sé verið að flytja frysta eignir
Landsbankans til Íslands.
16. Október 2008 | ÚTVEGURINN
„Við munum komast í gegnum þetta“
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, var í viðtali í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Hann
sagði efnahagsáföll síðustu vikna vissulega hafa komið illa við
útgerðarfyrirtæki eins og aðra. Það er ljóst að ýmis
sjávarútvegsfyrirtæki eru að tapa mjög miklum peningum á
fjárfestingum í fjármálakerfinu, sagði Friðrik en bætti við: Við
munum komast í gegnum þetta.
16. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Góð veiði Þerneyjar á nýopnuðu karfahólfi
Frystitogarinn Þerney RE 101
kom til hafnar í Reykjavík á þriðjudagsmorgun með um 410 tonn af
frystum afurðum eftir mánaðarlangt úthald. Uppistaða aflans var
karfi sem veiddur var á karfahólfi út af Víkurál sem verið var að
opna eftir áralanga lokun. Þetta kemur fram á vefsíðu HB
Granda.
15. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn í tölum 2008
Heftið Sjávarútvegurinn í tölum 2008 er komið út á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Í þessu handhæga riti eru teknar saman helstu upplýsingar um íslenskan sjávarútveg, m.a. yfirlit yfir aflabrögð í meira en heila öld og hlutfall sjávarútvegs í vergri landsframleiðslu. Margvíslega aðra tölfræði er að finna í ritinu sem sett er fram á aðgengilegan hátt. Sérstök athygli er vakin á tengli á skýrsluna í PDF-formi á upphafssíðu vefs LÍÚ.
15. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aukin aflabrögð í september
Heildarbotnfiskafli íslenskra fiskiskipa
nam 68.030 tonnum í september, sem er 33% meira en í sama mánuði á
síðasta ári. Aflinn var þá 51.075 tonn. Metinn á föstu verði
er aflinn 22,3% meiri en í september 2007. Það sem af er árinu
hefur aflinn hins vegar dregist saman um 4,1% miðað við sama
tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði.
14. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Blásið á tillögur Frjálslyndra
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, blés í viðtali við ríkissjónvarpið í gærkvöld
á tillögur Frjálslynda flokksins um að ríkið leysti til sín allan
kvóta, yfirtæki skuldir sjávarútvegsins og setti í
auðlindasjóð. Friðrik sagði þjóðarbúið þegar hafa tekið á sig
nægar skuldir.
13. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Óhætt að heimila auknar þorskveiðar
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir í viðtali í nýjasta tölublaði Fiskifrétta óhætt að
heimila auknar þorskveiðar. Í viðtalinu vísar hann til þess að LÍÚ
hafi á síðasta ári lagt til að heimilað yrði að veiða 155-160
þúsund tonn af þorski og einnig á yfirstandandi fiskveiðiári. Sú
skoðun okkar hefur ekki breyst.
13. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Auknar veiðar á norsk-íslenskri síld lagðar til
Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til
að veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum verði auknar í 1643
þúsund lestir á næsta ári. Þetta er aukning upp á ríflega 8% frá
síðustu ráðgjöf ráðsins. Kvóti Íslands í síldarstofninum fer
við þetta úr 220 þúsundum lesta í rúmlega 238 þúsund lestir.
10. Október 2008 | ÚTVEGURINN
LÍÚ ræður forstöðumann kynningarmála
Sigurður Sverrisson tók þann 1.
október sl. við starfi forstöðumanns upplýsinga- og
kynningarmála hjá LÍÚ.
9. Október 2008 | ÚTVEGURINN
FAO hrósar íslenskri fiskveiðistjórnun
Ísland og Nýja-Sjáland, ásamt
Ástralíu og Bandaríkjunum að hluta, eru nefnd sem dæmi um lönd þar
sem ábyrgri fiskveiðistjórnun er framfylgt. Þar er þó enn hægt að
gera betur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá FAO,
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Fréttavefur BBC
greindi frá þessu í gær.
8. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Íslenskt merki um ábyrgar
fiskveiðar Íslendinga var kynnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni
um síðustu helgi. Merkið er markaðstæki fyrir íslenska
framleiðendur sjávarafurða og viðbrögð við kröfum markaða um að
sjávarafurðir komi úr fiskistofnum, sem nýttir eru á ábyrgan
hátt.
8. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á óslægðum þorski hækkar um 7%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna í dag, 8. október, var ákveðið að hækka verð á óslægðum
þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra
aðila um 7% frá og með 8. október.
6. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Framúrskarandi fyrirtæki
Bergur-Huginn ehf.
í Vestmannaeyjum fékk verðlaun sem framúrskarandi
íslensk útgerð þegar Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2008 voru
afhent í Turninum í Kópavogi fyrir helgina. Í flokki
framúrskarandi fiskvinnslu fékk Skinney-Þinganes hf.
viðurkenningu.
3. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Kristján heiðraður fyrir framlag sitt
Kristján Ragnarsson, fyrrum
formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, var í gær heiðraður fyrir
framúrskarandi framlag sitt til íslensks sjávarútvegs. Verðlaunin
hlaut hann í hófi þar sem Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2008 voru
afhent.













