Fréttir
30. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Trúir aldrei að þjóðin samþykki afsal auðlinda
Hvers vegna er fiskveiðiauðlindin eina
auðlindin sem Evrópusambandið stjórnar sameiginlega? spyr Eiríkur
Tómasson, varaformaður LÍÚ, í samtali við vefsíðu sambandsins. Hann
segist hafa velt þessu mikið fyrir sér og komist að því að
skýringanna sé fyrst og fremst að leita í sögubókum og langvarandi
deilum um nýtingu Norðursjávarins. Með því að hafa sameiginlegt
forræði mætti forðast að ýfa upp gömul sár.
23. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Ekki hægt að bera saman sjávarútveg á Íslandi og á Möltu
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, sagði á fundi auðlindahóps Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins
í Valhöll í gær að óraunhæft væri að bera saman sjávarútveg á
Íslandi og á Möltu. Hann sagði að raunhæfara væri að horfa til
Norðmanna með samanburð. Þeir hefðu ekki fengið neinar varanlegar
undanþágur í samningaviðræðum við Evrópusambandið árið 1994.
22. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Aldrei verið kynnt hvað aðild Íslands að ESB myndi kosta“
Eins og sjávarútvegsstefna ESB
er nú myndi íslenskur sjávarútvegur búa við mun lakari
rekstrarskilyrði með aðild að ESB en utan sambandsins. Innan ESB
myndum við ekkert hafa um það að segja hvernig veiðum úr
deilistofnum við Ísland yrði háttað. Þetta á t.d. við um loðnu og
makríl. ESB hefur ekki viljað viðurkenna okkar strandríkisrétt og
hleypa okkur að samningaborðinu um skiptingu makrílkvótans í
Norður-Atlantshafi, segir Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í
ítarlegu viðtali við tímaritið Ægi sem kemur út í dag.
22. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Illa grundaðri“ kæru vísað frá Mannréttindadómstóli Evrópu
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur vísað frá kærumáli Björns Guðna Guðjónssonar gegn íslenska
ríkinu um bann við grásleppuveiðum í netlögum. Dómstóllinn lýsti
kæruna ótæka þar sem hún þótti augljóslega illa grunduð
(manifestly ill-founded), sbr. 3. mgr. 35. gr.
mannréttindasáttmálans. Þetta kemur fram í Andrá, vefriti um
sjávarútveg og landbúnað.
19. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Fyrirtækjum heimilað að gera upp í erlendri mynt fyrir árið 2008
Alþingi hefur samþykkt ný lög, þar sem
fyrirtækjum er heimilað að gera upp ársreikninga sína í erlendri
mynt fyrir árið 2008.
19. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Færði VMA tveggja milljóna króna styrk LÍÚ
Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri
útgerðarsviðs Samherja, afhenti í dag Verkmenntaskólanum á
Akureyri, VMA, tveggja milljóna króna styrk frá LÍÚ. Svo
skemmtilega vill til að á þessu ári eru 100 ár frá stofnun
Útvegsmannafélags Norðurlands. Peningunum er ætlað að styrkja
vélstjórnarbraut VMA sem er eini skólinn utan höfuðborgarsvæðisins
sem útskrifar 4. stigs vélstjóra.
18. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Heimilt að veiða tæp 3000 tonn af þorski í Barentshafi
Á grundvelli samnings á milli
Íslands og Rússlands frá 1999 verður íslenskum skipum heimilt að
veiða 2937 tonn af þorski auk meðafla á næsta ári í rússneskri
lögsögu í Barentshafi. Samkvæmt samningnum stendur Íslendingum
jafnframt til boða að kaupa 1763 tonn af þorski, ef um semst. Þetta
var ákveðið á níunda fundi samstarfsnefndar Íslands og Rússlands um
tiltekna þætti sjávarútvegsmála sem lauk í Reykjavík í gær, 17.
desember.
17. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
AP: Ísland í kreppu - framtíðin er í fiskinum
Sjávarútvegur er leið Íslands út úr
þeirri kreppu sem landið er í. Þetta er inntak ítarlegrar
fréttaskýringar Associated Press, AP, í gær um efnahagsástandið á
Íslandi. Fyrirsögn úttektarinnar er Crisis-hit Iceland sees
its futute in fish sem útleggja mætti Ísland í kreppu framtíðin er
í fiskinum.
17. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Jafnræði með ESB-sinnum og andstæðingum í könnun SA
Af þeim sem tóku afstöðu svöruðu alls
51,6% aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins játandi og 48,6%
neitandi þegar spurt var í könnun samtakanna: Vill þitt fyrirtæki
að SA beiti sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru sem
gjaldmiðils á Íslandi? Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar
í gær.
17. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Nýr kjarasamningur sjómanna og útvegsmanna undirritaður í dag
Nýr kjarasamningur sjómanna
og útvegsmanna var undirritaður í húsakynnum ríkissáttasemjara í
dag. Samningurinn tekur annars vegar til Sjómannasambands Íslands,
Alþýðusambands Vestfjarða, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands
og VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna og hins vegar
Landssambands íslenskra útvegsmanna.
16. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Bestu fréttir í langan tíma“
Þetta eru bestu fréttir sem við höfum
fengið í langan tíma, segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, í frétt breska vefmiðilsins FISHupdate.com í
dag. Þar greinir frá því, að niðurstöður haustmælinga
Hafrannsóknastofnunarinnar hafi verið mjög jákvæðar og leiði að
líkindum til þess að aflaheimildir í þorski við Ísland verði
auknar. Það þýði með öðrum orðum að meira framboð verði á
Bretlandseyjum af þorski af Íslandsmiðum.
15. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Aflinn í nóvember 10,7% meiri en í sama mánuði í fyrra
Heildarafli íslenskra skipa nam 117.584
tonnum í nýliðnum nóvember og var ríflega 10,7% meiri en í sama
mánuði á síðasta ári er hann var 106.168 tonn. Sé aflinn metinn á
föstu verði var hann 4,1% meiri í nóvember í ár en í fyrra. Það sem
af er árinu hefur afli, metinn á föstu verði, dregist saman um 3,5%
frá árinu 2007.
12. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Haustmælingar Hafró: „Ánægjulegar niðurstöður um þorskstofninn“
Þetta eru ákaflega ánægjulegar niðurstöður
sem vonandi gefa fyrirheit um að þorskstofninn sé að rétta úr
kútnum, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Hafrannsóknastofnunin sendi í morgun frá sér tilkynningu um
niðurstöðu haustmælinga á stofnstærð botnfiska. Þar kemur fram að
heildarvísitala þorsks er nú 10% hærri en hún hefur áður mælst í 12
ára sögu mælinganna.
11. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Verð á díselolíu kemur til með að lækka umtalsvert
Lífrænt eldsneyti er engin framtíðarlausn
og verð á díselolíu kemur á næstu tveimur árum til með að leita
jafnvægis gagnvart bensíni og lækka umtalsvert. Þetta var á meðal
þess sem kom fram á fyrirlestri Lucian Pugliaresi, stjórnarformanns
Energy Policy Research Foundation rannsóknastofnunar í orkumálum, í
Háskóla íslands í gær.
11. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
LÍÚ styður Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2009
Landssamband íslenskra útvegsmanna verður
á meðal stuðningsaðila Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda,
NKG, árið 2009. Samningur þar að lútandi var undirritaður fyrr
í dag. Sjávarútvegur er í fyrsta sinn sérstakur flokkur í
keppninni en alls eru þeir sex. Keppnin, sem fór fyrst fram árið
1992 hefur vaxið mjög að umfangi. Í fyrra voru umsóknir 3640
talsins en voru sem dæmi aðeins 75 fyrsta árið.
10. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Hvalkjötið mætir kröfum neytenda um hreinleika og hollustu“
Þetta eru að sjálfögðu jákvæð tíðindi en
koma okkur ekkert á óvart. Þetta er aðeins staðfesting þess að
hvalkjötið uppfyllir allar þær geysilega ströngu kröfur sem
japanskt matvælaeftirlit gerir, segir Kristján Loftsson,
framkvæmdastjóri Hvals hf. Innflutningsleyfi fyrir 65 tonnum
af hvalkjöti frá Íslandi var nýverið gefið út í Japan.
9. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Gjaldmiðilsbreyting kallar á ábyrga efnahagsstjórn
Við tókum upp dollar í janúar
árið 2000. Þetta varð til þess að stöðugleiki komst á
fjármálamarkaði og efnahagsbatinn varð skjótur, sagði Alonso Perez,
sem var efnahagsráðgjafi forseta Ekvador árið 1999 þegar ákveðið
var að taka einhliða upp dollar í kjölfar mikillar kreppu. Á
aðeins þremur vikum gekk ferlið í gegn og í kjölfarið var farið í
umfangsmiklar endurbætur á stjórn- og efnahagskerfi landsins. Alger
viðsnúningur varð í kjölfarið.
9. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
SF: Skorað á stjórnvöld að kanna einhliða upptöku nýs gjaldmiðils
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva
samþykkti einróma á fundi sínum á föstudag ályktun, þar sem skorað
er á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp
annan gjaldmiðil í stað krónunnar. Samtökin feta þar með í fótspor
LÍÚ sem sendi sambærilega áskorun frá sér fyrir skömmu.
9. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Ársæll: Einhliða upptaka evru vel fær - Ásgeir: Nú er ekki rétti tíminn
Ársæll Valfells, lektor við
Háskóla Íslands, segir að einhliða upptaka evru sé vel fær kostur.
Þegar séu þekkt dæmi um slíkar umbreytingar í þremur heimsálfum. Í
öllum tilvikum hafi verið gripið til þeirra vegna neyðaraðstæðna
þar sem gengi gjaldmiðils viðkomandi þjóðar hafi verið hrunið.
9. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Lögbundið lágmarksverð inngrip í frjáls viðskipti
Einar Valur Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal, telur að
fella eigi út ákvæði um að lögbinda skuli lágmarksverð á afla, sem
fyrirhugað er að selja úr landi eins og lagt er til í frumvarpi sem
lagt hefur verið fram á Alþingi. Einar Valur segir ákvæðið inngrip
í frjáls viðskipti á milli aðila og að það geti leitt til þess að
viðskipti eigi sér síður stað. Þannig sé orðin til mótsögn við
upphaflegan tilgang frumvarpsins.
8. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Samherji veitir 50 milljónum til samfélagsmála
Útgerðarfélagið Samherji á
Akureyri tilkynnti í gær að það hygðist verja 50 milljónum króna
til samfélagsverkefna á Akureyri. Tilefnið er að í gær voru 25 ár
liðin frá því að fyrsta skip Samherja, Akureyrin, fór í sína fyrstu
veiðiferð. Að stærstum hluta rennur framlagið til lækkunar á
æfingagjöldum barna og unglinga í íþróttum og til greiðslu
kostnaðar við keppnisferðir þeirra í vetur.
8. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
IntraFish: Vilja evru en ekki aðild að ESB
Það er útbreitt sjónarmið að upptaka nýs
gjaldmiðils sé eina leiðin út úr núverandi stöðu en forvígismenn
sjávarútvegsins eru andvígir aðild að Evrópusambandinu þar sem það
hefði í för með sér að sjávarútvegur á Íslandi yrði settur undir
illa þokkaða sjávarútvegsstefnu sambandsins, segir í frétt á
vefsíðunni IntraFish.
5. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Gáfu Mæðrastyrksnefnd 4,2 tonn af ýsuflökum
Síldarvinnslan hf. hefur fært
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur fjögur bretti af sjófrystum ýsuflökum.
Alls er um að ræða 4,2 tonn. Flytjandi lagði Síldarvinnslunni
lið og tók að sér að flytja farminn án endurgjalds til
Reykjavíkur.
5. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Einhliða upptaka evru tæki 4 vikur og kostaði 80 milljarða
Kostnaður við einhliða upptöku evru yrði
80 milljarðar króna, sem færi til að skipta út
grunninnistæðum. Einhliða upptaka evru tekur að hámarki fjórar
vikur. Umsóknarferli fyrir fullgilda aðild að ESB tæki aldrei
skemmri tíma en fjögur ár að viðbættum þriggja ára aðlögunartíma
þar sem Maasticht-skilyrðin þurfa að nást. Þetta er mat Heiðars Más
Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Novator.
4. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Síldarsýkingin „dapurleg“ eftir uppbyggingu stofnsins
Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra sagði í ræðu á þingi Sjómannasambands Íslands
í morgun, að það væri dapurlegt að standa frammi fyrir þeirri
óvissu sem sýking í síldinni hefði skapað eftir að hafa byggt upp
síldarstofninn með einstaklega varkárri nýtingarstefnu á
undanförnum árum.
3. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Innganga í ESB ávísun á viðvarandi atvinnuleysi og launalækkun
Adolf Guðmundsson, formaður
LÍÚ, hélt því fram í þættinum Okkar á milli á Rás 1 í morgun,
að innganga í Evrópusambandið væri ávísun á viðvarandi atvinnuleysi
og launalækkun. Hann lagði áherslu á að lítið hefði farið fyrir
göllunum við ESB-aðild í umræðunni. Kostirnir hefðu hins vegar
óspart verið tíundaðir. Adolf sagði að samkvæmt tölum fyrir mánuði
væri 17,7% fólks undir 25 ára innan ESB án atvinnu.
3. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Fiskneysla mæðra stuðlar að auknum þroska ungbarna
Aukin fiskneysla mæðra
tengist bættum líkamlegum og vitsmunalegum þroska ungbarna samkvæmt
niðurstöðum danskrar rannsóknar sem kynnt var nýverið. Frá
þessu er greint á vefsíðunni HealthDay.
2. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Aðgerðir kynntar til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja
Vinnuhópur á vegum
ríkisstjórnarinnar, sem hefur að undanförnu unnið að því að
móta áætlun um brýnar aðgerðir til að bregðast við þeim þrengingum
sem þjóðin gengur nú í gegnum, lagði í dag fram tillögur sem hafa
það að markmiði að mæta vanda atvinnulífsins. Fyrstu tillögur um
úrbætur í þágu heimilanna hafa þegar verið samþykktar í
ríkisstjórninni.
2. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Sníkjudýr í síldinni er mikið áfall”
Greining sníkjudýrs í síldinni nú allra
síðustu daga er okkur mikið áfall. Þótt sníkillinn sé hvorki
skaðlegur mönnum né öðrum spendýrum er ljóst að hærra hlutfall
aflans fer til bræðslu en ella. Það eitt út af fyrir sig veldur
tekjutapi fyrir sjávarútveginn, segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ.
1. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Stórtíðindi“ segir ráðherra um áskorun LÍÚ til stjórnvalda
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, segir á vefsíðu sinni um helgina að áskorun LÍÚ
til stjórnvalda um að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða
upp annan gjaldmiðil séu stórtíðindi í umræðum um krónuna og
framtíð hennar.
1. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
„Brýnt að efla starfsemi Landhelgisgæslunnar“
Þessar fréttir af ítrekuðum
meintum ólöglegum veiðum færeyskra skipa í íslenskri lögsögu sýna
betur en nokkuð annað hve brýnt er að efla starfsemi
Landhelgisgæslunnar. Hún hefur um árabil verið í fjársvelti. Gæslan
sinnir ekki aðeins eftirliti heldur er öryggishlutverk hennar afar
mikilvægt fyrir íslenska sjómenn, segir Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ.
1. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Norsk-íslenski síldarkvótinn við Noreg allur veiddur
Íslensk skip eru búin að veiða allt
aflamark Íslands í norsk-íslenskri síld í norskri lögsögu á árinu
2008. Tilkynning þessa efnis hefur borist Fiskistofu. Aflamarkið
var alls 40.986 lestir. Þar með er norsk lögsaga lokuð fyrir
frekari síldveiðum íslenskra skipa á þessu ári, segir á vef
Fiskistofu.
1. Desember 2008 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð um 9-15%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 1. desember, var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila, um 9%. Verð á slægðri og óslægðri ýsu var hækkað um 10% og á slægðum og óslægðum karfa um 15%. Verðbreytingin gildir frá og með 1. desember.
29. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Stjórnvöld kanni nú þegar kosti einhliða upptöku annars gjaldmiðils
Stjórn Landssambands íslenskra
útvegsmanna hefur samþykkt eftirfarandi áskorun til stjórnvalda:
Stjórn LÍÚ skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að
taka einhliða upp annan gjaldmiðil.
27. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Sérlega meiðandi“ að saka LÍÚ um að hindra lýðræðislega umræðu
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir í bréfi til Hrundar Rudolfsdóttur, formanns Samtaka
verslunar og þjónustu, sem sent var fyrir stuttu að fullyrðingar
hennar um að LÍÚ hafi reynt að hindra lýðræðislega umræðu innan
Samtaka atvinnulífsins séu sérlega meiðandi.
27. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Brottkast vottað sem sjálfbærar veiðar innan ESB?
Tvískinnungurinn, sem
viðgengst um borð í fiskveiðiskipum ESB-þjóðanna, er harðlega
gagnrýndur af norskum útvegsmanni í Fiskeribladet/Fiskaren í
vikunni. Hann segir það undarlega þversögn að stunda brottkast með
annarri höndinni en nota hina til að innbyrða afla sem síðan hljóti
sjálfbærnivottorð aðila á borð við Marine Stewardship Council
(MSC).
26. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Misskilningur um makrílkveiðar
Sigurður Sverrisson,
upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, vekur athygli á því í grein í
Fréttablaðinu í dag að fjölmiðlar, sem sakað hafa Íslendinga um
ofveiði á makríl, séu annars vegar að rugla saman veiðum innan
íslenskrar lögsögu og hins vegar 20 þúsund tonna úthafskvóta, sem
önnur strandríki úthlutuðu Íslandi við gerð samkomulags um
makrílveiðar.
25. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Um 500 gestir á opnum degi Brims á Akureyri
Um 500 gestir á öllum aldri
sóttu landvinnslu Brims hf. á Akureyri heim á opnum degi sem
fyrirtækið efndi til sl. laugardag. Þar var bæjarbúum og öðrum
gestum boðið að koma í heimsókn og kynna sér starfsemi
fyrirtækisins við Fiskitanga.
24. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Síldarvinnslan býður Hafró aðgang að gögnum
Síldarvinnslan í Neskaupsstað hefur látið
setja í skip sín, Börk og Birting, sams konar dýptarmæla og notaðir
eru í rannsóknarskipum Hafrannsóknastofnunarinnar. Um leið hefur
fyrirtækið boðið stofnuninni aðgang að gögnunum.
24. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Samtök atvinnulífsins og aðild að Evrópusambandinu
Eftirfarandi bréf var sent út til
félagsmanna LÍÚ og SF fyrir stundu:
Til félagsmanna LÍÚ og SF.
Frá því að Samtök atvinnulífsins voru stofnuð hefur það legið fyrir að samtökin beiti sér ekki í málefnum sem ganga gegn grundvallarhagsmunun einstakra aðildarsamtaka.
21. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Formaður LÍÚ: Tekst okkur það sem Thatcher og Blair tókst ekki?
Adolf Guðmundsson, nýkjörinn formaður
Landssambands íslenskra útvegsmanna, er ómyrkur í máli um
Evrópusambandið og fiskveiðistefnu þess í viðtali í Fiskifréttum í
dag. Frá sjónarhóli íslensks sjávarútvegs höfum við ekkert inn í
Evrópusambandið að gera á meðan sjávarútvegsstefna þess er
óbreytt.
21. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Málstofa: Baráttan gegn ólöglegum fiskveiðum
Hafréttarstofnun Íslands og Lagadeild
Háskóla Íslands efna til málstofu undir yfirskriftinni Baráttan
gegn ólöglegum fiskveiðum nk. miðvikudag, 26. nóvember, kl. 12.30
14.00, í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101.
20. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Opinn dagur í landvinnslu Brims á Akureyri
Landvinnsla Brims hf. á
Akureyri efnir til opins dags frá kl. 13 16 nk. laugardag, 22.
nóvember, þar sem bæjarbúum og öðrum gestum er boðið að koma í
heimnsókn og kynna sér starfsemi fyrirtækisins við Fiskitanga.
20. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Ótrúverðugir stuðningsmenn ESB-aðildar
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB
Granda, heldur því fram í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í
morgun að stuðningsmenn ESB-aðildar verði aldrei trúverðugir nema
þeir takist á við þann vanda, sem sjávarútveginum verður búinn með
aðild.
19. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Kvótakerfið er grundvöllur arðbærni í sjávarútvegi“
Eiríkur Tómasson, forstjóri
Þorbjarnar hf. í Grindavík, segir í samtali við vefsíðu LÍÚ að hann
fái með engu móti skilið þá umræðu að einhver lausn felist í því að
riðla núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Kvótakerfið er
grundvöllur arðbærni í sjávarútvegi, önnur meginstoðanna sem
íslenska þjóðin byggir afkomu sína á, segir Eiríkur.
19. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
ESB freistar þess að bjarga þorskinum
Sjávarútvegsráðherrar
Evrópusambandsríkjanna hafa samþykkt áætlun sem miðar að því
að efla síminnkandi þorskstofna. Greint er frá þessu á vef BBC nú
fyrir stundu. Á meðal þess sem grípa á til eru endurbætt
veiðarfæri með stærri möskvum jafnframt því sem veiðar verða
bannaðar á hrygningarsvæðum.
18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
HB Grandi búinn með síldarkvótann innan norsku lögsögunnar
Skip HB Granda hafa nú lokið við að veiða
þann kvóta sem fékk í norsk-íslenskri síld innan norskrar lögsögu.
Þetta kemur fram á vefsíðu fyrirtækisins. Ingunn AK er nú á
leiðinni til Trænö í Norður-Noregi með um 390 tonna síldarafla.
18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Norðmenn krefjast banns við brottkasti ESB skipa
Norðmenn vilja binda enda á allt brottkast
afla sem veiddur er innan norskrar lögsögu. Fiskiskip, sem gerð eru
út frá Evrópusambandslöndum og veitt hafa við Noreg, hafa
sniðgengið bann Norðmanna við brottkasti með því að sigla út úr
lögsögunni áður en aflanum er kastað fyrir borð.
18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Efla þarf traust á íslensku krónunni“
Formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, Adolf
Guðmundsson og Friðrik J. Arngrímsson, hafa sent frá sér hvatningu
til útvegsmanna. Þar undirstrika þeir mikilvægi þess að útvegsmenn
haldi áfram að flytja gjaldeyri fyrir sölu afurða heim eins fljótt
og unnt er til þess að styðja við Áætlun Íslands um
efnahagsstöðugleika.
18. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Krónan er ykkar styrkur“
Ég veit að það hljómar ekki vel á Íslandi
þessa dagana en krónan er engu að síður ykkar styrkur í
efnahagsástandi eins og nú ríkir. Danska krónan hjálpaði okkur ekki
í kreppunni á sínum tíma, sagði Hermann Oskarsson, hagstofustjóri
Færeyja (sjá mynd til hægri), á morgunverðarfundi sem fram fór á
Grand Hótel í gær.
17. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti til ágústloka 63 milljarðar
Aflaverðmæti íslenskra skipa
nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2008
samanborið við 58,5 milljarða á sama tímabili árið 2007. Þetta
kemur fram í frétt Hagstofunnar í morgun. Aflaverðmæti hefur aukist
um um 4,6 milljarða eða 7,9% á milli ára. Aflaverðmæti í ágúst nam
8,9 milljörðum miðað við 6,2 milljarða í ágúst 2007.
17. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
NEAFC: Ekkert samkomulag um úthafskarfa á Reykjaneshrygg
Ekki náðist samkomulag um
veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg á 27. ársfundi
Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC, sem lauk í
London á föstudag. Ákveðið var að fresta viðræðum fram í febrúar og
veiðar eru óheimilar til 1. apríl.
14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Hvað þarf til þess að komast að samningaborði um makríl?
Hvað þarf til þess að Íslandi verði boðið
sæti við samningaborð um makrílveiðar? Þessari spurningu er velt
upp í grein eftir Sigurð Sverrisson, upplýsinga- og
kynningarfulltrúa LÍÚ, sem birtist í Fiskifréttum í dag. Í
greininni spyr hann einnig hvort enn meiri veiðar íslenskra skipa
innan lögsögunnar þurfi til þess að hægt sé að semja um veiðar á
makríl eins og öðrum deilistofnum í NA-Atlantshafi.
14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Framseljanlegir kvótar framtíðin innan ESB?
Framseljanlegir aflakvótar
líkt og þekkjast hér á landi eru á meðal þeirra hugmynda sem nú eru
skoðaðar innan Evrópusambandsins. Vinnuhópur, sem kynnti drög sín
fyrir skömmu, leggur til að róttækar breytingar verði gerðar á
fiskveiðistjórnunarstefnu ESB þegar hún kemur til endurskoðunar
árið 2012.
14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Seðlabankinn: Mikilvægi fullnægjandi greiðsluskýringa áréttað
Seðlabanki Íslands hefur á vefsíðu sinni
áréttað mikilvægi þess að fullnægjandi skýringar fylgi
greiðslufyrirmælum þannig að greiðslur á milli landa tefjist
ekki.
14. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Skoða þarf vandlega ástæður hugsanlegra erfiðleika
Mikilvægt er fyrir banka og
fjármálastofnanir að skoða vandlega ástæður hugsanlegra erfiðleika
sem íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru að glíma við í
fjármálakreppunni. Hugsanlega er það betri kostur fyrir
viðskiptabankana að afskrifa hluta skuldanna fremur en að ganga
hart að annars vel reknum fyrirtækjum.
13. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Um 87,5% kvótans hafa verið keypt“
Sú gagnrýni að útgerðarmenn
landsins geri út á gjafakvóta er á veikum grunni byggð því könnun
frá því í vor sýndi að um 87,5% aflaheimildanna sem úthlutað var
1984 hafa skipt um hendur og verið keyptar af núverandi
útgerðaraðilum. Aðeins um 12,5% upphaflegs kvóta er enn í eigu
þeirra sem fengu honum úthlutað, segir Adolf Guðmundsson, nýkjörinn
formaður LÍÚ.
12. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Aflamark í kolmunna ákveðið 590.000 tonn
Samkomulag hefur náðst á
meðal strandríkja um aflamark í kolmunna fyrir næsta ár. Samkvæmt
samkomulaginu verður heimilt að veiða 590.000 tonn. Hlutur
strandríkjanna verður 543.043 tonn, þar af fær Ísland 95.739 tonn í
sinn hlut.
11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
„Steinum kastað úr skosku glerhúsi“
Þessi frétt á vef BBC um ofveiði okkar á
makríl er full af rangfærslum. Til að kóróna vitleysuna er vitnað
er í talsmann skosku heimastjórnarinnar, sem kemur ekki einu sinni
fram undir nafni í fréttinni. Þegar meintur talsmaður sakar
Íslendinga um óábyrgar veiðar er verið að kasta steinum úr skosku
glerhúsi, segir Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og
kynningarfulltrúi LÍÚ.
11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Auðlindin snýr aftur á RÚV
Þátturinn Auðlindin á RÚV, sem
á sínum tíma fjallaði um sjávarúvegsmál, hefur göngu sína á ný á
morgun, miðvikudaginn 12. nóvember. Þátturinn verður á samtengdum
rásum ríkisútvarpsins alla virka daga kl. 18.15 í kjölfar styttri
kvöldfréttatíma. Umsjónarmenn þáttarins verða þeir Karl Eskil
Pálsson og Þórhallur Jósepsson.
11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
IntraFish: „Stinky fish“ herferðin mistókst
Stinky fish herferð World
Wildlife Fund, WWF og Marine Stewardship Council, MSC, snerist svo
í höndum samtakanna að þau urðu að endingu að draga hana til baka.
Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði sjávarútvegsfréttablaðsins
IntraFish, þar sem það tekur saman Það besta og versta á
árinu 2008.
11. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Aukinn botnfiskafli í október
Heildarbotnfiskafli íslenskra
fiskiskipa í október varð 9,3% meiri en í október í fyrra. Alls nam
veiðin 41.413 tonnum í samanburði við 37.899 tonn í sama mánuði á
síðasta ári. Heildaraflinn í nýliðnum mánuði var hins vegar
6,9% minni en í október 2007. Í ár veiddust alls 91.408 tonn en
98.132 í sama mánuði í fyrra.
10. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Rangir slægingarstuðlar: Hve mörg kíló eru í einu tonni?
Hve mörg kíló eru í einu
tonni? Eru þau 1000 eða aðeins 933,3? Svarið er ekki eins augljóst
og ætla mætti, a.m.k. ekki þegar kemur að því að vigta fisk við
löndun. Það er nefnilega ekki sama hver landar. Þessari mismunun
var velt upp í grein Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra
LÍÚ, í
Fiskifréttum fyrir nokkru.
10. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Geymsluréttur aflamarks verði 33% í stað 20%
Fyrsta umræða um frumvarp Einars K.
Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til laga um
breytingar á lögum um stjórn fiskveiða fer fram á Alþingi í
dag. Breytingarfrumvarpið felur í sér að heimilt verður að
flytja 33% aflamarks í botnfiski milli fiskveiðiára í stað 20%.
7. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Spá auknum botnfiskafla í heiminum á næsta ári
Botnfisksafli í heiminum kemur til með að
aukast lítillega á árinu 2009. Þetta mat sérfræðinga kom fram á
Groundfish Forum-ráðstefnunni, sem fram fór í Prag fyrir
skemmstu.
6. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Nýta þarf upplýsingar útgerðarinnar við stofnstærðarmat
Við stofnstærðarmat er nauðsynlegt að nýta
þær upplýsingar sem fyrir hendi eru í sjávarútvegsfyrirtækjunum.
Óþarfi er að eyða fjármunum og fyrirhöfn í að sækja gögn sem þegar
liggja fyrir. Þetta kom m.a. fram í erindi Kristjáns
Vilhelmssonar, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, á aðalfundi
LÍÚ í síðustu viku og Fiskifréttir fjalla ítarlega um í dag.
5. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Innan ESB hefðum við hent milljarðaverðmætum í sjóinn
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, segir gagnrýni fulltrúa Evrópusambandsins á
makrílveiðar Íslendinga í eigin lögsögu beinlínis hjákátlega.
Gagnrýnin kom fram á fundi strandríkja í London í síðustu viku, þar
sem heildarmakrílkvótinn í NA-Atlantshafi á næsta ári var ákveðinn
625.000 tonn að sögn norska blaðsins Fiskaren.
4. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Joe Borg: Endurskoða þarf fiskveiðistjórnunarkerfi ESB
Joe Borg, fiskimálastjóri ESB, segir
alvarleg brot á reglum fiskveiðistjórnunarkerfis sambandsins
undirstrika nauðsyn þess að endurskoða kerfið. Án virkrar
stjórnunar tekst okkur aldrei að snúa af þeirri braut hnignunar sem
nú einkennir evrópskan sjávarútveg, segir hann.
3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Síldarhólfið við Noreg opnað á ný
Búið er að opna aftur síldarveiðihólfið,
þar sem íslensku skipin Hákon EA, Vilhelm EA og Guðmundur VE voru
tekin fyrir að hafa veitt fyrir skömmu.
3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Ný stjórn LÍU kjörin á aðalfundi
Á aðalfundi LÍÚ 2008, sem
lauk á föstudag var Adolf Guðmundsson, Seyðisfirði kosinn nýr
formaður. Einnig komu tveir nýir menn inn í stjórn, þeir Haukur
Björnsson, Eskifirði og Ægir Páll Friðbertsson, Vestmannaeyjum.
3. Nóvember 2008 | ÚTVEGURINN
Úrskurðarnefnd hækkar verð um 3%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag, 3. nóvember, var ákveðið að hækka verð á slægðum þorski, slægðri og óslægðri ýsu svo og karfa, sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila, um 3% frá og með 3. nóvember.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Eigendur gjaldeyris hvattir til að bjóða hann til sölu
Seðlabankinn hvetur í frétt á vefsíðu
sinni útflytjendur og aðra þá sem eiga gjaldeyri eindregið til að
bjóða hann til sölu á tilboðsmarkaði. Með því telur bankinn að ætla
megi að unnt sé að auka veltu og styrkja verðmyndun á
tilboðsmarkaðnum. Eru þeir beðnir að snúa sér til
fjármálafyrirtækja sem eiga viðskipti við Seðlabankann og
fela þeim að koma tilboðum sínum á framfæri.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Adolf Guðmundsson kjörinn formaður LÍÚ
Adolf Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn
formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á 69. aðalfundi
samtakanna sem lauk í dag. Adolf tekur við formennsku af Björgólfi
Jóhannssyni sem verið hefur formaður LÍÚ sl. fimm ár.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Breytingar á kvótakerfinu „óábyrgt tal“
Breytingar á kvótakerfinu
koma ekki til greina að mati Geirs H. Haarde, forsætisráðherra.
Þetta kom fram í ávarpi hans á aðalfundi LÍÚ sem lauk fyrr í dag.
Allt tal um slíkt er fullkomlega óábyrgt, sagði ráðherrann.
Hann bætti því við að þegar að því kæmi að þorskkvóti yrði aukinn
myndu þeir njóta þess sem harðast hefðu orðið úti í niðurskurði
aflaheimilda.
31. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ 2008: Mismunun verði afnumin
Samþykkt var á aðalfundi
Landssambands íslenskra útvegsmanna í dag að beina því til
sjávarútvegsráðherra að tilflutningur aflaheimilda á milli
útgerðaflokka verði stöðvaður. Þannig verði línuívilnun og
byggðakvóti felld niður og slægingarstuðull leiðréttur.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Veraldarvinir hljóta Umhverfisverðlaun LÍÚ 2008
Samtökin Veraldarvinir hlutu
í dag Umhverfisverðlaun LÍÚ 2008 fyrir mikilvægt framlag við
hreinsun strandlengju Íslands. Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra afhenti Þórarni Ívarssyni, forsvarsmanni
samtakanna, verðlaunin á 69. aðalfundi LÍÚ sem hófst í dag.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Hagsmunir Íslands eru best tryggðir utan ESB
Björgólfur Jóhannsson,
fráfarandi formaður LÍÚ, sagði í ræðu sinni á aðalfundi sambandsins
í dag að hann væri algerlega ósammála þeim sjónarmiðum að Íslandi
sé fyrir bestu að gerast aðilar að Evrópusambandinu. Hann sagðist
telja þegar íslenskur almenningur kynnti sér betur hvernig að
þessum málum er staðið yrði honum ljóst að að hagsmunir Íslands eru
best tryggðir utan ESB.
30. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn burðarás íslenskt efnahagslífs
Við höfum kallað
sjávarútveginn burðarás efnahagslífsins á Íslandi og það hefur hann
sannarlega verið, sagði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra
m.a. í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ fyrr í dag. Hann bætti því við að
nú yrði lögð enn meiri ábyrgð á herðar greinarinnar.
28. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Þingmenn frá Evrópuþinginu í heimsókn
Hópur þingmanna frá
Evrópuþinginu sótti höfuðstöðvar LÍÚ heim í gær og átti fund með
forvígismönnum samtakanna. Staða efnahagsmála sem og staða
sjávarútvegsins var erlendu gestunum sérstaklega hugleikin.
28. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Fiskkaupmenn í Hull og Grimsby gripu til eigin ráða
Þegar sýnt var að fjöldi
hefðbundinna Fishnchips verslana á NA-Englandi yrði uppiskroppa með
íslenskan fisk vegna tregðu í bankamillifærslum á milli Bretlands
og Íslands gripu samtök fiskkaupmanna á Humber-svæðinu í Englandi
(Hull og Grimsby) til sinna eigin ráða.
24. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aðalfundur LÍÚ 2008 haldinn 30. og 31. október
Aðalfundur LÍÚ, sá 69. í röðinni, verður haldinn á Hilton Nordica Hótelinu dagana 30. og 31. október næstkomandi.
23. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Ísland sendir áheyrnarfulltrúa á strandríkjafund um makrílkvóta
Stefán Ásmundsson,
skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins staðfestir í samtali við Fiskifréttir, að
ákveðið hafi verið að þekkjast boð um að senda áheyrnarfulltrúa á
strandríkjafund um makrílkvóta næsta árs. Fundurinn verður í London
í næstu viku. Þetta kemur fram á vefsíðunni skip.is í
morgun.
22. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Danir leita ásjár ESB vegna makrílveiða í íslenskri landhelgi
Ég átta mig ekki alveg á því
af hverju Danirnir eru að biðja Evrópusambandið um að hlutast til
um hvernig við högum veiðum á deilistofnum innan okkar landhelgi.
ESB hefur ekkert um það segja þannig að þetta fellur um sjálft
sig, segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
21. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aflahefti Fiskistofu 2007/2008 er komið út
Fiskistofa gefur út aflahefti að loknu
hverju fiskveiðiári. Hefti fyrir síðasta fiskveiðiár er nýkomið út.
Aflaheftið
inniheldur uppgjör fiskveiðiársins. Aflinn borinn saman við
aflaheimildir. Settar eru fram ýmsar upplýsingar um veiðarnar og
viðskipti með aflaheimildir á nýliðnu fiskveiðiári með samanburði
við nokkur síðustu fiskveiðiára.
21. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Umboðsmaður Alþingis átelur seinagang ráðuneytis
Umboðsmaður Alþingis átelur í nýútkominni
skýrslu sinni seinagang stjórnvalda við að svara fyrirspurnum sem
þeim berast. Um er að ræða mál er varða m.a. úthlutun byggðakvóta.
Í skýrslunni tiltekur hann fimm mál sem send voru sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytinu frá desember 2007 og fram í febrúar
2008. Við ritun skýrslunnar um miðjan ágúst voru svör
enn ókomin.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aflaverðmæti 54 milljarðar fyrstu 7 mánuði ársins 2008
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 54
milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2008 samanborið við
52,2 milljarða á sama tímabili árið 2007. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í
morgun. Aflaverðmæti hefur aukist um um 1,8 milljarða eða 3,4% á
milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 8,7 milljörðum miðað við 5,7
milljarða í júlí 2007.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Ákveðið að auka þorskkvóta um 20% í Barentshafi
Samkomulag hefur náðst á milli Norðmanna
og Rússa um að auka þorskkvóta í Barentshafi um 20% frá
yfirstandandi ári. Kvótinn verður 525.000 tonn fyrir árið 2009.
Hlutdeild Íslands í leyfilegum heildarafla þorsks er 1,85%,
sem svarar til ríflega 9.700 tonna upp úr sjó.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Útgerðin í herkví vegna vandamála með greiðsluflæði
Starfsemi margra útgerðarfyrirtækja er í
óvissu sökum vandamála með greiðsluflæði á milli landa. Ein
meginorsök greiðsluflæðivandans er að endurreistir viðskiptabankar
eru ekki til í alþjóðlegum greiðslukerfum.
17. Október 2008 | ÚTVEGURINN
ÁRÍÐANDI FRÉTT - Opnað fyrir millifærslur fjármagns í Bretlandi
Breska fjármálaráðuneytið hefur sent frá
sér yfirlýsingu, Financial Sanctions Notice, til allra banka í
Bretlandi, þar sem tilkynnt er að opnað hafi verið fyrir allar
millifærslur fjármagns til Íslands í gegnum breska banka og einnig
Landsbankann ef ljóst er að ekki sé verið að flytja frysta eignir
Landsbankans til Íslands.
16. Október 2008 | ÚTVEGURINN
„Við munum komast í gegnum þetta“
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, var í viðtali í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Hann
sagði efnahagsáföll síðustu vikna vissulega hafa komið illa við
útgerðarfyrirtæki eins og aðra. Það er ljóst að ýmis
sjávarútvegsfyrirtæki eru að tapa mjög miklum peningum á
fjárfestingum í fjármálakerfinu, sagði Friðrik en bætti við: Við
munum komast í gegnum þetta.
16. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Góð veiði Þerneyjar á nýopnuðu karfahólfi
Frystitogarinn Þerney RE 101
kom til hafnar í Reykjavík á þriðjudagsmorgun með um 410 tonn af
frystum afurðum eftir mánaðarlangt úthald. Uppistaða aflans var
karfi sem veiddur var á karfahólfi út af Víkurál sem verið var að
opna eftir áralanga lokun. Þetta kemur fram á vefsíðu HB
Granda.
15. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn í tölum 2008
Heftið Sjávarútvegurinn í tölum 2008 er komið út á vegum Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Í þessu handhæga riti eru teknar saman helstu upplýsingar um íslenskan sjávarútveg, m.a. yfirlit yfir aflabrögð í meira en heila öld og hlutfall sjávarútvegs í vergri landsframleiðslu. Margvíslega aðra tölfræði er að finna í ritinu sem sett er fram á aðgengilegan hátt. Sérstök athygli er vakin á tengli á skýrsluna í PDF-formi á upphafssíðu vefs LÍÚ.
15. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Aukin aflabrögð í september
Heildarbotnfiskafli íslenskra fiskiskipa
nam 68.030 tonnum í september, sem er 33% meira en í sama mánuði á
síðasta ári. Aflinn var þá 51.075 tonn. Metinn á föstu verði
er aflinn 22,3% meiri en í september 2007. Það sem af er árinu
hefur aflinn hins vegar dregist saman um 4,1% miðað við sama
tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði.
14. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Blásið á tillögur Frjálslyndra
Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, blés í viðtali við ríkissjónvarpið í gærkvöld
á tillögur Frjálslynda flokksins um að ríkið leysti til sín allan
kvóta, yfirtæki skuldir sjávarútvegsins og setti í
auðlindasjóð. Friðrik sagði þjóðarbúið þegar hafa tekið á sig
nægar skuldir.
13. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Óhætt að heimila auknar þorskveiðar
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri
LÍÚ, segir í viðtali í nýjasta tölublaði Fiskifrétta óhætt að
heimila auknar þorskveiðar. Í viðtalinu vísar hann til þess að LÍÚ
hafi á síðasta ári lagt til að heimilað yrði að veiða 155-160
þúsund tonn af þorski og einnig á yfirstandandi fiskveiðiári. Sú
skoðun okkar hefur ekki breyst.
13. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Auknar veiðar á norsk-íslenskri síld lagðar til
Alþjóðahafrannsóknaráðið hefur lagt til
að veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum verði auknar í 1643
þúsund lestir á næsta ári. Þetta er aukning upp á ríflega 8% frá
síðustu ráðgjöf ráðsins. Kvóti Íslands í síldarstofninum fer
við þetta úr 220 þúsundum lesta í rúmlega 238 þúsund lestir.
10. Október 2008 | ÚTVEGURINN
LÍÚ ræður forstöðumann kynningarmála
Sigurður Sverrisson tók þann 1.
október sl. við starfi forstöðumanns upplýsinga- og
kynningarmála hjá LÍÚ.
9. Október 2008 | ÚTVEGURINN
FAO hrósar íslenskri fiskveiðistjórnun
Ísland og Nýja-Sjáland, ásamt
Ástralíu og Bandaríkjunum að hluta, eru nefnd sem dæmi um lönd þar
sem ábyrgri fiskveiðistjórnun er framfylgt. Þar er þó enn hægt að
gera betur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá FAO,
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Fréttavefur BBC
greindi frá þessu í gær.
8. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Íslenskt merki um ábyrgar fiskveiðar Íslendinga
Íslenskt merki um ábyrgar
fiskveiðar Íslendinga var kynnt á Íslensku sjávarútvegssýningunni
um síðustu helgi. Merkið er markaðstæki fyrir íslenska
framleiðendur sjávarafurða og viðbrögð við kröfum markaða um að
sjávarafurðir komi úr fiskistofnum, sem nýttir eru á ábyrgan
hátt.
8. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á óslægðum þorski hækkar um 7%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og
útvegsmanna í dag, 8. október, var ákveðið að hækka verð á óslægðum
þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra
aðila um 7% frá og með 8. október.
6. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Framúrskarandi fyrirtæki
Bergur-Huginn ehf.
í Vestmannaeyjum fékk verðlaun sem framúrskarandi
íslensk útgerð þegar Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2008 voru
afhent í Turninum í Kópavogi fyrir helgina. Í flokki
framúrskarandi fiskvinnslu fékk Skinney-Þinganes hf.
viðurkenningu.
3. Október 2008 | ÚTVEGURINN
Kristján heiðraður fyrir framlag sitt
Kristján Ragnarsson, fyrrum
formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, var í gær heiðraður fyrir
framúrskarandi framlag sitt til íslensks sjávarútvegs. Verðlaunin
hlaut hann í hófi þar sem Íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2008 voru
afhent.
26. September 2008 | ÚTVEGURINN
Henda sjö milljarða króna aflaverðmæti vegna ESB reglna
Skoskir sjómenn neyðast til þess að að
henda árlega fiski fyrir rúma 7 milljarða króna (40 milljónir
punda). Þetta kom fram á ráðstefnu sem skosk stjórnvöld héldu í
Edinborg í gær. Allt að einni milljón tonna af fiski er hent
í Norðursjónum árlega vegna ESB reglna.
25. September 2008 | ÚTVEGURINN
Norskir stórþingsmenn heimsækja skrifstofu LÍÚ
Hópur norskra stórþingsmanna
í Framfaraflokknum (Fremskrittspartiet) heimsótti skrifstofu LÍÚ í
dag til þess að kynna sér helstu málefni íslensks sjávarútvegs og
samskipti Norðmanna og Íslendinga á sviði sjávarútvegs.
23. September 2008 | ÚTVEGURINN
Talsmaður MSC hótar íslenskum sjávarútvegi.
Í fréttatíma Stöðvar 2 í gær, þann 22.
september 2008, var viðtal við Gísla Gíslason talsmann MSC (Marine
Stewardship Council) á Íslandi þar sem hann hélt því fram að
íslenskur sjávarútvegur þurfi að óttast þá afstöðu sem mótuð hefur
verið að undirgangast ekki vottun MSC.
19. September 2008 | ÚTVEGURINN
Adolf Guðmundsson býður sig fram til formanns LÍÚ
Adolf Guðmundsson
framkvæmdastjóri Gullbergs ehf á Seyðisfirði hefur tilkynnt að hann
muni bjóða sig fram til formanns Landssambands íslenskra
útvegsmanna á næsta aðalfundi samtakanna sem haldinn verður 30. og
31. október. Fyrir liggur að Björgólfur Jóhannsson mun ekki gefa
kost á sér til endurkjörs.
18. September 2008 | ÚTVEGURINN
Hvalamál - Nýjar upplýsingar á heimasíðu LÍÚ
Hér á síðunni vinstra megin
má sjá nýjan tengil - Hvalamál - sem fjallar vítt og breytt um
hvalamálefni. Þar má finna fjölda gagnlegra tengla um þennan
málaflokk. Lesendur eru hvattir til þess að kynna sér það efni
sem hér er í boði.
14. September 2008 | ÚTVEGURINN
Sjóminjasafninu Ósvör færð gjöf
Björgólfur Jóhannsson
formaður LÍÚ afhendir Finnboga Bernódussyni
safnverði peningagjöf til uppbyggingar sjóminjasafnsins
Ósvarar við Bolungarvík. Við hlið þeirra stendur Eiríkur Tómasson
varaformaður LÍÚ.
9. September 2008 | ÚTVEGURINN
NAMMCO leggur til kvóta á hnúfubak.
Svæðisbundin stjórnun hval-
og selveiða á Norður-Atlantshafi framundan?
NAMMCO, Norður-Atlantshaf sjávarspendýraráðið, ákvað á ársfundi sínum á Grænlandi í byrjun september að leggja veiðar Grænlendinga á hnúfubak við Vestur-Grænland fari ekki yfir 10 dýr á árinu 2009. Þessi tillaga er byggð á niðurstöðum NAMMCO frá árinu 2006 þess efnis að slíkar veiðar væru vel innan marka sjálfbærni. Jafnframt var það tekið með í myndina að stofn hnúfubaka við Vestur-Grænland á árinu 2007 væri stærri en árið 2005.
9. September 2008 | ÚTVEGURINN
Skoskar útgerðir fá 4,5 milljarða króna í olíustyrki og fleira
Skoskar útgerðir fá 4,5
milljaðra króna (29 milljónir punda) til að byrja með í styrki. Þar
af nemur olíustyrkurinn um 4,1 milljarði króna (26 milljónum
punda). Þetta segir í Fishing News International 15. ágúst
sl. og kom fram í máli í skoska dreifbýlis- og umhverfisráðherrans
Richards Lochhead.
5. September 2008 | ÚTVEGURINN
Útvegsmannafélag Vestfjarða leggur áherslu á að hvalveiðum verði haldið áfram
Hvorki stofnar hrefnu né langreyðar eru í
útrýmingarhættu og sjálfbærar veiðar í samræmi við tillögur
Hafrannsóknastofnunarinnar munu ekki ganga um of á þessa stofna að
mati vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins. Ráðið sjálft hefur
ennfremur úrskurðað að hvalveiðar Íslendinga séu fyllilega löglegar
segir í ályktun aðalfundar útvegsmannafélagsins.
5. September 2008 | ÚTVEGURINN
Kominn tími til að slá þessa línuívilnun af
Höfum við efni á að láta
detta niður ónotaðar 1.671 tonn af veiðiheimildum í þorski og 454
tonn af steinbít spyr Björn Jónsson sérfræðingur hjá LÍÚ
í greinargerð sem hann hefur tekið saman.
1. September 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á karfa, óslægðum þorski og óslægðri ýsu hækkar.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna í dag þann 1. september var ákveðið að hækka verð á karfa um 7% og hækka verð á óslægðum þorski um 10% og óslægðri ýsu um 5% frá og með 1. september.
28. Ágúst 2008 | ÚTVEGURINN
Mismunun grefur undan virðingu
Landssamband íslenskra útvegsmanna
hefur um árabil bent á þá mismunun sem felst í byggðakvóta og
línuívilnun. Því miður höfum við ekki náð eyrum ráðamanna því
frádráttur í þorski vegna línuívilnunar og byggðakvóta hefur aukist
úr 0,56% á fiskveiðiárinu 1999/2000 í 4,66% á þessu og næsta
fiskveiðiári og frádráttur í steinbít nemur 9,22% á næsta
fiskveiðiári.
13. Ágúst 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegsráðherra Grænlands heimsækir skrifstofu LÍÚ
Hér á landi er staddur
sjávarútvegs-, veiðimála- og landbúnaðarráðherra Grænlands, Finn
Karlsen í boði Einars K. Guðfinnsonar
sjávarútvegsráðherra. Heimsóknin hófst formlega í gær,
þriðjudaginn 12 ágúst. Ráðherrann heimsótti skrifstofu LÍÚ í
dag ásamt aðstoðarmanni sínum Hans Möller.
12. Ágúst 2008 | ÚTVEGURINN
Megum ekki láta kúga okkur svona
Viðtal í Morgunblaðinu 12. ágúst við framkvæmdastjóra LÍÚ.
Í síðustu viku greindi Morgunblaðið frá því að þrjár stærstu
stórmarkaðskeðjur
Sviss hafi hætt að selja íslenskan
villtan þorsk. Í viðtali við blaðið kom fram í máli Friðriks
J. Arngrímssonar framkvæmdastjóra LÍÚ að málið snúist ekki
aðeins um vottun sjálfbærra veiða, heldur sé tekist á um réttinn
til að stýra fiskveiðum og nýta villta fiskistofna hvort
lýðræðislega kjörin stjórnvöld geri það eða umhverfisverndarsamtök
í gegnum kjörbúðir. Viðtal Mbl við Friðrik fer hér á eftir.
25. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
Stórauknir styrkir í sjávarútvegi ESB landa
Eftir Svein Hjört Hjartarson hagfræðing
Í síðustu viku samþykkti ESB að auka
styrki til sjávarútvegs í aðildarlöndum sambandsins og veita alls 2
milljörðum evra (248 milljörðum króna) til ársins 2010. Í hlutfalli
af heildartekjum þeirra fimmtán fiskveiðiþjóða ESB sem hagstofa
sambandsins EUROSTAT birtir upplýsingar um fyrir árið 2006 nema
þessir styrkir 30% af árstekjum þeirra, en aflaverðmætið var 6,7
milljarðar (804 milljarðar króna).
16. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
ESB ákveður að styrka sjávarútveg sinn um 248 milljarða króna.
Á fundi sínum í gær þann 15. júlí
samþykkti ESB umfangsmikla framkvæmdaáætlun til ársins 2010
varðandi styrki til útgerða fiskiskipa í aðildarlöndum sínum. Alls
nema þessir styrkir um 2 milljörðum evra eða 248 milljörðum
íslenskra króna.
14. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
Olíustyrkir ESB viðhalda háu olíuverði
Samkvæmt Bloomberg
fréttaveitunni í dag er verð á olíutunninni í 145 dollurum í
framvirkum viðskiptum. Það segir okkur miðað við gengi á dollara í
dag og að í hverri tunnu séu 159 lítrar af olíu að verð á hráolíu
er nú um 70,00 íkr/lítra til olíuhreinsunarstöðva.
11. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
Evrópusambandið vill borga fyrir að binda fiskiskipin í höfn

ESB leggur til að borgað verði fyrir að binda fiskiskip aðildarlandanna í höfn á meðan unnið er að tillögum um hvernig hjálpa megi útgerðum til þess að lifa af hið gríðarlega háa olíuverð.
10. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
Skynsamleg ákvörðun aflamarks ?
Eftir Friðrik J Arngrímsson framkvæmdastjóra LÍÚ
Ákvörðun aflamarks er eitt mikilvægasta verkefni sjávarútvegsins. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er það sjávarútvegsráðherra sem ákveður aflamark einstakra fisktegunda að fengnum tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar.
2. Júlí 2008 | ÚTVEGURINN
Engin áhætta tekin með því að leyfa meiri þorskveiði
Ákvörðun um leyfilegan hámarksafla fiskveiðiárið 2008/2009
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir að ekki hefði verið tekin nein áhætta með því að leyfa 150-160 þúsund tonna þorskveiði á næsta fiskveiðiári, en þorksafli verður þá 130.000 tonn samkvæmt ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári, 2008-2009, sem kynnt var í gær. Hann telur aftur á móti að of langt hafi verið gengið við ákvörðun á ýsukvóta, en erfitt geti orðið að láta veiðar ganga upp með svo lítinn þorskafla á móti tiltölulega háum afla í ýsu og öðrum tegundum
20. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
ESB styrkir til útgerða vegna olíuverðshækkunar
Þegar sjávarútvegsráðherrar ESB landanna
hittast í Luxemborg í næstu viku mun olíuverðskrísan verða
helsta umræðuefnið á dagskrá fundarins. Mörg aðildarlönd ESB hafa
óskað eftir því að viðbrögð við háu olíuverði og slæm áhrif
þess á afkomu fiskveiða verði rædd. ESB hefur unnið fjölda tillagna
um hvernig bregðast megi við ört hækkandi olíuverði og lækka
tilkostnað við fiskveiðar í aðildarlöndunum.
19. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Framtíð sjávarútvegs
Alþjóðleg ráðstefna á Akureyri 12. júní 2008
Þann 12. júní sl. var haldin athyglisverð aþjóðleg ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri sem bar yfirskriftina Framtíð sjávarútvegsins. Ráðstefnan var haldin á Hótel KEA og í Borgum, glæsilegum húsakynnum háskólans. Meðal fyrirlesara voru bæði innlendir og erlendir fræðimenn og atvinnurekendur sem teljast margir hverjir fremstir á sínu sviði og fjölluðu þeir um það sem efst er á baugi á þeirra sviði í sjávarútveginum.
11. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á óslægðum þorski lækkar um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna 11. júní var ákveðið að lækka verð á óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 5% frá og með 11. júní
10. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Ánægja með vinnu í tengslum við íslenskt umhverfismerki
4. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Enn tillögur um samdrátt
3. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Sjávarútvegurinn stendur á traustum grunni
Hjörtur Gíslason, formaður Útvegsmannafélags Reykjavíkur. Ræða flutt á sjómannadegi í Reykjavík 2008.
Þjóð sem er jafn háð veiðum og við
Íslendingar verður að standa vörð um sjálfbæra nýtingu
fiskistofnanna. Við gerum kröfu til þeirra sem ætla að stjórna
landinu að þeir standi vörð um megin kjarnann í nýtingarstefnu
þjóðarinnar, sem er sjálfbær nýting náttúruauðlinda.
2. Júní 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á slægðum þorski, slægðri og óslægðri ýsu og karfa lækkar
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 2. júní var ákveðið að lækka verð á slægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um - 8%, slægðri og óslægðri ýsu um - 4% og lækka verð á karfa um - 5% frá og með 1. júní.
29. Maí 2008 | ÚTVEGURINN
Kvótinn hefur verið keyptur.
Megin þorri aflamarks frá 1984 hefur skipt um hendur.
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur kannað hversu stór hluti veiðiheimilda í tegundum sem voru kvótasettar 1984 hefur skipt um hendur við kaup á aflaheimildum og fyrirtækjum sem eiga aflaheimildir og vegna aðgerða stjórnvalda sem hafa aukið veiðirétt minni skipa. Niðurstaðan er sú að um 87,5% aflaheimildanna hefur skipt um hendur, en einungis 12,5% þeirra veiðiheimilda sem skipt var á milli fyrirtækja og einstaklinga í aflamarkskerfinu 1984 eru enn í eigu sömu aðila.
21. Maí 2008 | ÚTVEGURINN
Sala sjávarafurða og rétturinn til að nýta fiskistofna
Látlaus andróður alþjóðlegra umhverfissamtaka
Eftir Dr.Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðing LÍÚ.
,,Nokkrir aðilar á vegum umhverfissamtaka
bjóða vottun sjálfbærra veiða og umhverfismerki. Þeir leitast við
að taka sér stöðu sem hliðverðir inn í matvælaverslanir, vilja ná
einokunaraðstöðu en hafa lítinn skilning á viðfangsefninu
20. Maí 2008 | ÚTVEGURINN
Fagna ákvörðun sjávarútvegsráðherra
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi fagna þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að hefja skuli hrefnuveiðar. Sú ákvörðun er í samræmi við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda hafsins og ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10. mars 1999.
2. Maí 2008 | ÚTVEGURINN
Samstarf og samráð grundvallaratriði
Fundur um lagningu og öryggi sæstrengja
Náið samstarf og samráð sjávarútvegs-og fjarskiptafyrirtækja þar sem tekið er tillit til ólíkra hagsmuna er grundvallaratriði við lagningu sæstrengja. Bætt fjarskipti eru mikilvæg fyrir sjávarútveginn og samfélagið allt, en einnig er mikilvægt að forðast að sæstrengir séu lagðir um verðmæta fiskislóð. Þetta kom m.a. fram í erindi Dr. Kristjáns Þórarinssonar, stofnvisfræðings LÍÚ, sem hann flutti á aðalfundi ICPC (International Cable Protection Committee) nýlega, en félagar í þeim samtökum eru fjarskiptafyrirtæki víða að úr heiminum (þ.á.m. Síminn og Farice), framleiðendur sæstrengja og þjónustuaðilar. Yfirskrift fundarins var "Sharing the seabed in harmony with others" sem í íslenskri þýðingu gæti verið Að deila hafsbotninum í sátt við aðra".
23. Apríl 2008 | ÚTVEGURINN
Villandi málflutningur mun ekki stuðla að sjálfbærri nýtingu
18. Apríl 2008 | ÚTVEGURINN
Tækniskóli Íslands - skóli atvinnulífsins
Sameinaður skóli fær nýtt nafn
Tækniskóli Íslands skóli
atvinnulífsins, er nafn hins nýja skóla sem verður til með
sameiningu Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík.
Menntamálaráðherra afhjúpaði nafn og merki skólans með aðstoð
skólameistaranna, Jóns B. Stefánssonar og Baldurs Gíslasonar, í gær
á sýningunni Verk og vit sem fram fer nú í
Laugardalshöll.
2. Apríl 2008 | ÚTVEGURINN
Styrkur til náms í fiskifræði og skyldum greinum
Landssamband íslenskra útvegsmanna auglýsir styrk til framhaldsnáms í fiskifræði, sjávarvistfræði, sjávarlíffræði, fiskalífeðlisfræði, haffræði, veiðarfærafræði og skyldum greinum. Styrkurinn er ætlaður þeim sem hafa lokið eða eru að ljúka háskólanámi og hyggjast stunda framhaldsnám erlendis á næsta skólaári. Styrkupphæð er kr. 700.000,-.
1. Apríl 2008 | ÚTVEGURINN
Verð á ýsu hækkar um 10%
Ákvörðun um fiskverð
Á fundi í úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna sem haldinn var í dag var ákveðið að hækka verð á slægðri og óslægðri ýsu um 10%. Þessi ákvörðun gildir frá og með 1.apríl.
11. Mars 2008 | ÚTVEGURINN
Félagsmenn LÍÚ hvattir til að nýta kosti Fjölnetsins
Útflutningur á ísvörðum fiski í gámum.
Á fundi stjórnar LÍÚ föstudaginn 7. mars var samþykkt að skora á félagsmenn að nýta sér kosti Fjölnetsins sem er uppboðskerfi rekið af Reiknistofu fiskmarkaða. Með því geta innlendir aðilar með enn auðveldari hætti boðið í fisk sem senda á ísvarinn í gámum á erlenda fiskmarkaði og selja þar.
10. Mars 2008 | ÚTVEGURINN
Rætt um öryggismál sjómanna
Hvernig er hægt að auka öryggi
sjómanna og fækka slysum, var meginviðfangsefni fundar sem haldinn
var s.l. fimmtudag 6. mars. Fundinn sóttu auk fulltrúa
útgerðarmanna og sjómanna, aðilar frá samgönguráðuneyti,
tryggingafélögum, Rannsóknarnefnd sjóslysa, Siglingamálastofnun,
Slysavarnarskóla sjómanna, Fjöltækniskóla Íslands,
Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og Heilsuverndarstöðinni.
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Fjöltækniskóli Íslands og Iðnskólinn sameinast
Til verður stærsti framhaldsskóli landsins
Samningur um sameiningu
Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík var undirritaður í
dag. Samkvæmt samningnum mun Menntafélagið ehf. annast rekstur nýs
skóla sem verður stærsti framhaldsskóla landsins og lang stærsti
starfsmenntaskólinn á framhaldsskólastigi með um 2000 nemendur í
reglulegu námi og ef nemendur í kvöldskóla, fjarnámi og á
námskeiðum eru taldir með eru þeir vel yfir 3000. Námsbrautir í
skólanum verða um 40 talsins. Menntafélagið ehf. er í eigu Samtaka
iðnaðarins, Landssambands íslenskra útvegsmanna, Samorku, Sambands
íslenskra kaupskipaútgerða og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík.
Samningurinn er til fimm ára og gildir frá 1. júlí 2008. Viðræður
um sameiningu skólanna hafa staðið í á annað ár.
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Þorskverð hækkar um 5%
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 29. febrúar var ákveðið að hækka verð á slægðum og óslægðum þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 5%. Verð á karfa lækkar um 5% en verð á slægðri og óslægðri ýsu er óbreytt. Breytingar þessar taka gildi frá og með 1. mars. n.k.
29. Febrúar 2008 | ÚTVEGURINN
Japönsk stjórnvöld íhuga að taka upp aflamarkskerfi
Japönsk stjórnvöld
íhuga að taka upp aflamarkskerfi með framseljanlegum aflaheimildum.
Þetta kom fram á fundi sem fulltrúar LÍÚ áttu með Dr. Masayuki
Komatsu en hann á sæti í svokallaðri Takagi nefnd um umbætur á
stjórnun veiða við Japan, en miklir erfiðleikar steðja þar að
sjávarútvegi um þessar mundir.
31. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Viðmiðunarverð á þorski hækkar um 8% og ýsu um 7% þann 1. febrúar.
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 31. janúar var ákveðið að hækka verð á þorski sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur er til skyldra aðila um 8% og ýsu um 7% frá og með 1. febrúar n.k Viðmiðunarverð á karfa er óbreytt.
11. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Álitið hefur ekkert lagalegt gildi á Íslandi
9. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Nýting loðnustofnsins, áhrif veiða og staða rannsókna
Hafrannsóknastofnunin svarar bréfi LÍÚ um nýtingu loðnustofnsins og áhrif veiða.
Aðalfundur LÍÚ 2005 ályktaði
um mikilvægi rannsókna á loðnu og beindi því til
sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknastofnunarinnar að
loðnurannsóknir yrðu auknar til muna, en loðnan gegnir afar
mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar við Ísland.
9. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Lífleg ráðstefna um menntun og atvinnulíf
Menntun og atvinnulíf var
yfirskrift ráðstefnu sem haldin var í Fjöltækniskóla Íslands í gær
8. janúar. Markmið ráðstefnunnar var að efla umræðuna á
milli þeirra er starfa innan skólakerfisins og aðila
atvinnulífsins.
3. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Útgerðarmenn kjörnir Eyjamaður ársins 2007
Útgerðarmenn í Vestmannaeyjum hafa verið kjörnir Eyjamaður ársins 2007 af vikublaðinu Fréttum, en blaðið veitir árlega verðlaun, svokallaðan Fréttapíramída, til að vekja athygli á þeim einstaklingum, fyrirtækjum og félögum sem skara framúr vegna elju og dugnaðar. Að þessu sinni þótti við hæfi að velja hóp manna í stað þess að velja einstakling, en á árinu voru útvegsmenn duglegir við að endurnýja skipakost sinn og komu sex ný skip til Vestmannaeyja, Guðmundur, Vestmannaey, Bergey, Gullberg, Álsey og loks Dala Rafn. Þá eru a.m.k. þrjú skip í smíðum fyrir Eyjamenn.
3. Janúar 2008 | ÚTVEGURINN
Afhentu sjúkrahúsinu í Eyjum veglega gjöf
Núverandi og fyrrverandi útgerðarmenn í Vestmannaeyjum, í samvinnu við kvennfélagið Líkn, afhentu Sjúkrahúsi Vestmannaeyja nýlega sjúkrarúm og tæki að andvirði 38 milljóna króna.













