Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

31. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Viðmiðunarverð á þorski hækkar um 8% og ýsu um 7% þann 1. febrúar.

Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 31. janúar var ákveðið að hækka verð á þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 8% og ýsu um 7% frá og með 1. febrúar n.k  Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt.

 

11. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Álitið hefur ekkert lagalegt gildi á Íslandi

9. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Nýting loðnustofnsins, áhrif veiða og staða rannsókna

Hafrannsóknastofnunin svarar bréfi LÍÚ um nýtingu loðnustofnsins og áhrif veiða.

Aðalfundur LÍÚ 2005 ályktaði um mikilvægi rannsókna á loðnu og beindi því til sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknastofnunarinnar að loðnurannsóknir yrðu auknar til muna, en loðnan gegnir afar mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar við Ísland. 

9. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Lífleg ráðstefna um menntun og atvinnulíf

Menntun og atvinnulíf var yfirskrift ráðstefnu sem haldin var í Fjöltækniskóla Íslands í gær 8. janúar.  Markmið ráðstefnunnar var að efla umræðuna á milli þeirra er starfa innan skólakerfisins og aðila atvinnulífsins.

3. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Útgerðarmenn kjörnir Eyjamaður ársins 2007

Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum hafa verið kjörnir Eyjamaður ársins 2007 af vikublaðinu Fréttum, en blaðið veitir árlega verðlaun, svokallaðan Fréttapíramída, til að vekja athygli á þeim einstaklingum, fyrirtækjum og félögum sem skara framúr vegna elju og dugnaðar. Að þessu sinni þótti við hæfi að velja hóp manna í stað þess að velja einstakling, en á árinu voru útvegsmenn duglegir við að endurnýja skipakost sinn og komu sex ný skip til Vestmannaeyja, Guðmundur, Vestmannaey, Bergey, Gullberg, Álsey og loks Dala Rafn. Þá eru a.m.k. þrjú skip í smíðum fyrir Eyjamenn.

3. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN

Afhentu sjúkrahúsinu í Eyjum veglega gjöf

Núverandi og fyrrverandi útgerðarmenn í Vestmannaeyjum, í samvinnu við kvennfélagið Líkn, afhentu Sjúkrahúsi Vestmannaeyja nýlega sjúkrarúm og tæki að andvirði 38 milljóna króna. 


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta