Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fréttir

28. September 2007 | ÚTVEGURINN

LÍÚ styrkir vélstjórnardeild Menntaskólans á Ísafirði

Einar Valur Kristjánsson, formaður Útvegsmannafélags Vestfjarða, afhenti í gær vélstjórnardeild Menntaskólans á Ísafirði eina milljón króna, en stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna ákvað á stjórnarfundi nýlega að styrkja vélstjórnarnámið á Ísafirði með þessum hætti.

24. September 2007 | ÚTVEGURINN

Mótvægisaðgerðir

Skoðun Sveins Hjartar Hjartarsonar í Fiskifréttum 21. sept. 2007

Það kom væntanlega engum á óvart að stjórnvöld skyldu bregðist við þeim vanda sem við er að glíma vegna minni aflaheimilda í þorski. Flestir bjuggust við að mótvægisaðgerðirnar yrðu af almennum toga og myndu ekki mismuna aðilum í sjávarútveginum. Það er óhætt að segja að eftirvæntingin eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar hafi breyst  í undrun þegar þær voru kynntar við hátíðlega athöfn á blaðamannafundi í nýlega. Í meginatriðum snéru þær alls ekkert að sjávarútveginum.

21. September 2007 | ÚTVEGURINN

Hagræðingin felst fyrst og fremst í fækkun fiskiskipa

-- segir Eiríkur Tómasson forstjóri Þorbjarnar hf. í viðtali við Fiskifréttir

Deilur hafa staðið um kvótakerfið frá upphafi þess árið 1984. Ýmist eru menn á móti kerfinu og finna því allt til foráttu eða að þeir styðja kerfið og telja það besta fiskveiðistjórnunarkerfi sem völ er á. Eiríkur Tómasson, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík, er einn þeirra sem telur kvótakerfið gott og að staða sjávarútvegsfyrirtækja hafi batnað með tilkomu þess. Eiríkur segist vilja sjá minni afskipti stjórnvalda af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og að stjórnendum verði gert kleift að reka þau eins og önnur fyrirtæki í landinu. 

21. September 2007 | ÚTVEGURINN

Að taka af einum og færa öðrum

Rafn Guðlaugsson skipstjóri á Katrínu SH í viðtali við Fiskifréttir

,,Sjávarútvegsráðherra er að reyna að uppræta ræningjaveiðar erlendra skipa hérna við íslensku lögsöguna en hvað er það annað en rán að hrifsa sífellt aflaheimildir af okkur sem eru á aflamarki og færa það til krókakarlanna í smábátakerfinu. Ráðherrann ræðst ofan í budduna hjá okkur og réttir peningana öðrum. Ég er með afar litlar þorskveiðiheimildir en samt eru tekin af mér 7 kvótatonn í línuívilnun og byggðakvóta. Ef ég leigði þessar heimildir frá mér fengi ég 1,4 milljónir króna fyrir þær og ef ég seldi þær fengi ég 21 milljón króna. Ég sætt mig ekki við svona meðferð. Við megum ekki gefast upp í baráttunni gegn þessu óréttlæti og þessari mismunun. Við höfum verið alltof linir til þessa, sagði Rafn Guðlaugsson skipstjóri og útgerðarmaður netabátsins Katrínar SH í samtali við Fiskifréttir. 

10. September 2007 | ÚTVEGURINN

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ 2007

Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna LÍÚ fyrir árið 2007. Allir félagar í LÍÚ koma til greina sem handhafar verðlaunanna.  

3. September 2007 | ÚTVEGURINN

Friðrik Friðriksson hefur störf sem lögfræðingur LÍÚ.

Friðrik Friðriksson hefur hafið störf sem lögfræðingur LÍÚ.  Friðrik er 34 ára, kvæntur og á tvö börn. Hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2000, fékk lögmannsréttindi 2001 og hefur einnig lagt stund á nám í mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta